Þjóðviljinn - 25.01.1991, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 25.01.1991, Blaðsíða 13
Hreyfing og bætt mataræði er það eina sem getur losað menn úr viðjum fitunnar ósvipað drykkjusjúklingum. Guð- björg segir átsýki vera hugar- ástand. Fólk borðar. sér stundum til huggunar. En hún segir sig ekki geta svarað því hvers vegna fólk borði sér til óbóta. „Gæti ég það sæti ég ekki hér heldur uppi á hárri súlu og miðlaði öðrum af visku minni.“ Hvemig liður þeim sem á orðið við alvarlegt offituvanda- mál að stríða? -Óskaplega illa. Þeir sem orðnir eru allt of feitir einangrast félagslega, jafhvel frá eigin fjöl- skyldu. Fólk sem er of feitt finnst það sífellt vera sveitt og skítugt, það fyrirverður sig fyrir útlitið og fer lítið á mannamót. Likamleg vanlíðan er líka mikil. Ég reyni að útskýra líkamlegu þættina fyrir þeim sem til mín leita. Fólk á ekki bara að grenna sig fyrir spegilinn. -Helmingurinn af þeim sem hingað koma á grunnnámskeið velja sér leið sem kallast breytt mataræði, sagði Hilmar Bjöms- son, ffamkvæmdastjóri Máttar. Hann sagði miðaldra fólk sækja stöðina mikið. Það væri ekki ein- göngu ungt fólk sem hefði áhuga á heilsu sinni. Hilmar sagði að það væri engin spuming að marg- ir þyrftu að grennast um að með- altali 10 kiló. Olafúr Sæmundsson næring- arfræðingur sagði að vildu menn grennast yrðu þeir að taka upp breyttar lífsvenjur. Fólk neytti allt of mikillar fitu og of lítils kol- Smátt og smátt læðist fitan utan á menn eftir að þeir hafa náð þri- tugsaldrinum. Helmingur ís- lenskra karla á aldrinum 35-45 ára rogast með nokkur óæskileg aukakiló. Mynd: Jim Smart. vetnis. Fólk yrði að draga úr feit- um ostum og sósum og sleppa unnum kjötvörum. Borða þijár léttar máltíðir á dag og leggja áherslu á góðan morgunverð. Hann ráðlagði fólki alls ekki að svelta sig, reynslan sýndi að það leiddi oft til ofáts. Mataræði og aukin hreyfing verður að fylgjast að, menn verða að breyta lífsmynstri sínu til ffambúðar. Kúrar eins og sítrónu- kúrinn þar sem fólki er lofað að það léttist um hálft kíló á dag geta verið hættulegir. Það er raunhæft að léttast um hálft kíló á viku. Kúrar á borð við sítrónukúrinn geta snúist upp í andhverfú sína því að vöðvar líkamans geta rým- að við sveltið. Þegar viðkomandi tekur upp fyrra mataræði eftir kúrinn þyngist hann meira en áð- ur því að orkuþörfin hefur minnk- að eftir kúrinn. Verö stýrir neyslu Flestir virðast sammála um að landanum veitti ekki af að losna við nokkur kíló og taka upp betri neysluvenjur. Harður áróður hef- ur verið rekinn gegn reykingum og áfengisneyslu, einnig hafa stjómvöld og læknar miðlað ffæðslu um mikilvægi hollrar fæðu. Neyslukannanir víða um heim sýna hins vegar að verð- lagning á matvælum hefur mikil áhrif á mataræði manna og sums staðar er augljós stéttaskipting í neyslu. Hér á landi er ferskt græn- meti, nýr fiskur og magurt kjöt dýr matur. Sykur er ódýr enda eiga íslendingar heimsmet í syk- ur- og sælgætisáti. Þegar ódýrara er að kaupa sælgæti en ávexti og grænmeti getur reynst erfitt að breyta neysluvenjum þjóðarinnar. BE Meiri hreyfing og færri hitaeiningar er þaö eina sem dugir ( baráttunni við aukakdóin. Það em ekki til neinar einfaldar lausnir eða kúrar. Myndina tók Jim Smart af hressum hádegishoppurum ( Mætti. ámm var gerð könnun á líkams- þyngd íslendinga; þá fannst varla nokkur maður sem átti við offitu- vandamál að stríða. Á þessu hefúr orðið mikil breyting. Hefur feitum bömum fjölg- að? -Við höfum ekki kannað hæð og þyngd þeirra sem em yngri en 25 ára. Þyngdaraukning byrjar oftast um þrítugt. Fram undir þrí- tugt þurfa menn oft að leggja mik- ið á sig til að koma sér upp þaki yfir höfúðið o.fl. Halda stöðugri þyngd Um þritugt em menn oft komnir í ömgga ffamtíðarstöðu og fara að slaka á. Þá fara þeir einnig að fitna. Er þetta mynstur það sama hjá konum og körlum? -Það er mjög svipað. Offita er álíka algengt vandamál hjá báð- um kynjum. Hvað er heppileg líkams- þyngd? -Það hafa verið gefnar út margar töflur um kjörþyngd manna. Líftryggingafélög í Bandaríkjunum létu gera slíkar töflur. Þeir byggðu niðurstöður sínar eingöngu á þeim sem vom líftryggðir. Þetta er hins vegar sér- stakur hópur, inni í honum em ekki þeir verst settu né þeir best settu sem ekki þurfa á líftrygging- um að halda. Kjörþyngdartöflur gáfú þannig einungis mynd af millistéttarfólki. Slíkar töflur er ekki hægt að yfirfæra á samfélög hugsunarlaust. Þegar gerðar em þyngdartöflur með réttara úrtaki koma mun hærri tölur út. Mestu máli skiptir að fólk haldi þyngd sinni stöðugri. Skyndileg þyngdaraukning getur verið hættuleg. Hefur islenska vömbin stœkk- að með tilkomu bjórsins? -Það er of snemmt að segja nokkuð til um það. Erfitt er að meta áhrif eins einstaks þáttar, en þyngd manna er heldur að aukast. Hvemig stendur á því að menn halda áfram að þyngjast á tímum upplýsinga og heilsuœðis? -Það er talsvert flókið dæmi hvað það er sem ræður því hvað menn kaupa í matinn. Mismund- andi er hvað matur inniheldur mikið af hitaeiningum. Fæði sem er hitaeiningasnautt er oft dýrt. Komið hefúr í ljós að fólk kaupir það sem það hefúr efúi á en ekki það sem er hollast. I Bretlandi byggir fæði lægstu þjóðfélags- stéttanna mikið á hvítu hveiti og annarri ódýrri fæðu, sem er hins vegar næringarlítil en hitaeininga- mikil. Á Islandi hefur verið rekin sú stefna að niðurgeiða hvítt hveiti og sykur. Það hefúr leitt til mikillar neyslu matvöm sem inni- heldur sykur og hveiti og gerir enn. Grænmeti, magurt kjöt og fiskur em allt dýrar vömr og margir hafa hreinlega ekki efni á að borða rétt fæði. Hvað ráðleggur þú fólki sem vill grennast? -Fyrst og fremst að gera sér hlutina ekki of erfiða og vera ekki of óþolinmótt. Það þýðir ekki að vigta sig á hveijum degi. Það er sálrænt atriði að sjá árangur og þess vegna er mikilvægt að vigta sig ekki of oft. Það er óraunhæft að ætla að léttast um mörg kíló á nokkmm dögum. Hætta sykuráti Ráðleggingar geta hljómað einfaldar en það er erfitt að fara eftir þeim. Menn sem vilja grenn- ast verða að borða minna og hreyfa sig meira. Ég held að farsælasta lausnin sé að breyta tiltölulega lítið um lífsmynstur. Oft dugar að hætta að borða sykur. Menn gera sér ofl ekki grein fyrir hvað sykur er í mörgum fæðutegundum. Það þarf ekki mikið til að snúa þróuninni við. Eitt kíló á ári getur smám saman komið þyngdinni niður og til að losna við það þurfa menn ekki að neita sér um margt. En það skiptir sköpum að menn grennist dálítið í stað þess að bæta enn við sig. Þú sagðir fyrr í viðtalinu að Norðurlandabúar væru ekki sér- staklega feitlagnir. Hversu feit- lagnir eru Islendingar í saman- burði við aðrar þjóðir? —Ef við lítum á töflu þar sem grannvaxnar þjóðir em ofarlega á lista en feitlagnar neðarlega kem- ur í ljós að Islendingar em þar mjög ofarlega á lista. Neðst á list- anum em fyrrverandi austan- tjaldsþjóðir. Það kemur ekki á óvart því að lítið ffamboð er af fersku fæði eins og grænmeti og nýjum fiski. Fólk neytir mikils af kartöflum, hvítu hveiti og sykri og annarri ódýrri fæðu. BE Föstudagur 25. janúar 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA13

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.