Þjóðviljinn - 25.01.1991, Qupperneq 24
Föstudagur 25. janúar 1991 - 56. árgangur 17. tölublað
Múlakaffi er einn föstu punktanna (tilverunni á þorranum, en þar hefur
verið boðið upp á heföbundinn þorramat (tæp þrjátíu ár. Vegna hval-
veiðibannsins verður ekkert um súran hval ( ár, en þeir ( Múlakaffi eru
ekki ginnkeyptir fyrir súru lúöunni eða hvallíkinu sem þeir kalla svo, og
segja þorrann ekki þann tíma ársins að hæfi að brydda upp á nýjungum
I matargerð. I stað hvalsins ætla þeir I ár að leggja sérstaka áherslu á
s(ld og sérrétti, ásamt öllum hefðbundna þorramatnum. Mynd: Kristinn.
Þorrinn
Fyrsti dagur
þorra í dag
Konur gleymi ekki að gefa körlum sínum blóm
á bóndadegi
Idag hefst þorrinn, þessi
mánuður fornrar íslenskrar
matargerðar, þegar við nútíma-
fólkið kaupum dýru verði og
borðum til hátíðabrigða þann
mat sem formæður okkar og
forfeður urðu að borða og nýta
til að veslast ekki upp úr ófeiti
eins og það var kallað.
Lundabaggar og bringukollar,
feitir vel, súr sviðasulta og súrir
hrútspungar, flatbrauð og rúg-
brauð, hangikjöt og harðfiskur og
síðast en ekíci síst unaður sem
ekki verður með orðum iýst: há-
kall, hákall, hákall; vel kæstur og
angandi, - ó, þessi ilman sem
kemur munnvatninu til að renna í
virkjunarmagni.
Þorrinn er fjórði mánuður
vetrar að fomu íslensku tímatali
og hefst á föstudegi í þrettándu
viku vetrar. Hann mun hafa verið
vetrarvættur en með kristnitöku
var dýrkun hans bönnuð og hófst
ekki aftur fyrr en með trúfrelsi á
síðari hluta nítjándu aldar.
Þorranum fylgir hækkandi sól
og ofurlítil bjartsýni og að sjálf-
sögðu þorrablótin þar sem menn
éta á sig gat af þorramat og hlæja
sig máttlausa að óförum sveit-
unga sinna á árinu sem liðið er.
Sumir skandalísera léttilega ef
brennivínið er nógu kalt og nógu
mikið, og uppákomur á þorrablót-
um eru gjaman uppspretta
skemmtisagna og fögnuðar
manna á meðal í langan tíma á
eftir. Ginstaka gikkur sem ekki
leggur sér sumar tegundir þorra-
matarins til munns, en er samt
nógu frakkur til að mæta á þorra-
blótin, verður þá að sjálfsögðu
fyrir hvers konar aðkasti og nær
skemmtunin hámarki ef tekst að
svindla eins og einum hákallsbita
ofan í hann.
Aður fyrr var þorrinn ein-
göngu blótaður á fyrsta degi
þorra, en nú á dögum er allur
þorrinn hafður undir til blóta.
Fyrsti dagur þorra er kallaður
bóndadagur og ætlast þá eigin-
menn gjaman til þess að konur
þeirra gefi þeim blóm og séu blíð-
ari við þá en aðra daga, en síðasti
dagur þorra kallast þorraþræll og
er hann tileinkaður piparsveinum
og öðrum einhleypum körlum en
ekki finnast heimildir um hvort
konur skuli aumka sig sérstaklega
yfir þá þennan dag með blíðuhót-
um og eftirlátssemi.
ing
VERTU MEÐ - ÞAÐ ER GALDURINN i
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI: 681511 LUKKULÍNA: 991000