Þjóðviljinn - 11.05.1991, Page 7
Major:
Knýjum Saddam frá völdum
Allt var í gær á huldu um
hvernig gengi í viðræðum
Kúrda og íraksstjórnar í Bag-
dað, íraksstjórn segist ekki
taka í mál að gæslusveitir á veg-
um Sameinuðu þjóðanna verði
sendar til íraska Kúrdistans og
John Major, forsætisráðherra
Breta, sagði í ræðu að Bretar
myndu með beitingu neitunar-
valds síns í Öryggisráði S.þ.
koma í veg fyrir að nokkuð yrði
siakað á viðskiptabanninu gegn
írak meðan Saddam forseti
Hussein væri þar við völd.
Talið er að helstu ágreinings-
atriðin í viðræðum fulltrúa Kúrda
og íraksstjómar séu kröfiir Kúrda
um alþjóðlega ábyrgð á samning-
rnn þessara aðila og olíuborgina
Kirkuk, en hvomga af þeim kröf-
um vill íraksstjóm samþykkja.
Viðræðumar fara nú ffam með
mikilli leynd og segir Reuters-
fféttamaður einn að stemmningin
kringum þær minni á tvær af sög-
um Agöthu Christie, sem einmitt
gerast í Bagdað, þar sem skáld-
konan raunar dvaldist er hún
skrifaði þær. Sögur þessar era
Murder in Mesopotamia og They
Came to Baghdad. í þeirri síðar-
nefndu er bæði um að ræða morð
og ráðstefnu.
Tillagan um að lið á vegum
Sameinuðu þjóðanna taki við af
vesturlandahersveitum í íraska
Kúrdistan er undan rifjum vestur-
veldanna rannin, en í gær kvaðst
Perez de Cuellar, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, hafa
fengið orðsendingu frá íraks-
stjóm þar sem „mjög skýrt“ væri
tekið fram að sú stjóm vildi ekk-
ert lið frá S.þ. til eftirlits á svæð-
inu.
Vesturveldin munu hafa von-
ast til að íraksstjóm þætti illskárra
að hafa lið undir merkjum S.þ. í
Norður-Irak til vemdar Kúrdum
en vesturlandahersveitir. John
Bolton, aðstoðaratanrikisráðherra
Bandaríkjanna, lagði áherslu á
það í gær að stjórn hans liti ekki
svo á að „nei“ íraksstjómar i
þessu máli væri endanlegt. Hann
benti einnig á að margt hefði ver-
Kúrdneskt bam, sem ekki lifði af flóttann að heiman, laugað áður en það er borið til grafar í flóttamannabúð-
um í (ran. Dánartalan i flóttamannabúðunum hefur lækkað vegna hjálpar sem berst utan frá, en margir, eink-
um börn, deyja þó enn af afleiðingum þess sem yfir þá gekk á flóttanum. Og enn er allt (óvissu um hvort gerð-
ar verða ráðstafanir, sem duga til að tryggja Kúrdum öryggi í þeirra eigin landi.
ið hafst að á vegum S.þ. í Afgan-
istan án samþykkis stjómarinnar
þar og hið sama gæti komið til
greina í Irak.
Douglas Hurd, utanríkisráð-
herra Breta, flutti einnig ræðu í
gær og sagði m.a. að Saddam ír-
aksforseti stæði í vegi fyrir því að
kúrdneskir flóttamenn fengju
vemd, að friður til frambúðar yrði
tryggður milli íraks og Kúvæts og
að viðskiptabanninu gegn írak
yrði aflétt. „Ekki getur til greina
komið að neitt verði slakað á við-
skiptabanninu meðan ofsóknir
Saddams gegn minnihlutum
halda áfram,“ sagði Hurd. Hann
sagði og að heimssamfélagið yrði
að halda áfram að sjá Kúrdum
fyrir vemd, hvort sem írakar sam-
þykktu að gæslulið á vegum S.þ.
annaðist þá vemd eða ekki.
AD UTAN
Umsjón
Dagur
Þorleifsson:
Rudolf Serkin
látinn
Rudolf Serkin
Á miðvikudagsnótt lést í Gu-
ilford í Vermont, Bandaríkjun-
um, Rudolf Serkin, sem talinn
er einn snjöllustu einleikara á
píanó á þessari öld. Hann fædd-
ist 1903 í Eger (nú Cheb) í Bæ-
heimi og voru foreldrar hans
rússneskir. í Bandaríkjunum
hefur hann búið síðan á fjórða
áratugi.
Serkin, sem byijaði að spila á
tónleikum sex ára, hafði áhrif á
fjölda tónlistarmanna með flutn-
ingi tónlistar og kennslu. 1949
stóð hann að því að stofna til ár-
legrar tónlistarhátíðar í Marlboro í
Vermont og varð þessi litla borg í
fylki, sem ekki er beint í alfara-
leið, við það mekka tónlistar-
manna um víða veröld.
Serkin lætur eftir sig eigin-
konu, sex böm og 11 bamaböm.
Sovéskir
hermenn særðir
Níu sovéskir hermenn særð-
ust í gær er skotið var á þá við
landamæri Armeníu og Aserbæd-
sjans. Mun þetta vera í fyrsta
sinn, sem sovésku herflokkamir,
er ásamt aserskum lögreglusveit-
um eiga í átökum við Armena,
verða fyrir teljandi manntjóni.
Armenar segja að 48 manns
a.m.k. hafi verið drepnir í átökun-
um en Aserar 20.
Rettarhálsi 2 - 110 R vik- Simar 31956-685554
Hreinlego allt til hreinlætis
REKSTRARVÖRUR
KEW
HOBBY
HÁÞRÝSTIDÆLAN
Á auðveldan hátt
þrífur þú:
Bílinn, húsið,
rúðurnar,
veröndina o.fl.
Úrval aukahluta!
Nýiar innréftingar i eldhús og ó bað eru værvran
Mýjar innréttingar kallaa breytingaM s>^nJ J5 innréttingar í eldhús, stakar
sýnishorn me& go&om afs'æ*-Tóubrautum fyrir fataskópa.
skápaeiningar ogJnu^k^n á máluSum innréttingum í eldhus, og
Dg sumarsmellurtnn^^ ^ úr 600 lltum, allt a^ama verSt.
P Ennfremur bjóSast nokkrir sturtuklefar a frabæru ve .
iMval
Nýbýiavogi 12 200 Kópavogur
Sími 44011. Pósthóif 167.