Þjóðviljinn - 11.05.1991, Page 8
NÝTT
(ÍIÓOVILIINN
Úfgefandi: Útgáfufélagiö Bjarki h.f Framkvæmdastjórl: Hallur Páil Jónsson Rltstjórar: Ami Bergmann, Óiafur H. Torfason, Helgi Guðmundsson Umsjónarmaður Helgarbiaðs: Bergdís Ellertsdótir Fréttastjórt: Slgurður A. Friðþjófsson Afgrolðsl Auglysinj Sirnfax: 6 Verð: 150 Setning o Prentun: »: n 6813 33 jadoild: tr 68 1! 819 35 krónur f lausast g umbrot Pren Oddihf. MO-68 13 31 au tsmiðja Þjóðviljans hf.
Auglýsingastjóri: Steinar Haröarson Aðsetun Sfðumóia 37,1C ð Reykjavik
Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis
Fyrsta og síðasta
drengskaparsamkomulagið
í fréttum hefur þegar komið fram fyrsta ágrein-
ingsmál stjórnarflokkanna. Að þessu sinni er deilt
um forræði skógræktar og landgræöslu. Jón Bald-
vin Hannibalsson hefur sagt að hann og Davíð
Oddsson hafi gert um það drengskaparsamkomu-
lag að landgræðsla og skógrækt skuli flytjast til
umhverfisráðuneytisins. Halldór Blöndal landbún-
aðarráðherra vill ekkert af þessu vita og hefur
hafnað samkomulaginu með öllu. Hann telur að
flutningur á þessum málaflokkum komi ekki til
greina.
Þessi umræða er ekki aðeins merkileg fyrir
ágreiningsefnið, heldur er hún til marks um vinnu-
brögðin við myndun stjómarinnar. Davíð Oddsson
forsætisráðherra og borgarstjóri telurað hann geti
notað sömu vinnubrögð sem forsætisráðherra og
sem borgarstjóri. Þar gat hann treyst á einsflokks-
einræði á öllum sviðum. Og í flokkseinræðinu var
hann einráður. Embættismennirnir eru nær allir
flokksbundnir Sjálfstæðismenn og vinna sem slík-
ir í borgarkerfinu. Borgarstjórastóllinn er þess
vegna fýrsti verndaði vinnustaðurinn á (slandi. Ef
borgarstjórinn hallast í sæti sínu eru embættis-
mennirnir óðara tilbúnir með bómullarstrangana til
þess að hlaða í kringum borgarstjórann.
En nú er öldin önnur. Forsætisráðherra hefur
engin völd önnur en þaú sem hann fær með sam-
ráði við annað fólk. Hver ráðherra hefur fullt og
endanlegt forræði á sínum málaflokki. Halldór
Blöndal þarf þess vegna ekki að hlýða Davíð
Oddssyni frekar en honum sýnist og hið sama er
að segja um aðra ráðherra; til dæmis Þorstein
Pálsson sem telur sig áreiðanlega ekki í sérstöku
þjónustuhlutverki andspænis Davíð Oddssyni eftir
það sem á undan er gengið. En vandi Davíðs er
sá að hann kann ekki hlutverkið, hefur ekki lært
rulluna og auk þess er mikill vafi á því að hann geti
lært þessa rullu. Maður sem hefur verið einvaldur
á vernduðum vinnustað borgarstjóraskrifstofunnar
í tæpan áratug þarf nú að læra lexíu sem gæti orð-
ið honum snúin. Vafasamt er að minnsta kosti að
ráðríkir höldar eins og Halldór Blöndal hrökkvi fyr-
ir tveggja manna tali úr Viðey, enda hefur nú kom-
ið í Ijós að Davíð Oddsson kannast ekki við þetta
samkomulag. Þannig gæti svo farið að hér hafi
verið á ferðinni fyrsta og síðasta tilraun núverandi
ráðherra til að gera sín á milli drengskaparsam-
komulag.
Vaxtahækkunarráðherrann
tekur til hendinni
Forseti Alþýðusambands (slands sagði vaxta-
hækanir ríkisstjórnarinnar að undanfömu óhugn-
anlegar. Hann benti einnig á að með þessu móti
væri hætta á því að verðlag færi hækkandi á nýj-
an leik. Iðja og Dagsbrún hafa þegar gert skarpar
ályktanir um þessi vinnubrögð og formaður BSRB
hefur tekið í sama streng, meðal annars í viðtöl-
um við Þjóðviljann á dögunum, að með þessari
stefnu sé ríkisstjórnin að afhenda bönkunum
ávinninginn af þjóðarsáttinni. Og stjóm Verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar kemst þannig að
orði að haidi ríkisstjórnin þessari stefnu hljóti fé-
lagið að grípa til sinna ráða og hækka sína taxta.
Þannig hefur ríkisstjórnin þegar á fýrstu dögum
starfs síns efnt til ófriðar við samtök launafólks.
Og það er athyglisvert að þessi vaxtahækkunar-
skriða fer af stað með sérstakri blessun Alþýðu-
flokksins, en vaxtahækkunarráðherrann er sem
kunnugt er Jón Sigurðsson sem hefur þessi mál í
hendi sér. - S.
0-ALIT
8 SfÐA.-rr- NÝTT HELGARBLAÐ Laugardagur 11. maí 1991