Þjóðviljinn - 11.05.1991, Qupperneq 20

Þjóðviljinn - 11.05.1991, Qupperneq 20
7 Z 3 */• S ¥ z— K? H- 3 8 9 SP 10 // 12 JT~ rt 9 SP )S s /Y 6 V /6 12 12 /? 3 9 s? 8 1É vr 20 21 ú V & 20 23 2¥ £ 2S V 2(? 2* b lt> )¥ V 18 9 & zk V 3 I(P n 1(? w JT~ 2S ](> V b %¥ 18 S? 3 ií W~ (? 20 %> 23 W~ á> T~ T 9 8 8 zo $ 18 2C, Zö i¥ 10 )¥ 23 <1 2Z 9 4 /Ý /? 23 V /9 )<A l¥ %>. 7 20 3 3 T 12 9 2S 20 S? 9 3 12 2o /v- ir S? 2r /Z t ■ A 'Zp S? /Y /9 */■ (p r 18 9 22 9 )S 13 S? 1$ 3 £ 2V y n 23 ZD Ý l(? 10 3 r n /7 f 2<r ? 2S 9 /V- 13 V 2£- JT~ 8 S? 9 32 2o )? S? 2S Z 3 AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ Krossgáta nr. 146 Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá götuheiti ( Hafn- arfirði. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðu- múla 37, 108 Reykjavlk, merkt „Krossgáta nr. 146“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa. 18 II 1} 3 9 30 /9 ¥ DULOIR QElflAR Lausnarorð á krossgátu nr. 142 var Fomuúðir. Dregið var úr réttum lausnum og upp kom nafn Brynjólfs Magnússonar, til heimilis að Vestur- Verðlaun fyrir krossgátu nr. 146 bergi 78, Reykjavfk. Hann fær senda Baráttusögu Guðmundar J. Guð- eru „Leyndardómar hins óþekkta: mundssonar sem Ómar Valdimarsson skráði. Vaka- Helgafell gaf út Duldir heimar1'. Almenna bókafé- 1990. lagið hf. gaf út 1991. MEÐ FLUGU í HÖFÐINU Sigurður Palsson Nú er Helgaþætti lokið, a.m.k. í bili. Hér er dýrðarfluga sem Engilbert benli mér á hér um árið. Hún heitir Drottningin og er víðfræg. Þessa flugu er gott að nota á blíðu sumarkvöldi í fallegri sandvík við sjó þar sem bleikju er von. Henni þykir þetta svo dæmalaust álitlegt, enda er það svo. Ef sjór er ládauður er sjálfsagt að nota flotlínu, en ef svolítil hreyfing er þá notar mað- ur hægsökkvandi línu. Það er ljómandi aðferð, en með flotlínu er ennþá meira gaman. Þá er hægt að fylgjast með tökunni, rétt við yfirborðið. Eins og flest- ir vita er sjóbleikja einhver dýrð- legasti fiskur sem til er. Það gild- ir bæði um snerpu og útlit. Svo er nú bragðið ekkert afleitt held- ur. Bleikjan er mjög viðkvæm í meðhöndlun og þess vegna er rétt að þvælast ekki með hana, heldur varðveita hana vel þar til heim er komið. Vonandi verða menn einhvemtíma svo skyn- samir hér að almenningur geti gengið niður í fjöru á sumrin með prikið sitt og veitt bleikju i soðið, með fullum rétti þó um lágnættið sé og enginn að fylgj- ast með nötrandi af löghlýðni eins og ber við þessi árin. Ekki dugar þetta, þið þurfið uppskrift og hún er svona. Drottningin Öngull er hér úr nikkel. Það er gott í sjó. Hann ryðgar ekki. Skott: Gul hnakkafjöður af gull- fasana. (Crest) Búkur: Flatt silfur tvívafið og silfurvöf þar yfir í spiral. Skegg: Fanir af rauðri hálsfjöð- ur. (Hænufjöður er fallegri) Vængur: Fanir af blárri axlar- fjöður af gæs. Haus: Svartur. Munið svo að skola seltuna af öllum veiðitækjunum eftir veiði í sjó. Kóngurinn kemur í næstu viku. Jafnt mót Dröfn Guðmundsdóttir og Ás- geir P. Ásbjömsson urðu Islands- meistarar í parakeppni 1991. 36 pör tóku þátt í keppninni, sem háð var um síðustu helgi. Röð efstu para varð: Dröfn Guðmundsdóttir - Ásgeir P. Ásbjörnsson Hafnarfirði 223 Kristjana Steingrímsdóttir - Sig- urður B. Þorsteinsson Rvk 206 Jacqui McGreal - Þorlákur Jóns- son Kópavogi 202 Björk Jónsdóttir - Jón Sigur- björnsson Siglufirði 192 Guðlaug Jónsdóttir - Sverrir Ár- mannsson Rvk/Kóp. 152 Esther Jakobsdóttir - Hrólfur Hjaltason 123 Ljósbrá Baldursdóttir- Matthías Þorvaldsson Rvk 118 Stefán Sigurbj. - Bogi Sigur- björnsson Siglufirði 106 Agnar Jörgenson sá um keppn- isstjóm, en Júlíus Snorrason annað- ist útreikning. Skráning í Bikarkeppni Bridge- sambands íslands er hafin á skrif- stofu BSÍ. Keppnin verður með sama sniði og undanfarin ár. Þátt- tökugjald pr. sveit er kr. 12 þús., en af þeim gjöldum renna um 80% i ferðastyrk, til þeirra sveita sem mest (lengst) þurfa að ferðast. Spilað er um gullstig i hverri umferð, en spilað er með útsláttar- fýrirkomulagi, og vitanlega er Bik- arkeppnin opin öllum. Úrslit í fyrirtækjakeppni Bridgefélags Siglufjarðar, sem háð var í siðasta mánuði, urðu sem hér segir: 1. sveit verslunarmanna 829 stig , 2. sveit Fljót B. 799 stig. 3. sveit Íslandsbanka/Skeljungur 798 stig. 4. sveit ríkisstarfsmanna 752 stig. 5. sveit Bridgefélagsins B. 741 stig. 6. Sjúkrahúsið 733 stig. Tala um þátttökurétt til undir- búnings þátttöku i B- landsliði í Opnum flokki er komin í 10, eftir að Bridgesambandið framlengdi umsóknartímann. Áður höfðu ein 3 pör sýnt áhuga. Verður að segjast eins og er, að þetta er ein alversta ákvörðun sem tekin hefur verið í seinni tíð og fjarri þeim hugmynd- um sem menn hafa um ffamgang landsliðsmála. Enda kannski ekki sett ffam til að „þróa“ málin, heldur að útvega „fóður" til æfinga fýrir A- liðshópinn. Ef svo er, ættu menn í alvöru að setjast niður og ræða málin. í fullri alvöru. í síðasta mánuði áttust við landslið Dana og íslendinga (Karl Sigurhj. - Sævar Þorbjömsson spil- uðu í stað þeirra Jóns Baldurss. - Aðalsteins Jörgensen). Spiluð voru 120 spil. Okkar menn sigruðu með 16 stiga mun. Fleiri slíkir æfinga- leikir eru fýrirhugaðir, til undirbún- ings EM í Dublin í júlí. Aldís Schram er látin. Aldís var mjög virkur bridgespilari um ára- raðir. Formaður Bridgefélags kvenna og átti sæti í stjóm lands- sambandsins. Undirritaður og Aldís áttu víða samleið í bridgestarfinu, m.a. í stjóm Reykjavíkursambands- ins. Með Aldísi er genginn góður félagi. Eiginmanni og fjölskyldu em færðar innilegustu samúðar- kveðjur. Sveit Landsbréfa, bikarmeistar- ar, 1990, tóku þátt í bikarmeistara- móti Norðurlanda (Rottemás-mót- inu) í Svíþjóð um síðustu helgi. Liðið stóð sig illa, hafnaði í 5. sæti af 6 sveitum, sem tóku þátt í mót- inu. Danir sigmðu að þessu sinni. Þess ber að gæta að í lið Landsbréfa vantaði Aðalstein Jörgensen, sem er frá spilamennsku þessar vikumar vegna veikinda. Það munar um minna, eða hvað? Sumarbridge í Reykjavík á veg- um Bridgesambands Islands verður með all breyttu sniði þetta sumarið. Áætlað er að spila mánudaga (mitc- hell), þriðjudaga (mitchell), mið- vikudaga (byrjendur) og fimmtu- daga (í riðlum). Alls 4 daga vikunn- ar. Verið er að ráða umsjónarmenn með kvöldunum þessa dagana. Að líkindum hefst sumarspilamennsk- an síðustu vikuna í maí, þarsem spilalok félaganna em óvenju seint á ferðinni þetta vorið. Og Skagfirðignar em með eins kvölds tvímenningskeppni í gangi á þriðjudögum. Síðasta þriðjudag var spilað í einum riðli. Efst urðu Anna Þóra Jónsdóttir og Ragnar Her- mannsson. Spilað er í Drangey við Síðumúla 35. Allt spilaáhugafólk velkomið. Hér er ein „létt“ úr Ameríkunni (í anda Jakobs R. Möller): S: K62 H: Á76 T: K9 L: ÁKD43 S: 9543 S:-- H: G83 H: D1094 T:----------- T: ÁDG1075432 L: G109875 L:------- S: ÁDG1087 H: K52 T: 86 L: 62 Suður er sagnhafi í 6 spöðum, eftir að Austur hefur tmflað sagnir á tímabili með tígulsögnum. Útspil- ið er laufagosi. Viltu reyna? Lítum á dæmið. Tökum á ás, Austur sýnir eyðu. Spaða upp á dömu og enn sýnir Austur eyðu. Jæja, þá reynum við tvöfalda kast- þröngina hans Jakobs. Lauf, sem Vestur fær að eiga. Hann spilar hjarta (besta vöm) sem við tökum heima á kóng. Spaði upp á kóng og háspil í laufi og við hendum hjarta og tígli. Síðan spilum við spöðun- um í háspil í laufi eða þartil við „ffamköllum1 ‘ þessa stöðu: S: — H: Á7 T: — L: 4 S: — S: — H: G8 H: 109 T: — T: Á L: 10 L: — S: 8 H: 5 T: 8 L: — Suður spilar síðasta trompinu (spaða) og gjörðin þrengist um hálsa A/V. Ef Vestur hendir hjarta, látum við laufafjarkann lausan úr prísundinni, en Austur má eftir sem áður ekkert spil missa. Einfold kastþröng, sem í raun nefnist því nafni „tvöföld" kastþöng (sem þýð- ir að spilarinn í Suður hefur báða andstæðinga í þvingaðri stöðu.) Og ekki orð meir um kastþröng (eða Jakob...) BRIDGE * Olafur Lárusson 20.SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Laugardagur 11. maí 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.