Þjóðviljinn - 17.05.1991, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 17.05.1991, Blaðsíða 4
anum lagði hann áherslu á að ekki mætti hætta að leggja rækt við aðra markaði fyrir fisk, svo sem Bandaríkjamarkað og Japans- markað. Krístin sagði að yfirlýsingin væri staðfesting þess að verið væri að stíga stórt skref inní EB. Hún sagði að ekkert væri orðið eftir af fyrirvörum og að ljóst væri að verið væri að afsala sér fullveldinu til dæmis með hinni sjálfstæðu stofnun Efta-ríkjanna þar sem verið væri að afsala sér völdum til yfirþjóðlegrar stofhun- ar. Þá kom hún inná fyrirhugað- an dómstól EES-svæðisins og taldi það brot á stjómarskránni og væri það ekki bara sitt álit, heldur einnig Gunnars G. Schrams sem teldi dómstólinn hæstarétt í mál- um þjóðanna og að við yrðum að hlýta úrskurðum hans. Þá benti hún á, líkt og Ólafur Ragnar, að Gro Harlem Brundtland teldi samninginn það veigamikla breytingu að til þyrfti samþykki 3/4 þingmanna Stórþingsins norska. „Vandinn er að þegar þessi yf- irlýsing er lesin þá stangast hún - að því er virðist - á við það sem utanríkisráðherra segir,“ sagði Ólafur Ragnar og átti við hvort um væri að ræða afsal á fullveldi þjóðarinnar eða ekki. Hann benti á afstöðu Norðmanna og sagði að sama ætti við um Svisslendinga sem hafa uppi miklar efasemdir um samninginn einmitt á full- veldisforsendum. Þá sagði Ólafur Ragnar að fullyrðingar Jóns Bald- vins stönguðust einnig á við það sem margir sérffæðingar í þessum efnum hér á landi teldu. Hann sagði að nauðsynlegt væri að komast að því hver hefði rétt fyrir sér, hvort það væru forsætisráð- herra Norðmanna, eða forystu- menn Svisslendinga, eða Gunnar G. Schram og fleiri sérffæðingar sem telja að þurfi að breyta stjómarskránni íslensku vegna samningsins. „Eða er það bara þannig að Jón Baldvin Hannibals- son einn hafi rétt fyrir sér?“ spurði Ólafur Ragnar. Vegna þessa taldi hann nauðsynlegt að úrskurðað yrði í þessum máli af utanríkismálanefnd. Hann sagði augljóst að EES- lög ættu að vera æðri íslenskum lögum samkvæmt yfirlýsingunni, að hin nýja Efta-stofhum ætti að hafa sama vald og framkvæmda- stjóm EB og hafa þannig yfir- þjóðlegt vald, að augljóst væri að erlendir menn ættu að hafa sama rétt til jarðarkaupa og íslendingar, rýmka ætti heimildir til innflutn- ings landbúnaðarvara, félagsmál, einsog vinnumálalöggjöf, ætti að taka fyrir innan EB en ekki Efta, illskiljanlegt öryggisákvæði kæmi í stað fyrirvara. Niðurstöð- una af öllu þessu sagði Ólafur Ragnar vera að Effa hafi fallist á allar kröfur EB sem hefði haft sigur í þessum málum. Eftir væru sjávarútvegsmálin og þar hefði ekkert gerst í eitt og hálfl ár. Eng- in viðurkenning hefði komið á sérstöðu íslands og dramatísk út- ganga aðalsamningamanns ís- lands hafi algerlega verið hunsuð. „Utanríkisráðherra er orðinn svo örvæntingarfullur að hann dregur vamarsamning íslands og Bandaríkjanna uppá borðið," sagði Ólafur Ragnar, en Jón Bald- vin hefur sagt í Qölmiðlum, að hemaðarlegt mikilvægi íslands gæti ráðið úrslitum í samningun- um. Ólafur Ragnar spurði Jón Baldvin hvort hann hyggðist segja upp samningnum til að ná betri taflstöðu í EES- samningn- um. Máiið varð ekki útrætt í gær- dag og var kvöldfundur boðaður, þannig Þjóðviljinn gat ekki fylgst með svörum Jóns Baldvins við fjölmörgum spumingum áður en blaðið fór í prentun. -gpm Þingmenn á vorþingi fylgdust með umræðum um hið Evrópska efnahagssvæði I gær. Hér eru allt nýliðar á ferð, þau Jóhann Ársælsson, Abl., Lára Margrét Ragnarsdóttir, Sjfl., Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, Kvl., Kristinn H. Gunnarsson, Abl., og forsætisráðherrann Davlð Oddsson. Myndir: Jim Smart. Utanríkismálanefnd úrskurði hvort um sé að ræða fullveldisafsal eða ekki Olafur Ragnar Grímsson formaður Alþýðubanda- lagsins fór formlega fram á það að nýkjörin utanríkismála- nefnd Alþingis kalli til sín sér- fræðinga og úrskurði um hvort samningar um Evrópskt efna- hagssvæði feli í sér afsal íslands á fullveldi þjóðarinnar eða ekki. Hann fór fram á þetta í umræðum um munnlega skýrslu utanríkisráðherra um stöðu viðræðnanna um efna- hagssvæðið í sameinuðu þingi í gær. Ólafur Ragnar taldi málið svo mikilvægt að ekki væri óeðlilegt að Alþingi sæti fram- undir júnílok og fjallaði um samninginn, en fyrirhugað er að skrifa undir samninginn verði hann tilbúinn 24. júní. Ólafur Ragnar sem á sæti í ut- anríkismálanefnd sagði að álit manna á því hvort um væri að ræða fullveldisafsal eða ekki væri það mismunandi að nauðsynlegt væri að nelndin fjallaði um það mál. Hann taldi rétt að hún hæfist strax handa þar sem samningamir væru komnir langt og að kalla ætti til innlenda sérfræðinga í þessum málum og jafnvel er- lenda; málið væri brýnt, enda varðaði það sjálft fullveldi þjóð- arinnar. Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra lýsti niðurstöðum ráðherrafundar Evrópubandalags- ins og Efta- ríkjanna um hið evr- ópska efnahagssvæði og sameig- inlegri yfirlýsingu þeirra um framvinduna í Bmssel á mánu- dagskvöldið var. Um yfirlýsing- una hefur verið fjallað í Þjóðvilj- anum, og kom Jón Baldvin í gær einsog áður inn á það að ósamið væri um þrjú mikilvæg atriði: Landbúnað, sjávarútveg og byggðasjóð svokallaðan. Þetta hefur Jón Baldvin kallað hina vanheilögu þrenningu. Þá vék Jón Baldvin að öðmm þáttum yfirlýsingarinnar, en gagnrýnt hefur verið að hún fæli í sér - ef af samþykkt yrði - afsal íslands að einhverju Ieyti á full- veldi þjóðarinnar. Hann sagðist leggja á það höfuðáherslu að allt tal um afsal fullveldisréttar þjóð- arinnar eða afsal á valdi dómstóla í hendur yfirþjóðlegs valds ætti sér engin rök. Hann sagði að það væri um ekkert afsal af hálfu lög- gjafarsamkunda Efta-ríkjanna að ræða, enda yrðu ekki teknar ákvarðanir innan EES nema með fullu samkomulagi, þannig að all- ar þjóðimar hefðu nokkurskonar neitunarvald. í þessu sambandi kom hann inná öryggisákvæðið svo kallaða, en það kemur nú inn í stað þeirra varanlegu fyrirvara sem þjóðirnar höfðu um hin ýmsu mál áður. Ör- yggisákvæðinu á að vera hægt að beita í hvert skipti sem alvarleg efnahagsleg, þjóðfélagsleg, og/eða umhverfisvandamál kæmu upp. Taldi Jón Baldvin betra að hafa svona almennt ör- yggisákvasði, heldur en að hafa mörg sértæk ákvæði. Hann sagði að það væri skilyrðislaust á valdi ríkisstjóma að beita þessu ákvæði að uppfylltum vissum skilyrðum sem hann þó nefndi ekki hver væru. Utanríkisráðherra taldi mikil- vægt að menn gerðu greinarmun á EB og EES. „Evrópubandalagið er tollabandalag," sagði hann, „en Evrópska efnahagssvæðið er það Auk þess bætti hann við að ákvarðanir innan EB væm teknar af meirihlutanum, en innan EES yrðu allir að vera sammála. Aðrir sem tóku til máls vom utanrikissráðherra alls ekki sam- mála. Samkvæmt yfirlýsingunni frá mánudeginum á að koma á fót stofnun innan Efta-ríkjanna sem yrði svipuð og framkvæmdastjóm EB. Áhyggjufullir formenn ríkisstjómarflokkanna hlustuðu einnig á umræð- urnar, en Friðrik Sophusson fjármálaráðherra gluggar sennilega (ríkis- fjármálin. Við hlið hans þungt hugsi Jón Baldvin Hannibalsson utanrlkis- ráðherra og Davlð Oddsson forsætisráðherra. ekki.“ EES er ekki bundið af landbúnaðarstefnu, né af sjávar- útvegsstefnu. lnnan EES er ekki stefnt að afnámi landamæra. Inn- an EB er um að ræða afsal þjóð- þinga til yfirþjóðlegra stoíhana bandalagsins. „Ekkert af þessu er til umræðu innan EES,“ sagði ut- anríkisráðherra, „það er ekki á samningssviðinu.“ Hann talaði síðan um sameiginlegan íjárfest- ingarbanka innan EB, um að í undirbúningi væri að koma á fót stofnun um sameiginlega utanrík- isstefnu, og hann talaði um mynt- bandalagið fyrirhugaða innan EB. Jón Baldvin sagði að ekkert af þessu væri til umræðu varðandi EES og væru þetta allt rök þess efnis að öll gagnrýni um full- veldisafsal styddist ekki við rök. Steingrímur Hermannsson fyrrverandi forsætisráðherra vildi fá svör við því hvort ekki væri um að ræða yfirþjóðlega stofnun. Hann taldi að mörgum spuming- um væri ósvarað varðandi þessa yfirlýsingu. Þá sagði Steingrímur að við athugun þætti sér ávinning- urinn af samningnum minni en gert hafði verið ráð fyrir í upp- hafi. Hann sagði að margir hefðu glýju í augunum vegna EES, en menn yrðu að gaumgæfa það vandlega hvort ávinningurinn væri nokkuð meiri en sá sem við höfum í gegnum bókun 6 sem fjallar um tollfríðindi á EB-mark- aði. Hann varaði við því að setja öll egg þjóðarinnar í eina körfu, og líkt og Ólafur Ragnar og Krí- stín Einarsdóttir frá Kvennalist- HANDBRAGÐ MEISTARANS Bakarí Brauðbergs Ávallt nýbökuð brauð -heilnæm og ódýr- Aðrir útsölustaðir: Hagkaup-Skeifunni -Kringlunni -Hólagarði Verslunin Vogar, Kópavogi. Brauðberg LAuhilar 2-6 siraí 71539 Hreunberg 4 tími 77272 4.SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 17. maí 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.