Þjóðviljinn - 17.05.1991, Page 16
11 ¥7' I A
rl-tLJLfjA
NNINGIN
Úr dagskrá
Kirkjulista-
hátíðar ‘91
Laugardagur 18. maí
kl. 14:00 - Hallgrímskirkja:
Setning Kirkjulistahátíðar ‘91.
Mótettukór Hallgrimskirkju,
Dómkórinn, Kór Langholtskirkju
og Camerata Vocale frá Freiburg
syngja. Frumflutt verður hátíðar-
ljóð eftir Matthías Johannessen.
Kl. 17:00 - Laugameskirkja:
Mozarttónleikar. Flutt verða verk-
in Vesperae Solennes de Confes-
sore, KV 339, og Te Deum, KV
141. Flytjendur: Sigriður Gröndal
sópran, Dúfa Einarsdóttir alt, Þor-
geir Andrésson tenór og Halldór
Vilhelmsson bassi, kammersveit
og kór Laugameskirkju. Konsert-
meistari: Hlíf Siguijónsdóttir.
Stjómandi: Ronald Tumer.
Sunnnudagur 19. maí
Kl. 11:00 - LanghoJtskirkja:
Hátíðarguðsþjónusta. Flutt verður
Messa í D-moll, KV 65, eftir
Wolfgang Amadeus Mozart.
Flytjendur: Þóra Einarsdóttir
sópran, Björk Jónsdóttir alt, Bjöm
Jónsson tenór og Ragnar Davíðs-
son bassi, hljóðfæra- leikarar og
Kór Langholtskirkju. Stjómandi:
Jón Stefánsson.
Kl. 11:00 - Neskirkja: Hátið-
arguðsþjónusta. Flutt verður
Messa i G-dúr, KV 49, eftir Moz-
art. Flytjendur: Ingveldur Ólafs-
dóttir sópran, Stefanía Valgeirs-
dóttir alt, Einar Öm Einarsson
tenór og Eiríkur Hreinn Helgason
bassi. Stjómandi: Guðni Þ. Guð-
mundsson.
Mánudagur 20. maí.
Verkið endurflutt við hátíðar-
guðsþjónustu í Hallgrímskirkju
kl. 11:00.
Hvers virði er lífið?
Viðtal við Hjalta Hugason, formann framkvæmdastjómar kirkjulistahátíðar
í kynningarbréfi sem Hjalti
hefur skrifað vegna kirkjuUstahá-
tíðar er vikið að þeirri spurningu
hvort ástæða sé til þess að halda
þessa hátíð. Spurningunni er svar-
að á þann hátt að kirkjan þarfnist
Iistahátíðar til þess að verða þrótt-
rneiri kirkja. Þjóðviljinn spurði
Hjalta að því hvort ekki mætti
snúa þessu við.
Þarfnast listamenn kirkjunnar?
Mér sýnist þróunin stefna í þá
átt, sagði Hjalti, að ýmsir listamenn,
ekki síst rithöfundar, séu að hverfa
að spumingum sem eru trúarlegar
eða kirkjulegar út frá mínu sjónar-
homi séð. Það er spurt um tilveru
okkar. Hvers virði er hún? Þetta er
meðal annars mjög greinilegt í
sænskum bókmenntum. Það er jafn-
vel verið að glíma við lífsgátuna í
fullri alvöm þó að hún sé ef til vill
ekki meðhöndluð á sama hátt og
venja er til innan kirkjunnar. 1 Sví-
þjóð sýnist mér báðir þessir aðilar
vera að uppgötva að þeir eigi sam-
leið. Ég hefði gjaman viljað sjá svip-
aða þróun hér á íslandi. Vonandi get-
ur kirkjulistahátíð stuðlað að því.
Því hefúr stundum verið haldið
ffam að listamenn séu eiginlega í
samkeppni við kirkju og trú. Það er
jafnvel sagt að á þessari öld hafl list-
in tekið við af trúnni hvað varðar
skilgreiningar á því óhugnanlega og
því yndislega.
Hvað segirþú um það?
Mér finnst þvert á móti að báðir
þessir aðilar séu að glíma við að sýna
fólki tilveruna út frá öðru sjónar-
homi. Ef maður nálgast málið með
opnum huga þá getur ekki verið um
samkeppni að ræða. Þá fagnar maður
öðmm sem eru að glíma við það
sama.
Þú segist vona að kirkjulista-
hátíð geti skapað samband milli
listamanna og kirkju. Eg veit ekki
betur en kirkjan tengist listasögunni
alltfrá upphafi. Hefur kirkjan glatað
þessum tengslum?
Ég held að ef við skoðum þetta
út frá núinu þá hafi orðið viss að-
skilnaður á milli kirkju og lista á
ákveðnu tímaskeiði. í Vestur-Evrópu
held ég að þessi mál hafi þróast í að-
skilnaðarátt frá miðri 16. öld eða þar
um bil og fram á fyrstu áratugi þess-
arar aldar. A þessu umrædda tímabili
held ég að bilið milli lista og kirkju
hafi orðið einna breiðast. Þetta má að
hluta skýra sögulega. Við þekkjum
að sjálfsögðu afstöðu siðbreytingar-
manna til lista. Þar má nefna lúterska
rétttrúnaðinn og einnig Kalvínistana,
ef litið er út fyrir landsteinana. Það
var lagt mikið upp úr einfaldleika
kirkjuhússins, myndskreytingar
máttu ekki koma fyrir, og þó að lút-
herska kirkjan hafi aldrei gengið eins
langt þá átti þessi þróun sér stað þar
líka. Éftir siðbreytingu voru tengslin
milli kirkju og listar ekki eins lífræn
og þau höfðu áður verið. Ég held
jafnvel að óhætt sé að tala um
hningnun og stöðnun á ákveðnum
sviðum lista. Það eru frekast tónlist-
in og orðlistin sem hafa blómstrað
innan lúthersku kirkjunnar. Myndlist
hvarf hins vegar að hluta til og segja
má að leiklistin hafi horíið úr litúrgí-
unni vegna þess að helgisiðimir ein-
földuðust til mikilla muna. Þegar
kemur fram á Upplýsingatímabilið
þá má segja að bilið milli margra list-
greina og kirkju verði að gjá. Fagur-
fræði upplýsingarmanna var afar
einföld í sniðum, að ekki sé meira
sagt.
Fyrir siðbreytingu voru þessi
tengsl miklu nánari og mér finnst að
við séum á leið inn í tímabil þar sem
leiðir kirkju og listar liggja saman á
ný.
Geta listamenn starfað af sjálf-
stœði i tengslum við kirkju?
Sjálfstæði hjá Iistamönnum get-
ur valdið og hefur valdið vissri
hneykslun í kirkjunni. Hins vegar
held ég að kirkjan þurfi á ögrun að
halda. Eins og allar aðrar stofnanir
þá hættir henni kannski til að falla
inn í ákveðna staðalmynd af sjálfri
sér og boðskap sínum. Ný túlkun
gæti hjálpað til að uppgötva víddir
sem hún hefúr vanrækt í sinni eigin
arfleifð.
Hafa kirkjunnar menn þá gott af
að hneykslast?
Ég held það í raun og veru. Það
má benda á það að ýmsir einstakling-
ar innan kirkjunnar hafa náttúrlega
valdið hneykslun. Lúther er kannski
nærtækasta dæmið. Hann olli gríðar-
legri hneykslun á sínum tíma. Ný
túlkun hefur tilhneigingu til að gera
það. Sama er að segja um Pál post-
ula. Hann olli hneykslun innan kirkj-
unnar á sínum tíma. Hann tók nýtt
skref. Það má segja að hann opni
kirkjuna fyrir heiðingjunum, það er
að segja þeim sem ekki voru gyðing-
ar. Fram að þeim tíma haföi verið lit-
ið svo á að menn ættu að gerast gyð-
ingar fyrst og ganga svo til liðs við
kirkjuna. Hann gerir kirkjuna hins
vegar að heimstrúarbrögðum með
því að snúa sér beint til erlendra
þjóða, þeirra sem ekki voru gyðing-
ar. Þetta olli miklum deilum sem
voru við það að kljúfa kirkjuna. Það
er eins innan kirkjunnar og annars
staðar. Það verður að takast á um
hugmyndir. Sannleikuriim er fjöl-
þættur og við getum nálgast hann frá
ýmsum hliðum.
Eg sé það I dagskrá kirkjulista-
hátíðar að þú œtlar einmitt að
spjalla um Pál postula 24.maí. Hver
var Páll postuli?
í sambandi við tónleikana sem
haldnir verða þennan sama dag Iang-
aði mig til þess að grípa svolítið á
þessari persónu sem Mendelssohn
semur þessa óratóríu út ffá. Það sem
ég geri verður að líkindum að velta
fynr mér ýmsum hliðum þessa máls.
Ég reyni að setja verkið í sögulegt
samhengi og spyija hver sé boðskap-
ur þessarar óratoríu. Mig langar líka
til þess að glíma við Pál sjálfan. Hver
var þessi Páll? Hann rúmar griðar-
legar andstæður, hann tilheyrði tíma-
bili Krists, en hann er til umræðu enn
í dag. Hann var viðstaddur grýtingu
fyrsta píslarvottarins, hann skrifar
bréf þar sem óðurinn um kærleikann
kemur inn í myndina. Hann ofsótti
kristna ffumsöfnuðinn, en er ofsóttur
sjálfúr f lokin lyrir sömu trú. Síðan
má geta þess að þetta er önnur stóra
óratórian sem er flutt á listahátíð. Á
síðustu listahátíð var flutt óratórían
Elía. Mig langar líka til að glíma við
spuminguna um það hvort eitthvað
sé sameiginlegt með Elía, þessum
spámanni 9. aldar fyrir Krist, og Páli
postula. Af hverju velur Mendelsso-
hn sér þessa tvo? Kannski er það
vegna þess að þetta eru persónur sem
glíma við guðdóminn.
Hver mótar stefnu þessarar
listahátiðar? Hver velur það efni
sem er á boðstólum?
Framkvæmdastjóm sér að mestu
leyti um að móta stefnuna. Dagskrá-
in mótast líka að nokkru leyti af
þeirri áherslu sem er í kirkjustarfi hér
á landi. Uppisstaða dagskrárinnar er
tónlist. Það er engin tilviljun, heldur
markast það af því að tónlistarhefðin
er mjög rik innan kirkjunnar. Hins
vegar viljum við breikka þetta svið
og koma inn með fleiri listgreinar.
Það er grundvallarhugsunin bak við
sýninguna: Form og frumvinnu, þar
sem brugðið er upp sýnishomum af
arkitektúr og myndlist í kirkjum.
Brennipunkturinn í þeirri sýningu
má segja að sé sá að hún á að sýna
okkur hvemig þessar tvær listgreinar
vinna saman að mótun kirkjuhúss.
Þetta er ekki yfirlitssýning, heldur
lítil sýning sem bregður upp svip-
myndum, gefúr hugmyndir. Það
verður fjallað um bókmenntir á há-
tíðinni. Það fer fram leiklestur á
tveim bókmennta-verkum og flutt
verður Ijóðadagskrá sem ber nafnið:
Undir sumarsól. Það er gert til þess
að minna á að við innan kirkjunnar
þurfúm að leggja meiri rækt við
þessar síðasttöldu listgreinar en við
höfum áður gert. í þessari ljóðadag-
skrá er hins vegar ekkert ff ekar verið
að flytja trúarljóð. Þetta em ljóð sem
fara inn á sömu svið eða sömu víddir
og kirkjan. Ljóð sem spyija: Hvers
virði er lífið?
-kj
16- SfÐA - NÝTT HELGARBLAÐ FÖSTUDAGUR 17. MAl 1991