Þjóðviljinn - 17.05.1991, Síða 19
Margeir sigraði á karabísku
eyjunni St. Martin
Margeir Pétursson hlaut 71/2 vinning úr 9 skákum.
Eyjar Karabíska hafsins hafa
ekki þótt verulega líklegir staðir
fyrir skákmót. Því virðist nefni-
lega vera svo farið að eftir því
sem sunnar dregur á jarðarkringl-
unni er eins og andlegt atgervi
manna slævist og ærið verkefni
flestum að bæta sér upp endalaust
vökvatapið þar sem þeir liggja
dæsandi með blómakrans um
hálsinn og banda ffá sér aðvífandi
skorkvikindum; stúlkur í strápils-
um kannski ekki langt undan.
Skák í þungavigt hóf landnám á
eyjunni Curacao fyrir tæpum
þrjátíu árum er þar var haldið
frægt áskorendamót. Þegar langt
var liðið á mótið hafði loftslagið
leikið Mikhael Tal svo grátt, að
hann var fluttur á spítala og varð
að hætta þátttöku. Sagt er að eini
maðurinn sem heimsótti hann hafi
verið Bobby Fischer og hafði þó
allt á homum sér vegna meints
samtryggingarkerfis Sovétmanna
með Tigran Petrosjan, síðar sigur-
vegara, í broddi fylkingar. Á eyj-
unni Saint Martin, sem liggur eigi
langt undan ströndum Puerto
Rico, hafa ferðamálafrömuðir
staðið fyrir sterkum opnum mót-
um undanfarin ár og þangað
stefhdi Margeir Pétursson skón-
um á dögunum enda ekki sporlat-
ur maður þegar skákmót em ann-
ars vegar. Þetta var hans fimmta á
þessu ári og jafnffamt hið árang-
ursríkasta og hefur ffammistaða
hans þó verið með ágætum. Hann
kom beint ffá opna mótinu í Torcy
í Frakklandi þar sem hann hlaut 6
vinninga af 9 mögulegum.
Þátttakendur í Saint Martin
vom að stærstum hluta eyja-
skeggjar og grannar þeirra, stór
hópur bandarískra stórmeistara,
allmargir Frakkar og síðan nokkr-
ir skákmenn héðan og hvaðan.
Sovéskir stórmeistarar létu ekki
sjá sig, Aeroflot-flugfélagið er
ekki með áætlun á þessar slóðir.
Verðlaun vom betri en t.d. á Opna
New York-mótinu á dögunum en
herkostnaður meiri. Fyrstu verð-
laun vom átta þús. bandaríkjadal-
ir og þau hreppti Margeir óskipt.
Hann hóf mótið strax af miklum
krafti, vann tiltölulega viðráðan-
lega andstæðinga í þrem fyrstu
umferðunum, gerði jafntefii í 4.
umferð við Kamran Shirazi og
svo hófst alvaran; í næstu þrem
umferðum tókst honum að vinna
þrjá af öflugustu skákmönnum
mótsins, Bandaríkjamennina
Dmitry Gurevitsj, Alexander Iv-
anov og Frakkann Oliver Renet.
Þá var hann kominn með vinn-
ingsforskot á næstu menn. I 8.
umferð gerði hann jafntefli við
Walter Browne í mikilli baráttu-
skák og í þeirri síðustu við Ro-
man Dzindzihasvili. Öliver Renet
gat náð Margeiri með sigri í lokin
en glutraði vinningsstöðu niður í
tap i skák sinni við Alexander Iv-
anov.
Lokastaðan varð þessi:
1. Margeir Pétursson 71/2 v.
(af 9) 2.-6. Dzindzihasvili, Kudr-
in, A. Ivanov, D. Gurevitsj (allir
frá Bandaríkjunum) og Raossis
Eistlandi 7 v. 7.-12. Renet
(Frakkl.), Moskalenko (Sov-
étr.), Federowicz (Bandar.), O.
Castro
(Kolumbíu), Todorcevic
(Júsgóslavíu) og Kraut
(Þýskalandi) 61/2 v. Tafl-
mennska Margeirs var heilsteypt
og hann lenti aldrei í taphættu.
Lítum á sigur hans yfir Alexander
lvanov:
6. umferð:
Alexander Ivanov -
Margeir Pétursson
Sikileyjarvörn
1. e4 c5
2. c3 d5
3. exd5 Dxd5
4. d4 Rf6
5. RD Bg4
(Þessu tiltölulega sjaldséða
afbrigði hafa niargir íslenskir
skákmeistarar beitt á liðnum árum
með góðum árangri.)
6. Be2 e6
7. h3 Bh5
8. 0-0 Rc6
9. Be3 cxd4
10. cxd4
(10. Rxd4 er öruggara þótt sá
leikur valdi svörtum engum sér-
stökum erfiðleikum.)
10... Be7
11. Rc3 Dd6
12. Rb5 Dd8
13. Re5 Bxe2
14. Dxe2 Rb4!
15. d5
(Það er ekki að sjá að hvítur
hafi neinar bætur fyrir staka peðið
á d4. Þessi leikur leysir úr þeim
vanda en skapar annan sem varð-
ar lélega staðsetningu léttu mann-
anna. Óhætt er að fullyrða að
svartur standi þegar talsvert betur
að vígi.)
15.. . Rfxd5
16. Bxa7 0-0
17. Hfdl Da5
18. a3 Rc6
19. Bd4 Rf4
20. Dfl Rxd4
21. Hxd4 Bf6
22. Hxf4 Bxe5
23. Hb4 Had8!
(Hér opinberast erfiðleikar Iv-
anov, honum reynist mjög erfitt
að halda völdum á d-línunni.)
24. Hdl g6
25. g3 Da6
26. De2(?)
(Það er eins og hvítur átti sig
ekki á því að hann verður að tefla
uppá jafntefli í þessari stöðu. 26.
Rc3 þjónaði því markmiði einna
best.)
26.. . Dc6!
27. Kh2
(Vitaskuld ekki 27. Hxd8
Hxd8 28. Dxe5 Hdl+ og mátar.)
27.. . Hxdl+
28. Dxdl Bf6
29. De2 Hd8
30. Ra7 Dcl
31. DD Dfl!
(Ivanov var í miklu tímahraki
og þessi leikur setur hann í mik-
inn vanda því 32. Dxf6 strandar á
32. .. Hdl og mátar. Best er að
leika 32. Dg2 en Ivanov hefúr
aðrar meiningar.)
32. Hf4? Be5!
33. Hxf7
(Ekki var um annað að ræða
því eflir 33. He4 Hd2 er hvíta
staðan vonlaus.)
33... Bxg3+!
(Ótuktarlegur leikur svo ekki
sé meira sagt, 34. Kxg3 strandar á
34. .. Dgl+ 35. Kh4 Hd4+ 36.
Hf4 g5+ og vinnur.)
34. Dxg3 Kxf7
35. Dh4 Dd3
36. Dxh7+ Kf6
37. Dxb7 De2
38. Kg2 Hd5
- og Ivanov gafst upp.
SKAK
%
Helgi
Ólafsson
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
AB Keflavik og Njarðvikum
Opið hús
Opiö hús i Ásbergi á laugardögum kl. 14.
Félagarog stuöningsmenn velkomnir í kaffi og rabb.
Stiórnin___________________________________
Alþýðubandalagið i Reykjavik
Kosningahappdrætti
Dregið hefur veriö i kosningahappdrætti G-listans f Reykjavík.
Vinningsnúmerin voru innsigluð og veröa birt fijótlega eftir mán-
aðamót.
Félagar og stuöningsmenn eru hvattir til að gera skil sem fyrst.
Kosningastjórn G-listans í Reykjavík
AB Vesturlandi
Kosningahátíð
Kosningahátíð verður haldin í Rein á Akranesi laugardaginn
25. mai.
Nánar auglýst síðar.
Nefndin
AB Norðurlandi eystra
Kosningahappdrætti
Dregiö var í kosningahappdrætti ABNE 1. maf og númerin inn-
sigluð. Vinningsnúmer verða birt í Þjóðviljanum um leið og full
skil hafa átt sér stað.
Kosningastjórnin
Alþýðubandalagið i Reykjavik
Aðalfundur
Aöalfundur ABR verður haldinn miðvikudaginn 22. maf 1991, kl.
20.30, að Hverfisgötu 105, 4. hæð.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf
Stjórn ABR
AB Reykjanesi
Drætti frestað
Drætti í kosningahappdrætti G- listans á Reykjanesi erfrest-
að til 20. maf nk.
Umboðsmenn miða em beðnir að gera skil eigi sfðar en 19.
maf til Birnu Bjarnadóttur, sfmi 40580.
Vinningsnúmer verða auglýst 22. maí. Kosningastjómin
Föstudagur 17. maí 1991 - NÝTT HELGARBLAÐ SÍÐA 19