Þjóðviljinn - 15.06.1991, Page 5

Þjóðviljinn - 15.06.1991, Page 5
 1 » LENDAM 'I Svíar sækja um aðíld að EB Helmut Kohl kanslari verður að ákveða ásamt stjóm sinni á fimmtudag hvar hann muni sitja I framtíðinni, f Bonn eða Berifn. Bonn og Berlín bítast á Ingvar Carlsson forsætís- ráðherra tilkynnti sænska þinginu í gær að stjórnin hefði ákveðið að sækja um aðild að Evrópu- bandalaginu. Formleg beiðni Svía verður lögð fram í Haag þann 1. júlí næst- komandi. Ingvar Carlsson sagði aðild Svía ekki stangast á við hlutleysis- stefnu landsins. Framkvæmdarstjóm EB tók fVemur dræmt í fréttina af umsókn Svíanna í gær, en Uffe Ellemann- Jensen, utanríkisráðherra Dana fagnaði ákvörðun sænsku stjómar- innar. Hann sagði við fréttamenn Opinberir starfsmenn Evrópubandalagsins hóta að fara í verkfall á mánudag og þriðju- dag. Ástæða verkfallsins er sú að fyrirhugað er að breyta reglum um útreikning launa starfsfólksins. Starfmennimir em samtals 25 þúsund og starfa i Brussel, Stras- bourg og Lúxembúrg. Verkfallið ber upp á sama tíma og utanríkis- ráðherrar EB ætla að hittast í Brussel og gæti það komið í veg fyrir fúndinn. Síðan árið 1981 hafa kaup- hækkanir opinberra starfsmanna EB miðast við meðaltal taxta op- inberra starfsmanna aðildarrikj- anna tólf, auk hækkunar fram- færslukostnaðar. Verkalýðsfélög- in vilja halda þessari viðmiðun áfram, en aðildarríkin, með Frakkland, Þýskaland og Bret- land í broddi fylkingar, vilja breyta henni og óttast verkalýðs- félögin að það kunni að leiða til allt að 30 prósent lækkunar á launum starfsmanna EB. að hann vonaði að aðrar Norður- landaþjóðir fylgdu í kjölfar Svía. Utanríkisráðherrann sagði enn- fremur að hann myndi gera allt sem í hans valdi stæði til að flýta umræðu og ákvörðun um aðild Svia. Ákvörðun sænsku stjómarinnar kemur ekki sérstaklega á óvart, hins vegar virðist leiðin inn í Bandalagið ekki mjcg greið. Áður en ákveðið verður að stækka EB verður að leysa ýmis vandamál. Þó er talið að Svíum verði veitt aðild um leið og Austurrikismönnum, sem sóttu um fyrir tveimur ámm. Ingvar Karison, forsætisráöherra Bjargið Olpunum Evrópuþingið hvatti til þess á miðvikudag að Ölpunum yrði bjargað frá skiðamönnum. Þingið vill að aðgangur að skíðasvæðun- um verði takmarkaður áður en Al- pamir verða troðnir til bana. Þing- ið studdist við rannsókn þýsks græningja sem segir að 100 milj- ónir gesta árlega séu á góðri leið með að eyðileggja Alpana. Hann vill banna framkvæmdir á jöklum uppi og banna notkun véla sem búa til gervisnjó, en með þeim er hægt að lengja skíðatímabilið. Þá vill Evrópuþingið banna skíða- mönnum að stunda íþrótt sína nema á tilgreindum skíðabrautum. Kyrkislanga notuð til ao fá fram játningu Hinn 18 ára gamli David Tai staðhæfir að lögregla hafi notast við kyrkislöngu til að fá hann til að játa á sig morð á þremur Víetnöm- um. Hann segir að lögreglan hafi hótað að láta slönguna bíta sig og hann vill að slangan sem heitir Maxwell verði kölluð fyrir dóminn sem vitni. Dómarinn vildi hinsveg- ar fá smá tíma til að íhuga hvort hann ætti að leyfa að leiða rúmlega tveggja metra langa slönguna í vitnastúkuna. Maxwell er gæludýr á einni lögreglustöðinni í Kina- hverfinu í New York. Lögmaður Tais vitnaði í eldri dómsmál til að sýna fram á að dýr hefðu áður ver- ið kölluð til vitnis í Bandaríkjun- um. Árið 1908 var til dæmis hesti leyft að bera vitni. Ekki fylgdi fféttaskeyti Reuters hvað hesturinn hafði að segja. Stjórnin og þingið í Þýska- landi geta ekki gert upp við sig hvort Bonn eða Berlín verði höfuðborg hins sameinaða þýska ríkis. Spurningin um höfuðstað lands- ins hefur vafist fyrir stjórnmála- mönnum vikum saman og hafa alvarleg vandamál, eins og vax- andi atvinnuleysi, fallið í skugg- ann af höfuðborgardeilunni. Á fimmtudag, 20. júní, skal úr því skorið hvor borgin verður fýrir valinu og því ekki mikill tími til stefhu. Upp er komin sú hugmynd, til að reyna að sætta báða aðila, að skipta höfúðborgarhlutverkunum á milli borganna. Stungið hefur ver- ið upp á því að þingið og forseti flytji til Berlínar, en stjómin sitji eftir í Bonn. Þegar til þess er hugs- að að 600 kílómetrar eru milli borganna virðist fátt styðja þá til- lögu. Fleiri hugmyndir um skipt- ingu hlutverka hafa skotið upp kollinum nýverið, en engri tekist að sætta stríðandi aðila. Kohl kanslari er fylgjandi þeirri tillögu að þingið og stjómin verði smám saman flutt til Berlínar á næstu 15 ámm, en nokkur mikilvæg ráðu- neyti hafa aðsetur í Bonn. Hörðust er baráttan milli borgastjóranna tveggja, Hans Daniels í Bonn og Eberhard Di- epgen í Berlín, þeir berjast með kjafli og klóm fýrir borgir sínar. Þeir sem styðja Berlín minna á að þar sat stjómin fyrir skiptingu Þýskalands, og auk þess sé nauð- synlegt að styrkja tengslin við Austur-Evrópu með því að færa höfúðborgina nær henni. Margir segja það svik við Austur- Þjóð- veija verði höfúðstaðurinn áfram Bonn. Þeir sem kjósa Bonn segja að Berlín þuríi alls ekki á því að halda að vera höfuðborg landsins, hún sé, og muni verða, lifandi og fjölsótt borg eftir sem áður. Hins vegar muni það verða mikið fjár- hagslegt áfall fyrir Bonn verði stjómunarstofnanir hennar fluttar til Berlínar. Þá er það einnig notað gegn Berlín að húsnæðisskortur sé þar þegar mikill og borgin geti á engan hátt tekið við öllum þeim aragrúa af mönnum sem viðriðnir em stjómun landsins með beinum eða óbeinum hætti. Berlínarsinnar, sem em margir ungt fólk, segir Bonn sveitalega og afturhaldssama. Berlín sé hins veg- ar heimsborg, iðandi af mannlífl og listviðburðum. Þeir sem enn minn- ast stríðsins tengja Berlín við hörmungar Þriðja ríkisins, því þrátt fyrir andstöðu við Hitler þar í byij- un nasistatímans varð hún síðar höfuðborg þess. Fjölmiðlar í Þýskalandi hafa undanfarið gagnrýnt stjómvöld þar í landi og sagt að hinir tvístígandi stjómmálamenn væm að gera hið nýsameinaða Þýskaland hlægilegt í augum umheimsins með atferli sínu. FRIÐARHLAUP ’91 17. JÚNÍ FRIÐARHLAUP Á ÞJÓÐHÁTÍÐ í ár er Heimsfriðarhlaupið haldið í þriðja sinn. Yfir 70 lönd taka þátt í hlaupinu sem hlaupið er í öllum heimsálfum. Á íslandi verður hlaupið frá Þingvöllum til Reykjavikur þann 17. júní. Hlaupið hefst við Valhöll kl. 9 árdegis og komið er til Reykjavikur tæpum 5 timum siðar. Þú þarft ekki að vera vanur hlaupari - Þú getur hlaupið hvaða vegalengd sem er, aðalatriðið er að vera með. Rúta mun fylgja hlaupinu alla leið og einnig verða ókeypis rútuferðir að hlaupinu og til baka til Reykjavikur sem hér segir: * Frá BSÍ kl. 8:00. Hkið Miklubraut og til Þingvalla. Frá BSI kl. 10:00. Ekið Miklubraut og til móts við hlaupið. Frá BSÍ kl. 11:30. Ekið Miklubraut og til móts við hlaupið. Einnig er hægt að koma inn í hlaupið á Ártúnshöfða um kl. 13:00 og hlaupa með síðasta spölinn niður í Hljómskálagarð. Hringdu og láttu skrá þig í síma 685525 (FRl). FRIÐUR ER ALLRA MÁL STÍGÐU SKREFIÞÁGU FRIÐAR Ilnni Sparisjoður |fc=3| K0RPLS -UDDI Hafnarfjarðar Auglýsing um tilkynningaskyldu á fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri á íslandi fyrir 25. mars 1991, sbr. ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 34 frá 25. mars 1991. Fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri hér á landi, sem átt hefur sér stað fyrir gildistöku laga nr. 34 frá 25. mars 1991, skal tilkynnt Seðlabanka íslands, gjaldeyriseftirliti, fyrir 25. júní 1991. Athygli skal vakin á sérstakri auglýsingu Seðlabanka íslands dags. 14. júní 1991, sem varðar tilkynningarskyldu á erlendri fjárfestingu, eftir 25. mars 1991, sem birtist á næstunni í Lögbirtingablaðinu. Reykjavík, 14. júní 1991 Starfsmenn EB hóta verkfalli Síða 5 ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 15. júní 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.