Þjóðviljinn - 28.06.1991, Page 19

Þjóðviljinn - 28.06.1991, Page 19
íslenskur blús er ekkert frat! - Fyrsti íslenski blúsdiskurinn: „Blue Ice“ - Mikil tíðindi hafa gerst. Tveir virtír listamenn frá Chicago, hðfuð- borg blústónlistarinnar, Jimmy Dawkins og Chicago Beau, hafa gefið út hljómleikaplötu með Vinum Dóra, sem er íslensk blúshijómsveit. Það er undirfyrirtæki Skífunnar, „Platonic records“ sem gefur út þennan disk, sem heitir þvi skemmtilega nafni „Blue Ice“. „Blue Ice“ er stórmerkilegur hljómdiskur fyrir margra hluta sak- ir. Blúsmenn í Chicago hefðu hvorki viljað, getað eða haft áhuga á að hljóðrita með tónlistarmönnum norður í íshafi sem heimurinn veit ekki einu sinni að eru til, nema eitt- hvað sé í þá varið. íslenskir blús- menn eru ekki bara velmeinandi áhugamenn, heldur fúllgildir blús- listamenn. Ekki má gleyma áheyr- endum. Þeir hafa tryggt að blús- hljómsveitir þrifast og fá næga þjálfun. Þessir sömu áheyrendur komu og bjuggu til þann anda í sal- inn sem þurfti til að draga fram það besta í músikmönnunum. Islenskur blús er ekkert frat! „Blue Ice“ er hljómleikaplata, sem tekin er upp á þremur kvöld- um. Góður smekkur hefur ráðið ferðinni í vali og niðurröðun lag- anna. Við fáum bestu blúsana sem sungnir voru og diskurinn hefur ágætan heildarsvip. Hljóðblöndun er einstaklega góð. Hljómleikaplöt- ur með betri tóngæðum finnast varla. Einstakt handbragð góðra fagmanna fer heldur ekki framhjá neinum sem heyrir hvemig öll þessi lög eru skeytt saman með fólkið í bakgrunni útí sal, svo engu er líkara en um eina samfellda tónleika sé að ræða. Hlustandinn endurlifir tón- leikana að svo miklu leyti sem það er gjörlegt. Chicago Beau syngur fjögur lög á „Blue Ice“. Hann náði góðu sambandi við hlómsveitina og áheyrendur, naut þess að syngja og fór á kostum í munnhörpuleiknum hvað eftir annað. Úr þessi varð blús sem þótti einstök skemmtan. Mig óraði ekki fyrir því að þetta kæmist til skila á disknum. Chicago Beau er mikið meira en blússöngvari sem spilar á munn- hörpu. Hann vinnur fjölþætt menn- ingarstarf í þágu meðbræðra sinna. Hann er bæði skáld og músikmað- ur, blúsmaður, ffæðari, forleggjari og félagsmálatröll. í blúsnum hans Chicago Beaus er að finna sérstaka upplifun hans á sögulegum örlög- um blökkumannsins í Ameríku. Það er eitthvað sem Chicago Beau er að reyna að segja, eitthvað sem kemur innanfrá og hefur djúpa merkingu. Ég er ennþá að grafa í gítarinn sinn öðm visi en allir aðrir. (Ég hef tjáð mig um það áður.) Alls Dóri, Jimmy, Guðmundur og Chicago. Engin mæða á mögnuðum blústónleikum. þessu. Líklega er lykil að leyndar- málinu að finna í blúsnum „Coun- try Shack". Jimmy Dawkins syngur fimm lög á þessum disk. Hann spilar á konar skoðanamótendur f blús- heiminum hafa látið það vera að hrósa Dawkins fyrir söng og telja hann ekki í hópi betri blússöngvara. En „Night life“ og útgáfa hans af „That’s alright" á þessum diski ætti að sannfæra áheyrandann um ann- að. Sá er syngur hefur fengið að bergja á kaleik harðneskjunnar í líf- Jimmy Dawkins spilar öðruvlsi á gftar en allir aörir. inu. „Welfare line“ vermir alltaf bolsévikahjartað í mér! Andrea Gylfadóttir kveður síð- asta blúsinn á disknum, „Sometim- es I have a heartache“, sem hefur heillað íslenska áheyrendur oft og mörgum sinnum. Það er við hæfi að hafa þennan blús Mömmu Thom- ton á disknum. Andrea er mikil söngkona. Með leikrænum tilburð- um og tilfmningatjáningu er hún oftast laus við tilgerð. Mér fínnst henni alltaf takast best upp þegar hreinn kvenleikinn fær að njóta sín. Ég hef aldrei haft smekk fyrir þvi þegar söngkonur rífa í sundur rödd- ina eða gera sér upp einhvers konar hæsi. Þessu bregður Andrea stund- um fyrir sig. Það finnst mér lýtir, því þessi blúskona íslenska lýð- veldisins er miklu betri en svo, að hún þurfi á einhveijum töffaraskap að halda. Sem betur fer koma ailir bestu eiginleikar Andreu fram í lag- inu hennar. Til hamingju! Eitt af þvi sem gerir Vini Dóra að ffamúrskarandi blúshljómsveit er smekkvís hrynsveit. Ásgeir Ósk- arsson er án efa einn besti blús- trommuleikari í heiminum. Hann er svo mikill músikant. Hann ber ekki bumbur, heldur spilar með. Hann slær ekki takt, heldur býr til músik. Hann er ekki bara að spila með bassaleikaranum, heldur líka með söngvaranum eða sólóistanum. Með snyrtilegum „breikunum" bróderar hann svo fangamarkið sitt i homið á hveijum blús. Jóhann Hjörleifsson leysti Ásgeir af eitt kvöldið. Við þurfum ekki annað en hlusta á „Feel so bad“, sem Dawk- ins syngur, til að heyra hvað Jói er næmur. Án þess að vita hvað var að fara í gang, datt hann ofaná rétta slagverkið og hélt því til enda. Frá- bært. Haraldur Þorsteinsson Ieikur á bassa fyrir Vini Dóra. Hann er ekta blúsbassaleikari, sem hefur næma tilfinningu fyrir þvi að skapa stígandi í hrynjandina. Það er ein- hver samhæfing takts, lagskynjunar og snertinæmleika sem þessi maður hefur sem gerir hann að galdra- manni. Ekki spyrja mig hvemig hann fer að því. Gítarleikaramir í Vinum Dóra, Guðmundur Pétursson og Halldór Bragason, eru fyrst og ffernst í hlut- verki undirleikaranna á þessum diski. Báðir þessir menn em sóló- istar í eðli sínu. Þegar slíkir menn setja sig í aukahlutverk og leggja sig alla ffam gerir maður sér grein fyrir því hvað þeir eru miklir lista- menn. Listamenn stíga ekki á tæm- ar hver á öðmm! Guðmundur og Dóri lögðu metnað sinn í að vera þátttakendur í að búa til góða plötu með Jimmy Dawkins og Chicago Beau i aðalhlutverki. Þeir búa yfir auðmýkt lærisveinsins, virða blús- hefðina og hafa nógu gott sjálfsmat til þurfa ekki að derra sig. Einhveij- ir minni spámenn hefðu staðið bí- sperrtir eins og hanar á haug við þessar aðstæður. Ég óska íslensku blúsfólki, Vinum Dóra og Skífunni hjartan- lega til hamingju með ffábæran blúsdisk. Pétur Tyrfingsson skrifdr um blús Eg vaknaði mæddur í morgun Föstudagur 28. júní 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SlÐA 19

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.