Þjóðviljinn - 12.07.1991, Blaðsíða 6
Drottinn gaf og drottinn tók...
Bandaríkjamenn endurtaka að þeir kunni að hætta hersetu á Clarkflugvelli
Gosmökkurinn yfir Pinatubo - Bandarfkjamönnum finnst varia borga sig aö gera viö stöðvarnar eftir gosið.
Bandaríska varnarmála-
ráðuneytið gaf til kynna í gær
að til greina kæmi að Bandarík-
in hættu starfrækslu Clarkflug-
vaUar, annarrar af tveimur
helstu herstöðvum sínum á Fil-
ippseyjum. Hin er flotastöðin
Subic Bay.
Ástæðan sem ráðuneytið gef-
ur upp er að Bandaríkjamönnum
þyki vart borga sig að gera við
mannvirkin á Clarkvelli, sem eld-
fjallið Pinatubo hefur valdið
miklu tjóni á.
Bandaríkjastjóm hefur áður
gefið þetta í skyn, en mun hafa
gert það af meiri alvöruþunga í
gær, a.m.k er sagt að ráðamönn-
um i Manila, höfuðborg Filipps-
eyja, hafi brugðið nokkuð. Sagði
Raul Manglapus, utanríkisráð-
herra þar, að Filippseyingar vildu
að Bandaríkjamenn gerðu við
skemmdimar á vellinum og skil-
uðu honum í nothæfu standi.
Bandaríkjamenn lokuðu
Clarkilugvelli í síðasta mánuði og
fluttu þaðan um 15.000 flugliða
og aðstandendur þeirra. Subic-
stöðin hefur einnig skaðast mikið
af ösku og hrauni, sem Pinatubo
er nú búinn að spúa síðan fyrir
rúmum mánuði, en er þó enn
starfrækt.
Raunar hefúr allrasíðustu árin
nokkrum sinnum komið til tals
hjá Bandaríkjamönnum að gefa
upp stöðvar þessar. Að þeirra
mati er leigan, sem Filippseyja-
stjóm krefst fyrir afnotin af land-
inu undir stöðvamar, óhæfilega
há, og þar sem kalda stríðið er bú-
ið finnst mörgum bandarískum
áhrifamönnum að þær séu ekki
svo nauðsynlegar sem fyrr.
Filippínskir herstöðvaand-
stæðinar glöddust mjög er Pinatu-
bo stökkti Bandaríkjamönnum frá
Clarkvelli og þeir kættust enn
meira er fréttist að Bandaríkin
væm að hugsa um að gefa stöðina
alveg upp á bátinn.
Rene Saguisag, öldungadeild-
arþingmaður sem vill Bandaríkja-
her burt, sagðist ekki efast um að
Guð væri nú að binda enda á her-
setu Bandaríkjamanna á eyjun-
um, þar sem þeir hafa haft her frá
því um aldamót, er þeir unnu eyj-
amar af Spánveijum. Sagði se-
natorinn á þá leið að Guð hefði
gefið Bandaríkjunum stöðvamar,
en nú væri hann á sama hátt að
taka þær af þeim.
Það sem herstöðvaandstæð-
ingum mistókst, „það tókst Pin-
atubo ... á þremur klukkustund-
um,“ sagði Jovito Salonga, forseti
filippínsku öldungadeildarinnar,
eftir að Bandaríkjamenn höfðu
yfírgefið Clarkvöll.
Sfðasti verkamaðurinn meðal
sænskra ráðherra látinn
„í vikunni lést Svante
Lundkvist, landbúnaðarráð-
herra Svíþjóðar 1973-76 og
1982-86. Hann varð 71 árs.
Svante Lundkvist fæddist í
verkamannafjölskyldu í Eskilst-
ima í Södermanlandi, mikilvæg-
um stað fyrir jám- og stáliðnað
Svía. Skólagöngu naut hann ekki
utan skyldunáms, hóf 16 ára
störf hjá póstinum við að bera út
bréf og vann þar að meira eða
minna leyti til ársins 1958. Hann
var frá unga aldri í flokki jafnað-
armanna, komst þar smámsaman
til mannvirðinga og var kjörinn á
ríkisdaginn (þingið) 1959. Áður
en hann varð landbúnaðarráð-
herra hafði hann gegnt ýmsum
Svante Lundkvist
ráðherraembættum öðrum frá
1967.
Segja má að þegar Lundkvist
hætti störfúm sem ráðherra 1986
hafi punktur verið settur aftan
við vissan kafla í sögu sænskra
jafnaðarmanna og Svíþjóðar
sjálfrar. Hann var síðasti ráðherr-
ann sem hafði verið í stjóm með
Tage Erlander (forsætisráðherra
1946-69) og „síðasti verkamað-
urinn“ meðal sænskra ráðherra,
eins og það var orðað.
Það er án efa nokkuð til í því.
Svante Lundkvist var einn af
mörgum áhrifamönnum í jafnað-
armannaflokknum sem höfðu
litla skólamenntun, en hófust
smámsaman til áhrifa í verka-
lýðsfélögum og sveitarstjómum.
Þetta vora náttúragreindir menn
og sjálfmenntaðir, djarfir og
fastir fyrir, hugsjóna- og raunsæ-
ismenn í senn. Undir þeirra
stjóm var mótað sænska velferð-
arþjóðfélagið, líklega besta sam-
félag sögunnar til þessa, þrátt
fyrir aðskiljanlega galla.
Þessir menn heyra nú liðna
tímanum til.
66 ára að aldri gaf Svante út
ljóðabók (Noteringar - dikter
om liv och politik á frummál-
inu). Þegar hann vék úr ráðherra-
stóli árið eftir sagðist ætla að
veija því sem eflir væri ævinnar
til að elska konuna sína og leika
á fiðlu.
Skotið úr þyrlum á jarðarför
Langflestir
rúmenskir
eyðnisjúklingar
eru börn
94 af hundraði Rúmena
þeirra, sem veikir eru af eyðni,
eru börn undir 12 ára aldri, og
er það yfir helmingur allra
eyðnisjúldinga á þeim aldri í
Evrópu. Skýrði embættismaður
í heilbrigðisráðuneyti Rúmeníu
frá þessu í gær.
Hann sagði að vitað væri að
eyðnin hefði verið komin til
landsins 1985, en þangað til
Ceausescu einræðisherra var
steypt í árslok 1989 hefði þar í
landi ekki mátt minnast á sam-
kynhneigð eða eyðni. Bömin
munu flest hafa sýkst við blóð-
gjöf, en fyrir árið 1990 var ekki í
landinu tækni til að greina hvort
eyðniveirur væru í blóði.
12 menn hafa verið drepnir
og hátt á annað hundrað særðir
í átökum yfírvalda og Kúrda í
tyrkneska Kúrdistan síðustu
daga. Er þetta mesta mann-
tjónið á svo stuttum tíma í átök-
um tyrkneskra her- og lög-
reglumanna og kúrdneskra
skæruliða og andspyrnumanna
það sem af er árinu.
Meðal þeirra sem særðust
vora fjórír kúrdneskir þingmenn á
tyrkneska þinginu. Ólga er mikil í
tyrkneska Kúrdistan siðan á
mánudag er Vedat Aydin, kúrd-
neskur stjómmálamaður, fannst
myrtur þremur dögum eftir að
menn, sem að sögn eiginkonu
hans vora lögreglumenn, höfðu
haft hann með sér á brott. Um
25.000 manns vora við jarðarfor
hans í Diyarbakir á miðvikudag
og skaut tyrkneskt lögreglulið á
mannfjöldann, að sumra sögn úr
þyrlum. Hundruð manna voru
handteknir.
„Það sem öryggisliðið gerir
hér er miklu verra en það sem
Israelar gera Palestínumönnum,“
sagði Salih Sumer, einn þing-
mannanna sem særðist. Var hann
skotinn í annan fótinn.
Vestur-Sahara: Friður f sjðnmáli
Hálfs annars áratugar stríði í
Vestur-Sahara milli þarlendrar
sjálfstæðishreyfíngar og Mar-
okkó virðist nú vera að ljúka.
Hafa stríðsaðilar fallist á að láta
snemma næsta ár fara fram í
Iandinu þjóðaratkvæðagreiðslu
um hvort það skuli heyra undir
Marokkó eða verða sjálfstætt.
Perez de Cuellar, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, hefúr stungið upp á að
vopnahlé stríðsaðila hefjist 6. sept.
Hann hefúr tilkynnt að 36 ríki hafi
boðist til að leggja menn fram í
friðargæslulið á svæðið, þ.á m. rík-
in fimm sem fastaaðild eiga að Ör-
yggisráði S.þ. Er þetta í annað sinn
sem fimmveldi þessi sýna slíkan
bræðralagsanda; í fyrra skiptið var
það er þau sendu liðsforingja í
gæsluliðið á landamærum íraks og
Kúvæts.
Svæði það er nú er kallað Vest-
ur- Sahara var lengi spænsk ný-
lenda, en Spánveijar létu það af
höndum við Marokkó og Máritan-
íu 1976. Undu margir landsmenn
því illa og hófú skærustríð með
stuðningi Alsírs.
Mannskæð
flóð í Kína
Um 1000 manns hafa farist I
flóðum (Kína s.l. rúman mánuð
og tjónið eftir flóðin nemur yfir
þremur miljörðum dollara, sam-
kvæmt fréttum frá stjómvöldum.
Flóðin era mest í austurhluta
landsins. Miklar rigningar hafa
verið þar undanfarið og hleypt
vexti í fljót og ár. Aðstoð berst er-
lendis frá til héraða þeirra er
harðast hafa orðið úti, einkum frá
Japan.
Vinnustaða-
sellur fá að
bjóða fram
Deildir kúbanska kommúnista-
flokksins á vinnustöðum munu að
líkindum fá rétt til að stinga upp á
frambjóðendum til kjörs í mið-
stjóm flokksins, sem kosið verður
í á þingi hans í október, að sögn
þarlendra fjölmiðla fyrr í vikunni.
Hingað til hafa aðeins efri lög
flokksins haft möguleika á að út-
nefna frambjóðendur i miðstjóm-
ina. I henni era yfir 100 fulltrúar.
Breyting þessi, segja fjölmiðl-
amir, er til þess að koma forastu-
mönnum í betra samband við
„grasrótina" í flokknum og gera al-
menningi kleift að hafa meiri áhrif
á landsstjóm.
Drukkin
lögregla skaut
niður
flugvél
Peráanskir lögreglumenn
skutu á þriðjudag niður farþega-
flugvél (innanlandsflugi, er hún
var að taka sig á loft af Bellavista-
flugvelli í Amasonskógum. 15
manns fórast. Vitni segir aö lög-
reglumennimir hafl verið drakknir.
Pílagrímar
farast
Kanadísk farþegaflugvél í
leiguflugi fórst í gær er hún var
nýhafin til flugs af flugvellinum við
Jeddah í Saúdi-Arabíu og fórust
allir sem með henni vora, yfir 260
að tölu. Farþegamir voru flestir
Nígeríumenn, pílagrímar á leið
heim frá Mekka.
Eldur kom upp í einum af
hreyflum vélarinnar, sem var af
gerðinni DC-8, og hafði flugmað-
urinn snúið henni við og var að
reyna að nauðlenda er hún hrap-
aði.
20.000 Serbar
flúnir
frá Króatíu
Yfir 20.000 Serbar hafa flúið
frá Króatíu til Vojvódínu, sjálf-
stjómarsvæðis sem á landamæri
að því lýðveldi en er hluti af Serb-
(u. Skýrði upplýsingamálaráð-
herra svæðisins svo frá í gær.
Munu flóttamenn þessir flestir
hafa komið frá Slavóníu, þeim
hluta Króatíu sem liggur að Vojv-
ódínu.
[ þeim hluta Slavóníu sem
næstur er landamæranum búa
margir Serbar og þar hefur und-
anfarið oftsinnis komið til blóð-
ugra átaka milli þeirra og Króata. [
gær féllu tveir menn og þrír særð-
ust í átta stunda bardaga milli
króatískra þjóðvarðarliða og seri>
neskra þjóðemissinna í Osijek,
borg á þeim slóðum.
Ekki var að heyra á fréttum (
gær að neitt hefði dregið úr yfir-
vofandi hættu á stríði milli Króata
og Serba.
Föstudagur 12. júlí 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SfÐA 6