Þjóðviljinn - 09.08.1991, Qupperneq 5
„Við tökum það allt“
Iþýska vikuritinu Der Spieg-
el birtist nýverið eftirfar-
andi viðtal þess blaðs við mann
að nafni Vojislav Seselj, sem að
eigin sögn og blaðsins er yfir-
foringi skæruliða þeirra serb-
neskra, sem undanfarnar vikur
hafa barist gegn Króötum. Se-
selj er 36 ára og formaður serb-
nesks stjórnmálaflokks, sem
nefnist Róttæki flokkurinn.
Hann er félagsfræðingur að
mennt og á valdatíð kommún-
ista í Júgóslavíu sat hann tæp
tvö ár í fangelsi fyrir „fjand-
samlegan áróður“.
SPIEGEL: Hvað létuð þér
verða yðar jyrsta verk, ef þéryrð-
uð forseti Serbíu?
SESELJ: Að kveðja alla
Serba til vopna tafarlaust, aflima
Króatíu með leiftursókn og til-
kynna jafnframt umheiminum að
Serbía hefði fengið ný landamæri.
SP: Og hvar yrðu þá þau
landamœri?
S.: Serbíu verða að heyra til
auk núverandi lands hennar, þ.á
m. héraðanna Vojvódinu og
Kosovo, lýðveldin Bosnía-Herze-
góvína, Makedónía og Svart-
ljallaland. Einnig svæði þau í
Króatíu, sem byggð eru Serbum.
Landamæri okkar við Króatíu
yrðu við borgimar Karlobag,
Karlovac og Virovitica.
SP: Með öðrum orðum sagt:
Króatia myndi ekki halda nema
um þriðjungi núverandi land-
svæðis síns.
S.: Já, landamæri okkar yrðu
svo nærri Zagreb að við gætum
ffá þeim séð tuminn á dómkirkj-
unni þar. Nægi Króötunum það
ekki, tökum við það allt eigi að
síður. Um 200.000 Serbum í Za-
greb og um 30.000 í Rijeka verð-
um við vitaskuld að fá nýja bú-
staði.
SP.: Þér hafið hótað múslim-
um í Bosniu hefndum, geri þeir
bandalag við Króata þar. Mœtti
ekki búast við andspyrnu gegn
serbnesku hemámi á lýðveldinu?
S.: Múslímamir í Bosníu em
Serbar, sem snemst til íslams, og
sumir svokallaðra Króata þar em
kaþólskir Serbar. Eftir striðið
þvingaði Tito miljón kaþólskra
Króata hvarvetna í Júgóslavíu til
að kalla sig Serba.
SP: Og ef múslímar ekki vilja
afneitaþjóðerni sínu?
S.: Þá verðum við að reka þá
burt úr Bosníu.
SP.Hvert?
S.: Til Anatólíu.
SP.: Hvert mynduð þér þá
senda Makedónana, sem lika
vilja lýsa sigfiullvalda?
S.: Það leyfum við ekki.
Makedónía heyrði Serbiu til þeg-
ar áður en Júgóslavía var stofnuð.
SP.: Hverskonar stjómarform
vilduð þér hafa í sjálfstœðri Stór-
Serbíu?
S.: Aður vomm við hlynntir
því að konungurdómur yrði end-
urreistur. En það sem við heyrum
ffá Alexandri prins hentar okkur
ekki. Hann hælir lýðræði Slóvena
og Króata, en virðist ekki sjá ann-
að í Serbíu en bolsévíka. Þar af
leiðandi höfum við ákveðið að
Serbía verði lýðveldi áfram.
SP: Gœti Júgóslavía haldið
áfram að vera til sem rikjabanda-
lag?
S.: Við beijumst fyrir því að
Júgóslavía verði lögð niður sem
ríki. Ríkjabandalag af því tagi,
sem hér um ræðir, fyrirfinnst
ekki. Við forum ekki að gera okk-
ur að tilraunakanínum fyrir svo-
leiðis nokkuð.
SP: Hvernig œtlið þér þá að
vinna þau svæði, sem þeir ætlist
til að heyri til þessu mikla riki
framtiðarinnar?
S.: Við lögðum til að Slóvenía
yrði aðskilin ffá Júgóslavíu. Það
er þegar orðið. Nú ætti herinn að
hverfa frá Zagreb og taka sér
stöðu á vesturmörkum serbnesku
byggðanna, þar sem vesturlanda-
mæri Serbíu verða.
SP.: Hafið þér ekki áhyggjur
af 100.000 manna vopnuðu liði
Króata?
S.: Þér sjáið sjálfúr hvemig
Króatamir falla í hrönnum. Þeir
em hugleysingjar, við emm öfl-
ugri. í Borovo Selo vom 300 Kró-
atar í umsátri 22 Serba.
SP.: Hatiðþér Króata?
S.: Króata sér engan stað í
sögunni, þeir era varla raunvem-
leg þjóð. Takið þér Þjóðverja og
Tékka til dæmis og samanburðar.
Að vera Tékki er það sama og að
teljast hugleysingi. Þjóðveijar em
aftur á móti þjóð striðsmanna.
Hliðstæður er munurinn á Serbum
og Króötum. Króatar em spillt
þjóð. Ennþá hef ég ekki fyrirhitt
nokkum sómamann af því þjóð-
emi.
SP.: Hvert er álit yðar á for-
seta Króatiu, Tudjman?
S.: Stjóm Tudjmans er völt á
fótum. Hún getur fallið þá og þeg-
ar, vegna manntjónsins á öllum
vígstöðvum. Ennþá hefur ekki
verið gefið upp, hve margir hafa
raunvemlega fallið af liði Króata.
Okkar tíma sétníkar - „Komi til eriendrar íhlutunar drepum við ykkur alla.“
Seselj sétnlkaforingi
eru ragmenni."
„Króatar
SP: Sagt er að þar á meðal
séu margir útlendingar.
S.: Já, aðallega Albanir frá
Kosovo. Þeir fara flestir heim aft-
ur, en ekki lífs. Tudjman lætur
borga hveijum málaliða 1500
mörk. Það em miklir peningar.
Þingmannslaun mín em ekki svo
há. Auk Albana berjast í liði Tu-
djmans Kúrdar, Ungverjar, Pól-
verjar og Þjóðveijar.
SP: Þýska sendiráðið neitar
þvi að nokkrir Þjóðverjar séu þar
i liði.
S.: 1 árás á eldflaugastöðvam-
ar fyrir tveimur vikum létu a.m.k.
40 herþjálfaðir Þjóðverjar lífið.
En ég geri ekki ráð fyrir því að
þeir hafi verið gerðir út af stjóm-
inni í Bonn, heldur hafi þeir verið
þama að eigin ffumkvæði.
SP.: Þér eruð æðsti maður
sjálfboðaliðahers ykkar. Hverjar
eru hemaðarfyrirætlanir yðar?
S.: Eg er vojvódi. Þeim titli
sæmdi mig Momcilo Djujic, sem
er elstur sétníkaforingja þeirra,
sem enn em á lífi og býr í Kali-
fomíu. Ég skipulegg aðgerðir
skæmliðasamtaka okkar, ákveð
árásarmörk og hvaða staðir skuli
herteknir.
SP: Ráðast hersveitir yðar
sem sagt einnig á þorp, þar sem
eingöngu búa Króatar?
S.: Nei. Við verjum aðeins
serbnesk þorp.
SP.: Hversu öfiugur er heryð-
ar?
S.: Nógu öflugur!
SP: Hvaðan eru liðsmennim-
ir?
S.: Þeir em allir Serbar. Marg-
ir þeirra koma raunar úr útlegð.
Þegar við sendum þá á vígstöðv-
amar, taka þeir sér óborgað frí frá
vinnu.
SP.: Eitthvað af vopnum ykk-
ar erfrá sambandshernum?
S.: Eitthvað já, en það em
bara úreltir þýskir hólkar. Svo er-
um við með Thompsons úr
heimsstyijöldinni síðari með mik-
illi hlaupvídd og þmkki. í Borovo
Selo var einn ústasjinn svo
óheppinn að fá þannig skot í höf-
uðið og hmkku við það úr honum
augun bæði. Það leiddi til þess að
Króatar héldu því fram að Við
hefðum níðst á líkunum.
SP.: Hafið þið einnig keypt
vopn erlendis?
S.: Auðvitað, meira að segja i
Ungverjalandi. Við komumst í
samband við einn ráðherrann þar,
borguðum honum og hann sendi
okkur vopn.
SP: Hvar berjast menn yðar
nú?
S.: Við sendum þá ffá Belgrad
til óffiðarsvæðanna. Þegar 20 eða
30 sétníkar em komnir til ein-
hvers þorpsins, dugar það til að
hvetja íbúana til dáða.
SP.: Atta afhverjum tiu mönn-
um í sambandshemum eru Serb-
ar. Hversvegna látið þér honum
ekki eftir að verja Serba?
S.: Vegna þess að hingað til
hefúr her þessi ekki vemdað okk-
ur Serba. Herinn hefst ekki að
nema þegar Serbar berjast við
Króata. Við höldum alltaf undan,
þegar herinn lætur sjá sig. I hon-
um em sem sé ennþá þó nokkrir
gamlir kommúnistaforingjar með
hleypidóma gegn sétníkum.
SP: Óttist þér ekki að rót-
tœkniyðar leiði tilþess að Serbar
einangrist?
S.: Það yrði þá ekki í fyrsta
sinn í Serbasögu. I byijun aldar-
innar lenti Serbía í tollastríði við
Austurríki-Ungveijaland og hélt
velli.
SP: Hvað gerið þér, ef Evr-
ópa eða Bandaríkin aðstoða lýð-
veldi þau er Serbia ógnar?
S.: Langi ykkur til að deyja -
gerið þá svo vel! Það sýndi þá að
þið hefðuð ekkert af sögunni lært.
Við emm reyndir í skærahemaði,
við eium engir arabar, okkar land
er ekki Irak. Komi til erlendrar
íhlutunar drepum við ykkur alla,
hvar sem við komumst í færi.
SP.: Hverjir eru „ við “?
S.: Meirihluti Serba. Banda-
ríkin og Evrópa hafa af fyrir-
hyggjuleysi fúllkomlega fyrirgert
samúð okkar. Þið hafið hjálpað
Króatíu og Slóveniu, einungis
vegna þess að þær em kaþólskar
en við rétttrúnaðarkristnir. Við
gleymum aldrei þeirri smán, sem
okkur var gerð með því að þrír
ráðherrar frá Evrópubandalagi
komu á fund forsætisráðs og
þvinguðu það til að kjósa Króat-
ann Stipe Mesic í forsetaembætti.
SP.: En hafa Vesturlönd samt
ekki hjálpað til við að frelsa Aust-
ur- Evrópu undan kommúnisman-
um?
S.: Kommúnistastjóminni var
neytt upp á Júgóslavíu. Churchill
sveik sétníkaleiðtogann Draza
Mihailovic og Pétur konung með
því að viðurkenna Tito. í hálfa öld
studdu Vesturlönd Tito og enginn
spurði þá hvort við hefðum ffelsi
og lýðræði eða hversvegna við
sætum í fangelsum. Nú, þegar við
erum fijálsari en nokkru sinni
fyrr, er hreytt í okkur að við séum
bolsévíkar.
SP: Greiðir Milosevic Serb-
íuforseti yður launin? Sagt er að
þið séuð í raun í þjónustu hans,
að framkvæma stefnu hans.
S.: Þegar ég kem til valda læt
ég sennilega handtaka Milosevic.
En ég stend með honum meðan
Bandarikjamenn halda áffam að
reyna að steypa honum af stóli,
jafnframt því sem þeir styðja Vuk
Draskovic, sem genginn er af
göflunum, og Lýðræðisflokk
Micunovics. Það kemur ekki til
greina að í Washington verði
ákveðið hvað gerist í serbneskum
stjómmálum.
(Skýringar: Anatólía er vest-
urhluti Tyrklands. Undir yfirráð-
um Tyrkja var það sem sumir Bo-
sníumanna snemst til íslams. Al-
exander prins er sonur Péturs ann-
ars, siðasta konungs Júgóslavíu.
Vojvódi er gamall balkanskur
höfðingjatitill. Ustasjar nefndust
fasistar þeir sem réðu í Króatíu í
heimsstyijöldinni síðari; svo kalla
nú serbnesku skæmliðamir þjóð-
varðarlið og lögreglu Króata.
Sétníkar vom konunghollir serb-
neskir skæmliðar í heimsstyrjöld-
inni síðari, sem börðust stundum
gegn Þjóðverjum, en stundum
með þeim gegn her Titos. Núver-
andi serbneskir skæmliðar líta á
sig sem arftaka þeirra. Milosevic
Serbaforseti er leiðtogi fyrrver-
andi kommúnistaflokks þess lýð-
veldis, en Draskovic helsti and-
stæðingur hans í stjómmálum þar,
eitthvað hægrisinnaðri og enn
þjóðemissinnaðri. dþ.)
Föstudagur 9. ágúst 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 5
Sérkennslufulltrúi
Staða sérkennslufulltrúa við Fræðsluskrifstofu Norð-
urlandsumdæmis eystra er laus til umsóknar. Um-
sóknarfrestur er til 23. ágúst.
Nánari upplýsingar veitir fræðslustjóri I síma 96-
24655.
Fræðslustjóri