Þjóðviljinn - 09.08.1991, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 09.08.1991, Blaðsíða 8
Útgefandh Útgáfufélagíð Bjarki h.f. t§§s Auglýslngadeild:« 68 1 310-661331 Framkvaamdastjóri: Hatlur Páll Jóns Ritstjórarr Ámi Bergmann, Helgi GuC Umsjónarmaöur Heigarblaðs: Berg son >mun JlsE dsso llerts Símfax: 68 19 35 n, Verð: 170 krónur í lausas dóttir Setning og umbrot: Pre Þr*rkti<m HWHI Kf ðlu ntsmiðja Pjóðviljans hf. |||;; Auglýslngastjóri: Steínar Harðarson Afgreiðsla: * 68 13 33 Aðsetur: Slöumúla 37, 1 08 Reykjavik Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis Formannadúett Ríkisstjórnin undirbýr nú ýmis stórmál sem koma munu til frekari umræðu og umfjöllunar í þjóðfélaginu á næstu vikum og mánuðum. Vitað er að hún hefur í huga mikinn niðurskurð ríkisútgjalda. Niður- skurðarkröfurnar verða væntanlega mis- miklar og endurspegla pólitískar áherslur ríkisstjórnarinnar. Tillögur í þessum efnum eru að fæðast, en ýmislegt bendir til, að á suma ráðherrana séu að renna grímur tvær þegar þeir sjá til hvers er ætlast af þeim. Þannig segir Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra í Morgunblaðinu á laugardag að hann stefni að því að útgjöld menntamálaráðuneytisins á næsta ári verði jafn há og þau eru samkvæmt gild- andi fjárlögum, en þau urðu til í tíð síðustu ríkisstjórnar. Það sem af er hefur ríkisstjórnin reynst afskaplega seinheppin í tiltektum sínum, aðgerðir hennar hafa orðið til þess að vextir eru hækkandi, utanríkisráðherra virðist úti að aka þegar hann er spurður út í samninga um EES sem reynt hefur verið að lemja saman með litlum árangri undir hans stjórn, og í þriðja lagi má nefna skelfilegan vandræðagang vegna vænt- anlegra breytinga á fiskveiðistjórnuninni. Samkvæmt kröfu Alþýðuflokksins er enn haldið til streitu að taka upp sölu veiðileyfa og er á flokknum að heyra að í þeirri ráðstöfun sé fundin einskonar allra meina bót fyrir sjávarútveginn. Hér róa stjórnarflokkarnir sinn í hvora áttina og hefur því verið gripið til þess ráðs að koma á laggirnar nefnd sem ætlað er það hlut- verk að móta nýja stefnu í málinu. Svo djúpt ristir ágreiningurinn að ekki tókst að skipa einn formann fyrir nefndina, heldur varð að setja tvo, og er hvor fulltrúi fyrir sinn flokk. Stjórnarflokkarnir hafa eins og kunnugt er markaðshyggjuna að leiðarljósi, sem felur í sér að hverskonar einokunarstarf- semi er eitur í hennar beinum. Þar á ofan er fjandskapur gegn samvinnuhreyfing- unni inngróinn í pólitísk viðhorf flestra for- ystumanna Sjálfstæðisflokksins. For- mannadúettinn í umræddri nefnd er því heldur kyndugt fyrirbæri. Af hálfu Sjálf- stæðisflokksins situr þar Magnús Gunn- arsson, sem reynst hefur dugandi fram- kvæmdastjóri Sölusambands ísl. fiskfram- leiðenda, en þau samtök hafa lengi verið þyrnir í augum Alþýðuflokksmanna, eink- um formannsins. Magnús hefur mikla reynslu af málefnum sjávarútvegsins og hefur talsvert látið að sér kveða í almenn- um umræðum á því sviði. Hinn formaður- inn, Þröstur Ólafsson, kemur hins vegar úr allt annarri átt, hafandi verið einn af for- ystumönnum samvinnuhreyfingarinnar um alllangt skeið. Á hinn bóginn er reynsla hans af sjávarútvegsmálum í minna lagi, en þeim mun meiri af samvinnuverslun í Reykjavík. Þessi skipan mála bendir til þess að Sjálfstæðisflokkurinn muni ráða miklu meiru um gang mála í nefnd þessari en Al- þýðuflokkurinn. Og þó það kunni að hljóma undarlega verður ekki annað séð en að það sé til bóta og líklegt til að koma í veg fyrir stór- slys, en í þeim efnum er Alþýðuflokknum afar illa treystandi. Öllum er Ijóst að kvótakerfið er gallað og þarfnast lagfæringa, en eins og sakir standa verður ekki séð að sala veiðileyfa geti ein og sér leyst það af hólmi, eins og Alþýðuflokkurinn virðist halda. Sjávarútvegurinn og þjóðfélagið má ekki við kollsteypum í skipulagi fiskveiða. Allar breytingar verður að gera með gát og að vandlega athuguðu máli, en slíkt vinnu- lag virðist því miður ekki henta ríkisstjórn- inni um þessar mundir. hágé. í»»l /«• viiminiinivhirrr 8.SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 9. ágúst 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.