Þjóðviljinn - 09.08.1991, Side 6
4
17ír>^'TTm A PC17U17TTTD
v7 ^ fi U lTiAljrö Jr jvxL JL 1 fi Bv
Mótmæla braut
um Fossvogsdal
Samtökin Líf í Fossvogsdal
hafa gert athugasemd við Aðal-
skipulag Reykjavíkur 1990-2010
varðandi breytingar á stofnbraut-
arkerfi borgarinnar, þ.e. mögu-
leika á gerð yfirbyggðrar stofn-
brautar í Fossvogsdal.
Samtökin telja að þar sé vikið
frá helstu markmiðum Aðalskipu-
lags Reykjavíkur í vegamiklum at-
riðum. Þau telja að hugmynd um
akbraut um þennan gróðursæla dal
sé í andstöðu við markmið Aðal-
skipulags Reykjavíkur um að búa
íbúum borgarinnar sem best lifsskil-
yrði og umhverfi.
Vekja samtökin athygli á, að í
dalnum eru starfræktir tveir íjöl-
mennir grunnskólar, Snælandsskóli
og Fossvogsskóli. í fylgiritinu er
hvergi minnst á öruggar gönguleiðir
bama, aukna tijárækt eða uppbygg-
ingu útivistarsvæða í Fossvogsdal.
Stéttarsamband bænda
Smjörvafyrirheitin
verði dregin til baka
Stéttarsamband bænda
krefst þess að öll fyrirheit
um rýmkaðar innflutnings-
heimildir fyrir búvöru verði
dregin til baka. Sambandið hef-
ur sent ríkisstjórninni bréf þar
sem þess er krafist að fyrirheit
um leyfðan innflutning á mjólk-
urvörum einsog Smjörva, Léttu
og Iaggóðu, jógúrti og ísblönd-
um vegna samninga um evr-
ópskt efnahagssvæði verði aft-
urkölluð.
Þá krefst sambandið þess að
fullt samráð verði haft við bændur
ef af ffekari samningaviðræðum
verður.
Stéttarsambandið minnir rík-
isstjómina á búvömsamninginn í
þessu sambandi sem þáverandi
fjármálaráðherra og landbúnaðar-
ráðherra undirrituðu 11. mars í
vor. I bréfinu til ríkisstjómarinnar
er bent á að markmið samningsins
sé að aðlaga búvöruffamleiðsluna
að innlendri markaðsþörf og gefa
landbúnaðinum svigrúm til þró-
unar í átt til aukinnar hagkvæmni
sem geri landbúnaðinn betur sam-
keppnishæfan. Alþjóðasamninga
má ekki gera samkvæmt búvöru-
samningnum öðruvísi en þeir
samrýmist þessum markmiðum
um jafnvægi innlendrar fram-
leiðslu og heimamarkaðar.
Stéttarsambandið telur að inn-
flutningur á þessum mjólkuraf-
urðum gæti haft áhrif á 20 prósent
af hlutdeild mjólkurvara á mark-
aði hér á landi. Það finnst bænd-
um að samrýmist ekki því jafn-
vægi sem búvörusamningurinn
kveður á um. Þá vísar sambandið
því á bug að þessar vörur séu iðn-
aðarvörur, enda ætti öllum að vera
Ijóst að innflutningur slíkra vara
hefði bein áhrif á þá hagsmuni
sem samningi bænda og ríkisins
sé ætlað að tryggja, segir í bréf-
inu.
Að gefnu tilefni er tekið fram
í bréfinu að þessi áform um inn-
flutning mjólkurvara hafi ekki á
neinu stigi málsins verið kynnt
eða rædd við forsvarsmenn Stétt-
arsambandsins.
Séra Heimir Steinsson
ráðinn útvarpsstjóri
Hjólreiöakappar frá Þýskalandi hvíla lúin bein niður I Laugardal ( sólskininu I gær. Þau sögðu Ijósmynda að
þau væru hálfnuð í ferð sinni hringinn I kringum landið. Eins og margir ferðalangar komu þau með færeysku
ferjunni Norrænu hingað til lands. Mynd: Jón Fjörnir.
Igær var sr. Heimir Steinsson,
þjóðgarðsvörður á Þingvöll-
um, skipaður útvarpsstjóri Rík-
isútvarpsins frá og með 1. októ-
ber 1991.
Alls sóttu 14 manns um starfið
og óskuðu fjórir þeirra nafnleyndar.
Blaðið ræddi við sr. Heimi um
nýja starfið og hvers vegna hann
heíði sýnt starfinu áhuga. „Ríkis-
útvarpið er hjarta íslenskrar menn-
ingar og kynningarmiðstöð er-
lendra menningaráhrifa á Islandi,“
sagði Heimir. „Ég hef lengi látið
mér nokkuð titt um íslenska menn-
ingu og þess vegna gæti þetta verið
ávinningur.“ Heimir sagðist lengi
hafa hugsað til þessa embættis með
nokkurri löngun, en ekki hefði ver-
ið tímabært að sækja um það fyrr
en nú.
Heimir mun láta af störfúm
sem þjóðgarðsvörður eftir 1. októ-
ber og prestsstörfin verða einnig
látin víkja fyrir nýja embættinu.
En er von á einhveijum breyt-
ingum hjá nýja útvarpsstjóranum?
Heimir sagði það nokkuð
snemmt að tjá sig um þá hluti að
svo stöddu. Ef einhveijar breyting-
ar yrðu hinsvegar gerðar, þá yrði
skýrt frá þeim í hljóðvarpi og sjón-
varpi.
Málefni Rásar 2 hafa verið of-
arlega á baugi og það er því ekki úr
vegi að heyra skoðun Heimis á því
máli.
,Jíg hef nú ekki hugleitt mál-
efni Rásar 2 sérstaklega, nema þá
hversu sérlega vænt mér þykir um
hana. En ég geri ekki ráð fyrir því
að ég beiti mér fyrir því, að hún
verði seld.“
Heimir sagðist að lokum
hlakka til að takast á við nýja starf-
ið og sagðist vænta hins besta af
samstarfi við gott fólk í hljóðvaipi
og sjónvarpi.
Þeir aðilar sem sóttu um starf
útvarpsstjóra vom: Gísli Alffeðs-
son, þjóðleikhússtjóri, Halldór
Halldórsson, fféttamaður, Inga
Jóna Þórðardóttir, viðskiptaffæð-
ingur, Ólafur Stephensen, markaðs-
ráðgjafi, Pétur Guðfinnsson, lfam-
kvæmdastjóri Sjónvarps, Ragnar
Jónsson, kennari, Stefán J. Haf-
stein. dagskrárstjóri, Sveinn Krist-
insson og Sverrir Öm Kaaber,
skrifstofústjóri. -KMH
Niðurskurðurinn
Ekki hægt á byggingu félagslegra íbúða
Samkvæmt tillögum Jó-
hönnu Sigurðardóttur
verður ekki skorið niður í fé-
lagslega íbúðakerfinu en ríkis-
stjórnin ræddi í gær tillögur
ráðuneytanna um niðurskurð á
næsta fjárlagaári. Skera á nið-
ur um 15 miljarða en þar af eru
4-5 miljarðar sem eftir eru á
óskalista ráðherranna. Félags-
málaráðherra sagði að bygg-
ingasjóðir ríkisins og verka-
manna stæðu mun betur en
menn hefðu haldið hingað til.
Davíð Oddsson, forsætisráð-
herra, sagði að miðað við þær til-
lögur sem komið hefðu frá ráðu-
neytunum um spamað benti allt
til þess að markmiðunum yrði náð
en endanlega á að ganga frá til-
lögunum á ríkisstjómarfundi 19.
ágúst. Friðrik Sophusson, fjár-
málaráðherra, sagði að engar
ákvarðanir hefðu verið teknar á
fúndinum en að farið hefði verið
yfir hugmyndir ráðuneytanna og
að þær hugmyndir hefðu sam-
svarað sér vel við óskir fjármála-
ráðuneytisins. Hans ráðuneyti og
fagráðuneytin munu fara yfir til-
lögumar og hversu raunhæfar þær
séu. Þá mun einhverjum atriðum
verða vísað til stjómarflokkanna
og formanna þeirra þar sem taka
þarf pólitíska ákvörðun. Hvorki
Friðrik né Davíð vildu nefna um
hvaða atriði væri þar að ræða.
„Ég hef lagt fram ákveðnar
hugmyndir um hvemig megi ná
fram jafnvægi í fjárhagsstöðu
byggingasjóða ríkisins og verka-
manna, án þess að höggvið sé í fé-
lagslega íbúðakerfið og að hægt
verði að halda áfram á sömu braut
og verið hefur,“ sagði félagsmála-
ráðherra og bætti við að þó þessar
tillögur hafi ekki verið samþykkt-
ar í ríkisstjóminni hafi verið vel í
þær tekið. Hún sagði að það þyrfti
ekki endilega að fela í sér frekari
vaxtahækkanir og ekki heldur
samdrátt í útlánum þar sem þetta
næðist fram með hagræðingu og
skipulagsbreytingum sérstaklega
með lokun á húsnæðiskerfinu sem
kennt hefúr verið við 1986. Þetta
byggist á vinnu síðastliðna 18
mánaða, sagði Jóhanna.
Hún telur að hugmyndir sínar
séu þannig að þær þurfi ekki að
bitna á félagslega íbúðakerfinu.
Hún vildi ekki segja frekar til um
tillögur sínar í þessu sambandi.
En hún bætti við að staða sjóð-
anna beggja væri mun betri held-
ur en menn hefðu haldið hingað
til. Hún sagði að staðan hefði
gjörbreyst til hins betra frá því í
fyrrahaust er Ríkisendurskoðun
birti svarta skýrslu um sjóðina.
-gpm
$r,el’'
Atvinnutryggingadeild
Sumarráð-
stefna SÍNE
Sumarráðstefna SINE, Sambands
íslenskra námsmanna erlendis, verður
haldin í Stúdentakjallaranum laugar-
daginn 10. ágúst kl. 14.
íslenskir námsmenn erlendis em
hvattir til að mæta og sýna samstöðu.
Hálfur miljarður f vanskilum
Af 8,8 miljörðum króna í úti-
standandi skuldum eru 5-600
miljónir króna í vanskilum hjá at-
vinnutryggingadeild Byggða-
stofnunar. Atvinnutryggingasjóði
útfiutningsgreinanna var breytt í
atvinnutryggingadeild og er stað-
an nú sú að eigið fé deildarinnar
er neikvætt um 28 miljónir króna.
í raun er rekur Byggðastofnun
með þessu ekki annað en inn-
heimtudeild fyrir gjaldþrota sjóð.
Guðmundur Malmquist for-
stjóri Byggðastofnunar sagði að
90 miljónir króna hefðu verið af-
skrifaðar í deildinni vegna gjald-
þrota fýrirtækja. Hann sagði einn-
ig að þessar 5-600 miljónir króna
sem væru í vanskilum væru til-
komnar á mjög stuttum tíma og
væru vaxtavanskil. -gpm
•oir
Skútuvogi 10a - Sími 686700
6 SÍÐA — NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 9. ágúst 1991