Þjóðviljinn - 09.08.1991, Síða 10
Sviðnar Svalinn?
r
Osonlag Norðurhvels eyðist hraðar en áður var reiknað með.
í 38. erindi Grímnismála
segir:
Svalinn heitir,
hann stendur sólu fyrir,
skjðldur, skínanda goði;
björg og brim,
eg veit, að brenna skulu,
ef hann fellur frá.
Nútímamenn hafa margir
viljað túlka þessar ljóðlínur sem
forspá þess hvemig fara muni fyrir
ósonlaginu, haldi mannkynið
áfram á þeirri óheillabraut sem
það er nú á.
Það er ótrúlegt innsæi í svo
gamalli speki að hremmingum
nútímans skuli lýst af þessari
nákvæmni: björg og brim skulu
brenna, ef Svalinn fellur frá.
Eins og flestir vita em menn
mjög uggandi um áhrif
útQólublárra geisla á lífkeðjuna.
Suðurálfubúar telja sig þegar
merkja skaða á sviðnuðum gróðri,
enda hafa vísindamenn þar syðra
staðfest með mælingum að
þvnning ósonlagins verður æ
alvarlegri með hverju árinu.
Norðurálfar vom hins vegar
vaktir upp af væmm blundi í vor
með þeim fréttum, að ekki væri
allt með felldu við Norðurskautið
heldur. Litrófsmælingar er kallast
TOMS (Total Ozone Mapping
Spectrometer) á ósonlagi Norður-
hvels frá gervihnöttum á vegum
geimferðastofnunar
Bandaríkjanna, NASA, sýndu
árið 1987 að þynningar gætti þá
þegar.
Bmgðist var við þessum nýju
upplýsingum með þeim hætti að
samþykkt var að draga úr notkun
CFC efna um 50% fyrir árið 1998.
Rannsóknir á astandinu yfir
Norðurskauti vom um leið hertar
og í grein i Science, 12. ágúst
1988, bls. 785 var greint frá fyrstu
merkjum ósonþynningar Norður-
skauts.
Neíhd vísindamanna hafði líka
skoðað ósonmælingar, sem gerðar
höfðu verið frá jörðu niðri allt frá
því fyrir 1970 og komist að þeirri
niðurstöðu að á breiddargráðum á
vettvangur fyrir efnahvörf, sem hvata ósoneyðingu. Myndin lýsir á
táknrænan hátt áhrifum Cl róttæklinga á óson.
Mynd 2
Ósonþynning Norðurhvels 7. febrúar 1989.
Einar Valur
Ingimundarson
milli New Orleans (30°) og Seattle
(50°) eyddist óson með hraðanum
1% til 3% á hveijum áratug. (Sjá
grein í Science, 25. mars 1988, bls.
1489)
TOMS háloftamælingamar
sýna hins vegar mun alvarlegra
ástand. William Reilly njá
umhverfisvemdarstofnun Banda-
ríkjanna (EPA) upplýsti 4. apríl sl.,
að eyðingin virtist mun hraðari,
eða um 5% á áratug.
Vetrarmánuðimir em verstir,
en þá fer talan upp í 8%. Nú er
jafnvel talið að ánrifa þynningar
gæti í vormánuðunum apríl og
maí.
Þetta em mjöp alvarleg tíðindi
fyrir menn og malleysingja. EPA
spáir í ljósi þessa, að í Banda-
nkjunum einum komi til 200.000
dauðsfalla af völdum húð-
krabbameins á næstu 50 ámm
vegna aukinnar geislunar.
Michael Oppenheimer,
sérfræðingur í háloftaefnafræði
hjá Umhverfísvamasjóðinum í
New York (Environmental
Defense Fund) er ekki allskostar
hress: „Þessar fréttir eru mjög
alvarlegar. Við þeim verður að
bregðast með hertum aðgerðum á
alþjóðavísu. Við höfum ekki eins
mikinn tíma og við héldum!“
Eins og áður var getið var
skrifað undir Montreal
samninginn 1987, þegar óson-
þynningin yfir Suðurskautinu var
endanlega staðfest. Nú í júní var
samningurinn endurskoðaður í
ljósi nýjustu upplýsinga. Þar var
staðfest bann a notkun kol-flúor-
kolvetnasambanda (CFC) frá
aldamótunum 2000. Jafnframt
skyldi dregið úr notkun CFC efna,
eins og hver þjóð treysti sér til.
Þratt fyrir góða tilburði má
ætla að magn virkra klórfrumeinda
muni aukast um 25 til 30 prósent á
tímabilinu. Hver virk eining er Iíka
lengi í umferð. Og íyrst að farið er
að tala um efnafræði, er ekki úr
vegi að lýsa þessum hvörfum með
nokkrum þekktum efnajöfnum úr
loftefnafræði Suðurskautsins.
Algengustu CFC efnin eru
koltetraklóríð og metyl klóróform.
Fyrir áhrif orku sólarljóss klofna
þessi efni í andrúmsloftinu í
smærri, virkar einingar, sem
kallast ,,róttæklingar“ á máli
efnafræðinnar. A meðal þeirra er
róttæklingurinn CIO. Hefst nú
atburðarásin:
A mynd 2 má sjá þynningar-
linur ósons yfir Norðurskauti.
Dökka Iínan sýnir mörk þau, þar
sem aukið magn af hvarfgjömum
klór róttæklingum og minnkað
magn NOx mældist 7. febrúar
1989.
Ef myndip prentast þolanlega
má greina að Island fellur rétt utan
svæoisins þennan tiltekna dag og
mengunarlinumar tengja saman
iðnaðarsvæði Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna.
Engu að siður finnst mér það
full mikið léttlyndi af ágætum
starfsmönnum Veðurstofu Islands
af fullyrða að engrar ósoneyðingar
sé fanð að gæta vfir Norðurhveli
né hafi peinnar þynningar orðið
vart yfir Islandi. Háloftamælingar
virðast benda til annars.
Samkvæmt nýlegum fréttum á
að hefja háloftamælingar yfir
Islandi í haust og hljóta menn að
bíða niðurstöðu þeirra með
dálitlum kvíða.
Eins og áður hefur verið frá
greint hefur það afar slæm áhrif á
framleiðni hafsins ef útQólubláir
geislar sólar ná til yfirborðs þess.
Hætt er við að fleira en rauðáta
gæti drepist við þannig aðstæður.
Islenskt hagkerfi biði þess aldrei
bætur, ef spádómsorð Grímnis-
mála yrðu að vemleika á nýrri öld.
CIO + CIO + X = ci2o2 + X
X táknar hér burðarefni (súrefni eða köfnunarefni), sem „hýsa“ hvarfið.
C1202 + sólarljós = C1 + CIOO
CIOO + X = C1 + 02 + X
C1 + o3 = CIO + o2
A síðasta stiginu er ósoneyðingu lýst, 03 breytist í 02
Annarri atburðarás má lýsa yfir Norðurskauti, þar sem háloftaský (Polar Stratospheric
Clouds, PSC) myndast í 25 km hæð (Sjá mynd 1). Fer hún fram með tilstyrk
köfnunarefnisoxíða, NOx , á yflrborði háloftaskýjanna:
CIO + N02 + X = C10N02 + X (1)
CIO + NO + X = C1 + N02 + X (2)
Eins og sjá má, skilar stig 2 ósoneyðingu, eins og fyrr er lýst, en stig 1 þarf annað þrep:
C10N02 + HCl = HN03 + Cl2
Cl2 + sólarljós = 2CI og ósoneyðing hefst.
AF AÐSKILJANLEGUM NATTURUM
SÍÐA 10 — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 9. ágúst 1991