Þjóðviljinn - 31.01.1992, Síða 21
Þjóðyeljinn
Sólin rís á
s
rið 1991. Styrjöld í
Austuriöndum nær.
Stórveldi hverfur. Ný
ríki birtast í sal ver-
aldarþingsins. Atburðarásin er
svo hröð og stórbrotin að
landabréfín úreldast áður en
prentvélin þagnar.
Hver er þá maður ársins hjá
Time? Ted Turner. Stofnandi
CNN sjónvarpsstöðvarinnar!
Bein útsending um allan heim.
Fjölmiðill sem gerir „frétt“ að
gamaldags hugtaki því að atburð-
imir koma beint inn í stofu, sam-
tímis í Hong Kong, Húsavík og
Hamborg. A Hótel KJEA sitja
gestir Akureyrar og horfa á kapp-
ræður í bandaríska þinginu - bein
útsending frá Washington!
Hvílíkt umrót. Þorpið Jörð í
raun og veru. Heimsatburðir
orðnir almælt tiðindi á svipstundu
- líkt og kunningjaspjall á tröpp-
um kaupfélagsins.
Hvaða erindi á dagblað í slíkri
veröld? Það er þrautin þyngri að
svara því, eins og dæmin sanna.
Blöðin hverfa eitt og eitt um Evr-
ópu alla. I miljónaborgum Amer-
íku kemur kannski bara út eitt
sem rís undir nafni. New York
Times er nánast ófáanlegt í Tex-
as.
Auðvitað skella þessar öldur
breytinganna á íslenskum strönd-
um. A afskekktum sveitabæ norð-
anlands kaupir bóndinn ekkert
blað og opnar nær aldrei á ís-
Ienska sjónvarpsstöð. Bylgjan,
Aðalstöðin, Rás 2 og jafnvel
gamla Gufan nást alls ekki eða
illa. Samt fær bóndinn veraldar-
fréttimar betur en við flest, getur
valið um 20 sjónvarpsstöðvar
með úrvali efnis. Hvíti diskurinn
á þakinu tryggir það með beinu
samþandi við gervihnöttinn.
I þessari veröld hættir Þjóð-
viljinn að koma út. Tapið er ein-
faldlega orðið of mikið. Auglýs-
ingatekjumar hafa fallið ár frá
ári. Ekki bara í Þjóðviljanum
heldur líka í öðrum blöðum.
Mogginn verður þynnri og þynnri
með viku hverri. Matthías og
Styrmir em komnir í þá stöðu að
minningargreinarnar eru fyrir-
ferðarmesta efnið í blaðinu. Þær
«esh NATURAL FLAVC
VACUUM PACKtít?
WT. 16 OZ.HJ4
Skútuvogi 10a - Sími 686700
byrja nú oft langt fyrir framan
miðju Morgunblaðsins. Gámng-
amir í heita pottinum eru famir
að uppnefna útgáfu Árvakurs
„Dödens Dagblad"!
Og í dag lýkur langri sögu.
Þjóðviljinn kveður með bravúr.
Lokaþytur lúðursins er sterkur og
hressandi. Margir óvæntir gestir í
þessari erfidrykkju.
Auðvitað er margs að minn-
ast. Til foma var sagt að eigi
skyldi gráta Bjöm bónda heldur
ný
safna Iiði. Það er hið íslenska
hugarfar.
í dag er þakkað og kvatt.
Fómfúsri sögu ærið margra lýkur
með þessu eintaki Þjóðviljans.
Það hefur fjöldi lagt hönd á þenn-
an plóg. Ekki bara ritstjórar og
blaðamenn, prentarar og útburð-
arfólk, heldur þúsundir einstak-
linga sem í áratugi hafa lagt blað-
inu til íjármuni og styrk. Það var
safnað til að reisa hús. Framlög
vom sótt um landið allt. Árvisst
Ólafur Ragnar Grfmsson
happdrætti var hluti af undirbúin-
ingi jólanna hjá fjölda heimila í
öllum fjórðungum.
Blaðið var ekki aðeins verk
starfsmanna heldur ávöxtur um-
hyggju og stuðnings sem áttu
djúpar rætur.
Þess vegna er söknuður í hug-
um margra. Líka hjá þeim sem
ætíð litu á Þjóðviljann sem óvin.
Þeir tapa föstum punkti í tilver-
unni.
En sólin heldur áfram að risa
þótt nýir dagar verði nú með öðr-
um brag. Vettvangur orðræðunnar
færist í annan búning. Baráttan
fellur í nýjan farveg.
Við kveðjum og þökkum
langa samíylgd en göngum hug-
djörf og bjartsýn til leiks að nýju.
Ólafur Ragnar Grímsson
Æmwi »
42
/?///&
«o'°o
s
5. « «J. íí'
S Oq
e
- F V
FJOLGRBÐSLUR
ÞRÍSKIPT UPPGJÖR - TVISVAR Á ÁRI
VISA-bankarnir og sparisjóðirnir hafa jafnan kappkostað að
sýna þeim korthöfum sínum lipurð, sem óskað hafa eftir
fresti eða sérstakri fyrirgreiðslu til að geta staðið í skilum
með greiðslu mánaðarlegra VISA-úttekta sinna.
Til að gera uppgjör kortaviðskipta enn þjálla og létta góðu
fólki róðurinn vegna árstíðabundinna útgjalda býðst skil-
vísum korthöfum nú að skipta greiðslu VISA-úttekta sinna
í þrennt - tvisvar á ári.
Sértu í skilum við banka þinn eða sparisjóð nægir að koma
við eða hafa símleiðis samband við viðkomandi afgreiðslu-
stað tímanlega fyrir eindaga greiðslu.
Þú greiðir þriðjung strax og eftirstöðvarnar á tveimur mán-
uðum, ásamt vöxtum í samræmi við auglýst kjör bankans
eða sparisjóðsins.
QD GREIÐSLUÞJÓNUSTA - SNIÐIN AÐ ÞÍNUM ÞÖRFUM
BÚNAÐARBANKINN
ÍSLAN DSBAN Kl
Landabankt
fslands
SPARISJÓÐIRNIR
ÁÍSLANDI
Síða 21
ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 31. janúar 1992