Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1995, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1995, Blaðsíða 14
14 rþróttir Akureyrarliðið eitt með fuUt hús stiga: Erf ið fæðing KA-manna - efstir eftir baráttusigur á Haukum, 27-26 KA - Haukar (12-12) 27-26 1-0,1-3,5-5,5-8,9-9, (12-12), 12-13,15-15, 19-15, 19-17, 21-18, 22-21, 24-21, 26-25, 27-25, 27-26. Mörk KA: Julian Duranona 7, Björg- vin Björgvinsson 7, Leó Öm Þorleifsson 4, Patrekur Jóhannesson 4/2, Erlingur Kristjánsson 3, Jóhann G. Jóhannsson 2. Varin skot: Guömundur A. Jónsson 13, Bjöm Bjömsson 1/1. Mörk Hauka: Petr Baumruk 7, Hall- dór Ingólfsson 6/2, Gunnar Gunnarss. 4/1, Þorkell Magnúss. 3, Aron Kristjánss. 3, Sveinberg Gíslason 2, Björgvin Bjamason 1. Varin skot: Bjarni Frostason 15/3. Brottvísanir: KA 14 mín., Haukar 4 mín. Dómarar: Gísli Jóhannsson og Haf- steinn Ingibergsson, ákaflega slakir. Áhorfendur: 540. Maður ieiksins: Björgvin Björgvins- son, KA. Staðan í Nissandeildinni í liandknattleik eftir leikina í gær- kvöldi: KA..........4 4 0 0 124-107 8 Stjaman.....4 3 0 1 102-94 6 FH.........4 2 1 1 109-95 5 Valur.......4 2 1 X 86-83 5 Haukar......4 2 1 1 90-89 5 ÍR..........4 2 1 1 80-82 5 Selfoss.....4 2 0 2 102-97 4 Víkingur....3 l d 2 69-69 2 Grótta......3 1 0 2 64-65 2 ÍBV.........4 1 0 3 89-93 2 Aftureld 4 1 0 3 98-108 2 KR......4 0 0 4 92-123 0 Fyrsti leikmaðurmn fráKínaíNBA Ma Jian frá Kína hefur skrifað undir tveggja ára samning við Los Angeles Clippers í NBA- deildinni í körfuknattleik. Jian er 26 ára gamali framherji og er 2,02 metrar á hæð. „í Los Angeies er stórt Kínahverfi og góður Kínamatur og þvi valdi ég að ganga til liðs við CIippers,“ sagði Jian sem verður þar með fyrsti leikmaöurinn frá Kina sem leikur í NBA. Hakeemekki meðíLondon Ailt útlit er fyrir að sjálfur Hakeem Olajuwon geti ekki spil- að með NB A-meisturunum Hous- ton Rockets á McDonalds-mótinu sem hefst í London annað kvöld. Hakeem er meiddur á olnboga og hæpið aö hann nái sér í tæka tíð. Houston mætír Perth Wildcats frá Ástraiíu annað kvöid en önn- ur þátttökulið eru Real Madrid frá Spáni, Sheffield Sharks frá Englandi, Bologna frá Ítalíu og Maccabi Tel Aviv frá ísrael. Steffi Graffékk Háðulega útreið Besta tenniskoría heimsins, Steffi Graf frá fiýskalandi, fékk háðulega litreið á aiþjóðlegu móti í Brighton í gær. Óþekkt tennis- kona irá Suöur-Afríku, Mariaan de Swardt, sigraði Grafmeö yfir- þuröum, 6-2,4-6 og 6-1. Þetta var annar ósígur Graf á árinu en hún hefur sex sinnum sigrað á um- ræddu móti i Brighton. Fyrri ósigur Graf var einnig gegn stúiku írá Suður-Afríku. Ekkibetrahjá Jönu Novotnu Önnur besta tenniskona heims um þessar mundir, Jana Novotna frá Tékklandi, fékk eínnig á baukinn í Bríghton í gær. No- votna tapaöi fyrir Miriam Ore- mans frá HoUandi, 6-4 og 6-0, en sú hollenska er lítt þekkt og kom sigur hennar rojög á óvart, ekki síður en hrakfarir Graf. Novotna vann mótið í Brighton í fyrra. Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyn: „Það hentar mér miklu betur að spila á móti svona vörn sem kemur langt út á móti skyttunum og eltir Patrek og Duranona. Annars skiptir mestu máli að við unnum, þetta var spuming um að ná upp stemningu í liðinu eftir Evrópuleikinn og það tókst,“ sagði KA-maðurinn Björgvin Björgvinsson sem fór á kostum þegar KA lagði Hauka í gærkvöldi, 27-26, á Akureyri. KA-menn eru eina tap- lausa lið deildarinnar og eru efstir meö fullt hús stiga eftir 4 umferöir. Það var ekki auðvelt hjá KA að innbyrða þennan sigur. Haukarnir brugðu á það ráð að taka Patrek strax úr umferð og gengu það vel út á móti Duranona að hann færöi sig inn á línuna og lék þar lengst af. Hauk- arnir höfðu undirtökin lengi vel og KA komst aðeins einu sinni yfir í fyrri hálfleik sem endaði 12-12. Alfreð í vörnina og KA sigldi fram úr Þegar staðan var 15-15 í síðari hálf- leik kom Alfreð Gíslason inn á í 6-0 KA-vörnina sem lokaöi leiöinni að markinu um tíma og leikurinn tók skyndilega aðra stefnu. Vörn KA hirti hvern boltann af öðrum og stað- an breyttist skyndilega í 19-15. „Haukar töpuðu leiknum á þessum kafla, gerðu of mörg mistök í sókn- Valdi með 16 mörk Þóröur Gíslason skriíar: Selfyssingar byrjuöu leikinn í 3-2-1 vörn, þ.e. léku mjög framar- lega og komu vel út í skyttur KR-inga. Sóknarleikur KR riðlað- ist við þetta og á fyrstu tíu mínút- unum náðu Selfyssingar fimm marka forskoti. Þar af gerði Valdimar þrjú mörk úr hraða- upphlaupum á meðan KR-ingar voru aö skipta inn á í vörnina og í hálfleik munaði þessum þremur mörkum á liðunum. Þegar um tólf mínútur voru til leiksloka meiddist Hilmar Þórlindsson, langbesti maður KR-inga, og það var meira en þeir þoldu. Selfyss- ingar juku forskotið jafnt og þétt og sigruðu, 28-35. Valdimar geröi sextán mörk í leiknum þrátt fyrir að fara af leikvelli þegar tæpar sjö mínútur voru eftir. KR - Selfoss (13-16) 28-35 0-1, 2-7, 6-8,10-12, (13-16), 16-19, 16-22, 22-27, 25-31, 25-34, 28-35. Mörk KR: Hilmar Þórlindsson 11/3, Einar B. Ámason 4, Ágúst Jóhannsson 4/1, Jóhann Kárason 3, Gylfi Gylfason 2, Óli B. Jónsson 2, Ingvar Valsson 2. Varin skot: Ásmundur Einarsson 7, Sigurjón Þráinsson 5. Mörk Selfoss: Valdimar Gríms- son 16/7, Einar Guðmundsson 4, Sigurjón Bjamason 3, Einar Gunn- ar Sigurðsson 3, Sigurður Þórðar- son 3, Björgvin Rúnarsson 2, Grímur Hergeirsson 2, Finnur Jó- hannsson 1, Atli Marel Vokes 1. Varin skot: Hallgrímur Jónass. 11. Brottvísanir: KR 6, Selfoss 6. Dómarar: Rögnvald Erlingsson og Stefán Amaldsson, dæmdu vel. Áhorfendur: 150. „ Maður leiksins: Valdimar Grímsson, Selfossi. inni en leikir þessara liða eru alltaf svona spennuleikir,“ sagði Páll Ól- afsson, fyrmm leikmaður Hauka, sem fylgdist með leiknum. Petr Baumbruk hrökk þó í gang og raðaði inn mörkun á KA-menn. Haukarnir náðu þó aldrei að brúa bilið alveg, minnkuðu muninn nokkrum sinnum í eitt mark og skor- uðu síðasta mark leiksins þannig að KA-sigur var sanngjam í lokin. Leikurinn var „háspennuleikur" tveggja taplausra hða og oft hefur sést betri handbolti á Akureyri. Haukarnir spiluðu skynsamlega framan af, langar sóknir sem bám árangur en misstu taktinn um tíma í síðari hálfleik. Vamarleikur þeirra kom KA-mönnum úr jafnvægi í byrj- un og Bjarni varði vel í markinu. KA spilaði sína 6-0 Vörn sem opnað- ist oft illa framan af en sýndi styrk sinn í síðari hálíleik. í sókninni mun- aði mikið um þátt Björgvins Björg- vinssonar og svo Duranona sem tók rosalega rispu í síðari hálfleiknum og skoraði með ótrúlegum þrumu- fleygum. Bestu menn liðanna voru Björgvin Björgvinsson og Julian Duranona hjá KA og Bjarni Frostason hjá Haukum. Petr Baumruk tók góða „rispu“ í síðari hálfleiknum. Halldór Ingólfsson átti afar erfitt uppdráttar og munar um minna fyrir Hauka. Grislingarn- irstoðuiVal Þoisteinn Gunnarsson, DV, Eyjum: Vaismenn þurftu svo sannar- lega að hafa fyrir hlutunum í gærkvöldi þegar þeir lögöu „grislingana" hans Þorhergs, 20-23. Eyjamenn stóðu uppi í hár- inu á meisturunum lengst af og það var ekki fyrr en þjálfari Vals, Jón Kristjánsson, tók af skarið undir lok leiksins að hann tryggöi sínum mönnum sigurinn, Það var langt í frá meístara- bragur á Valsmönnum og ef til vill bjuggust þeir ekki við miklu af Eyjamönnurn sem léku án tveggja lykilmanna, Evgeni Dudk- in var í banni og Daði Pálsson er meiddur. Valsmenn virkuðu eins og höfuðlaus her og vandræða- gangur var á varamannabekkn- um. Þeir þurfa að taka sig veru- lega á og mættu byija á að leíta uppi leikgleðina. Sigfús var yfir- burðamaður hjá Val en Sigmar Þröstur frábær í marki ÍBV. ÍBV- Valur (12-14) 20-23 1-0, 3-2, 5-3, 7-4, 7-10, (12-14), 14-16, 17-19, 17-22, 19-22, 20-23. Mörk ÍBV: Amar Pétursson 9/1, GunnarBerg Viktorsson 7, Svavar Vignisson 3, Arnar Richardsson 1. Varin skot: Sigmar Þröstur 18/1. Mörk Vals: Ólafur Stefánsson 5, Sigfús Sígurðsson 5, Ingi R. Jóns- son 3, Valgarð Thoroddsen 3, Jón Krístjánsson 3. Dagur Sígurðsson 1, Davíð Ólafsson 1, Sveinn Sig- fmnsson 1, Júlíus Gunnarsson 1. Varin skot: Guðmundur 13/1. Brottvísanir: ÍBV 8 mín., Valur 10 min. Dómarar: Örn Markússon og Egill Már Markússon, slakir. Áhorfendur: 415. Maður leikslns: Slgmar Þröstur Óskarsson, ÍBV. FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995 Robert Róberlssan skrifen Afturelding fékk sín fyrstu stig í 1. deild- inni í handknattleik í vetur þegar liðiö sigr- aði Stjörnuna, 27-31, í Garðabæ í gær- kvöldi. Fyrir leikinn voru Stjörnumenn með fullt hús stiga en Mosfelhngar komu, sáu og sigruðu með stórgóöum leik. Leikurínn var hin besta skemmtun og bæði lið sýndu góðan leik. Fyrri hálfleikur var mjög jafn og jafnt á öilum tölum fyrstu 20 mínúturnar. Afturelding, með Bjarka Sigurðsson i miklu stuði, náði þá skyndilega 3 marka forystu en Stjörnumenn gerðu síð- ustu 4 mörk hálfleiksins. Mjög góður kafli Mosfellinga snemma í síðari hálfleik gerði hins vegar útsiagið í leiknum. Þá náðu þeir 4 marka forystu sem þeir héldu út leikinn þrátt fyrir öi'vænting- arfullar tilraunir Sfjörnumanna. Þrátt fyrir slæma byrjun í mótinu er Mð Aftureldingar greinilega geysisterkt ef marka má þennan leik. Bjarki var lengst af allt í öllu og átti stórleik en í síðari hálf- leik lék liðiö mjög vel í heildina. Stjörnumenn vantaði einhvern neista til gera betur í þessum leik en þeir geta vissu- lega mun meira. Filippov og Konráð Olavs- son voru bestu menn liðsins. Stjaman - Afturelding (12-11)27-31 2-2, 4-4, 6-6, 8-8, 8-11, (12-11), 13-13, 14-15, 15-19, 19-22, 22-26, 25-28, 27-31. Mörk Stjörnunnar: Dmitri Filippov 10/5, Konráð Olavsson 6, Gylfi Birgisson 4, Magnús Sigurösson 2, Magnús Agnar Magnússon 2, Sigurður Bjarnason 1, Óskar Óskarsson 1, Jón Þórðarson 1. Varin skot: Axel Stefánsson 12, Ingvar Ragn- arsson 2. Mörk Aftureldingar: Bjarkí Sigurðsson 9, Róbert Sighvatsson 6, Jóliann Samúelsson 5, Gunnar Andrésson 5, Páll Þórólfsson 4, Ingi- mundur Helgason 1, Bergsveinn Bergsveins- son 1. Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 9/1. Brottvísanir: Stjaman 10 mín. (Magnús S, rautt), Afturelding 16 mín. (Bjarki rautt). Dómarar: Þorlákur Kjartansson og Einar Sveinsson, dæmdu vel fráman af en mísstu tökin töluvert undir lokin. Áhorfendur: Um 350. Maöur leiksins: Bjarki Sigurðsson, Aftur- eldingu. FH kastaði f rá sér sigri gegn ÍR Guömundur Hflmaisson skrifar: FH-ingar köstuðu frá sér sigri gegn ÍR-ingum í frekar slökum leik í Kaplakrika í gærkvöldi. FH hafði 5 marka forskot, 21-16, þeg- ar um 10 mínútur voru til leiks- loka en með baráttu og klaufa- skap hinna ieikreyndu leik- manna FH-liðsins tókst Breið- hyltingum að jafna metin. FH-ingar hafa mannskap til að vera með í toppbaráttunni í vetur en með leik eins og þessum geta þeir gleymt því. ÍR-ingar geta prísað sig sæla með jafnteflið eins og leikurinn þróaðist.. Sóknar- leikur ÍR-inga var slakur en þeim til hróss gáfust þeir ekki upp. FH-ÍR (11-9 ) 22-22 0-1, 2-3, 5-5, 7-7, (11-9), 13-9, 16-12, 20-15, 21-21, 22-21, 22-22. Mörk FH: Sigurjón Sigurðsson 5/2, Sigurður Sveinsson 4/2, Gunn- ar Beinteinsson 4, Hans Guö- mundsson 3, Guöjón Ámason 3, Sturla Egilsson 2, Hálfdán Þórðar- son 1. Varin skot: Magnús Ámason 11/2. Mörk ÍR: Daði Hafþórsson 6/1, Magnús Þórðarson 4, Njöröur Árnason 4, Einar Einarsson 3, Jó- hann Ásgeirsson 2/1, Ragnar Ösk- arsson 1, Frosti Guðlaugsson 1, Guöfinnur Kristmannsson 1. Varin skot: Magnús Sigmundsson 13/1. Brottvísanir: FH 8 mín., ÍR 10 mín. Dómarar: Valgeir Ómarsson og Siguröur Ólafsson, eiga margt ólært í faginu. Áhorfendur: Um 400. Maður leiksins: Daði Hafþórs- son, ÍR.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.