Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1995, Síða 15
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995
27
íþróttir
Sochaux er
líklegast
- segir Skagamaðurinn Amar Gunnlaugsson
u
„Það má segja að það séu mestar
líkur á að ég fari til Sochaux í Frakk-
landi og ég vona að það fari eitthvað
að gerast í því máli á næstu dögum.
Sochaux þarf að semja við Feyenoord
og ég bíð eftir frekari fréttum af
því,“ sagði Amar Gunnlaugsson,
landsliðsmaður í knattspyrnu, í sam-
tali við DV í gærkvöldi.
Framkvæmdastjóri Sochaux fylgd-
ist með Arnari leika með ÍA gegn
Raith Rovers í UEFA-bikarnum í
haust, eins og fram kóm í DV á þeim
tíma. Sochaux er í 4. sæti frönsku 2.
deildarinnar eftir að hafa fallið úr
1. deildinni í fyrra.
„Það yrði mjög gott að komast til
Frakklands, ekki síst vegna þess að
þar eru leikmannasamtökin mjög
öflug, öfugt við það sem er í Hol-
landi. Sochaux virðist vera sterkur
klúbbur þó hann sé í 2. deild sem
stendur og liðið hefur yfirleitt leikið
í 1. deildinni," sagði Arnar.
Fyrirspurn frá Tyrklandi
Hann sagði ennfremur að hann hefði
fengið fyrirspurn frá tyrknesku liði
Óli Þór er hættur
- tekur llklega viö Víðisliðinu
Róbert Sighvatsson skorar eitt af 6 mörkum sínum fyrir Aftureldingu í gær-
kvöldi án þess að Magnús Agnar Magnússon, Stjörnumaður, fái að gert.
DV-mynd Brynjar Gauti
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum;
Óli Þór Magnússon, sá margreyndi
knattspyrnumaður, er hættur að
leika með Keflvíkingum og flest
bendir til þess að hann verði leik-
maður og þjálfari hjá 3. deOdar liði
Víðis úr Garði næsta sumar.
„Ég skil sáttur við Keflvíkinga og
það er allt í góðu milli mín og þeirra.
Ég er orðinn þreyttur á 1. deildinni
og langar að breyta til. Það skýrist á
•næstu dögum hvort ég tek við Víðisl-
iðinu,“ sagði Óli Þór við DV í gær.
Óli Þór er 32 ára gamall og hefur
leikið með Keflvíkingum í sextán ár
að einu undanskildu þegar hann spil-
aði með Þór á Akureyri. Hann er einn
reyndasti leikmaður liösins, á 183
leiki að baki í 1. deild og fjölmarga í
2. deild og hefur skorað 59 mörk í 1.
deild. Það yrði mikill fengur fyrir
Víði aö fá hann til hðs við sig fyrir
baráttuna í 3. deildinni en sam-
kvæmt heimildum DV stendur valið
á milli Óla Þórs og Guðmundar Vals
Sigurðssonar sem lék með þeim í
fyrra og þjálfaði Ægi í sumar.
Enn tapar Blackburn
- Ajax, Spartak og Juventus með fullt hús í meistaradeildinni
Ajax frá Hollandi, Spartak Moskva
frá Rússlandi og Juventus frá Ítalíu
eru öll með full hús stiga þegar
riðlakeppni meistaradeildar Evr-
ópu í knattspyrnu er hálfnuð og
þessi þrjú lið eru nær örugg með
sæti í 8-liða úrslitunum.
Spartak Moskva lenti þó í mikl-
um hremmingum í Noregi, var 2-0
undir gegn Rosenborg en náði að
snúa dæminu við og vinna, 2-4.
Juventus vann auðveldan sigur á
Glasgow Rangers, 4-1, og var kom-
ið í 3-0 eftir 22 mínútur. Ravanelli
skoraði tvö markanna og Conte og
Del Piero eitt hvor.
Evrópumeistarar Ajax fóru létt
með Grasshoppers, 3-0. Kluivert
skoraði tvö markanna og Finidi
George það þriðja.
Ensku meistaramir Blackburn
töpuðu eina ferðina enn, nú 1-0
gegn Legia í Póllandi, og eiga hverf-
andi möguleika á að komast áfram.
Real Madrid lék Ferencvaros frá
Ungverjalandi grátt, 6-1, og skoraöi
Raul Gonzalez þrjú markanna.
Úrslitin í meistaradeildinni í gær-
kvöldi og staðan í riðlunum:
A-riðill:
Porto - Panathiriaikos.......0-1
Nantes-AaB...................3-1
Panathinaikos....2 2 0 0 4-1 6
Porto.........3 1112-14
Nantes........3 1114-44
AaB...........2 0 0 2 1-5 0
B-riðill:
Rosenborg - Spartak Moskva.2-4
Legia Varsjá - Blackburn..1-0
Spartak.......3 3 0 0 7-3 9
Legia.........3 2 0 1 5-3 6
Rosenborg.....3 1 0 2 5-8 3
Blackburn.....3 0 0 3 1-4 0
C-riðill:
Juventus - Rangers............4-1
Dortmund - Steaua.............1-0
Juventus.......3 3 0 0 10-2 9
Dortmund.......3 1 1 1 4-5 4
Steaua........:3 10 2 1-43
Rangers........3 0 1 2 3-7 1
D-riðill:
Ajax - Grasshoppers..........3-0
Real Madrid - Ferencvaros....6-1
Ajax............3 3 0 0 9-1 9
Real Madrid.....3 2 0 1 8-2 6
Ferencvaros.....3 1 0 2 5-11 3
Grasshoppers....3 0 0 3 0-8 0
UEFA-bikarinn:
Kaiserslautern - R.Betis.....1-3
Bow skoraði á
síðustu sekúndu
Halldór Halldórsson skrifar:
„Við vorum aðeins of bráðir í skot-
unum á síðustu mínútu leiksins á
meðan við vorum yfir. Okkur var um
leið refsað fyrir mistökin. Við ætlum
okkur að vera með í toppbarátt-
unni,“ sagði Gunnar Sverrisson, liðs-
stjóri ÍR-inga, eftir að þeir höfðu tap-
að fyrir KR-ingum, 81-80, í skemmti-
legum leik í DHL deildinni á Seltjarn-
amesi í gærkvöldi.
Lokasekúndurnar voru dramatísk-
ar. Staðan 78-80 fyrir ÍR og KR með
boltann og sekúndurnar tifuöu burt.
Allt í einu komst Jonathan Bow í
færi fyrir utan þriggja stiga línuna
og hleypti af og karfan var stað-
reynd. Flautan gall og sigur KR-inga
í höfn og þeir fógnuðu gríðarlega í
leikslok. „Þessi leikur var ákaflega
mikilvægur fyrir okkur því við höfð-
um tapað síðustu 7 leikjum gegn ÍR.
Ég er ekki nógu sáttur með leik
fninna manna en þeir sýndu þó kar-
akter og hvað þeir raunverulega
geta,“ sagði Axel Nikulásson, þjálfari
KR, eftir leikinn.
í góðri liðsheild KR vora Jonathan
Bow, Hermann Hauksson og Lárus
Árnason bestir og einnig vakti at-
hygli hinn 16 ára gamli Finnur Vil-
hjálmsson. Hjá ÍR voru Herbert Arn-
arsson og John Rhodes bestir.
(38-46) 81-80
5-9, 11-11, 17-19, 25-30, 32-39,
(38-46), 50-52, 57-52, 64-59, 74-74,
78-78, 78-80, 81-80.
Stig KR: Jonatban Bow 35, Her-
mann Hauksson 13, Lárus Áma-
son 11, Óskar Kristjánsson 7, Finn-
ur Viihjáimsson 4, Atli Einarsson
4, Ingvar Ormarsson 4, Amar Sig-
urðsson 3.
Stig ÍR: Herbert Arnarsson 29,
John Rhodes 11, Jón Öm Guö-
mundsson 10, Eiríkur Önundarson
10, Máras Arnarsson 8, Broddi Sig-
urðsson 6, Guðni Einarsson 4, Eg-
gert Garðarsson 2.
Fráköst: KR 41, ÍR 37.
3ja stiga körfur: KR 9, ÍR 8.
Vitanýting; KR 15/12, ÍR 19/13.
Dómarar: Björgvin Rúnarsson
og Leifur Garöarsson, mjög góðir.
Áhorfendur: Um 180.
Maður leiksins: Jonathan Bow,
KR.
Þróttarar
skelltu HK
Þróttarar gerðu góða ferð í Digra-
nesið í gærkvöldi þegar þeir gerðu
sér lítið fyrir og skelltu Islands- og
bikarmeisturam HK þar, 3-0, í 1.
deild karla í blaki.
fangelsi?
Hollenski knattspymumaðurinn
Patrik Kluivert, sem skoraði tvívegis
fyrir Ajax gegn Grasshoppers í
meistaradeild Evrópu í gærkvöldi,
gæti átt fangelsisdóm yfir höfði sér.
Kluivert varð manni að bana fyrir
skömmu með því að keyra hann nið-
ur á götu í Amsterdam á rúmlega 100
kílómetra hraða.
á dögunum en hefði mjög takmark-
aðan áhuga á að fara þangað og enn-
fremur hefði hann heyrt aö skoskt
félag hefði haft samband við Feyeno-
ord.
Áhugi Sochaux miðast við Arnar
en Bjarki bróðir hans er ekki inni í
þeirri umræðu. Eru þeir bræður sem
sagt tilbúnir til að leika hvor í sínu
lagi? „Auðvitað vildum við helst spila
saman en það er ljóst að slíkt gengur
ekki í öllum tilfellum og við erum
tilbúnir að mæta því, held ég,“ sagði
Arnar Gunnlaugsson.
Sturlaugurekki
meira með
Skagamönnum?
Daníel Ólafsson, DV, Akranesí:
Óvíst er
hvort Stur-
laugur
I-Iaralds-
son, bak-
vörðurinn
snjalli. spili
með ís-
lands-
meisturam
Skagamanna i knattspyrnunni á
næsta leikári. Sturlaugur varð aö
hætta seinni part sumars vegna
bakmeiðsla og vora memi svart-
sýnir á að hann myndi geta leikið
knattspyrnu á ný. Sturlaugur er
síðan búinn aö vera í endurhæf-
ingu sem hefur gengið nokkuð
vel. Það mun síðan koma í Ijós í
vetur hvort hann getur verið með
á næsta ári.
SteinarogJón
bestir hjá Fjölni
Steinar Ingimundarson og Jón
Otti Jónsson voru á dögunum
útnefndir leikmenn ársins hjá 3.
deildar liði Fjölnis í knattspyrnu.
Ólíklegt er að Steinar leiki áiram
meö Fjölni en hann hefur áhuga
á aö spreyta sig i efri deildunum
á ný. Hann hefur spilað með KR,
Leiftri og Víði.
áfram með Leikni
Pétm’ Amþórsson og Ingvar
Jónsson voru í gær endurráðnir
þjálfarar knattspyrnuliös Leiknis
úr Reykjavík og stjórna því þriðja
árið í röð. Undir þeirra stjórn
vann Leiknir sig upp úr 4. deild-
inni í fyrra og síðan upp úr 3.
deildinni í ár og félagið leikur þvi
í fyrsta skipti í 2. deild næsta
sumar.
I kvöid
DHL-deildin í körfubolta
Akranes - Keflavík............20
Skallagrímur - Tindastöll.........20
Grindavík - Haukar............20
Þór - Njarðvík................20
Valur - Breiðablik............20
Nissan-deildin í handbolta
Grótta-Víkingur...............20