Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1995, Síða 21
FIMMTUDAGUR 26. OKTOBER 1995
33
Fréttir
Leikhús
Gríðarlegur
ijöldi raf magns-
staura brotinn
- víöa rafmagnslaust og mikil ófærð á öllum vegum
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það eru a.m.k. 115 rafmagnsstaur-
- ar brotnir hér í okkar umdæmi. Þeir
eru sjálfsagt miklu fleiri því við vit-
um ekkert um ástandið á fjöllum, t.d.
á Öxarí]arðarheiði,“ segir Þórhallur
Hjartarson hjá Rafmagnsveitum rík-
isins á Norðurlandi eystra um
ástandið í rafmagnsmálum í fjórð-
ungnum eftir áhlaupið sem enn
stendur yfir. Þá er vitaö um ein-
hverja tugi brotinna rafmagnsstaura
í Skagafirði og Húnavatnssýslum.
Þórhallur segir að ástandið sé verst
í N-Þingeyjarsýslu. í Kelduhverfi eru
um 60 staurar brotnir, sennilega eitt-
hvað á þriðja tug í S-Þingeyjarsýslu
og víðar hafa staurar brotnað undan
miklum ísingarþunga. Tjónið er talið
mælast í tugum milljóna króna.
Ástandið á Norðurlandi eystra er
verst austan Húsavíkur og þar má
heita rafmagnslaust alveg austur í
Þistilfjörð en þó hefur fólk rafmagn
frá varastöövum á Raufarhöfn og
Þórshöfn. Á nokkrum stöðum í S-
Þingeyjarsýslu var enn rafmagns-
laust í morgun og víðs vegar í Eyja-
firði, s.s. í Eyjafjarðarsveit, á Ár-
skógssandi, Hjalteyri, Öxnadal,
Hörgárdal og Svalbarðsströnd.
í Skagafirði brotnuðu um 40 staur-
ar. Þar var rafmagnslaust í Fljótum
og erfiðleikar með rafmagn víða ann-
ars staöar. Þá var eitthvað um sams
konar erfiðleika í Húnavatnssýslum
en á öllum þessum stöðum á eftir að
fullkanna skemmdir.
Allar leiðir ófærar
Allir helstu vegir á Norðaustur-
landi voru ófærir í gær og ekki viðlit
að reyna að opna þá vegna veðurofs-
ans sem geysaði og enn var í morg-
un. Menn voru þó að reyna að brjót-
ast áfram í umferðinni og víða sátu
bifreiöar fastar í snjónum. Vitað var
um. eitt alvarlegt óhapp en er flutn-
ingabíll valt út af veginum á Ár-
skógssandi. Ökumanninn sakaði
ekki. Á Akureyri var hávaðabylur í
allan gærdag og þæfingsfærð í bæn-
um. Þar voru nær allar götur ófærar
í morgun en lögreglunni var þó ekki
kunnugt um nein alvarleg óhöpp.
Stórtjón varð á grjótgarði og öðrum
hafnarmannvirkjum í Ólafsfirði um
miðnætti. Sjórinn fór inn í frystihús-
ið og þar inn um allt og grjót barst
víða langt upp á land. Búist er við
enn versnandi veðri á Norðurlandi.
Menntaskólinn 1 Reykjvík:
Ný óbrengluð símaskrá prentuð
„Þaö varð niðurstaðan í málinu að
nemendur gefa út nýja símaskrá með
óbrengluðum nöfnum," segir Ragn-
heiður Torfadóttir, rektor mennta-
skólans í Reykjavík.
Eins og greint var frá í DV í fyrri
viku kom út á vegum skólafélagsins
símaskrá fyrir skólann þar sem nem-
endum voru valin hin grófustu við-
urnefni. Málið var tekið upp í skóla-
stjórn þar sem nemendur báðust af-
sökunar á uppátækinu og veröa eng-
in önnur eftirmál af símaskrárgerð
nemenda. -GK
Tilkyimingar
Lestur úr þjóðsögum
í dag, fimmtudaginn 26. október kl. 17.00,
ætlar Ólöf Sverrisdóttir leikkona að tala
við börnin um álfa og huldufólk og segja
þeim frá þjóðsögum í Ævintýra-Kringl-
unni á þriðju haeð Kringlunnar. Allir
krakkar sem koma í Ævintýra-Kringluna
í dag fá ókeypis miða á leikritið Bétveir
sem Furðuleikhúsið frumsýnir um helg-
ina í Tjamarbíói.
Leiðrétting
Þann 17. júní voru gefin saman í
Bústaðakirkju af séra Pálma Matt-
híassyni Anna María Kjartans-
dóttir Heiðberg og Bjarni R.
Sverrisson.
Ljósmst. Magnús Ársælsson
Fræðslufundur
Fræðslufundur í Umsjónarfélagi ein-
hverfra verður haldinn fimmtudags-
kvöldið 26. október í BUGL við Dalbraut
kl. 20.30. Fundarefni: Svanhildur Sva-
varsdóttir talmeinafræðingur flytur er-
indi um Asperger heilkenni.
Haustfagnaður
Átthagafélag Strandamanna heldur ár-
legan haustfagnað félagsins í Gullhamri,
salnrnn í Iðnaðarmannahúsinu við Hall-
veigarstíg 1, fóstudaginn 27.10. og hefst
kl. 22.00. Hljómsveitin Vanir menn og
Þuríður Sigurðardóttir leika fyrir dansi.
Verðlaunagetraun BM-Vallá
Dregið hefur verið í verðlaunagetraun
sem BM-Vallá hélt í tilefni dags iðnaðar-
ins. Fyrstu verðlaun, 75.000 króna vöru-
úttekt, komu í hlut Elísabetar Jónsdótt-
ur, Lækjarbergi 20,220 Hafnarfirði. Önn-
ur verðlaun, 50.000 króna vöruúttekt,
komu í hlut Bimu Varðardóttur, Fanna-
fold 175,112 Reykjavik. Þriðju verðlaun,
25.000 króna vömúttekt, komu í hlut Jóns
Magnússonar að Fannafold 27, 112
Reykjavík.
Kvenfélag Hafnarfjarðarkirkju
Afmælisfagnaður félagsins verður hald-
inn í Vonarhöfn, safnaðarheimilinu,
fimmtudaginn 26. október og hefst kl.
19.30 stundvíslega með sameiginlegu
borðhaldi. Formaður flytur ágrip af sögu
félagsins og kvennakór Hafnarfjarðar
kemur í heimsókn.
Frá jólafundi Kvenfélagsins árið
1992.
ÞJÓÐLEIKHÚSID
Sími 551 1200
Stórasviðiðkl. 20.00.
ÞREKOGTÁR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
í kvöld, uppselt, Id. 28/10, uppselt, fid. 2/11,
nokkur sœti laus, Id. 4/11, uppselt, sud. 5/11,
nokkur sæti laus, sud. 12/11, nokkur sæti
laus, fid. 16/11, uppselt, Id. 18/11, uppselt.
STAKKASKIPTI
eftir Guðmund Steinsson
Á morgun, löd. 27/10, löd. 3/11. Takmarkaöur
sýningafjöldi.
KARDEMOMMUBÆRINN
eftir Thorbjörn Egner
Sud. 29/10 kl. 14.00, uppselt, sud. 29/10 kl.
17.00, uppselt, Id. 4/11 kl. 14.00, uppselt,
sud. 5/11 kl. 14.00, uppselt, Id. 11/11 kl. 14.00,
uppselt, sud. 12/11 kl. 14.00, uppselt, Id. 18/11
kl. 14.00, örfá sæti laus, sud. 19/11, kl. 14.00,
örfá sæti laus, Id. 25/11 kl. 14.00, nokkur
sæti laus, sud. 26/11 kl. 14.00, nokkur sæti
laus. Ósóttar pantanir seldar daglega.
Litla sviðið kl. 20.30.
SANNURKARLMAÐUR
eftirTankred Dorst
8. sýn. I kvöld fid, 9. sýn. sud. 29/10, fid. 2/11,
föd. 3/11, föd. 10/11, Id. 11/11.
Smíðaverkstæðið kl. 20.00
TAKTU LAGIÐ, LÓA!
eftir Jim Cartwright
Ld. 28/10, uppselt, mvd. 1/11, laus sæti, Id.
4/11, uppselt, sud. 5/11, nokkur sæti laus,
sud. 12/11, fid. 16/11, Id. 18/11. ATHI Sýning-
umferfækkandi.
Miðasalan er opin alla daga nema mánu-
daga frá kl. 13-18 og fram aö sýningu sýn-
ingardaga. Einnig símaþjónusta frá kl. 10
virka daga.
Greiöslukortaþjónusta.
Fax: 5611200
Sími miðasölu: 551 1200
Simi skrifstofu: 551 1204
VELKOMIN í ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ!
Hjólað um Laugardal
Hjólreiðahópurinn fer frá Fákshúsinu
við Reykjanesbraut kl. 20 fimmtudags-
kvöldið 26. október og hjólað verður út
með Sundum og upp Laugardalinn og
með Suðurlandsbrautinni til baka.
Tapað fundið
Herrafrakki var tekinn í misgripum í
Akogeshúsinu fóstudagskvöldið 20. okt-
óber. Þeir sem geta gefið upplýsingar
hringi í s. 557 4897.
Klóier týndur
Síamskötturinn Klói skrapp út 18. sept-
ember og hefur ekki sést síðan. Hann er
2ja ára seal-point, tattóveraður í eyra
R-4025 og er með margbrotið skott. Ef
einhver getur gefið upplýsingar, vins-
ami. hringið í s. 568 2392 eða Kattholt í
s. 567 2909.
Klói er týndur.
Sýningar
Málverkasýning
Ragnar Jónsson heldur málverkasýn-
ingu í íslandsbanka Lækjargötu. Ragnar
sýnir 7 myndir, unnar í ohu á striga.
Sýningin, sem er sölusýning, stendur út
október á afgreiöslutima bankans.
Eltt verka Ragnars.
Málverkasýning í Mílanó
Markús Sigurðsson er með málverkasýn-
ingu í Kafíi Mílanó.
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Stórasviðkl. 20.30.
Rokkóperan
Jesús Kristur
SUPERSTAR
eftir Tim Rice og Andrew
Lloyd Webber
Fös. 27/10 kl. 20.30, fáein sætl laus, lau.
28/1 Okl. 23.30, mlðv. 1/11,fáarsýningar
eftir.
LÍNA LANGSOKKUR
ettir Astrid Lindgren
Lau. 28/10 kl. 14, fáein sæti laus, sun. 29/10
kl. 14, fáein sæti laus, lau. 4/11 kl. 14, sun.
5/11 kl. 14.
Litla svið kl. 20:
HVAÐ DREYMDI ÞIG,
VALENTÍNA?
eftir Ljúdmílu Razumovskaju
Fim. 26/10, uppselt, lau. 28/10, uppselt, fös.
3/11, örfá sæti laus, laud. 4/11.
Stóra svið kl. 20:
TVÍSKINNUNGSÓPERAN
Gamanleikrit með söngvum eftir
Ágúst Guðmundsson
6. sýn. fim. 26/10, græn kort gilda, 7. sýn.
sun. 29/10, hvít kort gilda, 8. sýn. flm. 2/11,
brúnkortgilda..
Stóra svió kl. 20:
VIÐ BORGUM EKKI,
VIÐ BORGUM EKKI
eftir Dario Fo
Lau. 28/10.lös. 3/11.
Ath. Takmarkaður sýnlngarfjöldi.
Samstarfsverkefni:
Barf iugurnar sýna á Leynibarn-
um kl. 20.30.
BAR PAR
eftir Jim Cartwright
Fös. 27/10, uppselt, lau. 28/10, uppselt, fös.
3/11, örfá sæti laus, lau.4/11, fös. 10/11.
Tónleikaröð LR:
Alltaf á þrlðjudögum kl. 20.30.
Þrl. 31/10. Tónleikar
- Krlstinn Slgmundsson.
Mlðaverð 1.400 kr.
Miðasalan er opin alla daga frá kl.
13-20 nema mánudaga frá kl. 13-17,
auk þess er tekið á móti miðapöntun-
um í sima 568-8000 alla virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Gjafakortin okkar,
frábær tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavikur -
Borgarleikhús
Faxnúmer 568-0383.
II fSlÍ'jENSKA ÓPERAN
III _—iiiii
Sími 551-1475
Sýnlng laugard. 28. okt. kl. 21, örfá
sætl laus, laud. 28. okt. kl. 23, örfá
sætl laus, laud. 4/11 kl. 21.00.
íslenska óperan kynnir eina
ástsælustu óperu Puccinis,
MADAME BUTTERFLY
Frumsýning 10. nóv. kl. 20.
Hátiðarsýnlng 12. nóv. kl. 20.
3. sýn. 17. nóv. kl. 20.
Forkaupsréttur styrktarfélaga íslensku
óperunnar er tll 29. október.
Almenn miðasala hefst 30. október.
Miöasalan er opln kl. 15-19
daglega nema mánudaga,
sýnlngardag til kl. 21.
SÍMI551-1475,
bréfasími 552-7384.
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA
SVAR
[M3C£)j^3Q=D^I]2á\
903 • 5670
Hvemig á
að svara
auglýsingu
í svarþjónustu
>7 Þú hringir í síma 903-5670 og
eftir kynninguna velur þú 1 til
þess að svara smáauglýsingu.
Þú slærö inn tilvísunarnúmer
auglýsingar, alls 5 stafi.
^ Þá heyrir þú skiiaboð
auglýsandans ef þau eru fyrir
hendi:
Þú leggur inn skilaboð að
loknu hljóðmerki og ýtir á
ferhyrninginn að upptöku
lokinni.
f Þá færð þú að heyra skilaboðin
sem þú last inn. Ef þú ert
ánægð/ur með skilaboðin
geymir þú þau, ef ekki getur
þú talaö þau inn aftur.
Hvernig á að
svara atvinnu-
auglýsingu
í svarþjónustu
7 Þú hringirí síma 903-5670 og
eftir kynninguna velur þú 1 til
þess aö svara
atvinnuauglýsingu.
Þú slærö inn tilvísunarnúmer
auglýsingar, alls 5 stafi.
>7 Nú færð þú að heyra skilaboð
auglýsandans.
^ Ef þú vilt halda áfram ýtir þú á
1 og heyrir þá spurningar
auglýsandans.
^Þú leggur inn skilaboð að
loknu hljóðmerki og ýtir á
ferhyrninginn að upptöku
lokinni.
*7 Þá færð þú að heyra skilaboðin
sem þú last inn. Ef þú ert
ánægö/ur meö skilaboöin
geymir þú þau, ef ekki getur þú
talaö þau inn aftur.
^ Þegar skilaboöin hafa veriö
geymd færö þú uppgefiö
leyninúmer sem þú notar til
þess aö hlusta á svar
auglýsandans. Mikilvægt er aö
skrifa númerið hjá sér því þú
ein(n) veist leyninúmeriö.
>7 Auglýsandinn hefur ákveöinn
tíma til þess aö hlusta á og
flokka svörin. Þú getur hringt
aftur í síma 903-5670 og valið
2 til þess að hlusta á svar
auglýsandans.
Þú slærð inn leyninúmer þitt
og færö þá svar auglýsandans
ef þaö er fyrir hendi.
Allir í stafræna kerfinu
með tónvalssíma geta
nýtt sér þessa þjónustu.
903 • 5670
Abeins 25 kr. mínútan. Sama
verð fyrir alla landsmenn.