Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1995, Qupperneq 28
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í
síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er
notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
550 5555
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER rro Rono
uuU UUUU MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER Frjálst,óháð dagblaö |
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1995.
Sigurbjört Eggertsdóttir:
Ægilegar
„ stundirað
bíða eftir
fréttum
„Ég á ættingja í húsum sem lentu
í flóðinu. Ég bíð bara eftir að heyra
af þeim. Enn veit ég ekkert og það
eru ægilega stundir að bíða eftir
fréttunum," sagði Sigurbjört Egg-
ertsdóttir, kaupmaður á Élateyri, í
samtali við DV í morgun.
Hún var sjálf á öruggum stað og
hefur í morgun afhent öll hlífðarföt
og raunar allt sem til var úr verslun-
inni til björgunarmanna.
„Hér eru allir komnir út sem vetl-
ingi geta valdið en það er mjög erfitt
að átta sig á hvað hefur gerst. Það
er þreifandi bylur og ekkert hægt að
sjá,“ sagði Sigurbjört.
„Mér líst illa á framhaldið hér,“
sagðihún. -GK
Konráö Konráösson:
Snjórinn kom
- allurínótt
„Það virðist sem allur snjórinn
hafi fallið í nótt. í gær var varla
meira en föl en nú en snjórinn nærri
tveir metrar á dýpt,“ segir Konráð
Konráðsson, ungur maður sem flýja
varð með fjölskyldu sinni úr húsi við
Hjallaveg í nótt.
Konráð taldi að um hundrað metr-
ar væru í flóðið frá húsinu þar sem
hann býr. Öll fjölskyldan er nú kom-
in neðar á eyrina og úr allri hættu.
Ættingjarnir bjuggu þó einnig við
Hjallabrautina í húsi númer fjögur
og það fór í flóðinu. í húsinu voru
fimm manns, hjón, tvö böm og
frændi þeirra. Þau björguðust öll í
nótt.
„Þetta leit ekki svo illa út í gær-
kveldi en þaö er greinilegt að snjó-
koman hefur verið gríðarleg í nótt,“
sagðiKonráð. -GK
Rauðikrossinn:
Skrifstofanopnuð
aðstandendum
Rauði kross íslands við Rauðarár-
stíg opnaði skrifstofu sína strax og
fregnaðist um snjóflóðið á Flateyri í
morgun. Aðstandendur Flateyringa
gátu leitað þangað og fengið upplýs-
ingar að vestan auk þess sem áfalla-
.þjálp var veitt.
Upplýsingar eru veittar hjá Rauða
krossinum í síma 562-6722. -bjb
LOKI
Ætli maður segi mikið í dag.
Hjón lokuð inni á efri hæð húss á Flateyri eftir snjóflóðið í nótt:
Horf ði á húsið við
hliðina þjóta fram hjá
- segir Gunnar Valdimarsson, sem beið ásamt konu sinni björgunar
„Ég vaknaði um klukkan flögur stræti. Gunnar sagðí að ekkert gera sér grein fyrir ástandinu. Þó ekki mikið meira í sortanum,"
við að hundurinn varð vitlaus en amaði aö þeim enda voru þau á sagðist hann sjá að sex raðhús í sagði Gunnar.
heyrði sjálfur ekkert. Ég var kom- efri hæð i steinhúsi og ætluðu að nágrenninu væru öll farin og flest Gunnar sagði að rafmagn og hiti
inn fram á rúmstokkinn og leit út bíða þess að hægt væri að moka hús í nágrenni við hann. Þar var heföi farið af húsi hans en að öðru
um eldhúsgluggann. Þá sé ég að þau út. m.a. timhurhús við hliðina og það leytí hefðu þau hjón það ekki
húsið við hliðina þýtur fram hjá í „Það var lán að fólkið sem býr á fór í heilu lagi af grunninum og út slæmt, miðað við aöstæður, í hús-
heilu lagi,“ segir Gunnar Valdi- neöri hæðinni var ekki heima. í sjó. inú.
marsson, sjötugur maður sem býr Flóðið nær hér upp að eldhús- „Mér sýnist að öll húsin við Unn- „Þeir buðust til að moka okkur
við Hafnarstræti á Flateyri ásamt glugganum og ég reikna með að arstíg séu meira og minna í maski. út í morgun en ég bað þá að fara
konu sinni, Mörtu Ingvarsdóttur. neðri hæðin sé alveg full af snjó,“ Þetta átti að vera öruggt svæði en að hjálpa þar sem meiri þörf væri
DV ræddi við Gunnar í sima í sagði Gunnar. það er engu að treysta í þessum á. Við gerum hvort eð er ekkert
morgun. Þau hjón voru þá innilok- Hann sagði að þreifandi bylur efnum lengur. Skúr við húsið hjá annað en að bíða þótt við sleppum
uð í húsi sínu númer 43 við Hafnar- væri á Flateyri og ekki auövelt að mér hefur sópast í burtu en ég sé hér út,“ sagði Gunnar. -GK
Menn unnu hörðum höndum að því að ferma varðskipið Ægi lyfjum og búnaði á Miðbakkanum í morgun. Varð-
skipið hélt áleiðis til Flateyrar laust fyrir klukkan átta. DV-mynd Sveinn
Flateyrarslysið:
Björgunarfólk og hundar með Ægi
„Við sendum um 100 manns með
varðskipinu nú, björgunarsveitar-
menn af höfuðborgarsvæðinu,
hjúkrunarfólk og fólk sem þjálfað
hefur verið í að veita áfallahjálp. Að
auki fara tveir leitarhundar með
skipinu," sagði Björn Hermannsson,
formaöur.Landsbjargar, í samtali við
DV á Miðbakkanum í morgun þegar
varðskipið Ægir var að leggja úr
höfn áleiðis til Flateyrar. Björn sagði
menn búa að þeirri reynslu sem feng-
ist heföi nýhðinn vetur eftir slysið í
Súðavik. -sv
Hjálparstarfið:
Sjúkrahúsin
sendu 17 manns
Landspítalinn og Borgarspítalinn
sendu hjálparsveitir, samtals 17
manns, vestur á Flateyri í morgun.
Frá Landspítalanum fóru tvær fjög-
urra manna greiningarsveitir. í
hvorri sveit eru þrír læknar og einn
hjúkrunarfræðingur.
Frá Borgarspítalanum fór sérstak-
ur áfallahjálparhópur sem í eru einn
læknir, tveir hjúkrunarfræöingar og
prestur. Þetta fólk er sérþjálfað í
áfallahjálp. Síðan fór fimm manna
greiningarsveit sem í eru 4 læknar
og einn hjúkrunarfræðingur.
Hóparnir fóru ýmist með varðskip-
inu Ægi frá Reykjavík í morgun eða
með þyrlu til Grundarfjarðar þar
sem varðskipið Óðinn tók hjúkr-
unarfólk og aðrar hjálparsveitir.
Áfram 11-12 vind-
stigfyrirvestan
„Ekki er annað að sjá fyrir Vest-
flrðina en áframhaldandi hvassviðri
og niðurkoma i dag. Veðurhæðin
verður 45-55 hnútar, um 11-12 vind-
stig, og hún fer ekki að ganga niður
fyrr en undir miðnætti," sagði Gunn-
ar Hvammdal veðurfræðingur í
morgun. Hann sagði að á Norður-
landi, frá Eyjafirði og vestur úr, væri
mjög hvasst og mikil snjókoma og
þar sem svo hagaði til gæti allt gerst.
-sv
Veðriðámorgun:
Stinnings-
kaldi
Á morgun verður norðankaldi
eða stinningskaldi og él um norð-
anvert landið en þurrt syðra.
Hiti -3 stig til 3 stig, hlýjast suð-
austanlands.
Veðrið í dag er á bls. 36
brother
Litla
merkivélin
Loksins
með Þ ogÐ
Nýbýlavegi 28 - sími 554-4443
ÞREFALDUR1. \TVMXGUR