Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1995, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1995, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995 Fréttir 35 hafa farist í þremur snjóflóðum fyrstu tíu mánuði ársins 1995: Arið orðið mannskæðasta snjóflóðaár síðustu alda helmingi fleiri hafa látist í slysum það sem af er ári en á öflu árinu 1994 Árið 1995 er nú orðið mannskæð- asta snjóflóðaár síðustu alda á ís- landi. 35 einstaklingar hafa látið lífið í þremur flóðum á árinu og bams er saknað á Flateyri - 14 fórust hinn örlagaríka 16. janúar í Súöavík, einn fórst í snjóflóði í Reykhólasveit tveimur dögum síðar, einn fórst í flóði í Biáfjöllum 19. febrúar, og nú, rúmum níu mánuðum eftir Súðavík- uratburðina, farast 20 einstaklingar í nágrannabyggðarlagi þorpsins, hinu hörmulega snjóflóði á Flateyri. Atburðurinn á Flateyri í fyrrinótt er í raim mannskæðasta snjóflóð 20. aldarinnar - j afnkostnaðarsamur hvað varðar mannslíf og snjóflóð sem féll í Hnífsdal 18. febrúar 1910 en þá fórust einnig 20 manns. Árið 1885 fórust hins vegar fleiri á Seyðis- firði, 24 einstaklingar. Sá atburður hefur gjaman verið kallaður „snjó- flóðið mikla“. í fyrirliggjandi gögn- um þarf að leita allt aftur til ársins 1613 til að finna mannskæðara snjó- flóð. Heimildir, m.a. Skriðufóll og snjóflóð, herma, að 50 manns, sem vom á leið til messu á aðfangadags- kvöld það ár, hafi farist í snjóflóði í Siglufirði. Heimildimar em þó óljós- ar og í sumum tilvikum er nefnt að 30 hafi farist. 61-64 em taldir hafa farist í snjó- flóðum á 18. öld, 190 fórust hins veg- ar i snjóflóðum á 19. öld en á þeirri sem senn er að ijúka hafa 165 farist, þar af 64 frá árinu 1971. Þrátt fyrir að tíu mánuðir séu ekki liðnir enn af árinu 1995 er það orðið hið mannskæðasta hvað varðar banaslys síðustu áratuga. 83 hafa beðið bana í slysum það sem af er ári. Til samanburðar létust 42 af slys- förum á síðasta ári - rétt um helm- ingi færri. Af þessum 83 hafa eins og fyrr seg- ir 36 látist í snjóflóðum, 24 í umferð- arslysum, 21 í flugslysum, drukkn- unum, vélsleðaslysum eða af öðrum völdum og 2 í sjóslysum. Sé tekið mið af banaslysum ársins 1995 á íslandi hefur álika stór hluti þjóðarinnar farist og mannfall Bandaríkjamanna varð í öllu Víet- namstríðinu öUu sem vissulega spannaði hátt í einn áratug. Einxúg má taka mið af því að jafii hátt hlut- faU þegna breska heimsveldisins féU á tæpum sex árum í síðari heims- styijöldinni - einn af hverjum þijú þúsund íbúum. -Ótt Stuttar fréttir Mikilfióðltæð Óvenjumikil flóðhæð verður við suðvesturströnd íslands fram á næsta vor. Samkvæmt frétt RÚV kemur þetta upp á 18-19 ára fresti vegna innbyrðis afstööu á tungU og sól. Neytendasamtök Evrópu hafa koraiö hvatningu á framíæri við íslendinga að þeir sýni fordæmi i baráttu við lögleiðingu bUbelta í hópferðabflum í Evrópu. Það eru einkum Frakkland, Þýska- land, Ítalía og Spánn sem veitt hafa málinu mótspyrnu. Kærtt9ráðherra Borgariögmaöur hefur lagt tjl að tvö atriði í urskurði skipulags- stjóra vegna vatnsátöppunar- verksmiðju við Suðurá verði kærð tíl umhverfisráðherra. bi.»—«__!m. atrpwKUO mjotK Bónus hefur saraáð við mjólkur- samlagiö í Neskaupstað um aö sérpakka súnpjóUt fyrir versian- ir fyrirtækisins. RUössjónvarpiö greindi frá þessu. Vextrlækkuðu Vextir 20 ára verötry^öra spariskírteina ríkissjóðs iækk- uðu í útboði í víkunni. Meðal- ávöxtun var 5,75% sem er 0,2 pró- senlustiga lækkun frá siðasta út- boði. Óbreyttspá Þrátt fyrir aukinn verðbólgu- hraða að undanförnu heldur Þjóðhagsstoftiun sig fast við fyrri spár um 2 tíl 2,5% verðbóigu að meðaltaii á þessu ári. rtilMósí Fengur, skip Þróunarsam- vinnustofnunarinnar, mun fara til Mosambík eftir áramótin tíl að vinna að hafrannsóknaverk- efiú þar. Mbl. greindi frá. -kaa/bjb NIÐURSTAÐA bílbelti í rútum? Ekki (ærri en 400 björgunarmenn hafa barist viö snjóinn og hriðina á Flateyri allt (rá því snjóflóðið féil að morgni fimmtudagsins og lagði hluta þorpsins i rúsL Hér hallar örþreyttur hjálparsveitarmaður sér upp að skóflunum eftir erfiði dagsins. DV-myndGVA Vlnkonur björguðust út úr einbýlishúsi við Ijamargötu: Dóttir mín skreið út um eitthvert gat - fór betur en á horfðist, segir Guðmundur Helgi Kristinsson „Þetta lagðist strax mjög illa í okkur, eðlilega. Dóttir okkar, Helga Jónína, var ásamt vinkonu sinni í húsinu okkar fyrir vestan og það varð fyrir flóðinu að einhveiju leyti. Dóttir mín komst af sjálfsdáðum út úr húsinu í nótt með því að skriða út um eitt- hvert gat, eftir því sem hún sagði. Vinkona hennar fannst svo síðust í morgun. Hún var að vísu eitthvað meidd en á lífi sem betur fer. Þar fór betur en á horfðist,“ sagði Guömund- ur Helgi Kristinsson, íbúi í húsinu við Tjamargötu 7 á Flateyri. Guðmundur Helgi var staddur fyr- ir sunnan ásamt eiginkonu sinni þeg- ar spjóflóðið féll á Flateyri í fyrri- nótt. Dóttir þeirra hringdi í þau eld- snemma í gærmorgun þegar hún var komin í heilsugæslustöðina í þorp- inu. Hún var þá lítils háttar meidd og köld eftir að hafa bjargað sér í siyónum. Hún haföi verið í svefni og aðeins á náttfötunum þegar fLóðið féll. „Dóttir mín gat lítið áttað sig á þessu í sjálfu sér. Hún vaknaði bara við það að flóðið féll. Vinkona hennar var eitthvað meira meidd en ég hef ekki nánari fréttir af því,“ sagði Guð- mundur Helgi. Helga Jónína var í mötuneytinu hjá Kambi í allan gærdag og sagðist Guðmundur Helgi búast við að hún heföi farið með varðskipinu Ægi í gærkvöld. Það fór suður með fjölda fólks frá Flateyri. „Það er mjög erfitt að átta sig á því hvert tjónið er en það hafa allavega orðið einhveijar skemmdir," sagði hann. -GHS I Flóðbylgjan á Suðureyri: Náðiað forðamérá hlaupum - segir Amar Barðason „Ég hef aldrei á ævi minni hlaupið eins hratt og þegar ég forðaði mér undan flóðinu. Það er með ólíkindum hvað maður getur gert þegar alvara er á ferðum. Ég var rétt kominn úr bátnum, var að ganga á bryggjunni þegar kaUað var á mig og mér sagt að forða mér frá flóðbylgjunni. Eg hélt að hvinuriim stafaði bara af vindinuin og gerði mér enga grein fyrir því sem var í aðsigj," sagði Am- ar Barðason, trillukarl á Suðureyri, í samtali við DV í gærkvöldi. Hann slapp naumlega undan flóðbylgju sem kom í kjölfar snjóflóðs úr Norð- urhlíðinni, gegnt Suðureyri, og gekk í sjó fram. Hann sagði trilluna hafa verið bundna við flotbryggju og aðra trillu hafa legið utan á sinni. Krafturinn í flóðbylgjunni hafi verið slíkur að festingar um borð hafi gefið sig en hvorki hnútar né reipi. „Hinn báturinn losnaði strax frá og hann slapp alveg. Minn togaðist niður fyrst hann losnaði ekki frá, sogaði inn í sig sjó og sökk. Við náð- um honum á flot í dag eftir að flæddi undir hann og hann er mjög lítið skemmdur. Maður kvartar ekki und- an smávægilegu eignartjóni á svona dögum. Það verða alltaf einhver ráð með að leysa úr slíku,“ sagði Amar. Sáhana koma „Ég var að vinna í dælustöðinni, sem er nokkuð innan við Suðureyri, þegar ég sá flóðbylgjuna myndast úti á miðjum flóanum. Ég fylgdist með henni þar sem hún færðist nær og nær, ætlaði að forða mér út úr hús- inu en tókst það ekki vegna þess að þar var allt á kafi í snjó. Eina leiðin út var í átt að flóðinu og ég varð því bara að bíða þess sem verða vildi. Ég játa að mér leist alls ekki á blik- una. Flóðið fór yfir veginn og fyllti lón, sem er hér fyrir framan dælu- stöðina, af sjó og krapa en síðan stöðvaðist allt rétt við húsið hjá mér. Ef vegurinn heföi ekki verið á milli væri ég örugglega ekki til viðræðu," sagði Valur Sæþór Valgeirsson, íbúi á Suðureyri. Valur sagði flóðið hafa komið á land á um kílómetra kafla en síðan leitað út fjörðinn, í átt að eyrinni. Þar hafi það rifið sundur vamargarð við smábátahöfn sem verið hafi í smíðum. Mestu skipti að enginn hafi orðið fyrir öldunni þegar hún gekk á land en ekki hafi mátt muna miklu þvi bíll með 17 björgunarsveitar- mönnum hafi ekið veginn framan við dælustöðina rétt áður en flóðið skall á. -sv

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.