Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1995, Blaðsíða 8
8
FÖSTUDAGUR 27. OKTÓÐER 1995
Útiönd
LfTTi
Vinn ngstölur
25.10.1995
I VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
C1 6 af 6 0 45.310.000
IBl 5 af 6 pfl+bónus 0 1.832.443
|R1 5 af 6 3 134.060
j 4 af 6 194 1.620
irn 3 af 6 ICfl+bónus 546 240
Aðaltölur:
23
35
27
BÓNUSTÖLUR
@@@
Helldampphæd bessa vlku:
47.989.943
Áisi, 2.679.943
.......I____________ð#1<.SÖl61t
LUKKULIhA W1000* TEXTAVARP 4S1
»mi MSO PYBIBWA04 UM PHÍNTVIUUB
er tvöfaldur næst
Díana prinsessa var giæsileg aö vanda í gærkvöldi þegar hún kom til viðhafnarfrumsýningar á kvikmyndinni
Haunted í London. Hér er það leikarinn Anthony Andrews sem kynnir prinsessuna fyrir öðrum leikurum. Frumsýn-
ingin í gær var til styrktar lystarstolssjúkum. Símamynd Reuter
Aðskilnaðarsinnar 1 Québec:
Með nauma f orystu
Aðskilnaðarsinnar í Québec í
Kanada leiða naumlega samkvæmt
skoðanakönnunum sem birtar voru
um miðja vikuna. Þjóðaratkvæða-
greiösla fer fram í Québec á mánu-
daginn um þaö hvort Québec eigi að
verða sjálfstætt fylki.
Fyrir nokkrum vikum leit út fyrir.
að aðskilnaöarsinnar myndu bíöa
ósigur en nú hafa tilfmningarnar náð
yfirhöndinni og farið er að hitna í
kolunum. Stjómmálamenn heyja ör-
væntingarfulla baráttu til þess að
krækja í atkvæði þeirra sem enn eru
óákveðnir. Forsætisráöherra
Kanada, Jean Chrétien, ítrekaði í
gær að aðskilnaður myndi skapa
öngþveiti í Kanada.
Flestir hafa verið þeirrar skoðunar
að aðskilnaði yrði hafnað í þetta sinn
eins og áður. En nú er staðan óljós
og svo virðist sem hálfgerð örvænt-
ing hafi gripið um sig víða í Kanada.
íbúar Québec hafa leitaö yfir landa-
Jean Chrétien (orsætisráðherra.
mærin til Bandaríkjanna til þess að
kanna hvort þeir geti íjárfest þar.
Straumur fólks hefur verið tii vega-
bréfaskrifstofa í Québec. Fólk er
hrætt um að missa kanadískan ríkis-
borgararétt og flýtir sér að sækja um
kanadískvegabréf. Reuter.TT
Auglýsing
Tollkvótar vegna innflutnings á blómum
Með vísan til 53. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagn-
ingu og sölu á búvörum, sbr. breytingu með lögum nr. 87/1995
og með vísan til rg. nr. 544/1995 er hér með auglýst eftir umsókn-
um um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning og er nánar vísað til
ofangreindrar reglugerðar:
Vara Timabll Vörumagn Verötollur Magntollur
Tollnúmer: kg %
0601.2003 Grænarpottaplönturundir 1 m 01.11-31.12 1.000 30
0603.1009 Annað (afskorin blóm) 01.11-31.12 2.500 30
Skriflegar umsóknir skulu sendar bréfleiðis eða með símbréfi til
landbúnaðarráðuneytisins, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík, og
skulu hafa borist fyrir kl. 16.00 mánudaginn 30. október 1995.
Landbúnaðarráðuneytið, 26. október 1995
AlecBaldwin
handtekinnfyrir
barsmíðar
Bandaríski
kvikmynda-
leikarinn Alec
Baldwin var
handtekinn i
fyrir að
lemja
myndara sem
reyndi að taka
mynd af honum ogeiginkonunni,
Kim Basinger, þegar þau komu
heim af fæðingardeildinni meö
nýfædda dóttur sína.
í yfirlýslngu sera Baldwin sendi
frá sér í gærkvöldi sagði hann að
hann heföi margoft beöið Ijós-
myndarann aö hafa sig á brott
og láta fjölskylduna í friöi.
Ljósmyndarinn segir aö Baldw-
in hafi brotið á honum nefið með
barsmíðunum en leikarinn ve-
fengirþað. Reuter
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandl eignum verður háð á þeim sjálfum sem
hér segir:
Kjarrvegur 3, þingl. eig. Hús og Híbýli hf., gerðarbeiðendur Byggingarsjóð-
ur ríkisins, Gjaldheimtan í Reykjavík, Landsbanki Islands og Lífeyrissjóður
laekna, þriðjudaginn 31. október 1995 kl. 15.00.
Skútuvogur 13, 2. hæð skrifstofu- og verslunarhúss m.m., þingl. eig. Skútu-
vogur 13 hf„ gerðarbeiðandi Gjaldheimtan í Reykjavík, þriðjudaginn 31.
október 1995 kl. 15.30.
Sýslumaðurinn í Reykjavik
Ritt Bjerregaard stefnir Politiken:
Dagbók Bjerregaard
send út á Internetinu
Skrifaði bók í
staðþessað
stingaafmeð
ballerínu
„Ég var 48 ára, á þeim aldri
þegar margir vilja byrja á cin-
hverju nýju. Annar miöaldra há-
skólaprófessor hefði kannski
hlaupist á brott með ballerinu en
ég skrifaði bók,“ sagði Umherto
Eco, höfundur bókarinnar Nafn
rósarinnar, á bókamessunni í
Gautaborg í gær um upphaf rit-
höfundarferils síns.
Annar frægur gestur á bóka-
messunni var Saiman Rushdie,
höfundur Söngva Satans. Bjart-
sýni ríkir um að dauðadómi ír-
anskra klerka yfir honum verði
brátt aflétt.
Braustinná
lögreglustöð
ogstalstolnu
mótorhjóli
Bíræfinn þjófur braust inn í
lögregiustööina í hænum Örkellj-
unga í Svlþjóö aöfaranótt
fimmtudags og stai stolnu raótor-
hjóli. Braut þjófurinn rúðu í bfia-
geymslu lögreglunnar og gat síð-
an opnað dymar. Hélt þjófurinn
á brott með mótorhjól, sem stolið
haíöi verið fýrr á árinu, en var
svo óheppinn að mæta lögreglu-
bíiíeftirlitsferð. tt
Ritt Bjerregaard var í felum í gær.
Bók Ritt Bjerregaard er nú komin
á Intemetið fyrir tilstilli fjármála-
mannsins og fyrrverandi Evrópu-
sambandsstj ómmálamannsins
Klaus Riskárs Pedersens. Fékk Ped-
ersen diskettu með bókinni frá net-
þjónustu Politikens. Hann segir þaö
skoðun sína að bókin sé óspennandi
og segir innihaldið á sama stigi og
skólablað. Það sé hins vegar af
prinsipástæðum sem ákveðið hafi
verið að setja bókina á Intemetið.
Það sé óásættanlegt aö Ritt hafi frek-
ar valið að setja lok á'skoðanir sínar
en hætta störfum hjá Evrópusam-
bandinu.
Ritt og bókaforlag hennar krefjast
tugmfiljóna króna í skaðabætur af
Pohtiken fyrir að hafa birt bókina í
20 síðna aukablaði í gær. Ritstjóri
Politikens, Töger Seidenfaden, ver
birtingu bókarinnar. Segir hann aö
danska þjóðinhafi rétt til að lesa alla
bókina en ekki bara útdrátt í blöðum.
Seidenfaden kveðst ekki sjá að um
brot á lögum um höfundarrétt sé að
ræða þar sem kópíur af bókinni hafi
verið í umferð meðal blaðamanna í
Brussel í marga daga.
Framkvæmdastjóm Evrópusam-
bandsins ætlar nú að gera stórhrein-
gemingu innan sinna raða til þess
að bæta álit sitt meðal almennings,
að því er danska blaðið Berlingske
Tidende greinir frá. Agamál verða
rædd og einnig framkoma fifiltrúa
framkvæmdastjórnarinnar út á við,
að sögn ónafngreindra heimildar-
manna innan Evrópusambandsins.
Þeir vísa á bug að Ritt verði látin
hætta störfum sínum fyrir fram-
kvæmdastjórnina. „Litiö yrði á slíkt
sem þunga persónulega refsingu og
þannig hugsar Santer ekki,“ er haft
eftir einum heimildarmannanna.
Talsverður taugatitringur ríkti í
herbúðum Ritt í Brussel í gær og lét
hún samstarfsmenn sína tilkynna
fréttamönnum að hún vildi ekkert
við þá ræða né heldur láta taka
myndir af sér. Rítzau
Uppboö á lausafjármunum
Að kröfu Akraneskaupstaðar verður byggingarkrani boðinn upp föstudag-
inn 3. nóvember 1995 kl. 14.00 á athafnasvæði Akraneshafnar við Hafnar-
braut á Akranesi þar sem byggingarkraninn er staðsettur.
Vænta má að greiðsla verði áskilin við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Akranesi