Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1995, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995
Stuttarfréttir
Utlönd
; Umhverfisstaðlar vlða lun heim
eiga undir högg aö sælga þar sem
iðnfyrirtæki vilja veikja þá.
Mexíkósk yílrvöld ætla að leysa
meintan stofnanda Zapata-upp-
reisnarhreyfingarinnar úr haldi
og falla frá ákærum.
Jacques
Chirac Frakk-
landsforseti
hefur hneyksl-
aö stjómarand-
stæðinga en
kætt markaðs-
hyggjumenn að
samaskapimeð
tillögum sínum um tveggja ára
aðhaid í ríkisfjármálum.
Moröingi söngkonunnar Se-
lenu frá Texas var dæmdur í
ævilangt fangelsí í Houston í gær.
Dinihafðiþað
Lamberto Ðini, forsætisráð-
herra Ítalíu, hafði sigur í þinginu
í gær þegar vantraustsyfirlýsing
varfeUd.
Njósnari skotínn
Meintur njósnari Norður-
Kóreumanna var skotinn á flótta
í Suður-Kóreu i morgun og hann
lést síðar af sárum sínum.
ITillary Rodham Clinton, for-
setafru í Bandaríkjunum. hélt
upp á 48 ára afmælið sitt í gær
og bóndinn gaf henni flautu í af-
mælisgjöf.
HeimsækirAssad
Warren Chri-
stopher, utan-
ríkisráðherra
Bandarikjanna,
ætlar að heim-
sækja Ilafez al-
Assad Sýr-
landsforseta í
Damaskus á
mánudag þótt ekkert miði í frið-
arviðræðum ísraels og Sýrlands.
Sex Tíbetar, sem voru búnir að
vera í hungurverkfaili við SÞ í
tvær vikur, hættu því í gær aö
beiðni Dalaís Lamas.
Pjonusta skorin niöur
Bandaríkjaþing samþykkti fjár-
lagafrumvarp þar sem gert er ráö
fyrir miklum niðurskurði á fé-
iagslegri þjónustu.
Fleirilátnir
Tveir unglingar til viöbótar
hafa látist af völdum áreksturs
skólabíls oglestar í Bandaríkjun-
um og hafa því alls sjö látist.
Ekkifrekarftaflr
Japanskur dómstóll gerði í
morgun ráðstafanir til að leiðtogi
safhaðarins Æðsta sannleika
gæti ekki tafið réttarhöldin vegna
eiturgasárásarinnar í Tokyo
frekar.
Heidur vantrúaður
Alija Izet-
begovic Bos-
níuforseti telur
að aldrei muni
komast á friður
í landi sinu
nema núver-
andi leiðtogar
Bosníu-Serba
veröi fjarlægöir og kallar hann
þá glæpamenn.
MinnigróðihjáWeila
Þýska snyrtivörufyrirtækiö
Wella tilkynnö í gær aö gróðinn
á þessu ári væri mun minni en
áætlanir gerðu ráð fyrir. Reuter
Rússlandsforseti fékk fyrir hjartað í gær:
Borís Jeltsín var
f ullur í New York
Borís Jeltsín Rússlandsforseti var
drukkinn og átti erfitt með að ein-
beita sér þegar hann ræddi við Bill
Clinton Bandaríkjaforséta í New
York á mánudaginn. Þetta segja
ónafhgreindir heimildarmenn, sem
voru á fundarstað, við bandarísku
sjónvarpsstöðina CNN.
Heimildarmenn þessir, sem kallast
sérfræðingar í málefiium Rússlands,
segja að um tíma hafi verið rætt um
að koma Jeltsín í rúmið á æskuheim-
ili Franklins Roosevelts í Hyde Park
fyrir norðan New York borg þar sem
fímdur forsetanna var haldiim.
Jeltsín liggur nú á sjúkrahúsi í
Moskvu eftir aö hafa fengið milt
hjartaáfaU í gær, í annað sinn á tæp-
um fjórum mánuðum. Aðstoðar-
menn hans lögðu þó áherslu á að
hann væri enn við stjómvölinn.
Jeltsín, sem var örþreyttur eför
feröalag sitt til Bandaríkjahna, var
fluttur í skyndingu með þyrlu með
mikla verki fyrir hjartanu.
Igor Ignatjev, talsmaður forsetans,
sagði aö engin ástæða væri til að
færa völdin tímabundið í hendur
Viktori Tsjemomýrdin forsætisráð-
herra.
„Það hefur ekki komið til tals að
fá staðgengil fyrir Jeltsín. Forsetinn
er við stjómvölinn. Það er ekkert
sem bendir tíl þess að hann getí ekki
sinnt skyldustörfúm sínurn," sagði
hann.
Viktor Bjúshín, helsti aðstoðar-
maður Jeltsíns, sagði að endanlega
yrði skorið úr því í dag hvað amaði
að forsetanum og þá yrði einnig tek-
in ákvöröun um vinnu hans næstu
daga.
Þessi skyndilegu veikindi Jeltsíns
gætu orðið tíl þess að áhrif Rússa á
friðarviðræðumar um Bosníu, sem
hefjast eflir helgi, yrðu ekki eins
mikil og vonir stóðu tíl.
NTB, Reuter
Haraldi Noregskonungi og Sonju drottningu var vel fagnað af samlöndum sínum í Bandaríkjunum.
Simamynd Reuter
Norsku konungshjónin á heimleið frá Ameríku:
Haraldur og Sonja vilja hrogn
Eftír þriggja vikna ferð um Banda-
ríkin hlakka Haraldur Noregskon-
ungur og Sonja drottning mest til
þess að fá hrogn og annan almenni-
legan mat. Konungshjónin láta ann-
ars vel af förinni og móttökunum.
Það kom þeim gleðilega á óvart
hversu miklu betur Bandaríkjamenn
þekkja til Noregs en áður.
„Vegna ólynipíuleikanna er Noreg-
ur ekki lengur þekktur sem höfuð-
borg Svíþjóðar. Þessi áhrif munu
vara um einhvem tíma en ekki að
eilífu,“ sagði konungurinn á fúndi
með fféttamönnum í Seattle í gær-
kvöldi. „Við verðum að hamra jámið
meðan það er heitt,“ sagði Sonja.,
Haraldur virtist ekki hafa tekið
nærri sér mótmæli hvalavina í San
Francisco og Seattle. í seinna tilvik-
inu reyndu mótmælendur allt sem
þeir gátu til þess að yfirgnæfa kon-
ung með hávaða er hann hélt ræðu.
„Maður verður þá bara að tala
hærra,“ sagði konungur. Lætin á
meðan norski þjóðsöngurinn var
sunginn komu Haraldi heldrn- ekki
úr jafnvægi. „Þeir hafa eflaust ekki
kunnað þjóðsönginn,“ sagði hann.
Norskir fréttamenn tóku sérstak-
lega eför þvi að Haraldur konungur
söng ekki þjóðsöng Bandaríkja-
manna þennan sama dag en það
haföi hann gert í öll önnur skipti í
Ameríkuferðinni. Það var hins vegar
ekki vegna þess að hann væri að
mótinæla. „Astæðan er einföld. Ég
var að missa röddina. Heyrðuð þið
þaðekkiþegarégvaraðtala?" NTB
maðurborga
alltaf of seint
Mona Sahlin, varaforsætísráð-
herra Svíþjóðar, og Bo eiginmaður
hennar hafa um margra ára skeið
verið heldur sein á sér að borga dag-
heimilispláss bama sinna og lóða-
réttargjöld til bæjarfélagsins.
Þetta er niðurstaða rannsóknar
sem fréttamenn sænska ríkisút-
varpsins gerðu í Nacka bæjarfélag-
inu. í ljós kom að bæjarfélagið hefur
hvað eftír annað þurft að senda hjón-
unum ítrekanir.
Frá því í desember 1991 hafa mán-
aðargreiðslur fyrir barnaumönnun
komið 31 sinni of seint. Einu sinni
hefur verið greitt á réttum tíma og
tvisvar fyrirfram. í 22 skipti hefúr
bæjarfélagið þurft að senda hjónun-
um ítrekun.
Hvað varðar lóðaréttargjöldin þá
hafa þau ekki verið greidd á réttum
tímafráþvííseptemberl993. TT
Aðalfundi RKí
frestað
✓
Aðalfandi Rauða kross Islands og
ráðstefnu sem halda átti í Reykjavík
27.-29. október hefur verið frestað.
Ny dagsetning fyrir aðalfund og
ráðstefnur er 17.-19. nóvember.
Nánari upplýsingar verða sendar
deildum við fyrsta tækifæri.
■L
RAUÐI KROSS ÍSLANDS
Dísil, 4,6 kw
Bensín, 2,2 kw
Gæðiá góðu_verði
' Skútuvogi 12A, s. 581 2530
'm
kvöldveróartilboð
27/10-Z/ll
Veturer
qonqinn í garð
Frábærmatur, Ijúfarveitinqar,
rómantiskt umhverfi
yndisleq kvöldstund
Glæsileq 3ja rétta
kvöldverðartilboð
Kr. 1.995
HaSSTÆÐ HÁDEGISVEKÐART1LB0Ð ALLA VIRKA DACA
Bílahlutir
Hjólkoppar 13”og 14”
kr. 450 stk.
■H flH
Bremsuljós f afturglugga
Verð frá kr. 760
Kerruljós m/kapli
og tengingu. Verð kr. 2.750
Vetrarrúðuþurrkur
tvöfaldar þurrkur
2 stk. í pakka
40-45-50 cm
Verð frá kr. 860
pakkinn
Sætaáklæði á allan bílinn
Verð kr. 2.600
Síðumúla 34 - Fellsmúlamegin
Sími 588 7332
Opið: mánud.- föstud. kl. 9-18
Laugard. kl. 10-16