Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1995, Síða 10
FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995
Ólafur Tómas Guðbjartsson, Sigríður Jónsdóttir, Sunna Ragnarsdóttir, Anna Dögg Emilsdóttir og Víðir Már Gísla-
son sjá um útvarpsþátt fyrir unglinga á Blönduósi. DV-mynd RaSi
Útvarp unglinga á Blönduósi:
Reif í Skjólið
í hverri viku
„Þátturinn var aðra hverja viku
en er nú vikulega því undirtektir
hafa verið góðar,“ segja unglingamir
í Félagsmiðstöðinni Skjóli á Blöndu-
ósi sem eru með fastan útvarpsþátt
einu sinni í viku. Öll eru þau nem-
endur í 9. bekk grunnskólans. Þegar
blaðamaður DV átti leið um voru
krakkamir á fullu við að undirbúa
útsendingu næsta dag. Þátturinn er
sendur út frá Skagaströnd og njóta
krakkarnir aðstoðar Hallbjarnar
Hjartarsonar útvarpsstjóra í
Kántrýbæ.
„Við vinnum allt efni fyrirfram og
í næsta þætti verðum við með viðtöl
við htla krakka, umfjöllun um
íþróttadaginn og okkar eigin vin-
sældahsta. Við spyijum krakka um
uppáhaldslagið þeirra og úr þeim
upplýsingum vinnum við vinsælda-
listann."
Aht efnið er tekið upp á band fyrir-
fram. Krakkarnir gera skipulagt
handrit að hverjum þætti og velja lög
af geisladiskum í eigu félagsmið-
stöðvarinnar til að flytja milli við-
tala. Inn á milli em auglýsingar sem
þeir hafa sjálfir safnað. Dagskráin
þeirra er í klukkutíma á hverium
fóstudegi.
„Það hlusta margir á stöðina, líka
fullorðnir. Við reynum að hafa efni
fyrir fuhorðna líka til þess að foreldr-
arnir fái eitthvað fyrir sig,“ segja
þau. „Vinnan er ofsalega spennandi.
Við þurfum að khppa efnið saman
og reynum að hafa viðtal í hverium
þætti. Við höfum fengið styrki frá
fyrirtækjum á staðnum th að halda
þættinum úti og kaupa efni og tæki.“
Einar Þorláksson, Jón Kristjánsson, Svavar Jónsson, Rúnar Árnason og Þórir Jóhannsson spiluðu fjörug lög á
afmælishátíðinni á Blönduósi. DV-mynd JJ
Nikkan er aftur að
ná vinsældum
f
- segir Þórir Jóhannsson
„Harmoníkan er orðin vinsæl aft-
ur og má heyra í nýjustu popplögun-
um harmoníkuna notaða. Það er
þessi fransk-ítalski tónn sem er svo
vinsæh núna. Fólk vhl ljúfari og þýð-
ari músík núna en áður,“ segir Þórir
Jóhannsson sem hefur orð fyrir
Harmoníkuunnendum Húnavatns-
sýslu, eða HUH eins þeir kalla sig.
Félagsskapurinn er fimmtán ára
og segir Þórir að það sé nokkuð
þokkalegt að gera þótt ekki mæti
þeir alhr í einu í hvert sinn. Félagið
hefur ágæt samskipti við harmon-
íkuunnendur í Dalasýslu og síðan
reyna þeir að flækjast eitthvað um.
Aðspurður segir Þórir að of fáir
ungir krakkar læri á hljóðfærið.
„Það var í fyrra ung stúlka hér sem
er geysiefnileg. Það má segja að ný-
liðamir séu í meirihluta kvenkyns
og er það ipjög skemmtilegt. Sumir
geta státað af nokkrum konum í sín-
um hóp svo þetta vígi er fallið eins
og mörg önnur,“ segir Þórir hlæj-
andi.
Heimilisiönaðarsafnið á Blönduósi:
Munir og minj-
arúrhéraði
„Það vom konur úr Sambandi
austur-húnvetnskra kvenna sem
stóðu að þessu safni og það var opn-
að á 100 ára afmæli Blönduóss árið
1976,“ segir Ehn Siguröardóttir, for-
maður SAHK, um heimihsiðnaðar-
safnið á Blönduósi sem er til húsa í
hlöðu og fjósi gamla kvennaskólans.
Safnið er einstakt að því leyti að ein-
göngu em í því safngripir sem tengj-
ast heimihsiðnaði. Aðahega er það
verk kvenna sem er í safninu- en þó
er innan um verk eftir karla. Árið
1993 var mynduð sjálfseignarstofnun
um safnið seiri í eiga SAHK og átta
sveitarfélög í héraðinu koma inn í
reksturinn.
í safninu em eigur úr búi Halldóru
Bjarnadóttur eins og hún bjó við síð-
ustu æviárin. Munimir eru úr héraði
að mestu en Hahdóra safnaði mikl-
um munum á ferðum sínum um
landið. Sumt var unnið af námsmeyj-
um í kvennaskólanum en forgöngu-
maður um stofnun safnsins var
Hulda Á. Stefánsdóttir sem lengi var
skólastýra Kvennaskólans á Blöndu-
ósi. Mikh vinna hefur verið lögð í að
leita að uppruna munanna og eru
þeir flestir vel merktir.
Listfengi heimilanna
í safninu eru margir ótrúlega fal-
lega unnir munir sem notaðir hafa
verið af löngu gengnu heiðursfólki.
Má þar nefna styttur úr ýsubeinum,
styttuband úr mannshári, þunna og
fallega trefla, roðskó, glæsilega
skautbúninga, marglita skóleppa og
svona mætti lengi telja. Handbragðið
og nýtnin vekur athygli gesta og hver
munur á sína sögu.
Niðri er sýning á viðgerðum fatn-
aði og húsmunum. Þar sannast mál-
tækið að sjón er sögu ríkari því dæmi
eru um fatnað með tugum bóta. Þar
hefur farið saman gífurleg fátækt og
nýtni sem er sjaldséð í dag. Á einum
vegg hangir jakki sem lenti í bruna
og var ónýtur öðrum megin. Sú sem
hefur kúnstoppað hann hefur verið
hstamaður í sér og ekki möguleiki
að sjá ummerki brunans.
Elísabet Sigurgeirsdottir var lengi formaður Sambands austur-húnvetnskra
kvenna. Hér situr hún í Halldórustofu sem geymir muni Halldóru Bjarnadótt-
ur sem safnaði mörgum munum sem eru til sýnis i safninu. DV-myndir JJ
Samband austur-húnvetnskra kvenna:
Minnisvarði um
vegagerð kvenna
„Sambandið hefur haft forgöngu
um ýmsa starfsemi sem síðar varð
sjálfsögð í hverju bæjarfélagi. Má þar
nefna stofnun skólagarða sem
Blönduósbær tók síðar við og að
veita viðurkenningar fyrir snyrti-
lega umgengni utanhúss," segir
Björk Axelsdóttir, ritari sambands-
ins.
„Það óvenjulegasta sem sambandið
hefur tekið sér fyrir hendur er upp-
setning minnisvarða um vegagerð
kvenna í Kvenfélaginu Heklu en þær
ruddu veg yfir svokallaðan Múla
mhh Hafna og Víkna á Skagaströnd.
í Sambandi austur-húnvetnskra
kvenna eru 10 kvenfélög í héraðinu
með um 180 félagsmenn. Flest þeirra
eru stofnuð á sama tíma og samband-
ið, eða árin 1927 og 1928. Að sögn
Bjarkar hefur félögum fjölgað hin
síðustu ár.
Sambandið hefur staðið fyrir fjölda
námskeiða fyrir félagskonur, hstsýn-
ingum og'-orlofsferðum fyrir hús-
mæður. Annan minnisvarða hefur
sambandið séð um að reisa en sá er
á Ytri-Ey og er til minningar um
fyrsta kvennaskóla Húnvetninga.
„Áður fyrr voru hstsýningar og
dæmi um framúrstefnu þeirra var
að þær fengu „Listaskáldin vondu“ í
heimsókn," segir Björk.
Kvenfélagið Vaka á Blönduósi, Kvenfélag Sveinsstaðahrepps og Kvenfélag-
ið Vonin í Torfalækjarhreppi sáu um undirbúning afmælis DV á Blönduósi.
Frá þeim félögum og SAHK voru Siguriaug Ragnarsdóttir, Elín Sigurðardótt-
ir, Björk Axelsdóttir, Sonja Wium, Hlif Sigurðardóttir og Björg Þorgilsdóttir.
Yst til hægri er umboðsmaður DV á Blönduósi, Erla Aðalsteinsdóttir.
DV-mynd JJ