Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1995, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1995, Side 11
FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995 11 Fréttir Snjóflóðið á Flateyri: Sjálft björgunarstarf ið gengur fyrir öllu - segir Friðrik Sophusson, starfandi forsætisráðherra „Það var ákveðið á ríkisstjórnar- fundi að setja af stað samstarf ráðu- neytisstjóra, eins og eftir Súðavikur- slysið fyrr á árinu, til að samræma allar aðgerðir og hafa á einum stað það vald sem þarf að vera fyrir hendi í stjórnsýslunni til þess að greiða fyrir, bæði með fjármunum og öðr- um hætti, því björgunarstarfi sem nú stendur yfir. Það eru gefin út þau fyrirmæli af hálfu ríkisstjómarinnar að ráðuneytisstjóramir skuh í sínu starfi, með hjálp þeirra stofnana sem við höfum yfir að ráða, greiða fyrir sjálfu björgimarstarfinu eins og hægt er. Og nú er allt kapp lagt á sjálft björgunarstarfið á Flateyri. Samgöngur verða samræmdar. Veg- um verður haldið opnum. Séð verður til þess að skip séu tiltæk, bæði varð- skip og hugsanlega önnur skip ef á þarf að halda og við munum ná t±l, og síðast en ekki síst flugvélar. Sjálfu björgunarstarfinu er stýrt af Al- mannavömum ríkisins. Síðan kem- ur Rauði krossinn að þessu, sem og allt þetta úrvalsfólk sem starfar í hjálpar- og björgunarsveitum lands- ins. Þannig verður reynt að sam- ræma allt sem þarf til sjálfs björgun- arstarfsins," sagði Friðrik Sophus- son, íjármálaráðherra og starfandi forsætisráðherra. Hann sagði ríkisstjórnina fylgjast mjög náið með framvindu mála fyrir vestan og í dag verður svo haldinn annar ríkisstjómarfundur þar sem farið verður yfir stöðu mála. „Síðan má ekki gleyma því að ráðu- neytisstjóranefndin verður að hta til fleiri þátta sem ekki era bundnir við Flateyri. Það kemur í ljós með þessu snjóflóði að það þarf að endurmeta alla stöðuna. Þetta snjóflóð fellur ekki innan þeirra marka sem menn höfðu helst búist við. Það gerir það að verkum að menn verða að hugsa allt snjóflóðahættudæmið upp á nýtt á öhum helstu snjóflóðahættusvæð- um landsins. Og gleymum því ekki að það er enn sumar á almanak- inu,“ sagði Friörik. Hann sagði að það væru ótal spum- ingar sem þyrfti aö svara þegar frá hður. „En á þessari stundu og meðan á þarf að halda munum við beita öhu því afli sem við höfum yfir að ráða við sjálft björgunarstarfið,“ sagði Friðrik Sophusson, starfandi forsæt- isráðherra. ísaflörður: Snjóflóð féll á sorp- brennslustöðina Funa Mheli Ettirelnn -eiakineinn Hlynur Þór Magnússon, DV, ísafirdi: Snjóflóð féh á sorpbrennslustöðina Funa í Skutulsfírði, sem stendur undir hlíðinni nokkru innan við ísa- harðarflugvöll, rétt fyrir kl. tvö í fyrradag. Thvhjun réð því að ekki varð manntjón en tveir starfsmenn voru í stöðinni. -Þeir voru staddir á skrifstofu stöðvarstjórans sem var eina rýmið í byggingunni fyrir utan kjallarann sem slapp tiltölulega vel. Eignatjónið hleypur jafnvel á hundr- uðum milljóna króna. Stöðin var tek- in í notkun fyrir einu ári og kostaði fullbúin um 250 milljónir króna fyrir utan vsk. Skúli Skúlason og Bjarki Rúnar Skarphéðinsson starfsmenn voru í stöðinni. Þorlákur stöðvarstjóri skrapp út á ísafjörð rétt áður en flóð- ið féh. „Flóðið virðist vera hátt í hundrað Bjarki Rúnar Skarphéðinsson og Þorlákur Kjartansson stöðvarstjóri nokkru eftir að snjóflóðið féll. DV-mynd Hlynur Þór Magnússon metrar á breidd og á að giska tíu th tólf metrar á hæð. Það fór alveg upp á efstu hæð en húsið er fjórar hæðir auk kjallara," sagði Þorlákur. „Vissulega vomm við smeykir þeg- ar við áttuðum okkur á þvi hvað gerst hafði. Þetta tók mjög snöggt af, kannski fimm th sex sekúndur, byrj- aði með hvin og síðan brothljóðum. Svo varð dauðaþögn. Þá áttuðum við okkur á þessu. Fyrst leituðum við að hlífðarfótum, við vorum létt- klæddir þarna inni. Við höfðum áhyggjur af Þorláki. Hann heföi þess vegna getað verið fyrir ofan stöðina. Við komumst út og ákváðum að komast á næstu bæi, út að Kirkjubæ eða Höfða. Það varð að samkomulagi á leiðinni að Skúli yrði eftir við hús sem heitir Gmnd en ég hélt áfram og var kominn th byggða um tuttugu eða tuttugu og fimm mínútum eftir að þetta gerðist," sagði Bjarki Rúnar. Föstudagur 27. okt. kl. 9.00 - 23.00 Hitt Húsið GALLERÍ GEYSIR MYNDLISTARSÝNING. kl. 10.00 -17.00 Háskólabíó LJÓSMYNDASÝNING frá maraþoni. kl. 13.00 -19.00 Kringlan INTERNETSMIÐJA Síberíu kl. 20:00 Hitt Húsið LEIKSMIÐJA kl. 20:30 Tjarnarbíó DJASSTÓNLEIKAR sími: 551-5353 Snjóflóöiö á Flateyri: Allt snjóf lóðahættumat þarf að meta upp á nýtt segir Páll Pétursson félagsmálaráðherra „Það sem við höfum lagt alla áherslu á í dag er sjálft björgunar- starfið og að gera það sem í okkar valdi stendur til að auðvelda það sem frekast er kostur. Á ríkisstjórnar- fundinum var ráðuneytisstjóra- nefndin endurvakin en hún reyndist afar vel eftir Súðavíkurslysið í vetur og menn telja nauðsynlegt að til sé í stjómsýslunni nefnd sem getur tekið við erindum og tekið ákvarðanir þeg- ar í stað ef á þarf að halda,“ sagði Páll Pétursson félagsmálaráðherra í samtali við DV. Hann var spurður hvort ekki yrði að taka snjóflóðavarnir og búsetu fólks á snjóflóðasvæðum th endur- skoðunar í ljósi þeirra mannskæðu slysa sem orðið hafa í snjóflóðum á síðustu misserum? „Það er alveg ljóst að óhjákvæmi- lega verður aö hugsa allt dæmið varðandi snjóflóð og snjóflóðavamir í landinu upp á nýtt. Hættumatið sem fyrir hggur er greinilega ófullkomið eins og mörg mannanna verk. í greinargerð, sem ég undirskrifaði í sumar, var ákveðið að láta gera nýtt hættumat. Ég var búinn að fá nýtt hættumat frá Súðavík, Tungudal og Hnífsdal. Það er ég þegar búinn að staðfesta. Frá Flateyri hefur ekkert komið á mitt borð um nýtt hættumat en samkvæmt því gamla þá fellur nú snjóflóð á svæði sem talið var ör- uggt,“ sagði Páh. Hann var spurður hvort ekki þyrfti að halda ráðstefnu vísindamanna í veðurfræðum, snjóflóðafræðum og ef th vih fleiri fræðum sem tengjast snjóflóðum og snjóflóðavömunum í ljósi breytts veðurfars sem aftur leið- ir th breytinga á snjóflóðúm oig hættusvæðum. „Sjálfsagt væri það th góðs en óvíst að það dugi, svo miklar breytingar virðast hafa orðið eins og best sést á því að samkvæmt almanakinu er enn sumartími," sagði Páh Pétursson. Auglýsing um innlausnarverð verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) Á KR. 10.000,00 1983- 2.fi. 1984- 3.fl. 01.11.95 -01.05.96 12.11.95 - 12.05.96 kr. 68.603,20 kr. 85.833,10 *) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, 27. október 1995 SEÐLABANKIÍSLANDS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.