Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1995, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1995, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 1995 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLT111, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLT114,105 RVIK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270 Stafraen útgáfa: Heimasiða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@ismennt.is - Auglýsingar dvaugl@ismennt.is. - Dreifing: dvdreif@ismennt.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1550 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk. Tilvistarkreppa Smáflokkunum gengur enn einu sinni illa að fóta sig í íslenskum stjórnmálum. Á landsfundi Samtaka um kvennalista á dögunum kom greinilega í ljós að sú stjórn- málahreyfing býr við alvarlega tilvistarkreppu og virðist ekki vita hvort sé betra að lifa eða deyja. Þjóðvaka hefur heldur engan veginn tekist að skapa sér þá sérstöðu sem gæti tryggt þeim flokki pólitískt líf að loknum næstu al- þingiskosningum. Sögulega séð var niðurstaða síðustu þingkosninga fyrst og fremst enn einn sigurinn fyrir gamla fjórflokka- kerfið. Leiðtogar hins hefðbundna flokkakerfis til margra áratuga, Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðis- flokkurinn, styrktu stöðu sína og fóru beinustu leið í hjónasæng stjórnarráðsins. A-flokkamir héldu sjó þrátt fyrir aukna samkeppni á þeim atkvæðamiðum sem gjarnan eru talin vinstra megin við miðju. í tímans rás hefur margsinnis verið gerð hörð atlaga að því kerfi fjögurra flokka sem á rætur sínar að rekja til hugmynda og aðgerða Jónasar Jónssonar frá Hriflu og nokkurra samtíðarmanna hans á þeim árum þegar ís- lendingar tóku sín fyrstu skref sem fullvalda þjóð á ný. Upphafið var stofnun Framsóknarflokksins og Alþýðu- flokksins fyrir hátt í áttatíu árum. Núverandi flokka- mynstur tók svo endanlega á sig þá mynd sem kjósend- ur þekkja enn í dag eftir sameiningu íhaldsmanna og frjálslyndra í nýjum Sjálfstæðisflokki og klofhing jafnað- armanna og kommúnista við upphaf fíórða áratugarins. Tilraunir margra stjórnmálaforingja til að bylta þessu gamla kerfi hafa alltaf mistekist og reyndar orðið til þess eins að færa fylgi tímabundið á milli svonefndra vinstri flokka. Nægir þar að nefna stjórnmálaumbrot forystu- manna á borð við Héðin Valdimarsson, Hannibal Valdi- marsson, Vilmund Gylfason og nú síðast Jóhönnu Sig- urðardóttur. Upphaflega hafa þessir forystumenn með einum eða öðrum hætti hrökklast úr Alþýðuflokknum og leitað eftir samstarfi við fólk í öðrum stjórnmálaflokkum til þess að bylta flokkakerfinu. Stundum náðu þeir tíma- bundnum árangri í þá veru að ýta við gömlu flokkunum en svo féll allt í sama farið á ný. Lengi vel var útlit fyrir að Samtök um kvennalista yrðu undantekning frá þessari reglu um smáflokka sem koma og fara í einum eða tvennum þingkosningum. Sú stjórnmálahreyfing var stofnuð árið 1983, náði strax um- talsverðum árangri í kosningum og styrkti stöðu sína með árunum. En hin síðari misseri hefur hallað undan fæti fylgislega og nú er svo komið að konurnar í Kvenna- listanum virðast ráðvilltar og ófærar um að ákveða fram- haldið. Þær hanga í lausu lofti, svo vitnað sé til ummæla sem féllu á landsfundinum. Vafalaust er það hluti af tilvistarkreppu Samtaka um kvennalista í dag að þær hafa ekki komist til neinna valda eða áhrifa í landsstjóminni. Svokölluð útskipta- regla í þingflokki þeirra hefur einnig styrkt þá almennu ímynd að Samtök um kvennalista séu forystulaus hreyf- ing sem eigi afar erfitt með að taka ákvarðanir. Skoðanakannanir sem DV hefur gert frá því gengið var að kjörborðinu í vor staðfesta fylgisleysi Samtaka um kvennalista. Ef fram fer sem horfir bendir flest til þess að kjósendur muni brátt taka af skarið um tndalok Kvennalistans sem stjómmálasamtaka á landsvísu. Hið sama á við um framtíð Þjóðvaka. Ekkert nema meiri háttar pólitískt kraftaverk dugar til að halda lífi í þeim stjómmálaflokki fram yfir næstu þingkosningar. Elías Snæland Jónsson Víða eriendis hefur sjávarrentu verið sóað á altari sérhagsmuna sem kemur m.a. fram í því að afkoma sjávar- útvegs batnar ekki þótt styrkt sé, segir Kristjón m.a. í greininni. - Skreiðarverkun í Noregi. Við sama hey- garðshornið Á nýafstöðnum aðalfundi Lands- sambands íslenskra útvegsmanna þótti framkvæmdastjóra samtak- anna ástæða til að hnýta í hag- fræðinga Seðlabanka íslands með eftirfarandi orðum. „Við lifum á fiski. Þetta er staðreynd sem ég hefði haldiö að óþarft væri að tí- unda, hvað þá fyrir sprenglærðum hagfræðingum Seðlabanka ís- lands. En svo rækilega geta menn lokað sig af innan svartlitaöra glugga þeirrar stofnunar, að þeir sjá ekki einu sinni þennan ein- falda sannleika, sem flestum grunnskólabörnum er ljós.“ Hér talar framkvæmdastjórinn sannarlega gegn betri vitund því hann ætti að þekkja til þeirra starfa sem ónefndir hagfræðingar hafa unnið í tengslum við sjávar- útveg jafnvel áratugum saman, hvort sem um er að ræða með hörðum höndum við veiðar og vinnslu eða við almenna saman- tekt staðreynda er snerta rekstur og yfirlit um áform og fræðilega greiningu á vanda atvinnuvegar- ins. Málið er þó tilgreindri stofnun algjörlega óviðkomandi. Á altari sérhagsmuna Því hefir ekki verið mótmælt að sjávarútvegur aflar um helmings gjaldeyristekna þjóðarinnar og framlag veiða og vinnslu er um fimmtán af hundraði landsfram- leiðslu. Um þessa hluti standa eng- ar deilur. Aftur á móti virðist vera nokkur skoðanamunur á milli fram- kvæmdastjórans og hagfræðinga um hvort yfirleitt séu til þau fræði sem fjalla um lögmál bestu nýting- ar takmarkaðra, sameiginlegra, endurnýjanlegra auðlinda og hvernig eðlilegt sé að ráðstafa sjávarrentu. Víða erlendis hefir henni verið sóað á altari sérhagsmuna, sem kemur m.a. fram í því að afkoma Kjallarinn Kristjón Kolbeins viðskiptafræðingur sjávarútvegs batnar ekki þó styrkt sé. íslendingar hafa eytt henni í óþarfa kostnað og jafnframt orðið fyrir tekjuskerðingu. Hún gæti runnið óskipt til útgerðar eða að einhverju leyti í sameiginlegan sjóð landsmanna til að brúa fjár- lagahalla og draga þannig úr lán- tökum ríkissjóðs. Áhrifin yrðu væntanlega al- menn vaxtalækkun. Sjávarrenta gæti einnig komið í stað annarra tekna ríkissjóðs, svo sem virðis- auka- eða tekjuskatts. Hagkvæmari kostur Grunnskólabörn ættu auðvelt með að skilja að veiðileyfagjald eða auðlindaskattur er mun hag- kvæmari kostur til tekjuöflunar fyrir ríki og sveitarfélög en skatt- ar á fjármagn og vinnuafl vegna þess að hann veldur ekki sama óhagræði við notkun framleiðslu- þátta, sem birtist t.d. i því að launatengd gjöld gætu hugsanlega komið í veg fyrir að til yrðu sum- arstörf fyrir grunnskólabörn þar eð sú upphæð sem vinnuveitand inn þarf að greiða er til muna hærri en sú sem launþeginn fær i eigin vasa og sættir sig við. Á vitrænt stig Umræðan um veiðileyfagjald og sjávarútveg er almennt að komasl á vitrænt stig. I ljósi aflasamdrátt ar og þess að fískur er fluttui óunninn úr landi eða unninn á hafi úti eru þær raddir þagnaðar sem halda því fram að veiðileyfa- gjald sé sérstakur skattur á lands- byggðina þar eð hún byggi að miklu leyti sitt á veiðum og vinnslu. Öðru máli gegnir um þá bábUju að gjald sem lagt er á nýtingu ákveðinnar takmarkaðrar, sameig- inlegrar, endurnýjanlegrar auð- lindar sé jafnframt skattur á þær atvinnugreinar sem hana nýta.. Kristjón Kolbeins „Grunnskólabörn ættu auðvelt með að skilja að veiðileyfagjald eða auðlindaskatt- ur er mun hagkvæmari kostur til tekjuöfl- unar fyrir ríki og sveitarfélög en skattar á fjármagn og vinnuafl. . Skoðanir annarra Ohróöur á Interneti „Ekki þarf að lýsa mörgum orðum þeim umræð- um sem verið hafa um Internetið og þau vandamál sem það skapar. Það virðist vera staðreynd að þessi nýi miðiU er notaður tU þess að dreifa upplýsingum og fullyrðingum, sem snerta einkamál fólk og ekki til þessa fengið inni í fjölmiðlum ... Að hin nýja og ört vaxandi samskiptatækni á Internetinu skuli vera notuð til að dreifa óhróðri eru alvarleg tíð- indi.“ Úr forystugrein Tímans 21. nóv. Heimilt þar, óheimilt hér „Hvenær verður framsókn okkar i öðrum löndum stöðvuð með tUvísun til þess að við séum að gera þaö á þeirra vettvangi, sem þeim er óheimilt hér? Slíkur skortur á gagnkvæmni er m.a. einn helzti ásteytingarsteinninn í viðskiptum Bandaríkja- manna og Japana. Bandarísk fyrirtæki og banda- rískir stjórnmálamenn segja við Japani: þið hafið frjálsar hendur í okkar landi, hvers vegna ekki við á ykkar heimavígstöðvum? M.ö.o. er tímabært að velta fyrir sér og ræða, hvort bann við erlendum fjárfestingum í íslenzkum sjávarútvegi fari hvað úr hverju að vinna gegn okkar eigin hagsmunum.“ Úr Reykjavíkurbréfi Mbl. 19. nóv. Tími Sameiningar? „Sameining jafnaðarmanna er vissulega ekki áhlaupaverk, það sanna margar mislukkaðar til- raunir liðinna ára. Ýmislegt bendir þó til að tími hennar nálgast, ekki síst skýrar raddir unga fólks- ins, sem hinir eldri mega ekki loka eyrunum fyrir. Þeir ættu að taka höndum saman við unga fólkið og nýta reynslu sína og þekkingu til að láta á það reyna hvort sameining eigi ekki betri möguleika nú áður, en láta sagnfræðingunum eftir það sem að ósekju má heyra sögunni til.“ Finnur Birgisson í Alþbl. 21. nóv.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.