Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1995, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1995
Myrkranna á milli
Það ríldr ávallt mildl efrirvænting þegar konungur spennusagnanna, Sidney Sheldon,
sendir frá sér nýja bók. A því var engin undantekning þegar þessi bók kom út í
Bandaríkjunum fyrr á þessu ári. Myrkranna á milli spannar vítt sögusvið, allt frá
fagurri strönd ítölsku Rívíerunnar til tískuhúsanna í París. Söguþráðurinn er haglega
ofinn gegnurn móðu og mistur, og endalokin koma á óvart eins og Sheldons er von
og vísa.
Mundu mig
Mary Higgins Clark hefur skrifað ellefu spennusögur sern allar hafa orðið
metsölubækur um gjörvallan heim. I þessari bók dragast sögupersónurnar inn í
ógnvekjandi og undarlegan vef sem ókunn öfl virðast spinna þeim.
Mary Higgins Clark bregst ekki lesendum nú frekar en endranær og heldur þeim
í magnaðri spennu allt til síðustu blaðsíðu bókarinnar.
Morð í þremur þáttum
Þau eru orðin mörg sakamálin sem Hercule Poirot hefur leyst allt ffá því að fyrsta
bók Agöthu Christie, Hús leyndardómanna, kom út árið 1920. Síðan hafa milljónir
lesenda um allan heirn notið snilligáfú þessa litla belgíska einkaspæjara.
Morð í þremur þáttum er sígild, fyrsta flokks leynilögreglusaga með spennandi
söguþræði, óvæntum atburðum, grunsamlegum persónum og síðast en ekki síst
sögulokum sem koma öllum á óvart... nema Hercule Poirot.
Andlit öfundar
Jóhanna er ung stúlka, sem er búsett í Reykjavík. Hún er gædd dulrænum hæfileika,
fjarskyggni, sem gert hefur henni lífið leitt en hún telur sig hafa losnað við. Hún
bjargar litlu barni frá drukknun og fyrr en varir er hún flækt í ótrúlega atburðarás,
þar sem hún fær engu ráðið. Lífi hennar er stefnt í hættu. Þessi þrettánda skáldsaga
Birgittu er spennandi saga um afbrot og ástir. Enn á ný kemur Birgitta skemmtilega
á óvart.
Án plantna }nði enginn matur á jörðinni, engin dýr af nokkru tagi, ekkert líf. Þær lifa þó lengstum í
sínum eigin heimi, og við vitum sáralítið um hvað þar gerist. I þessari stórbrotnu bók opnar David
Attenborough okkur heirn náttúrunnar svo ljóslega og af slílcum áhuga að fáir rithöfúndar og
kvikmyndagerðarmenn hafa leikið það eftir. Bækur hans og sjónvarpsmyndir eru í fremstu röð og hafa
reynst einn mesti fróðleiksbrunnur á seinni hluta 20. aldar.
Einkalíf plantna er þungamiðja í verkum hans, grunnurinn að öllu sem hann
hefur rannsakað hingað til.
Hestar og menn 1995.
Glæsileg árbók þar sem sagt er ff á hestamönnum og hestum þeirra á ferðalögum
og í keppni. Bókin er prýdd fjölda ljósmynda, bæði litmynda og svarthvítra.
íslensk knattspyma 1995.
I bókinni er að finna upplýsingar um allt það helsta sem gerðist í knattspyrnu
á Islandi árið 1995. Litmyndir af öllum meistaraliðum ársins og áberandi
einstaklingum.
David Attenborough
vist, yj flk iiO?rr ■ [Jr - -p. ^ JjHHffiSðÍ
••• ■ V • Wr »:,«J HB5B
Skjaldborg h£
Armúla 23, Reykjavík í
Akureyri: Furuvellir 13
588-2400 Fax 588-8994
Ð 462-4024