Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1995, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1995
Fréttir
Jólahald íslendinga í Svlþjóð:
Afskipti raðamanna
björguðu jólunum
CsmáskórÁ
Monboots á
þau yngstu
Sænsk stjórnvöld hafa geflst upp í
þeirri viðleitni sinni að eyðileggja
jól fjölmargra íslendinga þar í landi.
Á fimmtudaginn var tollyfirvöldum
þar í landi gefin sú tilskipun að
hleypa hangikjöti og öðru íslensku
góðmeti í gegnum tollafgreiðslu án
gjaldtöku og takmarkana. Þar með
opnuðust flóðgáttir í kæligeymslum
tollsins því hundruð matarpakkar
frá Islandi höfðu safnast þar fyrir.
Um nokkurra vikna skeið leit út
fyrir að íslendingar í Svíþjóð fengju
ekki að neyta hangikjöts frá Islandi.
Bein afskipti Guðmundar Bjama-
sonar landbúnaðarráðherra og Sig-
ríðar Snævarr sendiherra urðu hins
vegar til þess að slakað var á inn-
flutningsbanninu.
Til að byrja meö leit þó út fyrir að
ísleningar yrðu að greiða 7 þúsund
króna toll til að geta leyst jólapakk-
ana úr haldi hjá tollyfirvöldum. Frá
því var hins vegar horfiö í síðustu
viku eftir frekari afskipti Guðmund-
ar og Sigríðar af málinu.
-kaa
Stærð 18-27
Verð kr. 2.190
smáskór
Súðurlandsbraut 52, bláu
húsi v/Fákafen. s. 568 3919.
SÖLUHÆSTI HLUTABREFASJOÐURINN A ISLANDI
Núna hafa yfir 500 aðilar
um allt land
meira en
100 milljónir
í Hlutabréfasjóðnum hf....
... ogþað eru aðeins 12 dagar til áramóta.
Hlutabréfasjóðurinn hf. - söluhæsti
hlutabréfasjóðurinn
Hlutabréfasjóðurinn hf. er stærsti íslenski
hlutabréfasjóðurinn með yfir 4.000 hluthafa,
heildareignir yfir 1,4 milljarða króna. Það eykur
stöðugleikann. Á einungis 12 dögum hafa yfir 500
aðilar keypt fyrir meira en 100 milljónir króna í
sjóðnum og er hann því söluhæsti
hlutabréfasjóður landsins. Sjóðurinn er fjórða
fjölmennasta almenningshlutafélag landsins.
Sjö góðar ástæður til að fjárfesta í
Hlutabréfasjóðnum hf.:
Lægsti rekstrarkostnaður sem vitað'er um hjá
íslenskum hlutabréfasjóðum.
Góð raunávöxtun — 49,6% sl. ár og 8,2% frá
upphafi.
Hlutabréfasjóðurinn er stærstur íslenskra
hlutabréfasjóða. Það eykur stöðugleikann.
Þú getur alltaf selt hlutabréfin ef þú þarft á því
að halda.
Þú eignast hlut í flestum hlutafélögum á
innlendum hlutabréfamarkaði.
Fjárfestingarstefha sjóðsins er skýr.
Núna er tækifæri til að fjárfesta
Eitt símtal er nóg til að ganga frá kaupum ef þú
vilt:
• millifæra af tékkareikningi í Islandsbanka
• fá gíróseðil sendan heim.
• ganga frá kaupum með boðgreiðslum VISA eða
EURO (lágmarksútborgun 20% af kaupverði).
Hlutabréf í Hlutabréfasjóðnum hf eru seld hjá
VIB á Kirkjusandi, í Islandsbanka um allt land,
i afgreiðslu Hlutabréfasjóðsins hf. á Skóla-
vörðustig 12 og öðrum jyrirtœkjum á verðbréfa-
markaði.
Skattfrádráttu r Kaupverð Skattfrádráttur
Einstaklingur Hjón 135.000 270.000 45.000 90.000
H
HLPTABREFA
SJOÐURINN
FORYSTA í FJARMÁLUM!
I
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
• Aðili að Verðbréfaþingi lslands •
Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími 560-8900. Myndscndir: 560-8910