Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1995, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1995
13
Samsung SV-140 X er vandað fjögurra hausa Nicam Hi-R
Stereo-myndbandstœki. Það með aðgerðastýringum ð skjá
sjónvarps, sjálfvirkri stafrœnni sporun, sem tryagir skarpari
mynd, þcegilegri þráðlausri fiarstýringu, upptökuminni tram í tímann, Jog-hjóli til að spóla
bœði áfram og afturábak, 2 Scart-tengjum, tengi fyrir sjónvarps-
myndavél, Show View-kóda, Long Play upptökumöguleika, hrað-
hleðslu, IntroScan, Video Index Searcn System, hœgmynd, tvöfaldri
og nífaldri hraðspólun með mynd, barnalœsingu o.m.fl.
I'M'íh
m
TIL ALLT AO £4 MÁNAÐA
Hraðþjónusta við landsbyggðina:
(Kostar innanbœjarsímtal og
vötumar eru sendar samdœgurs)
Grensásv
Sími:5 886 886 Fax:5
i 11
888
Útsölustaðir:
Húsgagnahöllin
Húsasmiðjan
Hljómar
ísafirði
Bókaversl.
Gríman
Garðabæ
Kask
Höfn
. Geirseyrarbúð
Patreksfirði.
Hljómborg, ísafirði,
Laufið, Bolungavík,
Kaupfélag
Skagfirðinga
Ómur, Húsavík.
Fatabúðin
Skólavörðustíg
Útsölustaðir:
Kaupfélag
Vopnfirðinga,
Kaupfélag
Héraðsbúa,
Helgi Garðars.,
Eskifírði,
Tónspil.
Neskaupsstað,
Kaupfélag
Rangæinga,
Hljóðtækni,
Kjamanum-Selfossi,
Húsg.verslun
Reynisstaðir,
Rafeindaþj,
Guðmundar,
Grindavík,
Ljósboginn,
Keflavfk,
Kaupfélag
Borgfirðinga,
Skipavík,
Stykkishólmi,
Fréttir
Útflutningur á matvælum:
Söluandvirði vottorða
í vasa yfirdýralæknis
- engar opinberar upplýsingar til um fjölda vottorða
„Þaö er orðið algengara en áður
að fólk sendi útflutningsvottorð með
matarpökkum sem sendir eru til út-
landa. Póstur og sími hefur tekið
eftir því að um slíkt er beðið erlend-
is,“ segir Sigurður Örn Hansson,
deildarstjóri hjá embætti yfirdýra-
læknis.
DV greindi frá því fyrir helgi að
lögfræðingur landbúnaðarráðuneyt-
isins hefði áminnt yfirdýralækni
um að fara að lögum og reglum við
útgáfu útflutningsvottorða en til
þessa hefur verið hægt að kaupa
slík vottorð í matvöruverslunum
óútfyllt, með stimpli yfirdýralæknis
og undirskrift eiginkonu hans.
í landbúnaðarráðuneytinu og hjá
embætti yfirdýralæknis fengust í
gær engar upplýsingar um hversu
mörg sfík vottorð hefðu verið gefln
út. Að sögn Sigurðar renna tekjurn-
ar af sölu vottorðanna alfarið til
Bryjólfs Sandholt yfirdýralæknis og
hann einn hafi því tölur um söluna.
Ekki hefur náðst í Brynjólf vegna
þessa máls þar sem hann er á ferða-
lagi erlendis.
Sigurður segir að nú sé hætt að
selja vottorð með matarpökkum til
útlanda. Þess í stað geti sendendur
keypt sér limmiða í viðkomandi
verslunum á 200 krónur þar sem
fram komi almennar upplýsingar
um dýrasjúkdóma á Islandi frá emb-
ætti yfirdýralæknis. -kaa
Ert þú tillitssamur?
gerir þér kleift að hlusta á útvarp, sjónvarp,
segulband eða geislaspilara í steríó uppi í rúmi án
þess að trufla þá sem næstir þér eru.
Koddinn er miklu þægilegri en nokkur heyrnartól
því hátalararnir sitja svo djúpt að þú finnur aldrei
fyrir þeim.
Viltu hlusta á hljóðbók, eða bara ná fréttunum á
miðnætti án þess að vekja maka þinn? Lausnin er
hinn ofurþægilegi Hljómkoddi. Eða börnin, þau
elska líka að heyra kvöld- söguna í Hljómkoddanum.
Þú getur jafnvel tengt hann við útvarps- vekjarann
til að maki þinn vakni ekki þegar þú vilt fara á
fætur.
Það besta er eftir; hann kostar lítið meira en
venjulegur koddi, aðeins 2.890.-.
Heildverslunin
H. if
Sími: 5651027, 896 2860.
M-'J-S-I-K
M-YN-Dlt
HLléMBÆR" ÍHUÓMSÝN hjóliðs/f
WSm ^1/ip.yv - *------ niiHouin .auanb. :mi«74 Sími: 561 0304
Frændkórinn ásamt stjórnanda í Hábæjarkirkju. DV-mynd Jón Ben
Þrjátíu systkinabörn
í Frændkórnum
frá Norðurhjáleigu
DV Hvolsvelli:
Á ættarmóti, sem haldið var 1991
við Norðurhjáleigu í Álftaveri í
Vestur-Skaftafellssýslu, sungu sam-
an nokkur systkinabörn og hvött af
foreldrum sínum stofnuðu þau
Frændkórinn.
Systkinin frá Norðurhjáleigu eru
tólf sem komust á legg í þessari
söngelsku íjölskyldu og voru þær
fjórar systurnar. Oft hljómaði marg-
raddaður söngur þeirra á engjum í
kvöldkyrrðinni á árum áður.
Bræðurnir æfðu söng saman, tvö-
faldan kvartett. Vegalengdir létu
þeir ekki aftra sér. Þeir þjuggu vítt
og breitt um Suðurland, frá Álfta-
veri í Skaftafellssýslu til Reykjavík-
ur.
I Frændkórnum eru nú um 30
systkinabörn og er stjórnandi kórs-
ins Eyrún Jónasdóttir frá Kálfholti.
Æft er einu sinni í viku, ýmist í
Reykjavík eða á Selfossi. Félagar í
Frændkórnum sungu á aðventu-
kvöldi í Hábæjarkirkju í Þykkvabæ
fóstudaginn 15. desember og tileink-
uðu sönginn einum frænda sínum,
Þóri Jóni Guðlaugssyni frá Voðm-
úlastöðum, sem dáið hafði kvöldið
áður. -JB
Heilsdagsskólinn:
Starfar eftir
áramót
því samning-
ar náðust
Borgaryfirvöld hafa náð sam-
komulagi við Kennarasamband ís-
lands um greiðslur til skólastjóra í
grunnskólum borgarinnar fyrir
stjórn heilsdagsskólans á þessu
skólaári. Heilsdagsskólinn ætti því
að vera starfræktur á eðlilegan hátt
eftir áramót.
„Það bar dálítið í milli varðandi
laun fyrir umsjón með heilsdagsskó-
lanum og menn mættust á miðri
leið. Síðan ætla menn að setjast nið-
ur eftir áramótin og fara ítarlegar
ofan í starfslýsingar skólastjórn-
enda og skoða það sameiginlega,"
segir Jón Kristjánsson, starfs-
mannastjóri borgarinnar.
Ragnar Gíslason, formaður Skóla-
stjórafélags Reykjavíkur, staðfestir
að samningar hafi náðst og segir
skólastjóra ánægðasta með að hafa
náð fram þeirri meginkröfu að farið
verði í starfslýsingar skólastjórn-
enda. -GHS
Hljómkoddinn
ÚTSÖLUSTAÐIR:
HELENA FAGRA
snyrtistofa og verslun Laugavegi 101
(á horni Snorrabrautar og Laugavegs), 2. hæð,
sími 551 6160.
HRUND
snyrtistofa og verslun, Grænatúni 1, Kópavogi,
sími 554 4025.
RÓSALIND
Hafnargötu 24, Keflavík, sími 421 3255
SMART
Bárustíg 2, Vestmannaeyjum, sími 481 3340