Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1995, Blaðsíða 26
26
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1995
Andlát______________
Halldór Þormar
Jónsson
Halldór Þormar Jónsson sýslu-
maður á Sauðárkróki, Víðigrund
5, Sauðárkróki, lést 14.12. sl. Útfor
hans fer fram frá Sauðárkróks-
kirkju fimmtudaginn 21.12. kl.
14.00.
Starfsferill
Halldór fæddist á Mel í Staðar-
hreppi í Skagafirði. Hann lauk
stúdentsprófi frá MA 1950 og emb-
ættisprófi í lögfræði frá HÍ 1957.
Halldór var framkyæmdastjóri
fyrirtækja Sigurðar Ágústssonar í
Stykkishólmi 1957-60, fram-
kvæmdastjóri Fiskvers Sauðár-
króks hf., Skagfirðings hf. og Her-
varar hf. 1960-62 og Verslunarfé-
lags Skagfirðinga á Sauðárkróki
1961-64 auk þess sem hann stund-
aði lögfræðistörf.
Halldór var fulltrúi sýslumanns
í Skagafiaröarsýslu og bæjarfóget-
ans á Sauðárkróki 1964-80, settur
bæjarfógeti á Siglufirði 1976-77,
skipaður þar 1980-82, skipaður
sýslumaður í Skagafiarðarsýslu
og bæjarfógeti á Sauðárkróki 1982
og skipaður sýslumaður á Sauðár-
króki 1992;
Halldór sat í stjórn Vöku og
Orators, var varaformaður
Heimdallar 1953-54, formaður Fé-
lags ungra sjálfstæðismanna í
Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu
1958-60, formaður Útvegsmannafé-
lags Stykkishólms 1958-60, í
stjórn Amtbókasafnsins í Stykkis-
hólmi 1958-60, í ýmsum nefndum
á vegum Sauðárkrókskaupstaðar,
formaður sjálfstæðisfélags Sauðár-
króks 1969-70, bæjarfulltrúi þar
1970-78, forseti bæjarstjórnar
1970-74, í bæjarráði 1972-78, um-
boðsmaður skattstjóra á Sauðár-
króki 1966-74, varaþingmaður i
Norðurlandskjördæmi vestra
1970-74 og formaður yfirkjör-
stjómar Norðurlandskjördæmis
vestra frá 1983.
Fjölskylda
Halldór kvæntist 11.10. 1953, eft-
irlifandi eiginkonu sinni, Aðal-
heiði Benediktu Ormsdóttur, f.
30.5. 1933, húsmóður. Hún er dótt-
ir Orms Hafsteins Samúelssonar,
hreppstjóra og verslunarmanns á
Hólmavík, og k.h., Jóhönnu Daní-
elsdóttur húsmóður.
Börn Halldórs og Aðalheiðar
eru Hanna Björg, f. 29.12. 1952,
sjúkraliði á Sauðárkróki; dr. Jón
Ormur, f. 5.3. 1954, dósent við HÍ;
Ingibjörg, f. 28.4.1958, læknaritari
á Siglufirði; Halldór Þormar, f.
7.5. 1964, fulltrúi hjá skattstjóra á
Siglufirði.
Bróöir Halldórs var Magnús, f.
7.9. 1919, d. 13.1. 1984, bankastjóri,
alþm., fiármálaráðherra og vara-
formaður Sjálfstæðisflokksins;
Baldur, f. 31.10. 1923, d. 19.6. 1983,
rektor KHÍ.
Foreldrar Halldórs voru Jón
Eyþór Jónasson, f. 12.2. 1893, d.
22.4. 1982, bóndi að Torfumýri í
Blönduhlíð og síðar að Mel í Stað-
arhreppi, og Ingibjörg Magnús-
dóttir, f. 22.8. 1894, d. 3.7. 1979,
húsfreyja.
Ætt
Bróðir Jóns var Einar, hrepp-
stjóri og oddviti að Laugalandi á
Þelamörk. Jón var sonur Jónasar,
b. í Stóragerði í Hörgárdal, Jóns-
sonar, b. á Barká, Ólafssonar,
bróður Einars, hreppstjóra að
Laugalandi, langafa Einars 01-
geirssonar alþm. Einar var einnig
afi Sigurbjargar, móður Árna,
bæjargjaldkera á Siglufirði, og afi
Guðrúnar, afa Sigurðar Óla, bæj-
arfulltrúa á Akureyri, og Áslaug-
ar fræðslustjóra Brynjólfsbarna.
Móðir Jónasar veu- Þórey Gísla-
dóttir, systir Myrkár-Helgu. Móð-
ir Jóns Eyþórs var Guðrún Jó-
hannesdóttir, b. á Geldingatá,
Guðmundssonar.
Bróðir Ingibjargar var Hannes,
skólastjóri á Akureyri. Ingibjörg
var dóttir Magnúsar, b. á Torf-
mýri, bróður Sigríðar í Djúpadal,
móðurömmu Sigurgeirs, bæjar-
stjóra á Seltjarnamesi. Magnús
var sonur Hannesar, b. í Axlar-
haga, Þorlákssonar, b. á Ystu
Grund, Jónssonar. Móðir Þorláks
var Guðrún, hálfsystir Gísia Kon-
ráðssonar sagnfræðings, föður
Konráðs Fjölnismanns. Móðir
Magnúsar á Torfmýri var Ingi-
björg Þorleifsdóttir, b. á Botna-
stöðum, bróður Ingibjargar
Halldór Þormar Jónsson.
Salóme, móður Þorleifs alþm., föð-
ur Jóns Leifs. Ingibjörg var
einnig amma Jóns alþingisforseta,
föður Pálma, fyrrv. ráðherra. Þor-
leifur var sonur Þorleifs ríka,
hreppstjóra í Stóradal, Þorkels-
sonar, og Ingibjargar, langömmu
Kristjáns, föður Jónasar, ritstjóra
DV. Systir Ingibjargar var
Ingiríður, amma Sigríðar, ömmu
Matthiasar Bjarnasonar, fyrrv.
ráðherra. Ingibjörg var dóttir
Guðmundar rika í Stóradal, Jóns-
sonar, ættföður Skeggstaðaættar-
innar, Jónssonar.
Móðir Ingibjargar í Axlarhaga
var Ingibjörg, systir Einars, föður
Indriða rithöfundar. Ingibjörg var
dóttir Magnúsar, prests í Glaum-
bæ, Magnússonar, og Sigríðar,
systur Benedikts, langafa Einars
Benediktssonar skálds. Sigríður
var dóttir Halldórs Vidalín.
Jón E. Sigurgeirsson
Jón E. Sigurgeirsson skipstjóri,
Völusteinsstræti 14, Bolungarvík,
lést á Fiórðungssjúkrahúsinu á -
ísafirði föstudaginn 15.12. sl.
Hann verður jarðsunginn frá
Hólskirkju í Bolungarvík fimmtu-
daginn 21.12. kl. 11.00.
Starfsferill
Jón fæddist í Bolungarvík 17.10.
1937 og ólst þar upp í foreldrahús-
um. Jón lauk minna stýrimanna-
prófi á Akureyri 1957 og fiski-
mannaprófi hinu meira við Stýri-
mannaskólann í Reykjavík 1966.
Jón fór fimmtán ára til sjós og
var lengi háseti og stýrimaður á
vélbátum frá Bolungarvík, lengst
af á Guðmundi Péturs. Þá var
hann skipstjóri á togaranum
Heiðrúnu frá 1976 og til dauða-
dags.
Fjölskylda
Eftirlifandi eiginkona Jóns er
Jónína Kjartansdóttir, f. 29.9. 1940,
húsmóðir. Hún er dóttir Kjartans
Guðjónssonar, sjómanns í Bolung-
arvík, og k.h., HaUdóru Maríus-
dóttur húsmóður.
Börn Jóns og Jónínu eru Víðir,
f. 31.1.1956, skipstjóri og stýri-
maður á Mánabergi frá Ólafsfirði,
búsettur á Ólafsfirði, en kona
hans er Jóna Arnórsdóttir og eiga
þau fiögur börn; Margrét, f. 26.12.
1959, húsmóðir í Reykjavík, gift
Guðmundi Jóni Matthíassyni
tæknifræðingi og eiga þau tvo
syni; Guðmundur, f. 19.12. 1960,
stýrimaður og skipstjóri á Baldri
Þorsteinssyni á Akureyri, búsett-
ur á Akureyri, en kona hans er
Vigdis Hjaltadóttir og eiga þau
þrjú böm; Friðgerður Brynja, f.
4.3. 1963, starfar í lögreglunni í
Reykjavík; Svala, f. 12.3.1967, hús-
móðir á Akureyri, en maður
hennar er Birkir Hreinsson, stýri-
maður á Víði frá Akureyri, og
eiga þau tvö börn.
Jón átti sjö systkini, sex systur
og einn bróður.
Foreldrar Jóns: Sigurgeir Sig-
urðsson, f. 22.7. 1902, d. 1995, skip-
stjöri í Bolungarvík, og k.h., Mar-
Jón Eggert Sigurgeirsson.
grét Guðfinnsdóttir, f. 29.3. 1909,
d. 3.10. 1994, húsmóðir.
Til hamingju
með afmælið
20. desember
75 ára
Ragnar Lúðvík Jónsson,
Böðvarsgötu 7, Borgamesi.
Óskar L. Ágústsson,
Fjölnisvegi l, Reykjavík.
60 ára
Markús Sigurðsson,
Tungubakka 4, Reykjavík.
Kolbrún Viggósdóttir,
Vestimbergi 36, Reykjavík.
50 ára
Jadwiga Walczak,
Hverfisgötu 108, Reykjavík.
Guðrún Stella Gunnarsdóttir,
Melbæ 17, Reykjavík.
Kristján Þórðarson,
Suðurengi 23, Selfossi.
Sigurður Óskarsson,
Ægissíðu 129, Reykjavík.
Ole Rosborg Hansmar,
Aðalbraut 2, Raufarhöfn.
Selma Shahida Taherali Gaziza,
Laugarásvegi 1, Reykjavík.
40 ára
Sveinbjörg Einarsdóttir,
Dofrabergi 11, Hafnarfirði.
Guðríður Þórðardóttir,
Holtsgötu 15, Hafnarfirði.
Hólmfríður Erlingsdóttir,
Bogasíðu 5, Akureyri.
Ámi Jón Kristjánsson,
Þverá, Öxarfiarðarhreppi.
Þröstur Lýðsson,
Brattholti 4 A, Mosfellsbæ.
Patricia Elvira López Soto,
Hamraborg 18, Kópavogi.
Lovisa Rúna Sigurðardóttir,
Knarrarbergi 3, Þorlákshöfn.
Dagbjartur R. Sveinsson,
Setbergi 35 B, Þorlákshöfh.
Sólveig N. Hafsteinsdóttir,
Stigahlíð 50, Reykjavík.
Jón Bergþór Þorgeirsson,
Tunguvegi 38, Reykjavik.
Stella S. Hrafnkelsdóttir,
Marargrund 14, Garðabæ.
Ólafur Már Magnússon,
Hrísrima 10, Reykjavík.
Gunnar Bjarnason áttræður
Það var glatt á hjalla þegar Gunnar
Bjarnason ráðunautur hélt upp á átt-
ræðisafmæli sitt þann 13. desember
sl. Hér er afmælisbarnið, t.v., ásamt
Hjalta Sigurbjörnssyni á Kiðafelli.
Gunnar ásamt börnum sínum. Frá
vinstri: Bjarni verkfræðingur, Halldór
prestur, afmælisbarnið, Regína Sól-
veig nemi og Gunnar Ásgeir, spari-
sjóðsstjóri og svínabóndi.
DV-myndir S _