Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1995, Blaðsíða 28
Grýla gaf börnum snakk úr roði.
Grýlugott
„Grýla hafði þetta með sér til
Hollands á dögunum og gaf fólki
að smakka, þetta er fint Grýlu-
gott.“
Úlfar Eysteinsson, í DV, um snakk úr
roði.
Skúffufyrirtæki
Eigum við að láta eignarlaust
skúffufyrirtæki fara að stjóma
uppbyggingu samgöngukerfisins
og steypa þjóðinni út í tvísýn-
ustu framkvæmd íslandssögunn-
ar?“
Friðrik Hansen Guðmundsson, í Morg-
unblaðinu, um Hvalfjarðargöngin.
Ummæli
Cocoa Puffs kynslóöin
„Það vill oft rigna upp í nas-
imar á þessum ungu mönnum af
Cocoa Puffs kynslóðinni."
Jóhann Ingi Gunnarsson, fyrrum hand-
boltaþjálfari, í DV.
Notaður á börnin
„Jú, það var ýmislegt sem
gekk á. Ég var jafnvel notaður til
að hræða böm. Þeim var skipað
að vera þæg því annars kæmi
ég.“
Guðmundur J. Guðmundsson, f Al-
þýðublaðinu.
Neðanjarðarlestir æða með mikl
um hraða undir stórborgum.
Umfangsmestu
neðanjarðar-
lestirnar
í heiminum eru 67 neðanjarð-
arlestar og sú sem er í New York
hefur flestar brautarstöðvar eða
466 en fyrsti hluti hennar var
tekinn í notkun 23. október 1904.
Brautin er 372,93 km að löng og
em farþegar á hverju ári vel yfir
einn milljarð.
Sú neðanjarðarlest, sem hefur
samtals lengsta braut, er í
London, um 408 kílómetra langa,
en 135 kílómetrar era í gröfnum
göngum. Við neðanjarðarlestina
Blessuð veröldin
í London starfa 19.000 manns á
273 stöðvum. Lestimar era 457
og vagnamir 3.875. Lengsta vega-
lengd sem hægt er að fara er 54,9
km á milli Epping og West
Ruslips.
Flestir farþegar ferðast með
neðanjarðarlestunum á Moskvu-
svæðinu. Stöövarnar era 132 og
hafa 15 þeirra fleiri en eitt nafii
þar sem þær era skiptistöðvar.
Brautin er í heild 212,5 km að
lengd.
HAPPDRÆTTI
BÓKATÍDINDA
VINNINGSNÚMER DACJINS ER:
9680
Ef þú finnur þetta númer á baksíðu
Bókatíðinda skaltu fara með hana
í næstu bókabúð og sækja vinninginn:
BÓKAÚTTEKT AÐ ANDVIRÐI
10.000 KR.
Bókaútgefendur
28
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1995
Snjókoma sunnanlands
Yfir Grænlandi er 1048 millíbara
hæð, en dálítið lægðardrag er við
suðvesturströndina og þokast það
norður. í dag verður hæg austlæg
en síðar breytileg átt og dálítil snjó-
koma sunnan- og suðvestanlands.
Norðaustangola eða kaldi í nótt og
Veðrið í dag
él við norður- og austurströndina.
Frost verður 2 til 15 stig, hlýjast
sunnanlands. Á höfuðborgarsvæð-
inu er austangola og dálítil snjó-
koma en norðaustangola og léttir til
í dag. Frost 5 til 9 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 15.30.
Sólarupprás á morgun: 11.21.
Síðdegisflóð í Reykjavík: 16.58
Árdegisflóð á morgun: 5.27.
Heiniild: Almanak Háskólans.
Veðrió kl. Akureyri 6 í morgun: heiöskírt -14
Akurnes heiöskírt -11
Bergsstaöir heiöskírt -12
Bolungarvík alskýjaö S
Egilsstaöir heiöskírt -14
Keflavíkurflugv. alskýjaö -3
Kirkjubœjarkl. snjókoma -8
Raufarhöfn alskýjað -14
Reykjavík snjókoma -5
Stórhöföi snjókoma -2
Bergen heiöskírt -7
Helsinki léttskýjaö -8
Kaupmannah. léttskýjaö -6
Ósló heiöskírt -7
Stokkhólmur snjókoma -7
Þórshöfn léttskýjaö -3
Amsterdam rign/súld 2
Barcelona heióskírt 7
Chicago skýjaö -3
Feneyjar þokumóöa 5
Frankfurt rign/súld 3
Glasgow léttskýjaö -3
Hamborg þokumóöa 0
London rigning 2
Los Angeles léttskýjaö 13
Lúxemborg súld 1
Madríd þokumóóa 8
Mallorca léttskýjaö 3
New York snjókoma -3
Nuuk heiöskírt -5
Orlando skýjaö 18
París skýjaö 5
Róm þokumóöa 2
Valencia heiöskírt 10
Vín alskýjaö 2
Winnipeg snjókoma -9
Trausti Ólafsson, verðandi leikhússtjóri á Akureyri:
Þekki til á Akureyri og
átti þar mjög góðan tíma
DV, Akureyri:
„Það leggst mjög vel í mig að
taka við þessu starfi. Ég þekki svo-
lítið til á Akureyri, var þar í fjögur
ár á árunum 1985-1989 og það var
mjög skemmtilegur tími í mínu
lífi. Að vísu var ég þar í annars
konar starfi, var skólastjóri i
Hvammshlíðarskóla sem er skóli
fyrir fólk með sérþarfir og átti góð-
Maður dagsins
an tíma þar. Það leggst því vel í
mig að fara aftur tO Akureyrar,"
segir Trausti Ólafsson, nýráðinn
leikhússtjóri hjá Leikfélagi Akur-
eyrar.
Trausti er fæddur árið 1949 i
Landeyjum, hann lauk BA-prófi í
norsku frá Háskóla íslands 1991,
starfaði við kennslu, tók fyrsta
hluta leikhúsfræðináms við há-
skólann í Bergen í Noregi og lauk
Trausti Ólafsson.
því námi í Ósló.
„Ég fylgdist vel með Leikfélagi
Akureyrar og starfsemi þess með-
an ég bjó þar og finnst leikhúsið
þar mjög spennandi að mörgu
leyti. Það er öðruvísi en stóra leik-
húsin. í Reykjavík, minna í snið-
um, en í starfi leikhússtjóra sýnist
mér að auðveldara sé fyrir hann að
sinna listrænum þáttum en í leik-
húsunum í Reykjavík, án þess að
ég geri lítið úr stjómunarþættin-
um.“
Um áhugamál sin segir Trausti
að tónlist sé þar ofarlega á blaði.
„Þá er ég afskaplega hrifinn af ís-
lenskum fjöllum og sú hrifning
eykst meö árunum. Ég er ekki
mikill fjallgöngumaður, en hæfi-
lega há fjöll laða mig að sér og ís-
lensk náttúra yfirleitt. Litimir í ís-
lenskri náttúru eru sérstaklega
heillandi, ekki síður á haustin og
vetuma en á öðram tímum.“
Kona Trausta er Kristín Unn-
steinsdóttir skólasafnskennari,
hann á tvo syni, Inga Tandra sem
er 21 árs og Úlf Teit sem er 16 ára.
-gk
T
Myndgátan
„ samkvæmt
'ftessu*} %NEPL i þARF
AO 6PEÍÐA PÉR FYHÍRy
^Ai> REHA MÍé-.f'J,
Stendur á völtum fæti
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði.
Kórtónleikar
á aðventu
í kvöld kl. 20.00 verða glæsileg-
ir tónleikar í Keflavíkurkirkju
og koma fram eftirtaldir kórar:
Yngri kór Tónlistarskólans í
Keflavík, Eldri kór Tónlistar-
skólans í Keflavík, Kór Fjöl-
brautaskóla Suðumesja, Kór fyr-
ir alla, Yngri deild bjöllukórs
Tónlistarskólans í Garði og Eldri
Tónleikar
deild bjöllukórs sama skóla. All-
ir kórarnir eru undir stjórn
Gróu Hreinsdóttur og syngja
þeir og spila hvor í sínu lagi og
einnig saman. Á efnisskránni
era fjölbreytt jóla- og aðventulög.
Alls koma fram niutíu mann á
tónleikum þessum.
Skák
Þröstur Þórhallsson er enn efstur
á Guðmundar Arasonar mótinu í
Hafnarfirði að loknum sex umferð-
um. Alls verða tefldar níu umferðir
á mótinu sem lýkur á fostudag.
Þessi staða er úr 3. umferð. Þröst-
ur hefur svart og á leik i vænlegu
tafli gegn Jóni Áma Nilssen frá
Færeyjum. Þröstur var fljótur að
knýja andstæðinginn til uppgjafar:
X X
A A
A
Jl A A A
A
S <á? A A
rr
ABCDEFGH
38. - Hxa4! 39. Hxa4 Hb2+ 40. Kel
d3! og hvítur gafst upp.
Jón L. Árnason
Bridge
Vinningsleið sagnhafa í þessu
spili er nokkuð undarleg en þó
nokkuð rökrétt. Sagnir ganga
þannig, vestur gjafari og allir á
hættu:
4 ÁK108
V KD952
+ K42
*2
4 5
44 ÁG
♦ D9873
* ÁK1097
4 D42
44 73
4 Á106
* DG843
Vestur Norður Austur Suður
1+ í* pass 1G
pass 24 pass 2G
pass 3G p/h
Eftir laufútspil vesturs, sem sagn-
hafi fékk á gosann, spilaði sagnhafi
næst hjarta að heiman. Vestur setur
gosann og nú byggist vinningsleiðin
á því aö leyfa vestri að eiga þann
slag. Ef sagnhafi setur drottinguna í
blindum tapar hann spilinu. Nauð-
synlegt er að fá 3 slagi á hjarta, án
þess að hleypa austri inn í spilið til
að spila í gegnum lauflitinn. Ef vest-
ur fær að eiga slaginn á hjartagos-
ann getur hann ekki gert af sér
neinn óskunda. Sagnhafi getur síð-
an spilað aftur hjarta að blindum og
þannig tryggt sér 3 slagi á litinn.
Þannig fær sagnhafi 3 slagi á spaða,
3 á hjarta, tvo á tígul og laufslag.
Spilamennska sagnhafa byggist
fyrst og fremst á því að koma í veg
fyrir að austur komist inn í spilið.
ísak Örn Sigurðsson