Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1996, Blaðsíða 17
16
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1996
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1996
25
íþróttir
Meistaramót TBR
í badminton
Meistaramót TBR í badminton
verður haldið í TBR-húsunum á
laugardag og sunnudag. Keppt
verður i einliðaleik, tvíliðaleik
og tvenndarleik í A- og B-flokki
meistaraflokks. Keppni hefst
klukkan 13 á laugardag og 10 á
sunnudag.
Skvassmót
Hróa Hattar
Um helgina fer fram fyrsta
skvassmót ársins í Veggsporti
við Gullinbrú. Mótið nefnist
Skvassmót Hróa Hattar og er lið-
ur í röð punktamóta sem gefa
stig tfl íslandsmeistaramóts.
Keppt verður í karlaflokki,
kvennaflokki og unglingaflokk-
um.
Stuðningsmenn
Tottenham hittast
Tottenham-klúbburinn á ís-
landi ætlar að hittast á veitinga-
húsinu Ölveri í Glæsibæ á laug-
ardaginn og fylgjast með leik
sinna manna gegn Manchester
City sem sýndur verður í ríkis-
sjónvarpinu. Leikurinn hefst
klukkan 14.50 og verður tekið á
móti nýjum skráningum í klúbb-
inn á staðnum.
Aðdáendur Newcastle
stofna klúbb
Aðdáendur Newcastle ætla að
hittast á Ölveri á sunnudaginn
klukkan 14 og stofna stuðnings-
mannaklúbb og um leið að fylgj-
ast með sínum mönnum leika
gegn Coventry í beinni útsend-
ingu.
Arsenal mætir
Aston Villa
í gær var dregið til undanúr-
slitanna í ensku deildabikar-
keppninni. Arsenal mætir Aston
Villa og Leeds leikur gegn ann-
aðhvort Norwich eða Birming-
ham.
Veðbankar spá
Leeds sigri
Eftir að dregið var til undan-
úrslitanna er Leeds United það
lið sem líklegast er til sigurs.
Veðbanki William Hill spáir því
að líkurnar á að Leeds hampi
bikarnum séu 7/4 en þar á eftir
koma Aston ViOa og Arsenal
með líkurnar 11/4.
Öruggur sigur
hjá Stúdentum
ÍS vann öruggan sigur á Reyni
úr Sandgerði, 109-89, í 1. deild
karla í körfuknattleik þegar lið-
in mættust í iþróttahúsi Kenn-
araháskólans í gærkvöldi. ÍS
náði Snæfelli þar meö að stigum
á toppnum en staðan er þannig:
Snæfell 11 10 1 1083-784 20
ÍS 11 10 1 865-771 20
KFl 11 9 2 962-833 18
Reynir, S. 11 5 6 893-990 10
Þór, Þ. 10
Leiknir, R. 10
ÍH 10
Selfoss 10
Stjaman 11
853-831 10
815-812 8
817-909 6
801-798 6
8 779-903
Höttur
11
1 10 659-886 2
-vs
Fátæk börn fá
21 þúsund miða
Undirbúningsnefhd ólympíu-
leikanna í Atlanta tOkynnti í
gær að 21 þúsund fátækum börn-
um úr nærliggjandi ríkjum
Bandaríkjanna yrði boðið ókeyp-
is á leikana í sumar. „Við von-
umst til þess að það hafi góö
áhrif á börnin að fá tækifæri til
að fylgjast með svona stórkost-
legum viðburði," sagði Bill
Payne, forseti nefndarinnar, í
gær.
Undanúrslitin í bikarkeppninni í körfu:
Haukar og KR
leika til úrslita
- segir Teitur Örlygsson
Undanúrslitaleikirnir í bikar-
keppni karla í körfuknattleik fara
fram á sunnudaginn. Haukar taka á
móti Þórsurum og KR-ingar sækja
Skagamenn heim. DV sló á þráðinn
til Njarövíkingsins Teits Örlygsson-
ar, körfuknattleiksmanns ársins, og
bað hann að spá fyrir um leikina
Hef ekki trú á að
Haukar lendi í vandræðum
„Það kæmi mér mjög á óvart ef
Haukunum tækist ekki að vinna
Þórsarana. Haukarnir eru mjög
sterkir og leika skynsamlega og ég
hef ekki trú á að þeir lenti í vand-
ræðum. Þórsarar geta nú teflt fram
sínu sterkasta liði og ef þeim tekst
að hitta vel fyrir utan gætu þeir
komið á óvart og velgt Haukunum
undir uggum,“ sagði Teitur.
Reikna með hörkuleik
á Skaganum
„Ég reikna með hörkuleik á
Skaganum. ÍA hefur komið á óvart
í bikarkeppninni, leikmenn liðsins
hafa náð upp góðri stemningu og
liðið hefur verið á uppleið. Þrátt
fyrir það spái ég því að KR-ingar
hafi það en það á eftir að ráða
miklu í leik KR-liðsins hvernig Jon-
athan Bow reiðir af en hann hefur
verið meiddur. Ef hann nær sér
ekki á strik verða KR-ingar i vand-
ræðum,“ sagði Teitur.
Báðir undanúrslitaleikirnir hefj-
ast klukkan 16 og til mikils er að
vinna; að komast í sjálfan úrslita-
leikinn sem fram fer í Laugardals-
höllinni sunnudaginn 28. janúar
næstkomandi.
-GH
DV, Eyjum:
Bjarnólfur til Totten-
ham í þriðja skipti
- fer á tveggja vikna reynslusamning
legt sé því að Totten-
hammenn séu spenntir
fyrir B jarnólfi.
Einar segir að Bjamólf-
ur verði hjá Tottenham
í tvær vikur á reynslu-
samningi. Ef hann
stendur sig gæti svo far-
ið að Tottenham vOdi
halda honum áfram og
gera „alvörusamning"
við hann.
Bjarnólfur verður tví-
tugur á árinu. Hann á
að baki 32 leiki i 1. deild
með ÍBV og hefur skorað eitt mark.
Þá hefur hann leikið 12 unglinga-
landsleiki og 7 drengjalandsleiki.
-ÞoGu
Bjarnólfur Lárusson,
knattspyrnumaður frá
Vestmannaeyjum, fer í
næstu viku tO enska
úrvalsdeOdarfélagsins
Tottenham í þriðja
skipti, í þetta sinn hon-
um að kostnaðarlausu.
Að sögn Einars Frið-
þjófssonar, sem hefur
verið miOigöngumaður
Bjarnólfs við Totten-
ham, er þetta einstakt
tækifæri. Tottenham fái til sín tugi
efnilegra knattspyrnumanna á
hverju ári en félagið borgi aðeins
brúsann fyrir fáa útvalda. Greini-
Bikarkeppni kvenna í körfubolta:
„Þetta er drauma-
úrslitaleikur"
- Keflavík og Njarðvík í úrslitum
DV, Suðurnesjum:
Það verða nágrannaliðin Keflavík
og Njarðvík sem leika til úrslita í
bikarkeppni kvenna í körfuknatt-
leik. Njarðvík vann ÍR, 66-47, og
Keflavík burstaði ÍS, 124-38, í und-
anúrslitum keppninnar í gærkvöldi.
„Við spiluðum fyrst og fremst
góða vörn og agaðan sóknarleik en
þegar þær pressuðu okkur riðlaðist
leikur okkar aðeins. En stúlkurnar
gerðu eins og fyrir þær var lagt á
lokakaflanum og þetta var glæsOeg-
ur sigur. Það er draumaúrslitaleik-
ur að mæta Keflavík," sagði Jón Jó-
hann Einarsson, þjálfari Njarðvík-
urliðsins, eftir sigurinn á ÍR.
Það er ekki annað hægt en að
hrósa Njarðvíkurstúlkunum fyrir
árangurinn í bikarkeppninni. Fyrst
lögðu þær meistara Breiðabliks og
nú ÍR-stúlkur sem eru með sama
stigafjölda og þær í deildinni. Átta
af 10 leikmönnum Njarðvíkur eru á
aldrinum 14-18 ára og liðið mjög
efnilegt.
Susette Sargant skoraði 22 stig
fyrir Njarðvík, Harpa Magnúsdóttir
12 og Eva Stefánsdóttir (Bjarkason-
ar) 11. Linda Stefánsdóttir skoraði
16 stig fyrir ÍR og Anna Dís Svein-
björnsdóttir 15.
Met hjá Keflavík?
Keflavíkurstúlkurnar settu senni-
lega met þegar þær skoruðu 75 stig
í fyrri hálfleik gegn ÍS en i hálfleik
stóð 75-21. Veronica Cook skoraði
28 stig fyrir Keflavík og Anna Mar-
ía Sveinsdóttir 20. Þóra K. Snjólfs-
dóttir skoraði mest fyrir ÍS, 6 stig.
-ÆMK
BIKARKEPPNI KKI
4 LIÐA ÚRSLIT
HAUKAR - ÞÓR
í fþróttahúsinu við Strandgötu sunnudaginn
14. janúar kl. 16
tffcP ^BÚNAÐARBANKINN
Ktatmky hitd CJkltkti Twrtt .nííiw
-Traustur banki
Kristín Rós
Hákonardóttir
meö verðlaunin
sem henni voru
afhent í gær.
DV-mynd BG
Bjarki Gunnlaugsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu frá Akranesi,
fór í morgun til þýska 2. deildar
liðsins Waldhof Mannheim. Feyen-
oord leigði hann í gær til
þýska félagsins tO 1.
júlí.
„Þetta bar brátt að,
þjálfarinn hringdi í
hádeginu og bað
hann að pakka
íþróttir
Bjarki til Mannheim
- leigður frá Feyenoord út tímabilið. Leikur takmarkað, ef eitthvað, með ÍA
strax niður og koma
út. Það eru innanhúss-
mót í gangi núna svo
eflaust fer hann strax
að spila þar,“ sagði
Gumöaugur Sölvason,
faðir Bjarka, við DV í
gær. Þjálfari Mann-
heim er Gúnther
Sebert, sem þjálfaði
einmitt Núrnberg síð-
Heimsbikarinn:
Svíar lögðu
meistarana
Svíar voru ekki í teljandi vand-
ræðum með frönsku heimsmeistar-
ana þegar þjóðirnar mættust í
heimsbikarnum í handknattleik í
Svíþjóð í gær. Svíar höfðu örugga
forystu allan tímann, voru 26-20 yfir
þegar skammt var eftir en slökuðu
þá á og lokatölur urðu 27-25. Mats
Olsson átti stórleik í sænska mark-
inu og varði oft ótrúlega.
Bæði lið voru örugg meö sæti í
undanúrslitunum og það sama er að
segja um Egypta og Rússa sem líka
mættust í gær. Rússar unnu örugg-
an sigur, 32-26.
Þjóðverjar fóru furðu létt með
HM-silfurlið Króata, 32-23, og Sviss
og Tékkland skOdu jöfn, 22-22. Tékk-
ar skoruðu fjögur síöustu mörkin og
Michal Tonar, fyrrum HK-ingur, var
í aðalhlutverki hjá þeim á lokakafl-
anum.
í A-riðli fengu Svíar 6 stig, Frakk-
ar 4, Sviss 1 og Tékkland 1.
1 B-riðli fengu Rússar 6 stig, Eg-
yptar 4, Þjóðverjar 2 og Króatar 0.
í undanúrslitum á morgun leika
Svíar við Egypta og Rússar við
Frakka. Þýskailand og Sviss leika
um 5. sætið og Króatía og Tékkland
um 7. sætið. -VS
Fýrsta tap Ajax
í 80 leikjum
Hollensku Evrópu- og heims-
meistararnir í knattspymu, Ajax,
töpuðu í gærkvöldi í fýrsta skipti í
80 leikjum. Þeir biðu óvænt lægri
hlut fyrir Maccabi Haifa í vináttu-
leik í ísrael, 2-1, og kom sigur-
markið á lokamínútunni. Ajax hef-
ur leikið 69 deOda- og Evrópuleiki
í röð án þess að tapa.
Shearer hafnar
Inter Milano
Alan Shearer, miðherji Black-
burn og enska landsliðsins í
knattspyrnu, sagðist í gærkvöldi
ekki hafa áhuga á að fara til Inter
MOano á Ítalíu. Forseti Inter hefur
lýst yfir áhuga á þessum mikla
markaskorara. „Ég er nýbúinn að
framlengja samning minn við
Blackburn um þrjú ár og hugsa
ekki um annað,“ sagði Shearer.
ari hluta síðasta tíma-
bOs þegar Bjarki og
Arnar léku með því,
einnig á leigusamn-
ingi frá Feyenoord.
Þar með er nokkuð
ljóst að Bjarki leikur
ekki með ÍA næsta
sumar, að minnsta
kosti ekki fyrr en
tímabilið er hálfnað.
Þetta er blóðtaka fyrir Islandsmeist-
arana sem nú hafa séð á bak báðum
tvíburunum og Sigurði Jónssyni.
Mannheim hefur löngum leikið í
1. deOdinni en féU fyrir nokkrum
árum og hefur ekki tekist að vinna
sig upp á ný þó litlu hafi oftast mun-
að. Núna er liðið í 12. sæti af 18 lið-
um og í nokkurri faUhættu. Keppni
í 2. deildinni hefst aftur þann 9.
mars. -DÓ/VS
Bjarki fór til Þýskalands í
morgun.
Gambaro til Bolton
Bolton, lið Guöna Bergssonar í ensku úrvalsdeildinni,
hefur fengið varnarmanninn Enzo Gambaro að láni frá
AC Milan á Ítalíu. Gambaro er 29 ára og hefur einnig leik-
ið með Parma og Sampdoria en á í erfiðleikum með að
vinna sér fast sæti í hinni sterku vörn AC Milan.
Deildabikarinn I vor?
- líklegt, segir Snorri Finnlaugsson
Kristín íþrótta-
maður ársins
hjá fötluðum
Kristín Rós Hákonardóttir úr ÍFR er íþróttamaður árs-
ins úr röðum fatlaðra íþróttamanna fyrir árið 1995 en
stjórn íþróttafélags fatlaðra samþykkti einróma að velja
Kristínu Rós fyrir afrek hennar á liðnu ári.
Kristín er 22 ára gömul og hefur stundað íþróttir hjá
ÍFR allar götur síðan 1982. Hún hefur aldrei látið fótl-
unina hamla þátttöku sinni í þróttum en 18 mánaða
gömul lamaðist hún vinstra megin og hefur síðan verið
spastísk. Frá því hún hóf að æfa og keppa í sundi hefur
hún verið nær ósigrandi á sundmótum innanlands í sín-
um flokki. Á norrænum og alþjóðlegum mótum hefur
hún einnig verið mjög sigursæl og sett fjölmörg heims-
met. Á síðasta ári sýndi hún styrk sinn og stóð sig frá-
bærlega á Evrópumeistaramótinu. Þar sigraði hún í 100
m baksundi, 100 m bringusundi og 50 m skriðsundi og
setti heimsmet í öllum þessum greinum auk þess sem
hún vann til silfurverðlauna í 100 m skriðsundi.
Kristín tók á móti verðlaunum sínum í gær, glæsileg-
um bikar sem Hótel Saga gaf fyrir nokkrum árum og af-
henti Bjarni Hvannberg, hótelstjóri á Hótel Sögu, henni
bikarinn. -GH
#Töluverðar líkur eru á að nýrri knatt-
spyrnukeppni verði hleypt af stokkunum
hér á landi í vetur. Það er svokölluð deilda-
bikarkeppni en samþykkt var á síðasta árs-
þingi Knattspyrnusambands íslands að
koma henni á fót. Á þinginu var ekki tekin
ákvörðun um hvort keppnin hæfist á þessu
ári eða því næsta en samkvæmt könnun
sem KSÍ hefur gert hjá félögum eru fleiri
fylgjandi því að hefja keppnina á þessu ári.
Snorri Finnlaugsson, framkvæmdastjóri
KSÍ, segir að starfshópur hafi verið að vinna
í þessu máli og mun hann leggja fram nið-
urstöðu sína fyrir stjórn KSÍ á laugardag-
inn.
„Mér heyrist svona á þeim að það sé frek-
ar líklegra heldur en hitt að deildabikar-
keppnin hefjist á þessu ári,“ sagði Snorri
við DV í gær.
Gert er ráð fyrir því að keppnin hefjist í
mars og standi fram í maí og hefur verið tal-
að um að 36 lið taki þátt í keppninni, öll lið-
in í 1., 2. og 3. deild auk liða sem komust í
úrslit í 4. deildinni í sumar. -GH
NBA í nótt:
Gott hjá
Phoenix
Larry Johnson hjá Charlotte reynir hér körfuskot en til
varnar en Theo Ratliff leikmaður Detroit.
Fimm leikir voru í NBA í nótt og
urðu úrslitin þannig:
Toronto-Atlanta 79-87
.Charlotte-Detroit 93-95
Indiana-Milwaukee 96-88
Golden State-Phoenix 106-111
LA Clippers-Minnesota 109-89
Reggie Miller skoraði 24 stig fyrir
Indiana og Dale Ellis 21 en Vin
Baker var með 23 stig fyrir Mil-
waukee.
Allan Houston skoraði 26 stig fyr-
ir Detroit en hetja liðsins var Joe
Dumars sem skoraði úr þremur
vítaskotum á lokasekúndunum og
tryggði Detroit sigur.
Mookie Blaylock skoraði 24 stig
fyrir Atlanta og Stacey Augmon 15
en nýliðinn Damon Stoudamire 18
fyrir Toronto.
Elliot Perry skoraði 20 stig fyrir
Phoenix og Wesley Person 18 en lið-
ið var hálfvængbrotið í leiknum og
aðeins með átta menn. Mikil
meiðsli herja á Phoenix og er
Charles Barkley einn þeirra sem
Phoenix saknaði en það kom ekki
að sök að þessu sinni. Joe Smith
skoraði 28 stig fyrir Golden State og
Latrell Sprewell 23.
LA Clippers vann sinn fjórða sig-
ur i röð. Loy Vaught skoraði 18 stig
fyrir Clippers en Christian Laettner
var með 24 stig fyrir Minnesota.
-GH
Knattspyrna:
Pólverji til liðs
við Bochum
Pólverjinn Andrej Rudy hjá
Köln er genginn í raðir Bochum,
lið Þórðar Guðjónssonar í þýsku
2. deildinni. Bochum leigir leik-
manninn fram í júní en ákvæði
eru í samningnum um að Boch-
um geti keypt hann eftir leigu-
tímann.
City vill þriðja
Þjóðverjann
Manchester City ætlar sér að
bæta við þriðja Þjóðverjanum í
lið sitt. Nú hefur félagið boðið í
Uli Borowka hjá Bremen en sá
galli er á gjöf Njarðar að
Borowka er á samningi fram í
júní. Samt sem áður vill hann
ólmur komast til Englands og
spila með félögum sínum og
samlöndum, þeim Uwe Rösler og
Eike Immel.
Albani kominn
til Herthu Berlín
Þýska 2. deildar liðið Hertha
Berlín, lið Eyjólfs Sverrissonar,
hefur fengið albanska landsliðs-
manninn Altin Rrakli á leigu út
þetta tímabil. Liði Herthu hefur
gengið illa í deildinni og ætlar
sér greinilega að koma sterkara
til leiks þegar seinni hluti
keppnistímabilsins hefst.
Keegan neitað
um að fá Papin
Þýska knatt-
spyrnufélagið
Bayern Múnch-
en hafnaði í gær
beiðni Kevins
Keegans, fram-
kvæmdastjóra
Newcastle, um
að fá franska sóknarmanninn
Jean-Pierre Papin að láni til
vorsins. Papin hefur átt erfitt
uppdráttar hjá Bayern, en félag-
ið vill samt hafa hann í leik-
mannahópnum út tímabilið.
Kári með ÍA
frá byrjun
Kári Steinn
Reynisson, leik-
maður með ÍA
og 21-árs lands-
liðinu, verður
með Skaga-
mönnum frá
byrjun íslands-
mótsins í vor. Kári er kominn
heim frá námi í Bandaríkjunum,
mun fyrr en áætlað var.
-DÓ
Næsti landsliösþjálfari Englands:
Keegan neitar
- Gerry Francis talinn líklegastur
Kevin Keegan, ffam-
kvæmdastjóri
Newcastle, var fljótur
að kveða niður þann
orðróm að hann væri
inni í myndinni sem
næsti landsliðsþjálfari
Englendinga í knatt-
spyrnu í staö Terry
Venables sem ákveðið hefur að láta af
störfum eftir úrslitakeppni Evrópumóts
landsliða í sumar.
„Ég er hins vegar mjög ánægður með
að hafa verið nefndur til sögunnar í
þetta starf. Ég gerði 10 ára samning við
Newcastle fyrir tveimur árum þannig að
það er óhætt að stroka nafn mitt út af
listanum,“ sagði Kevin Keegan við
fréttamenn í gær.
„Það er alveg á hreinu að ráðinn verð-
Keegan - neitar Francis - líklegur
ur Englendingur í
stöðu landsliðsþjálfara.
Við getum sagt að Jo-
han Gryuff og Franz
Beckenbauer gætu vel
komið til greina en það
yrði þá í algjörri neyð,“
sagði Alan Kelly, for-
seti enska knattspyrnu-
sambandsins.
Veðbankar á Englandi eru farnir að
spá fyrir um það hver hreppir hnossið
og að þeirra mati er Gerry Francis, stjóri
Tottenham, sá líklegasti en líkurnar eru
3/1. Samningur Francis við Tottenham
rennur út eftir tímabilið. Bryan Robson
þótti liklegur en hann gaf það frá sér í
gær og það sama gerði Ray Wilkins sem
nefndur var til sögunnar af mörgum.
Stærsti Lottó-vinnmgur frá
upphafi á einn miða
Jit fuutún^u'
Síðastliðinn laugardag vann heppinn
Árnesingur rúmlega 24 milljónir króna
í Lottóinu. Fjórar fjölskyldur skipta
með sér vinningnum.
Næsta laugardag getur pú bæst í hóp
Lottó-milljónamæringa!
ATH! Hæsti vinningur í Víkingalottóinu á íslandi
var rúmlega 39,5 milljónir króna, þann 20. apríl 1994.
-vertu viðbúimw vinningi