Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1996, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1996, Blaðsíða 28
36 FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1996 * ^ 'k Stundar Árni íþróttir á vinnu- stað? Menntun til handa og fóta „Veit Einar að Árni Johnsen hefur sótt sér „aukna menntun" til handa og fóta og iðkar nú íþróttir á vinnustað sínum með spörkum og klípingum í þing- menn.“ Eggert Haukdal, í Dagskránni. Ekki einn í eyðimörkinni „Ég fagna þessu framtaki. Mér finnst það jákvætt og sýnir að Ummæli maður er ekki lengur að hrópa einn í eyðimörkinni um neðan- jarðarhagkerfið.“ Skúli Eggert Þóröarson skatt- rannsóknarstjóri, í DV. Sverrir ræður engu „Það er ríkisins að ákvarða hvort fjármagnstekjuskattur verði tekinn upp en ekki Sverris Hermannssonar.“ Finnur Ingólfsson, í Tímanum. Stór og stæðilegur félagi „Þú ert maður stór og stæði- legur, Sigurður félagi og enn hef ég engan séð éta meira af jóla- kökum en þig.“ Jónas Guömundsson um Sig- urð Rúnar Magnússon, í Tím- anum. Kínamúrinn er eitt aðalaðdráttar- afl fyrir ferðamenn í Kína. Lengsti veggur í heimi í Kína er langlengsti veggur í heimi og það er að sjálfsögðu Kínamúrinn mikli, en aðalvegg- ur hans er 3460 kílómetrar, sem er næstum þrisvar sinnum lengra en Bretland. Múrinn var fullgerður á valdadögum Ch’in Shih Huang-ti, sem uppi var um 200 f.Kr. Hæðin er frá 4,5-12 metrar og þykktin allt að 9,8 metrar. Múrinn liggur frá Shan- haikuan við Pohaiflóa til Yu- menkuan og Yang- kuan. Múm- um var haldið við fram á 16. öld. Síðan 1966 hafa rúmlega 50 kíló- metrar verið eyðilagðir og hluti hans var sprengdur burt 1979 til að rýma fyrir stíflugarði. Árið 1988 gáfu Kínverjar út tilkynn- ingu um það að fimm ára athug- un hefði leitt í ljós að múrinn mikli hafi alls verið 9980 km að lengd. Blessuð veröldin Stærstu rúður Stærsta samfellda rúðuglerið sem framleitt hefur verið er 50 fermetra gler, sem var gert í aug- lýsingaskyni áriö 1958 í tilefni alþjóðasýningar, Journées Internationales de Miroiterie. Heimsins stærstu gluggar eru nú þrír aðalgluggar á Höll iðnaðar- ins í París, 218 m á breidd (þar sem hann er breiðastur) og mest 50 m háir. Léttskýjað í höfuðborginni I dag verður hæg suðaustlæg átt um landið norðaustanvert en ann- ars suðaustangola eða kaldi. í kvöld og nótt verður austlæg átt, kaldi eða stinningskaldi víðast hvar. Sunnan til á Vestfjörðum verður rigning Veðrið í dag fram eftir degi. Um landið austan- vert fer að rigna síðdegis og í nótt verður rigning víðast hvar um land- ið sunnan- og austanvert. Annars verður skýjað með köflum eða létt- skýjað. Hiti á bilinu 0 til 5 stig en sums staðar vægt frost i innsveitum norðanlands. Á höfuðborgarsvæð- inu verðurt suöaustangola eða kaldi og léttskýjaö í dag en austankaldi eða stinningskaldi og rigning í nótt. Hiti 2 til 6 stig. Sólarlag í Reykjavík: 16.10. Sólarupprás á morgun: 11.00. Síðdegisflóð í Reykjavík: 22.46. Árdegisflóð á morgun: 11.07. Heimild: Almanak Háskólans. Veðriö kl. 6 i morgun: Akureyri hálfskýjaó 1 Akurnes skýjaö 3 Bergsstaóir léttskýjaö 4 Bolungarvík skúr 3 Básar skýjaö 6 Egilsstaóir léttskýjaó -1 Keflavíkurflugv. léttskýjaó 4 Kirkjubkl. skýjað 3 Raufarhöfn léttskýjaö -2 Reykjavik léttskýjað 3 Mánárbakki alskýjað 2 Kvígindisdalur léttskýjað 1 Fagurhólsmýri skúr 7 Stórhöfði þokumóóa 5 Sauóanes alskýjaó 2 Strandhöfn alskýjað 2 Dalatangi rigning og súld 2 Versalir skúr 7 Vatnsskhólar skýjað 6 Núpur þokumóóa 6 Hornbjargsviti slydda 1 Hveravellir skýjað -2 Æöey slydda 1 Helsinki frostúöi -5 Kaupmannah. rigning 1 Ósló slydda 1 Bergen alskýjað 6 Stokkhólmur súld 1 Þórshöfn rigning 6 Amsterdam skýjaó 8 Barcelona skýjaó 13 Madeira skýjaö 16 Feneyjar þoka 10 Alicante léttskýjaö 12 Chicago alskýjaó -2 Washington alskýjaö -6 Atlanta alskýjað 4 Frankfurt rign. á síö. klst. 3 Glasgow skýjað 7 Hamborg rign. á sið. klst. 2 London skúr 10 Guðmundur A. Jónsson, markvörður handboltaliðs KA: Hafði hugsað mér að hætta í handboltanum DV Akureyri: „Það kom mér mjög á óvart þeg- ar Alfreð Gíslason hafði samband við mig og vildi fá mig til KA því ég hafði ekki verið að leika með neinu af stóru félögunum. En ég sló til og þetta hefur verið ákaflega skemmtilegt," segir Guðmundur Arnar Jónsson, markvörður KA í handbolta. Guðmundur Arnar átti stórleik þegar KA sigraði Val í Bikarkeppninni og Guðmundur Hrafiikelsson, landsliðsmarkvörð- ur í Val, sem oftast er „aðalmaður- inn“, mátti láta sér lynda að falla alveg í skuggann af frammistöðu Maður dagsins hans. Guðmundur Arnar er Þróttari úr austurbæ Reykjavíkur og lék með Þrótti í yngri flokkum og í meistaraflokki þar til handbolti var aflagður hjá félaginu. Þá lék hann í sex ár með Fram, með Fjölni í Grafarvogi í eitt ár og í fyrra með ÍH í 1. deild. Og svo kom stóra tækifærið þegar Alfreð sá hann sem arftaka landsliðsmark- Guömundur Arnar Jónsson. DV-mynd gk varðarins Sigmars Þrastar í KA- markinu en Alfreð hefur mikið álit á Guðmundi Arnari og segir hann vanmetnasta markvörð landsins. „Jú, ég hef átt erfitt uppdráttar í heimaleikjum KA og varið betri í leikjunum á útivöllum. E.t.v. er það umgjörðin um leikina í KA- heimilinu sem á þar einhvern hlut. Ég hef vanist því að leika fyr- ir framan örfáa áhorfendur til þessa en svo er maður allt í einu á heimavelli með um 1000 áhorfend- ur á hverjum leik. En mér gekk vel gegn Val og vonandi verður framhaldið eins. Mér hefur likað mjög vel hjá KA. Það er mikO og góö samstaða innan liðsins og áhuginn hjá fólkinu geysOegur. Svona áhugi sést hvergi í Reykja- vík. Ég hafði hugsað mér að hætta fyrir þetta keppnistímabil og var ákveðinn í að fara að stunda golf- ið meira en áður, en það er mitt helsta áhugamál fyrir utan það að vera með fjölskyldunni sem ég reyni að gera eins og ég get,“ seg- ir Guðmundur Arnar. Kann er giftur Gerðu Gunnarsdóttur og þau eiga börnin Örnu Rán, sem er 3 ára, og Jón Gunnar sem er 9 mánaða. „Þau eru Arnarsbörn," segir Guðmundur Arnar sem er yfirleitt aldrei kaOaður Guðmund- ur nema í fjölmiölum og gengur undir gælunafninu Addi dagsdag- lega. -gk Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði Valdimar Örn Flygenring í hlut- verki Stanleys Kowalskis. Sporvagninn Girnd I kvöld verður sýning á Spor- vagninum Girnd eftir Tennesse Williams sem Leikfélag Akur- eyrar sýnir um þessar mundir. Hefur uppsetning LA á þessu fræga leikriti fengið góðar við- tökur áhorfenda og gagnrýni verið góð. Leikstjóri er Haukur J. Gunnarsson. Leikritið gerist í New Orleans um miðja öldina og fjallar um kennslukonuna Blanche Dubois Leikhús sem leitar á náðir systur sinnar og mágs, SteOu og Stanleys Kowalskis. Blanche er á flótta frá fortíð sinni og er á barmi ör- væntingar. Meðan á dvöl hennar stendur flettist ofan af henni og upp úr kafinu koma óblíð örlög og myrkir atburðir sem ekki þola dagsins ljós. í húsi systur hennar og mágs hennar gerast atburðir sem leiða hana fram á brún vitfirringar. í hlutverkum Blanche Dubois og Stanleys Kowalskis eru Rósa Guðný Þórsdóttir og Valdimar Örn Flygenring, auk þeirra leika í leikritinu Guðmundur Haralds- son, Aðalsteinn Bergdal, Sunna Borg, Skúli Gautason, Sigurður Hallmarsson, Þórey Aðalsteins- dóttir og Valgarð Gíslason. Bridge Einn af þeim möguleikum sem tölvubyltingin hefur í fór með sér er að spila bridge í gegnum tölvu með hjálp fjarskipta. Eitt af þeim tölvu- kerfum sem hægt er að nýta sér tO þess heitir OKBridge. Þetta spil kom nýlega fyrir í OKBridge. Vegna þess að NS þekktu ekkert inn á sagnvenjur hvor annars varð mis- skOningur þess valdandi að loka- samningurinn var af þeirri tegund- inni sem virðist vera algerlega von- laus. Sagnir gengu þannig, norður gjafari og NS á hættu: * G1042 ** K10 •f 763 * D1072 4 8 w AD976532 ♦ K985 * — 4 Á975 «* 8 ♦ DG10 * K9654 4 KD63 «* 43 4 Á42 4 ÁG83 Norður Austur Suður Vestur 1** pass 14 pass 4* pass 4Gr pass 64 pass 7Gr pass pass dobl p/h Fjögurra granda sögn suðurs var ásaspurning og norður stökk í sex tígla til að sýna einn ás og eyðu í einum lit. Suður var greinOega ekki á sömu bylgjulengd og stökk í sjö grönd. Austur ákvað að dobla og vonaðist tO að félagi í vestur læsi það sem Lightner-dobl sem biður um óvanalegt útspO (þ.e.a.s. spaða). Vestur var ekki með á nótunum og ákvað að spila út laufasjöu, þriðja hæsta í litnum. Austur horði á eyð- una í blindum, var hræddur um að suður ætti ÁDG í laufi og tímdi ekki að setja kónginn. Sagnhafi fékk slaginn á gosann, svínaði hjarta og þegar hann renndi síðan niður hjartalitnum, spOaði tígli á ás og lagði niður laufásinn, var austur óverjandi þvingaður í spaða og tígli. Ekki er öll vitleysan eins. ísak Öm Sigurðsson Lóðbolti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.