Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1996, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1996, Blaðsíða 32
FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MUNIfi NÝTT SÍMANÚMER MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER Frjalst,6háÖ dagblaÖ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1996 Columbia Aluminum: Greiö upplýs- ingaöflun ~ íslandi til tekna „Venesúela-menn hafa ekki brugðist eins hratt við beiðnum okkai um upplýsingar og íslending- ar. Við höfum fengið allar upplýs- ingar sem okkur vantar frá íslandi og nú bíðum við bara eftir Venesú- ela. Líkurnar á því hvorn kostinn við tökum hafa lítið breyst en vissu- lega telst það íslandi til tekna hversu vel hefur gengið að fá þaðan upplýsingar,“ sagði James Hensel, yfirmaður nýrra verkefna hjá Col- umbia Aluminum, í samtali við DV í gærkvöldi. Að sögn Hensels gæti svo farið að ' ákvörðun fyrirtækisins tefðist enn frekar vegna seinagangsins í Venes- úela. Það mun þó líklega liggja fyrir um næstu mánaðamót hvort álver Columbia rís á íslandi eða í Venesúla. -bjb Sama „kroppið" a á loðnumið- unum DV, Akureyri: „Þetta er sama kroppið og verið hefur,“ sagði Geir Garðarsson, skip- stjóri á loðnuskipinu Þorsteini frá Akureyri, í morgun, en hann var þá að koma inn til löndunar á Norð- firði með 900 tonn eftir 5 daga á miðununm. Einhver loðnuveiði var í gær en sáralítil í nótt. Geir segir að loðnan, sem er aust- ur og suðaustur af Reyðarfjarðar- dýpi, hagi sér eins og að undan- förnu, sé dreifð og ekki veiðanleg nema í flottroll. Þeim fjölgar nú bátunum sem halda á miðin með flottroll í stað loðnunóta. Beitir NK, Börkur NK, Þorsteinn EA og Hólmaborg SU hafa verið í nokkurn tíma með flottroll á miðunum og nú hafa bæst við fjórir Eyjabátar, Bergur, Sig- hvatur, Heimaey og Huginn. -gk Tveir á slysadeild Ekið var á tvo pilta, 16 og 17 ára, á mótum Langholtsvegar og Laugar- ásvegar á ellefta tímanum í gær- kvöldi. Voru þeir að fara yfir gatna- mótin þegar bíll kom aðvífandi. Hlaut annar piltanna meiðsli á baki en hinn á mjöðm og voru báð- ir fluttir á slysadeld. Meiðsli þeirra , _3ínunu þó ekki alvarleg. Ökumaður- inn er grunaður um ölvun við akst- ur. -GK Árangurslítil „hreinsun“ lögreglu í tveimur eiturlyfjabælum: Talin markaöir fyrir sterk eiturlyf og þýfi - húsin hafa verið brotin upp og lögreglunni stundum mætt með hnífum fjölmenn samkvæmi í þessum hús- um og dæmi um að allt að hund- rað manns hafa verið í húsinu við Tangarhöfða. Flestir, sem þessa staði sækja, muni vera gamlir kunningjar lögreglunnar og marg- ir hafa neytt eiturlyfja árum sam- an. Þótt reglulega sé „hreinsað til“ í þessum eiturlyfjabælum fer allt í sama far og áður á skömmum tíma. Jafnvel líður ekki meira en vika á milli rassía eins og réynsl- an úr Mjölnisholtinu nú í byrjun árs sýnir. Til þessa hefur ekki sannast að eiturlyf séu seld í þessum húsum og aldrei hefur þar verið tekið um- talsvert magn eiturlyfja. Aðgerðir lögreglu munu og einkum beinast að því að halda starfseminni í skefjum. Hún verði hins vegar vart upprætt meðan einhver hefur áhuga á aö kaupa eiturlyf. -GK Fíkniefnalögreglan í Reykjvík hefur undanfarið hreinsað regiulega til í tveimur svokölluðum eiturlyfjabælum í Reykjavík, við Mjölnisholt og Tangarhöfða. Á myndinni sést húsið við Mjöinisholt. DV-mynd Sveinn Fikniefnalögreglan í Reykjvík hefur á undanfornum mánuðum hreinsað reglulega til í tveimur svokölluðum eiturlyfjabælum í Reykjavík. Nú síðast var farið í hús við Mjölnisholt í fyrradag og þar var fólk handtekið og hald lagt á 15 grömm af amfetamíni og nokkuð af hassi. Skömmu eftir áramótin var einnig gerð rassia í húsinu við Mjölnisholt og hinu sem er við Tangarhöfða. Þá voru 23 hand- teknir og hald lagt á fikniefni og tæki tU fíkniefháneyslu. Við ferðir lögreglu í hús þessi hefur stund- um þurft að brjóta upp hurðir og þess eru dæmi að lögreglunni hafi verið mætt með hnífum. Enginn hefur þó hlotið skaða af. I húsum þessum hafast við leiguliðar sem lifa af eiturlyfjasölu og sölu á þýfi. Heimildarmaöur blaðsins segir að þarna sé „skipti- markaður fyrir sterk eiturlyf og þýfi“. Eiturlyfjaneytendur komi á staðina tU að fá eiturlyf og borgi oft með þýfi. Um helgar hafa oft verið haldin Segulómsjáin í Domus Medica. Hún kostaði um eitt hundrað milljónir með uppsetningu og húsnæði og er rekin af Læknisfræðilegri myndgreiningu sem nokkrir sérfræðingar standa að. Tryggingastofnun ríkisins greiðir fyrir þjón- ustuna en hefur sagt samningnum upp. Hann rennur út um næstu áramót. Mun fljótlegra og auðveldara er að greina ýmsa sjúkdóma með þessu tæki en öðrum aðferðum. Byrjað var að nota segulómsjána 8. janúar. DV-mynd S Þorsteinn Pálsson: Afstaða Rússa jákvætt framlag „Ef ég skil þessar fréttir rétt þá er hér um að ræða afstöðu hags- munaaðila í Rússlandi. Við vitum ekki nákvæmlega hver verður af- staða rússneskra stjómvalda. Mér finnst þétta hins vegar vera mjög já- kvætt framlag af hálfu þeirra sem þarna eiga hlut að máli og það skiptir máli að hagsmunaaðilar skuli taka afstöðu eins og þessa," sagði Þorsteinn Pálsson sjávarút- vegsráðherra í samtali við DV í morgun um yfirlýsingu Rússa um að þeir hafni ákvörðun Norðmanna um skiptingu síldarkvótans. Það hefur komið fram í fréttum að Norðmenn hafa hótað Færeying- um því að þeir missi öll leyfi til fisk- veiða í Barentshafi standi þeir ekki með Norðmönnum í þessu máli. Þorsteinn var spurður hvort hann hefði heyrt þetta frá færeyskum stjórnvöldum þegar hann var í Fær- eyjum í síðustu viku. Hann sagði að það hefði ekki borið á góma en þeir hefðu gert grein fyrir samningum og samskiptum sínum við Norð- menn án þess að nefna þetta. Hann sagðist ekki hafa neitt undir hönd- um sem staðfesti þennan orðróm. -S.dór ÞETTA VIRÐIST HALF- GERÐ ÞURRHREINSUN HJÁ LÖGGUNNI! Veðrið á morgun: Skúrir sunnan- lands Á morgun verður fremur hæg suðaustlæg átt. Skúrir verða sunnan- og austanlands en annars að mestu þurrt. Hiti verður á bilinu 0 til 5 stig. Veðrið í dag er á bls. 36 bnother Litla merkivélin Loksins meö Þ og Ð Nýbýlavegi 28 -sími 554-4443

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.