Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1996, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1996, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1996 Neytendur Verðkönnun hjá 10 líkamsræktarstöðvum á höfuðborgarsvæðinu: Allt að helmingsmunur á 3 mánaða kortum ekkert tillit tekið til þess hvað boðið er upp á Mjög mismunandi er hvað fólk þarf að borga fyrir mánaðar og þriggja mánaða kort í líkamsrækt. Munurinn getur verið allt að ríflega 90%. DV-mynd ÞÖK Eins og jafnan á þessum árstíma fyllast allar líkamsræktarstöðvar af fólki sem fullt er af fögrum fyrir- heitum og ætlar sér að breyta um líferni og létta sig og styrkja. Til þess að gera fólki auðveldara með að átta sig á því hvað heilsubótin kostar brá Neytendasíðan á það ráð að hafa samband við 10 stærstu lík- amsræktarstöðvarnar og kanna verð á mánaðarkortum og þriggja mánaða kortum. Staðirnir sem taka þátt í könnun- inni eru World Class, Stúdíó Ágústu og Hrafns, Máttur, Ræktin, Gym 80, Júdó Gym, Jazzballetskóli Báru, Líkamrækt Callie, Hress og Aerobic sport. Fólk meti hvað það vill kaupa Eins og fólk er eflaust farið að gera sér grein fyrir eru staöirnir eins ólíkir og þeir eru margir og það eina sem þeir eiga kannski sameig- inlegt er að þeir gefa fólki kost á að hreyfa sig, með eða án kennslu, sumir i tækjum, einhverjir í þolfimi, enn aðrir með hvort tveggja. Sumir staðir eru eflaust vinsælli en aðrir, bjóða fjölbreytt- ara prógramm eða meira af tækjum og geta því verðlagt sig eftir því. Á það verður ekkert mat lagt hér. Fólk verður sjálft að reyna að gera sér grein fyrir hvað það vill, hugsan- lega hvað það vill láta duga, og sið- an hvað það vill borga fyrir það. Geysilegur verðmunur Ef litið er kalt á hvað mánaðar- kort og þriggja mánaða kort kosta er munurinn sláandi. Munurinn á hæsta og lægsta verði á mánað- arkortum er rúmlega 77% og liðlega 92% munur er_á þriggja mánaða kortunum. Enn skal það ítrekað að hér er ekkert mat lagt á það sem boðið er upp á hjá hverjum og ejn- um. Hver staður World Class: Tæki, jóga, jass, dans, teygjur, vaxtarmótun o.fl. fylgir hér í verði. Skólafólk fær mánaðarkortið á 4.500 kr. Aerobic sport: Tæki, leikfimi og tae kwondo. Skólafólk fær 10% afsl. af mán. og þriggja mán. kortum. 12% afsl. er gefmn af 5, 6 og 12 mán. kortum. Gym 80: Tækjasalur og frá og með febrúar þolfimi. Morgunkort standa til boða á 3.000 kr. mán. og 9.000 þriggja mán. kort. Máttur: Verðið í grafinu er með- alverð. Mánaðarkort kosta frá 4.500- 5.200 og þriggja mán. kort kosta frá 10.950-12.950. Öll leikfimi og tæki. Aðildarfélagar fá 10% afsl. Stúdló Ágústu og Hrafns: Bón- usklúbbur býður greiðslukortsaf- borganir í 6 mán., 3.990 kr. á mán., og í 12 mán., 3.390 kr. á mán. Öll þolfimi og tæki. Skólafólk fær 25% afsl. af 3 mán. kortum og 10% af mánaðarkortum. Ræktin: Stærsti tækjasalur landsins og þolfimi. 10% afsl. af mánáðarkortum til skólafólks. Stúd- entakortin gefa 10% afsl. af mánað- arkortum og 18% af þriggja mán. kortum. Júdó Gym: Bara tæki en ef fólk vill júdó, tae kwondo og jiu-jitsu auk tækjanna þá kostar 3 mán. kort 11.950 kr. Jazzballettskóli Báru: Alhliða leikfimi. Stundum afsl. fyrir há- skólastúdenta. Hress: Verð í grafi miðast við kort sem hægt er að leggja inn. Ef ekki er hægt að leggja inn þá kostar mánaðarkort 4.590 kr. Á tilboði í Sparihefti heimilanna síðast (gildir til næstu mánaðamóta) kostar 3 mán. kort 7.693 kr. Unglingar, 17 ára og yngri, fá sérstakan afslátt og borga þeir 3.900 kr. fyrir mánaðar- kort. Ahliða þolfimi. Líkamsrækt Callie: Alhliða þolfimi og þessa dagana er verið að koma fyrir tækjum. -sv 6000 kr. 5000 4000 3000 2000 1000 Mánaðarkort Þriggja mánaða kort M&M aðeins í fríhöfninni: Ríkið bannar það en selur samt - líklega leyft á næstunni 14000 kr. „Við gerðum athugasemdir við þetta á sínum tíma og vitaskuld skiljum við það að mönnum sviði að þeim sé bannað að selja þessa vöru en síðan selji ríkið hana í miklu magni í fríhöfninni í Leifsstöð," seg- ir Magnús Guðmundsson hjá Heil- brigðiseftirliti Suðurnesja. M%M hefur verið bannað i verslunum í nokkur ár en fólk, sem kemur til landsins, hefur getað borið það inn í landið með því að kaupa það í frí- höfninni. Hann segir að í nokkum tima hafi verið beðið eftir nýjum reglum um efni sem eru á bannlista og reiknað hafi verið með að sælgæ- tið yrði tekið af þeim lista. Magnús segist af þeim sökum hafa haldið að sér höndum í málinu þvi allt eins megi búast við því að sælgætið verði leyft á næstunni. „Hugsanlegt er að íslendingar séu með strangari reglur en staðlar EES gera ráð fyrir og því þurfi að slaka á í einhverjum tilvikum hér á landi,“ segir Magnús. Sem kunnugt er á ákveðið litar- efni að geta valdið ofnæmi hjá ein- hverjum einstaklingum og þess vegna var það bannað. „Við hættum að selja M&M í u.þ.b. ár en síðan bar fólk þetta í kílóa- eða tonnavís inn í landið. Okkur fannst ósanngjarnt að öll sal- an færi fram erlendis og ákváðum því að hefja sölu á þessu aftur,“ sagði Guðmundur Karl Jónsson, frí- hafnarstjóri í Leifstöð. Hann sagði söluna á M&M vera 7-8% af heildar- sælgætissölunni í fríhöfninni, kæmi næst á eftir Quaiity Street Mackin- tosh. -sv DV Ný ósýrð mjólk: Sælumjólk meö AB gerlum Fyrsta sameiginlega fram- leiðsla mjólkursamlaganna á Norðurlandi hefur nú litið dags- ins ljós. Um er að ræða ósýrða fituskerta mjólk með AB gerl- um, svokallaða Sælumjólk. Sælumjólk er notuð eins og önn- ur mjólk, þú drekkur hana, not- ar út á morgunkornið eða setur hana út í kaffið. Það sem gerir sælumjólkina sérstaka eru AB gerlarnir sem eiga þátt í að við- halda eðlilegri gerlaflóru melt- ingarfæranna og hindra vöxt óæskilegra sveppa og gerla. Sælumjólkin er sögð bragðast eins og léttmjólk og hún hefur aðeins 1% fituinnihald. Létt- mjólkin hefur 1,5% fituinnihald. Allir ættu að geta opnað Sælumjólkin er aðeins í eins lítra umbúðum og þær eru þess eðlis að allir ættu að geta opnað þær og hellt úr þeim án þess að sulla út um allt. Mjólkursamsal- an í Reykjavík sér, ásamt fram- leiðendum, um að dreifa mjólk- inni um allt land. \ Bauð smá- kökudeig fyrir áratug DV, Vestmannaeyjum: „Við buðum upp á þrjár teg- undir í hverjum pakka, mósai- kökur, súkkulaðitoppa og kókosrósir. Þessu dreifðum við um allt land og voru viðtökum- ar ágætar en okkur vantaði fjár- magn til þess að fylgja þessu eft- ir. Við erum ákveðnir að taka upp þráðinn að nýju næsta haust,“ segir Bergur Sigmunds- son, bakarameistari í Vilberg- kökuhúsi í Vestmannaeyjum, en hann bauð upp á ' frosið smákökudeig árið 1985 og 1986. Hann segir það því ekki rétt sem fram komi í bæklingi frá Hagkaupi að verslunin hafi ver- ið að bjóða þessa vöru fyrst allra á íslandi. Bergur vonast til að í stað þess að flagga amerískri vöru muni Hagkaup fást til þess að selja sína vöru að ári. -ÓG Tilboð frá Nóatúni Þar sem tilboð frá Nóatúni bárust blaðinu of seint fyrir tii- boðssíðuna I gær birtast tilboð þeirra hér. Rétt er að ítreka að stórmarkaðirnir sendi blaðinu tilboðin eigi síðar en á þriðju- dagskvöld. Á tilboði Nóatúns er K.B. skinka á 799 kr. kg, unghænur á 99 kr. stk., folaldagúllass af nýslátruðu á 695 kr. kg, folalda- snitsel af nýslátruðu á 795 kr. kg, S.R. tómatsósa, 794 g, á 98 kr., þurrkryddaður lambahrygg- ur á 599 kr. kg, jarðarberja- grautur, 1 1, á 169 kr. og Ora fiskibollur, heildós, á 209 kr. -sv

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.