Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1996, Side 2
2
FÖSTUDAGUR 29. MARS 1996
Fréttir
Innkoma vegna stööumælagjalda tæpar 190 milljónir á síöasta ári:
Hundrað milljóna hagnaður
til byggingar bílastæðahúss
- kaupmenn og viðskiptavinir ofsóttir af stööumælavörðum, segir kaupmaður við Laugaveg
„Það er samdóma álit allra kaup-
manna sem starfa hér að bæði kaup-
menn og viðskiptavinir séu beittir
ofsóknum af stöðumælavörðum
Reykjavíkurborgar. Það er í hæsta
máta óeðlilegt að innkoma vegna
sekta sé hærri heldur en innkoma
af stöðumælagjöldum. Kaupmenn
eru afar óánægðir,“ segir María
Maríusdóttir, kaupmaður við
Laugaveg.
Samkvæmt útkomuspá fyrir árið
1995 frá Bílastæðasjóði Reykjavík-
urborgar, sem gerð var í nóvember,
verða tekjur af stöðumælagjöldum
54 milljónir, aukastöðugjöld 90
milljónir, stöðumælasektir, stöðu-
brotagjöld 18 milljónir, ólöglega
lagt, sektir sem innheimtar eru af
lögmönnum, 26,6 milljónir. Samtals
gerir þetta 188 milljónir og eru tekj-
ur af stöðugjöldum 134 milljónir á
mótí tekjum vegna stöðumæla sem
eru 54 milljónir. Laun og annar
kostnaður við stöðuvörslu Bíla-
stæðasjóðs eru 66 milijónir, stjóm-
un og kynningarmál 20 milljónir og
viðhald 6,5 milljónir. Samtals eru
þetta 92,5 milljónir. Þetta þýðir að
tæpar 100 milljónir eru umfram þeg-
ar fyrir árið 1995. Bílastæðahúsin
eru með tekjur upp á 45 milljónir og
gjöld upp á 55 milljónir gróflega
áætlað. Mismunurinn fer í að greiða
afborganir og vexti af bílastæðahús-
unum.
„Ailar tekjur BUastæðasjóðs em
notaðar til þess að byggja og reka
bUastæði tU almenningsnota. Það er
tap á rekstri bUastæðahúsanna en
þjónustan í bUahúsunum er niður-
greidd af þeim sem ekki borga í
stöðumælana og þeim sem leggja
ólöglega. Menn geta valið í hvorum
hópnum þeir vUja vera. Ráðstöfun
peninganna er lögum samkvæmt og
ekkert óvenjulegt við það,“ segir
Stefán Haraldsson, framkvæmda-
stjóri BUastæðasjóðs.
María Maríusdóttir segir að á
fundi nýstofnaðra Samtáka Lauga-
vegar hafi kaupmenn látið í ljósi áá-
nægju sína með gjaldskyldu á laug-
ardögum og eftir kl. 17 á daginn.
Þeir segja að fólk vUji ekki koma á
Laugaveginn vegna þessa.
„Þetta eru peningar sem verið er
að taka beint úr vása skattborgara
og enginn talar um. Þetta er mál
sem búið er að brenna á miðbæjar-
kaupmönnum og viðskiptavinum.
Okkur þykir óréttlátt að eingöngu
kaupmenn og viðskiptavinir þessa
svæðis í Reykjavík skuli þurfa að
borga í stöðumæla," segir María.
„Þessu var breytt í maí 1995 og nú
þarf að borga á laugardögum og eft-
ir kl. 17. Miðbærinn er eitt af mikil-
vægustu verslunarsvæðum borgar-
innar. Gjaldskylda bUastæðanna er
tU þess að viðskiptavinir komist að
bUastæðunum. Ef hún væri ekki
gæti starfsfólk stofnana og fyrir-
tækja ásamt íbúum lagt í þessi fáu
stæði sem eru,“ segir Stefán. -em
Leitað að hæfileikafólki í Listaskóla McCartneys:
Leitað til íslands
vegna velgengni
Bjarkar
- segir Mark Featherstone-Witty, hægri hönd Bítilsins
Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, Ólafur Ragnar Grímsson og dætur þeirra, þær Svanhildur Dalla og Guðrún Tinna.
DV-mynd GS
Ólafur Ragnar Grímsson tilkynnir framboð til embættis forseta íslands:
Vil tryggja sess íslands
í samfélagi þjóðanna
„Við leituðum tU íslands að hluta
til vegna nálægðar við Bretland og
að hluta til vegna velgengni Bjarkar
Guðmundsdóttur. Skólinn er ný-
stofnaður og við teljum betra að
leita sjálf eftir nemendum heldur en
að þeir komi tU okkar. Ég fer í fram-
haldsskólana i Reykjavík í dag og
athuga hvort ég fmn ekki einhverja
líklega nemendur,“ segir Mark Fe-
atherstone, hægri hönd Bítilsins
Pauls McCartneys og framkvæmda-
stjóri skólans. Mark er staddur hér
á landi til þess að leita að ungu
hæfileikafólki í nýstofnaðan listahá-
skóla sem Paul McCartney stofnaði
ásamt Ueirum í heimabæ sínum,
Liverpool.
McCartney mun sjálfur kenna
lagasmíði í háskólanum og segist
hann vilja hjálpa nemendum að láta
drauma sína rætast. Aðrir heims-
frægir kennarar við skólann eru El-
vis Costello, Mark KnopUer úr Dire
Straits, Ray Davies úr Kinks, Lou
Reed og George Martin.
Meiningin er að leita að stjörnufn
morgundagsins hér á landi og til
þess verður haldin kynning á starf-
seminni á Hótel Esju á laugardag,
mUli kl. 11 og 16. Lagt er tU að fólk
sem álítur sig hafa hæfileika til að
bera komi með myndband með sér
og afhendi Mark. Þegar eru 200
nemendur í skólanum en pláss er
fyrir 700.
í skólanum, sem nefnist Liver-
pool Institute of Performing Art, er
kenndur dans, söngur, leiklist og
tónlist meðal annars. Það er mark-
mið LIPA að kenna ekki einungis
listir heldur einnig þeim sem
standa á bak við sýningar. Hægt er
að verða ljósameistari, upptöku-
stjóri, rótari og stjómandi sýninga
eftir nám í skólanum sem tekur
þrjú ár.
„Við vorum í sjö ár að byggja upp
skólann sem var í mikilli niður-
níðslu. Hann er á góðum stað í Li-
verpool, eða í miðborginni,“ segir
Mark. -em
„Hlutverk forseta íslands er fyrst
og fremst að tryggja sess íslendinga í
samfélagi þjóðanna og eUa í hvívetna
hagsæld lands og lýðs,“ sagði Ólafur
Ragnar Grímsson þegar hann lýsti
því yfir í gær á blaðamannafundi á
heimili sínu að hann gæfi kost á sér
í embætti forseta íslands.
Ólafur sagði að í samræmi við
ákvörðun sína og fjölskyldu sinnar
um forsetaframboð myndi hann ekki
taka sæti á Alþingi eftir páskahlé
- segir Ólafur Ragnar
heldur eftirláta varamanni sínum
sætið. Hann kvaðst óska þess að sú
mikla atburðarás sem fram undan er
myndi einkennast af drengskap og
heiðarleika og væntanlegt kjör
myndi efla samhug og heill þjóðar-
innar.
DV spurði Ólaf hvort hann væri
sáttur við það vægi sem forsetaemb-
ættið hefði í stjómskipan Islands eða
hvort hann vfldi gera á því breyting-
ar. „Þegar litið er yfir þá áratugi síð-
an lýðveldið var stofnað hefur emb-
ætti forseta íslands ávallt tekið
ákveðnum breytingum miðað við
þarfir tímans og þá einstaklinga sem
hafa verið í embætti. Ég tel að það
hafi skapast ákveðin og traust hefð.
Hins vegar er það ljóst að innan
hennar er hægt að taka á málum
með virkum hætti í samvinnu við
þjóðina afla og stjómvöld á hverjum
tíma,“ sagði Ólafur Ragnar Gríms-
son. -SÁ
Stuttar fréttir
Dagsprent sýknað
Hæstiréttur hefur sýknað
Dagsprent af kröfu blaöakonu,
sem fyrirtækið sagði upp á
meðgöngu. Konan vann í Hér-
aðsdómi. RÚV greindi frá.
Seðlabanki með
halla
Seðlabankinn var rekinn
með 120 milljóna króna halla i
fyrra vegna 700 milljóna
vaxtamunar. Útvarpið sagði
frá.
Nýr togari keyptur
Nýr togari, Amar, bættist í
flota landsmanna í gær. Hann
var keyptur frá Færeyjum og
kostaði 150 milljónir króna.
Stöð 2 sagði frá. -GHS
Mark Featherstone-Witty leitar að ungu íslensku hæfileikafólki. DV-mynd BG
Er rétt að takmarka rni l/f* lllO
páska? rULKomo
skemmtanahald um
r e d d
ILKSINS
904-1600
Já
Kynningarkvöld verður haldið á Hótel Borg í kvöld þar sem þátttakendur í
fegurðarsamkeppni Reykjavíkur verða kynntir. Auk fegurðardísanna verða
skemmtiatriði í boði og tískusýning. M.a. verður sýndur frumsaminn dans
eftir Helenu Jónsdóttur.