Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1996, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1996, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 29. MARS 1996 Stuttar fréttir Utlönd Þotur rákust nær á Fimmtán mínútna bilun í fjar- skiptum flugumsjónar í San Di- ego hafði nær orsakað árekstur tveggja farþegaþotna í lofti nærri Los Angeles. Stríð óumflýjanlegt Bandaríski tóbaksiðnaðurinn í hremmingum: Texasríki krefst 260 milljarða skaðabóta Yflrmaður í her Norður- Kóreu sagði að vopnahlé við Suður- Kóreu væri að bresta og stríð væri óumflýjanlegt. Varar við ofbeldi Fyrrum yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar, sem sökuð var um gáleysi sem leiddi til morðsins á Itzhak Rabin forsæt- isráðherra, varaði við frekari of- beldisverkum af hálfu öfgasinn- aðra gyðinga. Kúabændum hjálpað Breska rík- isstjórnin hef- ur lagt fram 8,5 milljarða króna áætlun sem hjálpa á bændum sem verða gjald- þrota vegna kúariðumálsins og auka á traust neytenda á bresku nautakjöti á ný. Ástalir bættust í hóp þjóða sem banna innflutning bresks nautakjöts. Aftur til jarðar Geimskutlan Atlantis sleit sig frá rússnesku geimstöðinni Mir og hélt aftur til jarðar. Gegn hryðjuverkum Warren Christopher, utanrík- isráöherra Bandaríkjanna, opin- beraði áætlun um að veita pen- inga til og auka atvinnutækifæri á Vesturbakkanum og Gaza- svæðinu svo Palestínumenn gætu tekið þátt í baráttunni gegn hryðjuverkum Hamas- samtak- anna. Horfa fram veginn Leiðtogar Evrópusambands- ríkja hittast í Torino í dag þar sem þeir horfa inn i 21. öldina og ræða kúrariðu í breskum naut- gripum. Jarðskjálftar í Ekvador Snarpir jarðskjálftar í Ekvador urðu um tveimur tug- um manna að bana og ollu miklu tjóni. Reuter í gær bættist Texasríki í hóp 6 annarra ríkja sem lögsækja tóbaks- fyrirtæki fyrir kostnað sem þau valda á heilbrigðiskerfmu. Texas- ríki eitt krefur tóbaksfyrirtækin um 260 milljarða króna í skaðabætur. Saksóknari í Texas, Dan Morales, lýsir tóbaksfyrirtækjum sem illvilj- uðum heimsveldum sem kosti heil- brigðisyfirvöld gífurlegar fjárhæðir. Tími sé kominn til að þau fái að Réttur á Kýpur fann í gær þrjá breska hermenn seka um að hafa bera kostnaðinn fyrir græðgi sína sem hafi fengist aö viðgangast í ára- tugi. Bandarískur tóbaksiðnaður er nú í mikilli vörn, en það er bandaríska ríkið og almenningur sem þjarmar nú mjög að iðnaðinum. Frammá- menn tóbaksiðnaðarins segjast ætla að berjast af hörku til að viðhalda stöðu sinni á markaðnum. Tóbaksiðnaðurinn varð fyrir orðið danskri leiðsögukonu, Ann- ette Jensen, 23 ára, að bana í sept- ember 1994 með því að berja hana til bana með skóflu þegar þeir voru á fylliríi. Þeir voru fundnir sekir um mannrán og tilraun til nauðg- unar. Úrskurður um refsingu er væntanlegur í dag og má búast við lífstíðarfangelsisdómi, sem þýðir í raun átta ára fangelsisvist á Kýpur. Mennirnir þrír tóku dómnum þegjandi og andrúmsloftið i réttarsalnum var slíkt að heyra mátti saumnál detta. Foreldrar fórn- arlambsins og 18 ára bróðir hennar voru viðstaddir dómsuppkvaðning- una. í viðtali sagði móðirin að hún vonaðist eftir ströngustu refsingu sem hugsast gæti en bætti við að áfalli í byrjun marsmánaðar þegar eitt risafyrirtækjanna, Liggett Group, viðurkenndi að nikótín gæti verið vanabindandi. í framhaldinu hefur ríkisstjóm Clintons sett af stað umfangsmikla áróðursherferð tfl að reyna að koma í veg fyrir reykingar unglinga. Nánast öll bandarísku tóbaksfyrirtækin hafa verið lögsótt. Meðal þeirra eru American Tobacco Inc., Reynolds refsingin gæti engan vegin bætt fyr- ir þann missi sem hún hefði orðið fyrir. Samkvæmt ákæruvaldinu óku mennirnir þrír bil sínum utan í vél- hjól Annette í úthverfi smábæjar skömmu eftir miðnætti. Þeir neyddu hana inn í bílinn, óku á af- skekktan stað, rifu af henni fótin og reyndu að nauðga henni. Síðan börðu þeir hana til dauða með skóflu. Líkið var svo illa farið eftir barsmíðarnar, sérstaklega andlitið, að unnusti Annette gat varla borið kennsl á líkið. Þekkti hann hana að- eins á hring á fingri hennar. Mennirnir þrír játa aðild að verknaðinum en saka hver annan um að hafa drepið Annette. Reuter Tobacco Co„ Brown and William- son, B.A.T. Industries, Philip Morr- is Inc„ Liggett Group, Lorillard Tobacco Co. og United States Tobacco Co. Þau hafa öll heitið því að berjast af krafti gegn ásökunum yfirvalda. En ýmislegt bendir til að verulega sé að halla undan fæti hjá þessum stórfyrirtækjum sem eiga nú öll með tölu í vök að verjast. Amfetamín tísku- dóp tuttugustu aldarinnar Sérfræðingar í lyfjamálum í Bandaríkjunum segja að amfetamín (,,speed“) sé greinilega orðið tísku- dóp tuttugustu aldarinnar. Hef- bundnari eiturlyf, eins og kókaín, heróín og maríjúana, hafa hvergi nærri haldið í vinsældir neytenda eins og amfetamínið gerir. Amfetamínneyslan hefur aukist um tæp 7% á fimm árum og hand- tökur vegna neyslu á efninu hafa tvöfaldast á þessu tímabili. Talið er að auknar vinsældir efnisins felist meðal annars í því að framleiðsla á efninu er tiltölulega einföld og ódýr. Áhrifin eru í fyrstu þannig að fólki finnst það vera orkumeira og hamingjusamara, en fljótlega sígur á ógæfuhliðina. Ofsóknaræði, kleyf- hugsun og þunglyndi eru fljót að skjóta upp kollinum við endurtekna neyslu og eiturlyfið hefur orðið mörgum að aldurtila. Rændi bensín- stöð til að borga brúðkaupið Derek Lowett, blankur brúðgumi í Lundúnaborg sem ætlaði að ganga í hjónaband með sinni heittelskuðu, var handtekinn í kjólfötunum við upphaf giftingarathafnarinnar. Lög- reglan þekkti hann af myndbands- upptökum sem teknar voru við rán á bensínstöð. Lowett var staurblankur og rændi bensínstöð í desember sl. en hafði aðeins 15 þúsund krónur upp úr krafsinu. Sú upphæð nægði hvergi nærri fyrir athöfninni og því rændi hann sömu bensínstöð tveim- ur dögum síðar og haföi svipaða upp- hæð upp úr krafsinu. Brúðurin brast í grát þegar Lowett var handtekinn við athöfnina og hef- ur lýst því yfir að hún sé tilbúin að bíða eftir honum, en hann fékk fimm ára fangelsisdóm. Reuter GULLSMIÐJAN JL PYRIT-G15 k \ | \. X'x V ÍSLENSK HÖNNUN OG HANDVERK Reuter Bresku hermennirnir eru hér leiddir úr réttarsalnum á Kýpur eftir að dómari hafði fundið þá seka um morð á danskri leiðsögukonu. Símamynd Reuter Þrír breskir hermenn fundnir sekir um morð á Kýpur: Myrtu danska konu með skóflu KROSSAR Krossar með faðirvorinu úr silfri eða gulli. Verð á silfurkrossi kr. 1.950, verð á 8 karata gullkrossi kr. 4.950 m/festi. Skemmtilegar fermingargjafir HANDSMÍÐAÐIR módelsilfurkrossar, verð kr. 3.600 til kr. 8.000. Töfrarúnir Töfrarúnir eru margra alda gamlar. Menn til forna notuðu rúnir þessar sér til verndar og heilla. Þeir sem þessar rúnir bera munu ekki komast í vandræði. ^ult (^föllin LAUGAVEGI 49, SÍMI 561-7740 Töfrarúnir Silfur m/festi, verð kr. 1.850.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.