Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1996, Blaðsíða 28
/
> FRETTASKOTIÐ
QC r—, LU SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
^ o '05 S l_TD *=£ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn.
h— LTD
550 5555
*
Frjálst óhað dagblað
MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ1996
Þjóðverjar sóttir:
Festust á
lokuðum
Kaldadalsvegi
„Þetta skrifast algjörlega á þá aö-
ila sem eiga aö sjá til þess að vegir
séu lokaðir. Það er líka spurning
um að bílaleigur kynni fyrir ferða-
mönnum hvaða vegir eru lokaðir og
hverjir opnir,“ sagði Kristján Krist-
jánsson hjá björgunarsveit SVFÍ,
Oki, við DV í morgun um ung þýsk
hjón með lítinn dreng sem fóru inn
á Kaldadalsveg, sem var lokaður, og
festust þar í gærkvöldi.
Björgunarsveitin var ræst út í
gærkvöldi til að ná í fólkið sem
hafði náð að senda út hjálparbeiðni
um talstöð í skála Slysavarnafélags-
ins í Kaldadal. Kristján sagði að vel
hefði farið um fólkið sem hafði nesti
og var búið að kyntia upp skálann.
-Fjölskyldunni var síðan hjálpað að
losa bílinn og henni fylgt til Þing-
valla þar sem leiðir skildi í nótt.
Hjónin höfðu ætlað í dagsferð á bíla-
leigubíl, jeppa. Kristján sagði að
skilti sem segir einungis á íslensku
að vegurinn sé lokaður hafi ekki
verið úti á veginum, samkvæmt frá-
sögn Þjóðverjanna. -Ótt
Valdimar þjálfar
Stjörnuna
Valdimar Grímsson verður ráð-
inn þjálfari 1. deildarliðs Stjörn-
unnar i handknattleik í dag og er
skrifað undir samninginn i hádeg-
inu. Valdimar þjálfaði Selfyssinga í
vetur en hætti þar fyrir nokkrum
dögum. Hann mun jafnframt leika
með Garðbæingum næsta vetur.
-VS
Fótbrotnaði
í ákeyrslu
Maður fótbrotnaði á Sauðárkróki
í gær þegar ekið var á hann. Var
maðurinn á göngu á
Skagfirðingabraut þegar hann varð
fyrri bilnum. Hann var fluttur á
'sjúkrahús. Þá varð barn á reiðhjóli
einnig fyrir híl á Sauðárkróki um
hádegið í gær en slapp án teljandi
meiðsla. -GK
DV kemur næst út fóstudaginn 17.
maí.
Smáauglýsingadeild DV er opin í
kvöld til kl. 22, en lokuð á morgun,
uppstigningardag.
Opið verður á föstudag frá kl. 9-22.
Ath. Smáauglýsingar í helgarblað
þarf þó að berast fyrir kl. 17 á
fostudag.
Síminn er 550 5000.
L O K I
Hjón með tvö börn hætt komin í bruna á Nönnugötu í nótt:
Faöirinn braust út
um glugga meö börnin
- alvarleg hætta, segir Erlingur Lúðvíksson, varðstjóri hjá slökkviliðinu
„Þarna var mjög alvarleg hætta
á stórslysi. Húsið er úr timbri og
það er stoppað með spónum og
marhálmi. Það eru verstu aðstæð-
ur sem hægt ert að hugsa sér,“ seg-
ir Erlingur Lúðvíksson, aðalvarð-
stjóri hjá Slökkviliði Reykjvíkur, í
samtali við DV.
í nótt björguðust hjón með tvö
börn úr brennandi húsið viö
Nönnugötu. Eldurinn kom upp á
fjóröa tímanum og fékk slökkvilið-
ið tilkynningu um brunann rétt
fyrir fjögur. Þá þegar var Ijóst að
mikil alvara var á ferðum.
Þegar slökkviliðsmenn voru á
leið á staðinn var þeim sagt að
hjónin væru komin út en börnin
enn inni. Faðirinn fór þá aftur inn
að sækja bömin. Þau eru fimm ára
og ársgamalt. Komst hann inn en
ekki út sömu leið og varð hann því
að brjóta sér leið út um glugga og
skarst nokkuð viö það.
„Það var milill eldur þegar við
komum að. Logamir stóðu út um
tvo glugga og út um aðaldyrnar,"
segir Erlingur. Allir sem í húsinu
voru fengu reykeitrun auk þess
sem faðirinn skarst. Þau vom flutt
á slysadeild Sjúkrahúss Reykja-
víkur til aðhlynningar. Ekkert
þeirra hlaut brunasár.
Slökkvistarf gekk greiðlega. Erl-
ingur sagði að í fyrstu hefði verið
lögö áhersla á að dempa eldinn
áður en reykkafarar fóru inn að
ganga endanlega úr skugga um að
enginn væri inni. Eftir það tók
skamman tíma að slökkva endan-
lega.
Húsið er mikið skemmt. Elds-
upptök voru ekki ljós nú í morgun
en verða rannsökuð í dag.
„Þetta er með því versta sem við
höfum komist í lengi. Það er langt
síöan fólk hefur verið í bráðri lífs-
hættu í eldi,“ segir Erlingur.
-GK
Jón Baldvin:
Bíöur eftir
Bryndísi frá
Cannes
Miklar skemmdir urðu á húsinu Nönnugötu 5 í eldi í nótt. Naumlega tókst að bjarga tveimur ungum börnum út úr
húsinu en þar bjó fjögurra manna fjölskylda. DV-mynd S
Isafjaröarbær eftir kosningarnar:
Meirihluti myndaður
Alþýðu- og Sjálfstæðisflokkur munu stjórna
Alþýðuflokkurinn í ísafjarðarbæ,
hinu nýja sveitarfélagi á norðan-
verðum Vestfjöröum, samþykkti í
gær að ganga til meirihlutasam-
starfs með Sjálfstæðisflokki og var
málefnasamningur undirritaður í
gærkvöldi.
Ágreiningur hefur verið í Alþýðu-
flokknum eftir kosningarnar í nýja
sveitarfélaginu um hvort ganga
skyldi strax til meirihlutasamstarfs
við Sjálfstæðisflokk eða reyna fyrst
fyrir sér með samstarf við aðra
flokka og varð síðari kosturinn ofan
á. Að sögn Björns Hafberg strandaði
hugsanlegt meirihlutasamstarf
vinstri flokkanna á því að E-listinn,
Fönklistinn, virtist ekki tilbúinn til
slíks.
-SÁ
„Það verður ekki fyrr en eftir
helgi þar sem Bryndís kona mína er
erlendis að sinna skyldustörfum
sínum á kvikmyndahátíðinni í
Cannes," sagði Jón Baldvin Hanni-
balsson í samtali við DV í gær, að-
spurður hvenær hann ætlaði að til-
kynna af eða á með framboð.
Jón sagðist hafa vitað um áform
stuðningsmanna sinna að setja í
gang meðmælendasöfnun, en með
þeim fyrirvara að ákvörðun hefði
ekki verið tekin. Aðspurður hvort
söfnunin væri honum að skapi
sagði Jón aðeins að sér væri kunn-
ugt um hana, tíminn væri naumur.
Eins og kom fram í DV í gær lét
Jón framkvæma fyrir sig skoðana-
könnun um síðustu helgi. Um þetta
sagði Jón Baldvin að hann hefði lát-
ið gera fleiri en eina skoðanakönn-
un. Hann hefði hins vegar ekki
fengið neina niðurstöðu úr þeim
ennþá. -bjb
Brenndist illa
Starfsmaður í verksmiðjunni á
Krossanesi við Akureyri brenndist
illa þegar hann fékk sjóðandi glussa
yfir sig við vinnu sína um miðnætt-
ið í nótt.
Maðurinn var fyrst fluttur á
sjúkrahúsið á Akureyri og síðan
meö sjúkraflugi til Reykjavíkur.
-GK
Veörið á morgun:
Léttskýjað
áfram
Gert er ráð fyrir fremur hægri
norðvestlægri eða breytilegri átt
og léttskýjuðu víðast hvar á land-
inu á morgun, uppstigningardag.
Sem flestir ættu því að drífa sig út
í góða veðrið. Hitinn verður á bil-
inu 6-13 stig og hlýjast sunnan-
lands.
Veörið í dag er á bls. 37
brother.
Litla
merkivélin
loksins
með Þ og Ð
li/il
Nýbýlavegi 28, sími 554 4443
Móttaka á
brotajárni
ailan
sólarhringinn