Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1996, Qupperneq 8
8
MÁNUDAGUR 3. JÚNÍ 1996
Utlönd r>v
Veröandi forsætisráöherra ísraels:
Setur öryggi og
friðáoddinn
Benjamin Netanyahu, leiðtogi Liku-
dílokksins og verðandi forsætisráð-
herra ísraels, hét því í fyrstu ræðu
sinni eftir kosningarnar að halda
áfram friðarviðræðum við alla ná-
granna ísraela til að koma á öryggi og
raunverulegum friði.
Samningamanni Frelsissamtaka
Palestínu, Hassan Asfour, gramdist að
Netanyahu skyldi ekki minnast á sam-
tökin í ræðu sinni en þau áttu hlut að
því að koma á friðarsamkomulagi við
Palestínumenn. Netanyahu hafði verið
mótfallinn samkomulagi ísraela og
Palestínumanna um sjálfstjórn þeirra
síðarnefndu á Vesturbakkanum og
Gazasvæðinu. Hann hefur einnig úti-
lokað afhendingu Gólanhæða til Sýr-
lendinga.
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
Warren Christopher, gaf í skyn í gær
að Bandaríkin þyrftu að breyta stefnu
sinni varðandi Miðausturlönd vegna
Benjamin Netanyahu, verðandi for-
sætisráðherra ísraels, hélt í gær
fyrstu ræðu sína eftir kosningasig-
urinn. Símamynd Reuter
úrslita kosninganna í ísrael. Utanríkis-
ráðherrann sagði þetta eftir að hafa
talað við Netanyahu í síma í gær. „Við
þurfum að komast að því hverjar skoð-
anir hans eru. Þangað til við vitum
hverjar þær eru getum við ekki breytt
stefnu okkar," sagði ráðherrann í við-
tali við fréttamenn.
Kosningasigur Netanyahus hefur
valdið titringi innan bandarísku
stjómarinnar. Christopher og aðstoð-
armenn hans eru sérstaklega áhyggju-
fullir en þeir höfðu vonast eftir friðar-
samkomulagi ísraela og Sýrlendinga á
þessu ári.
Netanyahu sagði fyrir kosningarnar
að hann myndi neita að funda með
Yasser Arafat, leiðtoga Frelsissamtaka
Palestínumanna. Christopher létti þeg-
ar hann frétti að háttsettur embættis-
maður verðandi forsætisráðherra ísra-
ela hefði rætt við einn af helstu aðstoð-
armönnum Arafats. Sagðist Christoph-
er telja það mikilvægt að ný stjórn
ísraela hefði þá stefnu að hafa beint
samband við Frelsissamtök Palestínu-
manna. Reuter
Betur fór en á horfðist þegar nautið í nautaatshringnum Las Ventas í Madríd
krækti hornunum í nautabanann Victor Puerto og skellti honum. Puerto
slapp þó ómeiddur og felldi að lokum nautið. Símamynd Reuter
Allir hafa aðgang
að útboðum á
vegum ríkisins
leWI “
, ^jsreksU'- .—„oia íaS & „prklafi-
Vegae^bÓnÍn6
«***’ 4^**«*?*» l"6’VetWa6S'
.aðsa«u*inaV' ísVa«ds,þant'9-
„ svið'.samV- • .-'Avæö'i'Sar- , „acjne"'’
áþess"^ emde'""avæ . wnt a«a'a"dS .
l,,r úamK .».„.Viíæf' úr ríVas''
re&' . „oti
. „Aoanft,
?e u svVð', san'W’* vavsð'nSat' . ndsn'enn,
þess" sv' , einkav-v &Ua lands'"
.cglm mieVð'*tó{*" V ,v Uvnn'k«"'s’
Ítb0ðU10 at sens gVlda- ^ ‘
erUpÍ S ^1 kaTnV^ata Vertía£SteSUl evin've'
á anna" "al ; vVnmnfe'" af ulg v m. he{m a'"'e"U
„ „eel'jn'-^ .....vítðinB'' m Góð\>a
öðI'"U fnda"""e'U lmís'ands"{' '
. r^lcv*"'^A Gv'jave's""' ve"
>t,ia e*^* .«. uátt v „ara & _
hátt, ^ f átsáfu Ve' vertð
annan ^ af Ulg VnpU hefut
«««, >«»». «■T
ReVns'a« a{ sta st að '""T ^luna'''"'^
fes"" 46
8M'
Verklagsreglur um útboð á ríkisrekstri Kynntu þér rétt þinn við útboð á ríkis-
og sölu á hlutabréfum í ríkiseign, trvggja rekstri.
öllum landsmtinnum jafnan rétt og jafnt
tækifæri til þátttöku. Verklagsreglurnar fást hjá fjárniála-
ráðuneytinu og verðbréfafvrirtækjum.
Reglurnar eyða jafnframt þeirri óvissu
sem oft hefur fylgt mismunandi aðferð
um við útboð.
Jafn réttur - þitt tækifærí
FRAMKVÆMDANEFND
UM EINKAVÆÐtNGU
Díana prinsessa:
Biður foreldra
að hvetja
börn sín
- deilt um horaðar fyrirsætur
Díana
prinsessa hef-
ur nú blandað
sér i umræð-
una um mynd-
ir af horuðum
fyrirsætum í
tískublöðum. í
grein í breska
blaðinu
Sunday Ex-
press í gær
óskar
prinsessan eft-
ir því að meiri
skilningur sé
sýndur þeim
sem þjást af
sjálfsvelti og
lotugræðgi.
Díana, sem
hefur viður-
kennt að hafa þjáðst af lotu-
græðgi, sagði að foreldrar og aðr-
ir sem annast börn þyrftu að
styðja þau til þess að þau létu
ekki undan þrýstingi nútíma
þjóðfélags.
Þessi tilmæli prinsessunnar
eru birt aðeins nokkrum dögum
eftir að deila reis um myndir af
grindhoruðum fyrirsætum í
tískublaöinu Vogue. Deilan hófst
þegar svissneska úraverksmiðjan
Omega tilkynnti á fimmtudaginn
að hún ætlaði að hætta að aug-
lýsa i blaðinu. Forstjóri verk-
smiöjunnar, Giles Rees, sagði að
sér þætti það ábyrgðarleysi af
leiðandi tímariti, sem ætti að
vera fyrirmynd, að birta myndir
af stúlkum sem litu út eins og
þær þjáðust af sjálfsvelti. Einn af
ritsfjórum Vogue sagði um valið
á fyrirsætunum að oft væri um að
ræða stúlkur á táningsaldri og að
þær væru þá eðlilega enn mjög
grannar.
Ráðamenn úraverksmiðjunnar
skiptu svo um skoðun á fostudag-
inn og tilkynntu að þeir myndu
halda áfram að auglýsa í blaðinu.
Samkvæmt rannsóknum er
talið að sjúk-
lingum með
sjálfsvelti fjölgi
vegna þess að
grindhoruðum
fyrirsætum er
haldið á lofti.
Fólki finnist
það ekki vera
eins og það á
að vera þegar
þaö ber sig
saman við fyr-
irsæturnar.
Díana
prinsessa gat
þess í blaða-
greininni í gær
að mataræðis-
vandamál virt-
ust stafa af
óöryggi í
æsku. Hún sagði að foreldrar,
kennarar og vinir þyrftu að
hvetja börn og sýna þeim að þau
séu mikils metin til að koma í veg
fyrir að þau fái minnimáttar-
kennd.
Breskt blað greindi frá því í
síðustu viku að Vilhjálmur prins,
sem erfa á krúnuna eftir föður
sinn, hefði tilkynnt að hann vildi
ekki verða konungur. Breska
blaðið Sunday Mirror fullyrti í
gær að Karl prins tæki yfirlýs-
ingu sonarins með jafnaðargeði
og að Díana væri að reyna að
telja syninum hughvarf í róleg-
heitunum.
Díana heldur til Bandaríkjanna
í þessari viku til að safna fé til
krabbameinsrannsókna. Hún
kemur til Chicago síðdegis á
þriðjudag og tekur þar þátt í
íburðarmiklum kvöldverði á mið-
vikudaginn. Búist er við að ágóði
af miðasölu að kvöldverðinum
verði 1 milljón doUara.
Prinsessan mun dvelja í sex
herbergja forsetasvítu á Drake
hótelinu með útsýni yfir Michig-
anvatn og kostar nóttin 2 þúsund
dollara. Reuter
Díana prinsessa heldur til Chicago í
þessari viku. Símamynd Reuter