Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1996, Side 7
MÁNUDAGUR 24. JÚNÍ 1996
7
Fréttir
Hreppstjórinn í Vestur- Landeyja-
hreppi, Haraldur Júlíusson, hefur
skrifað oddvitanum, Eggert Hauk-
dal, bréf og farið fram á að kjörklef-
ar fyrir forsetakosningamar verði
ekki settir upp í matarbúri og á
gangi við skrifstofu oddvitans eins
og áður hefur tíðkast í kosningum.
Hreppstjórinn bað oddvitann að
gefa sér svar minnst viku fyrir
kosningarnar.
„Þetta er ósköp einfalt og hefur
ekki verið til erfiðleika fyrir neinn.
Þetta skoðar maður bara rétt fyrir
kosningarnar og gengur frá þessu,“
sagði Eggert Haukdal
Fyrir síðustu alþingiskosningar
bað hreppstjórinn Heilbrigðiseftirlit
Suðurlands að skoða aðstæður. Þær
voru dæmdar óhæfar og var oddvit-
inn látinn vita af úrskurðinum.
Engu að síður lét hann kosningarn-
ar fara fram í matarbúrinu og á
ganginum.
„Þessi blessaður maður kærði fé-
lagsheimilið fyrir síðustu alþingis-
kosningar fyrir heilbrigðiseftirlit-
inu. Hann kærði líka fyrrverandi
húsvörð í Njálsbúð fyrir fjármála-
misferli. Þegar síðast átti að kjósa
höfðu kjörstjórnarmenn það í flimt-
ingum í framhaldi af vinnubrögðum
þessa kærusjúka manns hvort það
ætti nú ekki að láta heilbrigðis-
skoða hreppstjórann áður en þeir
settust til borðs með honum við
kjörstjórnarborðið. Vandamálið er
að ef menn em kærusjúkir er ekki
hægt að leysa neitt mál fyrir þeim.
Það er ekki hægt að losna við kæru-
sjúkan mann sem er á hælunum á
manni hvemig sem maður fer að,“
bætir hann við.
Þegar hreppstjórinn var að greiða
atkvæði í matarbúrinu í Njálsbúð í
síðustu sveitarstjórnarkosningum
kom oddvitinn, Eggert Haukdal, inn
í kjörklefann til að ná í kaffipakka,
að því er heimildarmenn DV greina
frá. Oddvitinn ætlaði að fara að
hella upp á. Er hreppstjórinn kom
með kjörseðilinn inn í eldhúsið þar
sem kjömefndin sat kvaðst hann
hafa orðið fyrir svo mikilli truflun
að verið gæti að seðillinn væri
ógildur. Formaður kjörstjórnar
sagði þá hreppstjórann vera með
uppsteyt og vísaði honum af svæð-
inu. Þess má geta að ekki var um
listakosningu að ræða heldur þurftu
kjósendur að skrifa fjölda nafna á
seðilinn.
Það eru fleiri en hreppstjórinn
sem ekki vilja eiga á hættu að vera
truflaðir í kosningabúrinu. Heima-
menn vilja fá að kjósa í skólanum
sem er áfastur Njálsbúð. Þeir telja
einnig unnt að koma kjörklefum
fyrir í salnum í félagsheimilinu.
„Þetta er eitt og sama húsið, fé-
lagsheimilið og skólinn. Þetta er
ekkert vandamál. Þetta verður allt i
góðu lagi,“ segir Eggert.
Hann heimilaði ekki myndatöku
af matarbúrinu i Njálsbúð. -IBS
Nýtt skip Eimskips
stærsta skip félagsins
Á fóstudaginn var nýju skipi
Eimskipafélagsins, og jafnframt því
stærsta, gefið nafnið Brúarfoss við
hátíðlega athöfn í Stettin skipa-
smiðastöðinni í Póllandi.
Brúarfoss er fjórða skip Eim-
skipafélagsins sem ber þetta nafn.
Samningar um smíði þess tókust í
september og var hafist handa í
október. Skipið var sjósett í apríl og
afhent nú, aðeins níu mánuðum eft-
ir að smíði þess hófst.
Þetta er stærsta skip sem Eim-
skipafélagið hefur eignast, 12.500
tonna gámaskip, og er það 150 metra
langt, 22 metra breitt og ristir rúma
átta metra. Vélin er 9.500 hestöfl. Þá
er í skipinu aðstaða fyrir tólf far-
þega.
Hinn nýi Brúarfoss tekur við af
skipi með sama nafni í meginlands-
flutningum. Skipstjóri þess er Engil-
bert Engilbertsson og yfirvélstjóri
Jón Valdimarsson. -SF
OSHIBA^
Hágæða sjónvarpstæki
með tvisvar sinnum fleiri mögnurum
en í Hl Fl hljómtækjum
l ' 'Á «•»%-V-v
■ . -
• . T . • • ‘ -.. *•
‘ Atikfr-Zt •* •’ •' v
‘V
'f€. ■#.
■?r.X
i-« •.- • V'vv',
ji1— ,
' "'?•
'* ■ '. ■'-•;
Hingað til hefur verið litið á Hi Fi hljómtæki sem það besta sem hægt er að fá í hljómtækjum fyrir heimili. Venju-
lega eru þau þannig úr garði gerð að 2 magnarar keyra hvorn hátalara eða hátalarasett. Toshiba Home Cinema
sjónvarpstækin eru búin miklu hærri gæðastaðli. 5 magnarar keyra 6 hátalara. Sérstakir magnarar eru fyrir vinstri n n n » sig. «b
og hægri hátalarana til að gefa fullkomna stereoskiptingu. Sérstakur magnari er fyrir hina nýju, stóru bakhátal- SH*® p Kfgújl,
ara til að gefa einstakan umhverfishljómburð. Sérstakur magnari er fyrir nýju framhátalarana sem gefa undraverð- ®
an kraft beintfrá sjónvarpsmyndinni. Og síðasten ekki sist sérstakur magnari fyrir SUB-Wooferinn til þessað ná
fram enn dýpri og kraftmeiri bassahljóm. Allir magnararnir eru keyrðir upp með 55 vatta hljóðmögnun. Og það
allra nýjasta í sjónvarpstækinu eru 5 nýhannaðar stafrænar rásir sem gefa skarpari og tærari mynd en sést hefur
áður í heimabíói. Þetta tæki er algjör sprengja. Þú þarft ekki að leita lengra.
TOSHIBA
Fyrstir með PRO-LOGIC
Veldu tæki frá brautryðjanda á sviði
sjónvarps- og videotækja, þá ertu með
TOPP TÆKI í höndunum um langa framtíð.
28" tækin kosta frá kr. 89.822 »tSr.
Einar
Farestveit & Cohf
Borgaritinr28 P562 29Ö1 og 562 2900
Margverðlaunuð
af þekktustu hljóm-
tækjatímaritum
heims.
Hið nýja skip hlaut nafnið Brúarfoss.
Kurr meðal starfsfólks KÁ.
Fjórir verslunar-
stjórar hætta
„Þaö segir sína sögu að fjóri
verslunarstjórar skuli vera að
hætta í einu og sýnir þá óánægju
sem ríkir með núverandi skipu-
lag. Það er kurr í starfsfólki og
samskipti þess við yfirmenn hafa
ekki verið eins og vera ætti í fyr-
irtæki eins og þessu,“ segir starfs-
maður KÁ sem ekki vill láta nafn
sins getið en tveir verslunarstjóra
hjá fyrirtækinu eru hættir og aðr-
ir tveir eru að hætta. Þessir menn
hafa séö um að reka fjórar af
verslunum fyrirtækisins á Suður-
landi.
„Ég kannast ekki við að fólk sé
óánægt hér og þessar umræddu
uppsagnir hafa allar verið í góðu
samkomulagi við okkur. Við höf-
um unnið að hreytingunum á fyr-
irtækinu i góðu samstarfi við
fólkið okkar og við höfum ekki
fundið annað en að andinn sé góð-
ur,“ segir Sigurður Teitsson,
framkvæmdastjóri verslunar-
sviðs KÁ.
Sigurður segir að haldin hafi
verið námskeiö fyrir starfsfólkið
og starfsmannastefna fyrirtækis-
ins hafi verið vel kynnt. Hann
sjái því ekki annað en að yfir-
hragð sé allt miklu léttara og
skemmtilegra. -sv
Ráðstefna fyrir ungt fólk:
Sjálfsmorðstíðni
ungra íslendinga há
„Við höfum ákveðið að sitja ekki
aðgerðalaus gegn þeirri staðreynd
að sjálfsmorðstíðni íslenskra ung-
menna er há,“ segir Ásgeir Páll
Ágústsson, upplýsingafulltrúi sam-
takanna „Styrkur unga fólksins“, en
þau munu gangast fyrir ráðstefnu í
Reykjavík 26.-29. júni. Þar mun fara
fram ýmis kennsla og umræður, t:d.
um höfnun, aðgerðaleysi og ótta.
Sett verður upp samkomutjald við
Suðurhlíðaskóla sem mun hýsa
kvöldhugvekjur og tónleika. „Ráð-
stefnuna sækir, auk íslenskra ung-
menna, um 50 manna hópur frá
Bandaríkjunum, allt fólk sem teng-
ist kristilegu ungmennastarfi og
hefur sérhæft sig í þjónustu við
ungt fólk. Ráðstefnan er því vett-
vangur fyrir fagfólk erlendis frá til
að vinna að málum íslenskra ung-
menna,“ segir Ásgeir. „Styrkur
unga fólksins" eru eins árs gömul
kristileg samtök og samansett af
ýmsum deildum innan kirkjufélaga
og félaga kristins ungs fólks. Vel
hefur gengið að afla styrktaraðila
vegna ráðstefnunnar. -saa
^ Vestur-Landeyingar vilja kjósa við sömu aðstæður og annað fólk:
• Ottast að þurfa að kjósa
’ enn einu sinni í matarbúri