Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1996, Blaðsíða 30
42
MÁNUDAGUR 24. JÚNÍ 1996
Afmæli
Sigurbjörg Guðjónsdóttir
Sigurbjörg Guöjónsdóttir kenn-
ari, Álfaskeiði 78, Hafnarfiröi, er ní-
ræð í dag.
Starfsferill
Sigurbjörg fæddist á Stóru- Mörk
undir Eyjafjöllum og ólst þar upp.
Hún var í Kvennaskólanum í
Reykjavík 1926-28, lauk kenn-
araprófi 1933 og sótti kennara-
námskeið.
Sigurbjörg kenndi í barnaskóla
Vestur-Eyjafjalla 1929-31, við barna-
skólann í Fljótshlíð 1933-34 og í
Holtahreppi 1934-45 þar sem hún
var einnig skólastjóri, var kennari
við Lækjarskóla í Hafnarfirði
1955-76 og síðan i nokkur ár við for-
fallakennslu. Sigurbjörg sinnti jafn-
framt húsmóðurstörfum frá 1945 og
vann einnig við heyskap flest farkennaraárin og á námsárum. Hún starfaði í Ungmennafélaginu Trausta á unglingsárum og var fulltrúi á þingi SÍB. JBMr ^ Jnr
Fjölskylda Sigurbjörg giftist 27.10. 1945 Bjarna Rögnvalds-
syni, f. 16.9.
manni og
1904, verka-
verslunar-
Sigurbjörg Guðjóns-
manni. Foreldrar hans: dottir'
Rögnvaldur H. Líndal, b. í
Hnausakoti í Miðfirði, og Guðrún
Bjarnadóttir ljósmóðir.
Dóttir Sigurbjargar og Bjarna:
Guðrún Bjamadóttir, f. 27.7. 1946,
talmeinafræðingur og framhalds-
skólakennari, en maður
hennar er Geir Þórólfsson
verkfræðingur. Sonur
Guðrúnar er Bjarni Þór
Sigurðsson, f. 2.11. 1979,
nemi í Flensborg.
Systkin Sigurbjargar:
Ólafia Guðlaug Guðjóns-
dóttir, f. 28.9. 1902, hús-
móðir í Stóru-Mörk 2; Sig-
urjón Guðjónsson, f. 24.10.
1904, d. 10.6. 1906; Ásta
Karólína Guðjónsdóttir, f.
13.11. 1910, d. 23.8. 1992,,
húsmóðir, á Seltjarnar-
nesi; Þórunn Helga Guðjónsdóttir, f.
20.4. 1918, fyrrverandi ritari í
Reykjavík.
Foreldrar Sigurbjargar: Guðjón
Ólafsson, f. 10.4. 1878, d. 27.3. 1936,
bóndi í Stóru-Mörk, og Jóhanna
Kristín Ketilsdóttir, f. 21.8. 1877, d.
16.9. 1961, húsfreyja.
Ætt
Guðjón var sonur Ólafs, b. í
Stóru-Mörk, Jónssonar. Foreldrar
Jóns vom Ólafur Pálsson, prestur í
Eyvindarhólum, og Helga Jónsdótt-
ir, eldprests, Steingrímssonar. Móð-
ir Ólafs í Stóru-Mörk var Ingibjörg
Guðmundsdóttir, bónda í Fljótsdal í
Fljótshlíð. Móðir Guðjóns var Guð-
laug Ólafsdóttir, bónda í Stóru-
Mörk.
Jóhanna Kristín var dóttir Ketils
Jónssonar, og Geirdísar Ámadóttur
frá Seljalandi.
Sigurbjörg er á ferðalagi erlendis.
Clarenœ E. Glad
Clarence Edvin Glad
guðfræðingur, Kirkju-
teigi 14, Reykjavík, er
fertugur í dag.
Starfsferill
Clarence er fæddur á
Sauðárkróki og bjó þar
fyrstu árin en í Finn-
landi 1965-66, í Stykkis-
hólmi 1966-70 en fluttist
þá til Reykjavíkur. Hann
lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við
Hamrahlíð, BA-prófi í
guðfræði frá Continental Bible Col-
lege í Brussel í Belgíu 1979, stund-
aði hebreskunám við Hebrew Uni-
versity í Jerúsalem sumarið 1979,
Clarence Edvin Glad.
lauk BA-prófi í heim-
speki frá heimspekideild
Háskóla íslands 1983, er
cand. theol frá guðfræði-
deild Háskóla íslands og
stundaði nám i latínu við
heimspekideild Háskóla
íslands veturinn 1983-84.
Clarence var í doktors-
námi við trúarbragða-
deild Brown-háskóla í
Providence, Rhode Is-
land-fylki í Bandaríkjun-
um, 1984-92 og kenndi
við sama skóla 1985-88
en hann lauk Ph.D-prófi
í Nýja testamentisfræðum og sögu
frumkristni vorið 1992. Clarence
hefur einnig lokið uppeldis- og
kennslufræðum til kennsluréttinda
frá félagsvísindadeild Háskóla ís-
lands.
Undanfarin ár hefur Clarence
verið í styrkþegastöðu hjá Rann-
sóknarráði íslands (áður Vísinda-
ráð íslands) og Guðfræðistofnun
Háskóla íslands. Hann er nú Ful-
bright Scholar við Brown-háskóla í
Providence, Rhode-Island-fylki í-
Bandaríkjunum.
Fjölskylda
Clarence kvæntist 18.6. 1988 Kol-
brúnu Baldursdóttur, f. 23.3. 1959,
sálfræðingi. Foreldrar hennar:
Baldur Gíslason, látinn, verslunar-
maður, og Áslaug Sigurðardóttir,
fyrrverandi fulltrúi hjá lögreglu-
stjóra.
Dætur Clarence og Kolbrúnar:
Karen Áslaug Vignisdóttir, f. 28.12.
1980, nemandi í Verslunarskóla ís-
lands; Harpa Rún Glad, f. 16.8.1989.
Systkini Clarence: Sam Daniel
Glad, f. 3.10. 1953, kristniboði, Sam
er búsettur á Álandseyjum í Finn-
landi; Róbert E. Glad, f. 29.10. 1954,
verkstjóri, Róbert er búsettur í
Reykjavík; Barbro E. Glad, f. 18.10.
1959, sjúkraliði, Barbro er búsett á
Akranesi.
Foreldrar Clarence: Daniel J.
Glad, f, 30.7. 1927, trúboði, og Mari-
anne E. Glad, f. 28.4. 1932, banka-
starfsmaður. Þau eru fædd í Finn-
landi en fluttu til íslands árið 1952.
Clarence dvelur nú í Bandaríkj-
unum.
Birna Matthíasdóttir
Birna Matthíasdóttir, Öldugötu
48, Hafnarfirði, er fertug í dag.
Starfsferill
Birna, sem er fædd I Reykjavík og
ólst þar upp, er lærð smurbrauðs-
dama.
Undanfarið hefur hún starfað við
ræstingar en áður vann Bima við
smurbrauð og aðhlynningarstörf á
Hrafnistu.
Birna bjó í Svíþjóð um tveggja
ára skeið og þar á undan í Njarðvík.
Hún er nú búsett í Hafnarfirði.
Fjölskylda
Birna giftist 9.8. 1975 Karli Árna-
syni, f. 25.9. 1953, bílstjóra. Foreldr-
ar hans: Árni Jónsson bílstjóri, og
Guðný Sigurðardóttir, látin.
Börn Birnu og Karls: Guðrún
Þóra Karlsdóttir, f. 21.3.1975, starfs-
stúlka; Matthías Finns Karlsson, f.
23.9. 1977, nemi; Árni Rúnar Karls-
son, f. 12.6. 1982, nemi.
Systur Birnu: Hallfríð-
ur Anna, f. 1.2. 1953, leik-
skólakennari; Vilborg, f.
2.6. 1955, ræstitæknir;
Steingerður, f. 13.11. 1958,
bankastarfsmaður; Kol-
finna, f. 11.11. 1960, at-
vinnurekandi; Soffia, f.
15.9. 1963, ræstitæknir.
Hálfsystkini Birnu: Sig-
riður Matthíasdóttir, f.
1.1. 1947, útgerðarmaður;
Birna Matthíasdóttir.
Gunnar Eldar Karlsson,
f. 16.10. 1947, sjómaður.
Foreldrar Birnu: Matthí-
as Laxdal Björnsson, f.
6.11. 1919, og Þórunn
Gunnarsdóttir., f. 13.8.
1924, þau bjuggu í
Reykjavík en em nú bú-
sett í Hafnarfirði.
Andlát
Helga Soffía Þorgilsdóttir
Helga Soffia Þorgils-
dóttir yfirkennari, áður
til heimilis að Víðimel
37, Reykjavík, lést á
Droplaugarstöðum í
Reykjavík þann 11.6. sl.
Útfor hennar fer fram frá
Dómkirkjunni í Reykja-
vík í dag, mánudaginn
24.6. kl. 15 en jarðsett
verður í Fossvogskirkju-
garði.
Helga
dóttir.
eyri 1923-24, var skóla-
stjóri barnaskólans á Hús-
atóftum á Skeiðum
1924-30, kenndi við Mið-
bæjarskólann 1939-46 og
við Melaskólann 1946-66
og var jafnframt yfirkenn-
ari þar frá 1947-66. Þá
starfaði hún við bókasafn
skólans 1966-70.
Helga sinnti ýmsum fé-
lagsstörfum, starfaði mik-
Soffía Þorgils-jg g vegum Sjálfstæðis-
Starfsferill
Helga fæddist i Knarrarhöfn í
Hvammssveit 19.11. 1896 og ólst þar
upp í foreldrahúsum. Hún lauk
kennaraprófi frá KÍ 1919, sótti
handavinnu- og teikninámskeið í
Kaupmannahöfn 1927 og kennaran-
ámskeið í Vadstena í Svíþjóð 1935.
Helga var kennari í Fljótshlíð
1919-21, heimiliskennari í Bjarna-
nesi í Homafirði 1921-22, starfaði
við Miðbæjarskólann 1922-23,
kenndi við Barnaskólann á Stokks-
flokksins, sat í stjórn kven-
félags Hvítabandsins
1932-68 og var formaður þess í þrjú
ár og sat í sjúkrahúsráði Hvíta-
bandsins í fjögur ár. Hún var sæmd
riddarakrossi íslensku fálkaorðunn-
ar 1976.
Út hefur komið Ijóðabók eftir
Helgu og Steinunni, systur hennar,
Úr handraðanum.
Fjölskylda
Helga giftist 14.6. 1946 Helga Þor-
steini Arnóri Arnórssyni, f. 20.2.
1893, d. 2.1. 1962, skipstjóra og síðar
bankastarfsmanni. Hann var sonur
Arnórs Arnórssonar, bónda á Svarf-
hóli í Álftafirði, og k.h., Salome
Jónsdóttur húsfreyju.
Börn Þorsteins Arnórs og f.k.h.,
Elísabetar Ingimundardóttur, og
stúpbörn Helgu: Valmundur, lengst
af sjómaður og skipstjóri I Reykja-
vík; Þórður, dó 1947; Hulda, hús-
freyja að Grjótnesi á Melrakka-
sléttu, d. 1974; Valgerður, fyrrv.
gjaldkeri og bókavörður í Reykja-
vík, gift Jóni Helgasyni, starfs-
mannastjóra Rafmagnsveitu ríkis-
ins; Gunnfinna, húsmóðir í Banda-
ríkjunum, gift Harry Green, fyrrv.
kaupmanni.
Systkin Helgu: Friðjón Ágúst, dó í
æsku; Steinunn, húsfreyja á Breiða-
bólstað, gift Þórði Kristjánssyni;
Sigmundur, skólastjóri undir Eyja-
fjöllum, kvæntur Björgu Jónsdótt-
ur; Egill, skipstjóri hjá Eimskip,
kvæntur Sigríði Guðmundsdóttur;
Friðjón Hjörleifur, dó ungur, laga-
nemi við HÍ; Ári, fulltrúi hjá Pósti
og síma, kvæntur Helgu Jónsdóttur;
Friðrik Helgi, dó ársgamall; Þórhall-
ur, magister, bókavörður og kenn-
ari í Reykjavík, kvæntur Bergþóru
Einarsdóttur; Sigríður, húsmóðir í
Reykjavík, gift Inga Kristmanns;
Kjartan kennari; Jóhannes klæð-
skeri, dó ungur; Kristján, dó ungur,
menntaskólanemi á Akureyri;
Fríða, húsmóðir i Reykjavík, en
hún er nú ein á lifi af systkinahópn-
um.
Foreldrar Helgu voru Þorgils
Friðriksson, f. 12.8. 1860, d. 29.1.
1953, oddviti og kennari í Knarrar-
höfn, og k.h., Halldóra Ingibjörg Sig-
mundsdóttir, f. 30.4. 1866, d. 28.9.
1909, húsfreyja.
Ætt
Þorgils var sonur Friðriks, b. á
Ormsstöðum í Klofningshreppi, Þor-
gilssonar, b. í Fremri-Hundadal,
Halldórssonar. Móðir Friðriks var
Ingibjörg, systir Jóns á Kleifum, afa
Snæbjarnar Kristjánssonar í Herg-
ilsey. Ingibjörg var dóttir Orms,
ættföður Ormsættarinnar, Sigurðs-
sonar. Móðir Þorgils var Helga
85 ára
Jón Jóhannsson,
Skagfirðingabraut 43, Sauðár-
króki.
Böðvar Guðmundsson,
Syðra-Seli 1, Hrunamanna-
hreppi.
Haraldur Hannesson,
Birkihlið 5, Vestmannaeyjmn.
80 ára
Brynhildur Jónsdóttir,
Breiðumörk 9, Hveragerði.
Gunnhildur Jónsdóttir,
Ártúni, Árskógshreppi.
Geir Reynir Tómasson,
Hávallagötu 45, Reykjavík.
75 ára_________________
Unnur Magnúsdóttir,
Stóragerði 18, Reykjavík.
Eggert Ólafsson,
Grenivöllum 30, Akureyri.
70 ára
Haukur Hjartarson,
Álfhólsvegi 41, Kópavogi.
Grímur Jónsson,
Háaleitisbraut 45, Reykjavík.
60 ára
Lúðvlk Guðmundsson,
Háteigi 3, Keflavík.
Pétur M. Bjarnarson,
Grænahjalla 27, Kópavogi.
Sonja Símonardóttir,
Bakkahvammi 4, Dalabyggð.
Bragi Jóhannsson,
Skagfirðingabraut 39, Sauðár-
króki.
50 ára___________________
Rakel Valdimarsdóttir,
Sörlaskjóli 76, Reykjavík.
Matthías Kristinsson,
Móatúni 18, Tálknafirði.
Hörður Guðmundsson,
Fagraholti 2, ísafirði.
Ingibjörg Gunnþórsdóttir,
Höfðabrekku 29, Húsavík.
Benedikt Jónsson,
Skarðsbraut 5, Akranesi.
Eiður Benediktsson,
Grundarstíg 4, Sauðárkróki.
Ingimar Pálsson,
Freyjugötu 5, Sauðárkróki.
40 ára______________________
Jennie Júlíana Salvador
Perkins,
Svarthömrum 42, Reykjavík.
Brynjar Víkingsson,
Baughóli 37, Húsavík.
Hildur Guðmundsdóttir,
Mánagerði 4, Grindavík.
Kristin I. Marteinsdóttir,
Gilá, Áshreppi.
Ingibjörg Bjarnadóttir,
Bjarmalandi 20, Sandgerði.
Sigurlaug J. Björnsdóttir,
Grundargötu 16, Grundarfirði.
Unnur Ólafsdóttir,
Suðurgerði 4, Vestmannaeyjum.
Helga Guðrún Hlynsdóttir,
Kleppsvegi 76, Reykjavík.
Bjarnheiður Ragnarsdóttir,
Hjallalundi 6, Akureyri.
Auður Theódórsdóttir,
Barmahlíð 3, Reykjavík.
Jónsdóttir, snikkara á Hrauni í
Helgafellssveit, Þórðarsonar, prests
I Hvammi i Norðurárdal, Þorsteins-
sonar.
Bróðir Halldóru var Jón Sig-
mundsson, gullsmiður í Reykjavík,
faðir Raghars Jónssonar, hrl. og bó-
kaútgefanda. Halldóra var dóttir
Sigmundar, b. á Skarfsstöðum i
Hvammssveit, Grímssonar, hálf-
bróður, sammæðra, Friðriks á
Ormsstöðum. Móðir Halldóru var
Steinunn Jónsdóttir, b. á Breiða-
bólsstað á Fellsströnd, Jónssonar.
Steinunn var systir Þórðar á
Breiðabólstað, langafa Friðjóns
Þórðarsonar, fyrrv. ráðherra, alþm.
og sýslumanns, og einnig langafa
Gests, föður Svavars alþm. Jón á
Breiðabólstað er faðir Katrínar,
langömmu Jóhannesar Gunnarsson-
ar, framkvæmdastjóra Neyten-
dasamtakanna.