Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1996, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1996, Qupperneq 2
2 MÁNUDAGUR 12. ÁGÚST 1996 Fréttir Blóðug átök um hábjartan dag fyrir utan Duus-hús í Fischersundi á föstudag: Stöðumælavörður beinbrotinn í starfi og annar grýttur Páll Pálsson, til hægri, veröur óvinnufær næstu vikurnar vegna líkamsárás- ar sem hann varð fyrir í starfi síðdegis á föstudag. Hann og félagi hans, Jó- hann Dagur Björnsson, hyggjast ræða við yfirmenn sína í dag um stöðu þeirra í harðnandi heimi. DV-mynd JAK - þriðja árásin á Pál Pálsson á tæpu ári - stöðumælaverðir orðnir verulega uggandi um öryggi sitt Páll Pálsson, stöðumælavörður í Reykjavík, rifbeinsbrotnaði og hlaut slæm meiðsl á hendi og fram- handlegg þegar bálreiður eigandi bíls, sem hann var að leggja sektar- miða á, réðst á hann í tvígang fyrir utan Duus-hús í Fischersundi sið- degis á föstudag. Stuttu áður en ráð- ist var á Pál hafði flöskum verið kastað að Jóhanni Degi Bjömssyni, félaga Páls, sem var að leggja sekt- armiða á annan bíl á sama stað. Þetta er í þriðja skipti á tæpu ári sem Páll verður fyrir árás í starfi. Árásarmaðurinn á föstudaginn komst undan á bil áður en lögregla kom á vettvang en ljóst er hvaða maður þar var að verki. Skæöadrífa af kókflöskum DV hitti Jóhann Dag og Pál á heimili þess síðamefnda í gær: „Ég var að skrifa bíl upp í Fischersundi og kallaði í Pál og bað hann um að hjálpa mér,“ sagði Jó- hann Dagur. „Rétt á eftir lenti ég í skæðadrífu cif kókflöskum úr plasti sem splundruðust í kringum mig. Sá sem það gerði stakk af um leið og ég var búinn að láta hringja á lög- regluna. Síðan settumst við Páll inn í vinnubíl minn og ætluðum að bíða eftir lögreglunni. Á meðan veltum við fyrir okkur hvort Páll ætti að skrifa upp annan bíl á sama stað og við ákváðum að hann skyldi gera það,“ sagði Jóhann Dagur. „Ég gekk að bílnum og lagði miða á hann,“ segir Páll. „Bíleigandinn kom þá að mér, þandi út á sér brjóstkassann og ég vissi ekki af mér fyrr en hann hafði kastað mér í götuna. Þetta gerðist mjög snöggt. Ég staulaðist á fætur og ætlaði að ganga að bíl Jóhanns en þá elti mað- urinn mig og sveiflaði mér snögg- lega upp að húsvegg. í þeim svifum kom Jóhann út úr bílnum og maö- urinn hljóp i burtu.“ Brotinn, bólginn og óvinnufær „Þegar lögreglan kom á vettvang var ég blóðugur og orðinn bólginn á hendinni og skrámaður á fæti. Á slysadeildinni kom síðan í ljós um kvöldið að ég hafði rifbeinsbrotnað og líkur eru á að ég sé líka handar- brotinn. Ég verð óvinnufær næstu vikumar," sagði Páll.“ Þetta er í þriðja skipti á tæpu ári sem Páll verður fyrir árás í starfi. Jóhann Dagur kveðst einnig hafa ít- rekað orðið fyrir árás. „Fyrir tæpu ári var ráðist á mig á bOaplani skammt frá Ráðhúsinu. Ég var við eftirlit og maður sem hafði fengið miða frá öðrum stöðumæla- verði réðst á mig og henti mér á göt- una. Ég marðist þá á öxl og brjóst- kassa. í febrúar var ég síðan að leggja sektarmiða á bíl i Bankastræti. Ég var þá dreginn inn í Þingholtsstræt- ið og skellt upp að vegg og haft í hót- unum við mig,“ segir Páll. Oröinn haröur heimur Aðspurðir hvort þeir telji að flkniefnaneytendur hafi ráðist á þá á föstudag segja stöðumælaverðim- ir að svo sé alls ekki. „Heimurinn er bara orðinn svona harður," segir Páll. „Aldurshópurinn frá 17 ára upp í þrítugt er orðinn miklu harð- ari en áður var. Við vitum líka til þess að reynt hafi verið að aka stöðumælavörð, stúlku, niður og munaði litlu að illa færi því hún var með far eftir hliðarspegil á bakinu á eftir.“ „Spumingin er nú, hvar stöndum við í svona málurn?" segir Jóhann Dagur. „Við erum alveg vamarlaus- ir og megum ekki verja okkur og í raun ekki svara fyrir okkur heldur. Við munum ræða þetta við yfír- menn okkar á morgun (í dag) enda getum við ekki sætt okkur við þetta hlutskipti.“ Vitneskja liggur fyrir um hver það var sem rifbeinsbraut Pál og veitti honum áverkana á hendi og upphandlegg. Þeir Jóhann Dagur munu mæta hjá lögreglunni í dag og leggja fram formlega kæru. -Ótt Þrír menn voru handteknir vió Austurberg í Breiöholti á föstudagskvöldiö þar sem þeir voru aö selja landa i bíl sínum. Hér er veriö aö leiöa mennina í lögreglu- bíl. Mikiö magn af landa fannst í farangursgeymslunni I bíl þeirra. DV-mynd S Danir fýrir utan gráa svæðið Þrátt fyrir yfirlýsingar í dönsk- um fjölmiðlum fóm engin dönsk loðnuskip inn fyrir íslensku fisk- veiðilögsöguna norður af Kolbeins- ey í gær. Áhöfn TF-LÍF, þyrlu Land- helgisgæslunnar, sá hins vegar til fimm danskra loðnuskipa en þau voru öll utan svæðisins. Samkvæmt upplýsingum DV í gærkvöld var ekkert sem benti sér- staklega til að skipin færu inn fyrir lögsöguna en viðræður íslenskra og danskra stjórnvalda verður um mál- ið á morgun, þriðjudag. í samningi um loðnustofninn milli íslands, Gænlands og Jan Mayen eru grænlenskum, norskum og færeyskum fiskiskipum heimil- aðar veiðar með vissum takmörkun- um í íslenskri lögsögu. Fiskiskipum annarra þjóða, þar á meðal dönsk- um skipum, hafa ekki verið heimil- aðar veiðar innan íslensku lögsög- unnar. Niels Helveg Petersen, utanríkis- ráðherra Dana, hefur sagt að sam- kvæmt samkomulagi Dana og ís- lendinga frá 1988 megi íslensk varð- skip ekki taka dönsk skip að veið- um á þessu svæði. íslensk stjómvöld hafa haldið því fram að í samkomulaginu frá 1988, sem Danir hafa vísað til, felist eng- in viðurkenning á rétti Dana til veiða á hinu umdeilda svæði norður af Kolbeinsey, heldur ekki að ís- lensk varðskip geti ekki tekið dönsk skip að veiðum á svæðinu. Hins vegar segjast íslensk stjómvöld virða það ákvæði í samningnum að tilkynna dönskum stjórnvöldum áður en gripið verður til aðgerða gegn dönskum fiskiskipum á svæð- inu. -S.dórAÓtt - sjá nánar bls. 8. Þú getur svarað þessari spurningu meö því aö hringja í sima 9041600. 39,90 kr. mlnútan Já l IWB ViH þú Guðmund Áma Stefánsson sem bæjarstjóra Hafnarfjarðar? j rödd FOLKSINS 904 1600 Aðstoðarlandlæknir um ástand heilsugæslumála í landinu: Hættan eykst eftir því sem tíminn líður - heimilislæknar flykkjast á fund í Reykjavík „Það skapast auðvitað gífurléga alvarlegt ástand ef þeir sem em mjög veikir, eða verða bráðveikir, ná ekki í lækni. Það getur verið lífs- hættulegt fyrir þann einstakling og hættan eykst eftir því sem líður á. Sérstaklega ef deilan harðnar og menn fara í burtu af stöðunum," sagði Matthías Halldórsson aðstoð- arlandlæknir í samtali við DV. Heimilislæknar flykkjast nú til Reykjavíkur til að funda síðdegis í dag á sérstökum landsfundi sem þeir báðu sjálfir um að yrði hald- inn. Þar er meiningin að ræða stöðu mála, þ.e. þá staðreynd að flestir þeirra hafa sagt upp störfum og hvað taki við í framhaldi af því. Á meðan em allflestar heilsugæslu- stöðvar landsins ómannaðar lækn- um og ástandið því mjög alvarlegt. „Það er allt gott að frétta héðan úr Smugunni og veiðin er heldur betur að glæðast. Menn eru nú al- veg í skýjunum eftir frekar dapurt tímabil og það er bjart fram undan,“ sagði Kristinn Gestsson, skipstjóri á Snorra Sturlusyni, við DV í gær en skipið kom 1 Smuguna i fyrradag. Þar eru nú um 30 skip og hefur veiði gengið vel síðustu daga. „Það er nóg af fiski hér núna og okkur hefur gengið vel. Skipin hafa verið að hífa 10-20 tonn af þorski í hali á frekar stuttum tíma en menn reyna að skammta sér aflann til að fá ekki of mikið. Hér eru um 30 skip og fleiri skilst mér að séu á leiðinni hingað. Sjaldnast em þau öll að í „Við ráðum ekki yfir þeim lækn- um sem búnir em að segja upp stöð- um sínum, þeir em frjálsir ferða sinna. En það em hins vegar ein- dregin tilmæli frá landlækni að þeir haldi sig heima í héraði. Menn verða svo að meta það sjálfir hvað þeir gera,“ sagði Matthías. Aðspurður sagði hann að um níu læknar væru nú starfandi á Reykja- víkursvæðinu sem ekki hefðu sagt upp störfum, og nokkir úti á landi. „Þeir hafa verið undir gífurlegu álagi og staðið sig mjög vel. Þeir sem eru starfandi við sjúkrahúsin og eru jafhframt heilsugæslulæknar verða náttúrlega að sinna þeim störfum sem þeim em ætluð við sjúkrahúsin og verða þ.a.l. heima,“ sagði Matthías. Alls em það í kringum 10-20 einu því það kastar enginn aftur fyrr en menn em famir að sjá fyrir endann á þeim afla sem inn er kom- inn. Þetta er stór og góður fiskur og mun betri en á sama tíma undanfar- in ár. Hér er blíðskaparveður dag eftir dag og spáin er góð áfram. Við höfum séð norsku strandgæsluna fylgjast meö okkur í fjarlægð en hún getur ekkert skipt sér af okkur því við erum löglegir. Við erum al- veg við norsku línuna og örlítið inni í Smugunni. Við mættum vera lengra inni í henni en við því er ekkert að gera. Við kvörtum alla vega ekki eins og staðan er núna,“ sagöi Kristinn enn fremur. -RR læknar sem ekki hafa sagt upp stöð- um sínum þannig að langflestar stöðumar era nú lausar. „Það er undir stjórn hverrar heilsugæslu- stöðvar komið hvort stöðurnar verði auglýstar lausar, væntanlega samkvæmt leiðbeiningum frá ráðu- neytinu. Sjálfsagt þarf að auglýsa þessar stöður hvort sem er, bara formsins vegna,“ sagði Matthías. „Eg hef nú ekki trú á því að það séu mjög margir sem sæki um þessar stöður, sérstaklega ekki þeim sem brennur mest á úti á landi," bætti hann við. -ingo Stuttar fréttir íslendingur til Bosníu Eva Klonowski er á leið til Bosn- íu til að stjórna uppgrefti úr fjöl- dagröfum þar. Búist er við að erfitt verði að bera kennsl á líkin. RÚV sagði frá. Mannerföafræðistofa Bandarískir fjárfestar hafa ákveðið að leggja um 700 milljónir króna í rannsóknarstofu í mann- erfðafræðum hér á landi. Þegar er búið að ráða nokkra starfsmenn og leigja húsnæði. Stöð 2 sagði frá. Biskup íslands braut lög Dóms- og kirkjumálaráðuneytið segir biskup íslands ekki hafa far- ið að lögum vegna umsóknar guð- fræðings um embætti. RÚV sagði frá. Klakkur á leið heim Togarinn Klakkur er fyrstur ís- lensku skipanna á leið heim úr Smugunni með fúUfermi, um 130 tonn af fiski. Sjónvarpið sagði frá. -ilk Góð veiði í Smugunni: Menn alveg í skýjunum - segir Kristinn Gestsson skipstjóri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.