Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1996, Síða 12
12
MÁNUDAGUR 12. ÁGÚST 1996
Spurningin
Hvaða land utan íslands
finnst þér áhugaverðast?
Sigríður Guðmundsdóttir lag-
ermaður: Italía.
Kristjana Guðmundsdóttir ritari:
Þessa stundina er það Norður-Nor-
egur þvi þar býr dóttir mín.
Ólafur Lárusson kennari: Grikk-
land.
Magnea Hjálmarsdóttir: Spánn.
Hjálmar Þór Amarsson: Ítalía, ég
held alltaf með þeim.
Guðný Leifsdóttir, heimavinn-
andi: Spánn vegna sólarinnar og
hitans.
Lesendur
Launþegafélögin
óvirk og gagnslaus
- burt meö forystumennina
Þingfulltrúar ASI bera fram mótmæli viö Alþingi. - Sýndarmennska foryst-
unnar til að halda völdum?
Magnús Magnússon skrifar:
Hver trúir því að forystumenn
launþegafélaganna á íslandi geti
orðið að liði eftir það sem á undan
er gengið? Hvers vegna hafa for-
ystumenn launþegafélaganna ekki
verið fordæmdir fyrir að semja svo
hrapallega af sér fyrir hönd skjól-
stæðinga sinna sem raun ber vitni?
Að semja um afnám vísitölubind-
ingar launa en láta verðtryggingu á
langtímalán afskiptalausa er ekkert
annað en svik við launþegana. í
besta falli óafsakanlegur fábjána-
háttur. Og nú eigum við að bíða til
áramóta eftir hugsanlegum nýjum
samningum. Og auðvitað bara hugs-
anlegum. Því hver trúir þvi að þeir
sömu menn og nú eru í forsvari fyr-
ir launþegum geti samið um eitt eða
annað?
Á síðasta þingi Alþýðusambands
íslands, sem allir eru nú sammála
um að hafi verið marklaus skvald-
urssamkoma, urðu mikil átök við
kjör í valdastöður. Þar fór t.d. Versl-
unarmannafélag Reykjavíkur hall-
oka. En VR greiðir nú um 60 millj-
ónir króna til ASÍ á kjörtímabili.
Samstaða innan ASÍ er í raun
minni en engin. Og enn hefur engin
skýr afstaða verið tekin um það
hvernig eða um hvað eigi að semja
i áramótasamningum við vinnuveit-
endur. - Aðeins klifað á því jafna
verði kjörin og bæta stöðu láglauna-
fólks! Hversu oft höfum við ekki
heyrt þessi slagorð? Eða hvers
vegna ættum við að trúa því nú að
einhverjir ASÍ-samningamenn geti
tryggt að forsendur samninga verði
með þeim hætti að þeim megi segja
upp ef markmið þeirra nást ekki?
Það var ekki gert síðast og verður
eflaust heldur ekki nú. - Ekki með
núverandi forsustumönnum.
Forystumenn launþegasamtak-
anna hafa farið fyrir hópi þingfull-
trúa á ASÍ-þingi og mótmælt fyrir
framan Alþingi. Allt sýndar-
mennska sem er liður í því að halda
forystunni meira og minna
óbreyttri. Sannleikurinn er bitur.
Hann er sá að launþegar hafa verið
blekktir árum saman og þær blekk-
ingar virðast engan endi ætla að
taka.
Síðasta
„embættisverkið"?
Helgi Kristjánsson skrifar:
Mikið bar á því við forsetaskiptin
að fjölmiðlar tíunduðu hve vel væri
við hæfl að síðasta „embættisverk"
frú Vigdísar sem forseta íslands
væri að afhenda skógræktarfólki
fjárupphæð sem það hafði sjálft safn-
að til stofnunar Fræbanka íslands.
Hér er á ferðinni enn einn mis-
skilningurinn um embætti forseta ís-
lands. Þessi afhending er alls ekkert
embættisverk forsetans. Embættis-
verk forseta vinnur hann öll á
ábyrgð ráðherra. Þau eru talin upp í
stjómarskrá og eru ekki fleiri en þar
greinir.
Það er ekki „embættisverk“ forseta
íslands þótt einkaaðilar úti í bæ fái
forseta til að mæta hér og þar, segja
nokkur orð við opnun málverkasýn-
ingar, taka við eintaki af nýútko-
minni bók (sem fær þar með margra
mínútna auglýsingu í fréttatíma
sjónvarpsstöðvanna) eða að ræsa
þátttakendur í viðavangshlaupum. -
Allt þetta eru atburðir sem koma
embættisskyldum forseta íslands
ekkert við.
Það hefur aukist mjög upp á sið-
kastið að þjóðhöfðinginn taki slík
verk að sér og er víst ekkert við því
að gera. Bendir margt til þess að
þetta muni stóraukast nú á næst-
unni. Þetta eru hins vegar sjálfstæö-
ir atburðir sem sú persóna sem gegn-
ir forsetaembætti hverju sinni
ákveður að leggja nafn sitt við en
eru alls ekki embættisverk forseta
íslands.
Skerðing tryggingabótanna
- vinnubrögðin vekja fyrirlitningu
Steinar Guðjónsson skrifar:
Sem kjósandi núverandi ríkis-
stjómar er ég mjög hneykslaður að
taka á móti bréfl eins og því er ég
fékk í byijun júlí sl. frá Trygginga-
stofnun rikisins. En í því bréfi er
mér tilkynnt um stórfellda skerð-
ingu á tryggingabótum mínum, frá
og með 1. ágúst síðastliðnum að
telja.
Vart þarf að taka fram að núver-
andi heilbrigðisráðherra muni vera
frumkvöðull að þessum aðgerðum,
ásamt meðreiðarsveinum sínum í
núverandi ríkisstjórn. Ég tel það í
QJ§[DÖ[M þjónusta
allan sólarhringinn ^
- eða hringið í síma
1^650 5000
rvíilli kl. 14 og 16
hæsta máta lágkúrulegt að ráðast á
garðinn þar sem hann er lægstur
með þessum hætti og í skjóli þess að
viðkomandi aðilar hafa ekki bol-
magn til að bera hönd fyrir höfuð
sér.
Á meðan ég taldist fullgildur á
vinnumarkaði skapaði ég mér all-
góð lífeyrissjóðsréttindi og fyrir það
verð ég nú að gjalda. En ég varð
skyndilega meira en 75% öryrki,
m.a. vegna vinnuslyss.
Ég hélt satt að segja að nóg hefði
verið komið af skerðingarákvæðum
á tryggingabætur áður en núver-
andi ríkisstjórn íhalds og Fram-
sóknar settist að völdum. Töluðu
enda „sumir“ í öðrum dúr fyrir síð-
ustu kosningar varðandi þessi mál
og lýstu eðlilega hneykslun sinni á
vinnubrögðum fyrirrennara sinna.
Nú hefur reynslan orðið önnur. Það
er því ljóst að orð og athafnir fara
ekki alltaf saman hjá núverandi
stjórnendum þessara mála og finna
nú hvergi fjármuni nema hjá þeim
sem minnstu hafa úr að spila.
Ég vil lýsa fyrirlitningu minni á
svona vinnubrögðum enda dæma
þau sig sjálf. - Verst af öllu er að
þurfa að sætta sig við það að hafa
látið blekkjast af fagurgalanum fyr-
Finnast nú ekki fjármunir nema hjá
þeim er minnstu hafa úr að spila,
eldra fóiki og lífeyrisþegum?
ir síðustu kosningar og þurfa að
bíta í það súra epli að hafa greitt at-
kvæði gegn eigin hagsmunum.
I>v
Hvar voru
prestarnir?
Sigurjón Jónsson skrifar:
Ég er undrandi á fjölmiðlum
sem fjalla um útihátíðirnar og
furða sig á afskiptaleysi hinna
fullorðnu, að þeir skuli ekki
spyrja t.d. prestana hvar þeir
hafi verið. Á það ekki að vera
hlutverk þeirra að vera á meðal
fólksins? Var hér ekki verk að
vinna fyrir þá? Ég man þá tið
þegar séra Árelíus Nielsson tíðk-
aði að ganga á milli veitingahús-
anna, fara inn á barina og taka
menn sem voru illa á sig komnir
tali og hafa forgöngu um að
koma þeim í húsaskjól, ýmist til
síns heima eða annars staöar,
t.d. á góðgerðarstofnunum. Þetta
er liðin tíð. Prestar hafa víst öðr-
um hnöppum að hneppa, hjá sér
eða á öðrum.
Er VR stein-
dautt?
Kristinn Sigurðsson skrifar:
Ég er gáttaður á því að á sjálf-
an frídag verslunarmanna gátu
sumar verslanir auglýst grimmt
að það væri opið til 22 eða 23 að
kvöldinu. VR gerir ekkert þótt
þessi frídagur verslunarmanna
sé smánaður með þessum hætti.
Fólk sem vinnur á svokölluðum
svertingjalaunum er látið vinna
allt til kl. 23 öU kvöld og VR ger-
ir ekkert til að stöðva ósómann.
Hvað þarf tU að vekja VR til lífs-
ins?
Bakarar stóðu
sig illa
Halldóra sknfar:
Mér fannst bakarastéttin
standa sig frámunalega Ula yfir
verslunarmannahelgina. Þeir
lokuðu allflestir 2 daga í röð
(sunnudag og mánudag), sumir á
laugardaginn líka. Aðeins eitt
bakarí fann ég opið á sunnudeg-
inum, vestur i JL-húsinu. í ein-
hveiju dagblaði sá ég Bakaríið i
Suðurveri auglýst opið frá kl.
10-16 á sunnudeginum. En þar
var líka harðlokað. Þetta er auð-
vitað engin þjónusta við almenn-
ing hér í borginni. En bakarar
hafa sína hentisemi, kúnninn
skiptir ekki neinu máli lengur. -
Og bakarísvörum fer sífeUt hrak-
andi.
Vilja Svíar
borga meira?
Hallgrimur Hallgrímsson
skrifar:
Ég las frétt um þaö í Morgun-
blaðinu að nú vUdu Svíar borga
meira tU þess að fá betri heU-
brigðisþjónustu. Jæja, segi ég nú
bara - á þetta nú að hrífa á ís-
landi? Á nú að gera tilraun til að
sætta okkur við enn meiri skatta
tU að heUbrigðiskerfið fái enn
eina innspýtingu og allir haldi
vinnu sinni, t.d. á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur? Svona nokkuö er
stundum reynt: að vitna í aðrar
þjóðir og segja að þar hafi þetta
eða hitt gefist vel. Ég neita hins
vegar alfarið að greiða krónu
meira tU heUbrigðismálanna
hér, þau eru komin úr böndun-
um og nú er aðeins eitt ráð eftir
- sparnaöur, og hann öflugur.
Nýjan formann
Alþýðu-
bandalags
Guðjón hringdi:
Ég er þess fuUviss að flokkur-
inn minn, Alþýðubandalagið,
nær sér ekki verulega upp úr
öldudalnum fyrr en sterkur for-
maður tekur við stjórn hans. Ég
veðja á Kristin H. Gunnarsson
alþm. sem næsta formann og
hann þyrfti helst aö taka við sem
fyrst. Kosningar kunna að verða
boðaðar fyrr en menn ætluðu og
þá er ekki gott að vera með hlut-
lausan eða atkvæðalítinn for-
mann.