Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1996, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1996, Blaðsíða 18
18 MÁNUDAGUR 12. ÁGÚST 1996 Fréttir JDV Umferöarlögin mismuna fólki og eru hagstæöari þeim sem eru undir 17 ára aldri: Að aka réttindalaus þarf ekki að hafa áhrif á bílpróf - auövitaö spurningarmerki hvort breyta á lögunum, segir lögfræöingur lögreglustjóra Unglingur sem ekur bíl réttinda- laus og fær fyrir það dóm getur tek- ið bílpróf, svo framarlega sem „öku- leyfissvipting", sem hann fær hjá dómara, verður runnin út þegar hann verður 17 ára. Með öðrum orð- um þá þarf ökuprófsleyfið ekki að frestast þrátt fyrir brotið sem hann framdi. Sturla Þórðarson, lögfræðingur hjá Lögreglunni I Reykjavík, sagði í samtali við DV að það væri „auðvit- að spurningarmerki" hvort það myndi fæla ungt og reynslulaust fólk frá því að aka áður en það öðl- aðist ökuréttindi ef lögunum yrði breytt. Þann 1. apríl voru billyklarnir í kveikjulásnum í ólæstum bíl við Grófarsel í Breiðholti. 15 ára piltur, íbúi á Hellu, tók bílinn þá trausta- taki og ók honum að Eddufelli þar sem lögreglan reyndi að stöðva hann. Pilturinn sinnti því ekki og ók á ofsahraða að Vesturbergi þar sem hann reyndi að komast undan á hlaupum en lögreglan náði honum. Málið var síðan dæmt hjá Héraðs- dómi Suðurlands þann 3. júlí. Þá voru 5 dagar þar til pilturinn yrði 16 ára og rúmt ár þar til hann gæti öðlast ökuréttindi. Niðurstaða dómsins var sú, samkvæmt þeim lögum sem gilda, að pilturinn var dæmdur til að greiða 25 þúsund króna sekt í ríkissjóð og var síðan sviptur ökuréttindum í 6 mánuði samkvæmt 101. grein umferðarlaga. Dómurinn sem er alls ekkert einsdæmi, að sögn Sturlu, þýðir því að umrædd ökuleyfissvipting renn- ur út um hálfu ári áður en pilturinn verður 17 ára. Sturla sagði í samtali við DV að samkvæmt lögunum væru ekki efni til að fresta öku- prófsleyfi þeirra sem fremja hlið- stæð brot. Ef hins vegar hefðu verið tveir mánuðir þangað til pilturinn hefði orðið 17 ára hefði ökuleyfis- sviptingin runnið út er hann yrði 17 ára og 4ra mánaða - þá fyrst hefði hann leyfi til að taka bílpróf. Sturla benti hins vegar á að 16 ára unglingur gæti haft próf á skellinöðru eða minni vél og yrði samkvæmt framansögðu því sviptur 50 milljónir í Faxabryggju DV, Akraneai: Þessa dagana er unnið hörð- um höndum við framkvæmdir á Faxabryggju á Akranesi. Verið er að setja niður stálþil og stækka bryggjuna með uppfyll- ingu og endumýja. Þetta eru framkvæmdir upp á um 50 millj- ónir króna og er það Skóflan hf. á Akranesi sem vinnur verkið. Að sögn Jóns Pálma Pálmason- ar, starfandi bæjarstjóra, er með þessum aðgerðum verið að end- urnýja löndunaraðstöðuna fyrir Sementsverksmiðjuna því bryggj- an var orðin léleg. Einnig er gert ráð fyrir að með þessum fram- kvæmdum muni aðstaðan við Faxabryggju og i höfninni lagast, bryggjan stækkuð og með því skapast betra viðlegurými. -DVÓ Csipmaj RÚLLUBINDIVÉL KR. 829.000,- KORNVALS KR. 165.000,- AFRÚLLARI KR. 89.000,- Hilmir ST 1 veröur geröur upp sem safngripur. DV-mynd Guöfinnur Byggðasafn Stranda- og Húnavatnssýslna: Oskað eftir endurskoð- un á stofnsamningi SLAM DISKASLÁTTUVÉL KR. 279.000,- HEYÞYRLA KR. 232.000,- STJÖRNUMÚGAVÉL KR. 186.000,- Hjólamúgvél kr. 93.500,- Sturtuvagn 8t. kr. 425.000,- FRAMBEISLI frá KR. 180.000,- DV, Hólmavík: Úrbætur í samgöngumálum, átak í ferðamálum ásamt betri merkingu leiða inn í sýsluna og innan hennar og menningarveisla þessa sumars voru meðal viðfangsefna aðalfundar héraðsnefndar Strandasýslu sem haldinn var nýlega á Café Riis á Hólmavík. Á aðalfundi sýslunefndar Strandasýslu 1958 er fyrst fjallað um stofnun byggðasafns Húnavatns- sýslna og Strandasýslu þegar erindi þess efnis berst frá Átthagafélagi Strandamanna og Húnvetningafé- laginu í Reykjavik. Fyrsta fjárveit- ingin var af hendi reidd ári síðar eða 1959, kr. 1.000 (eitt þúsund) en safninu var komið á fót stuttu síðar með mikilli söfnun muna í sýslun- um þremur. Frá 1959 hafa verulegir fjármunir verið veittir til byggða- safnsins á Reykjum við Hrútafjörð. Staðsetning safnsins hefur nær alla tíð átt sér andmælendur nokkra, sem telja að varðveisla muna úr Strandasýslu verði að gjalda fyrir verustað safnsins. Víst er að á mörgum undanförn- um árum hefur lítil sem engin söfn- un eða varðveisla muna farið fram í Strandasýslu og þar með er þeirri hættu boðið heim að á seinni tímum kunni að vanta kafla í byggða-, at- vinnu- og menningarsögu hennar. Á síðasta aðalfundi héraðsnefnd- ar var óskað eftir endurskoðun á stofnsamningi Byggðasafnsins. Síð- an þá hefur það gerst að eitt elsta skip íslenska flotans, sem var með gilt haffærisskírteini til skamms tíma, Hilmir ST 1, hefur verið tekið á land og bíður þess að verða gert upp sem safngripur en byggðasafnið hefúr á hendi faglega umsjón með varðveislu skipsins. Margra von er að hér sé farið af stað með minja- vörslu sem færa kann út kvíarnar á komandi árum. Af þeirri ástæðu meðal annars var ekki orðið við 50% hækkunarbeiðni frá stjórn byggðasafnsins að Reykjum en framlag héraðsnefndarinnar fyrir þetta ár verður 350.000 en aðeins eitt verkefni fékk hærri fjárveitingu að þessu sinni frá héraðsnefnd. 9 0 4 • 5 0 0 0 Verð aðeins 39,90 mín. * réttindum til að aka slíkum tækjum eða öðlast réttindi á þau með prófi. Hann benti jafnframt á að sam- kvæmt þessu kæmi það í raun verr út fyrir þá sem eldri eru en 17 ára, hvort sem þeir eru með ökuréttindi eða ekki, að vera sviptir ökuréttind- um. Þeir sem hafa prófið missa það vissulega en þeir sem ekki hafa það verða að biða jafn lengi og „ökuleyf- issviptingin" kveður á um með að taka bílpróf. -Ótt Sementsverksmiðj an: Ágóði af sölunni fari í að bæta at- vinnulif á Akranesi DV, Akranesi: Guðmundur Vésteinsson, full- trúi Alþýðuflokksins í bæjarráði Akraness, hefur lagt fram tillögu í bæjarráði í kjölfar þess að iðn- aðarráðherra hefur staðfest að undirbúningur fari fram á veg- um stjómvalda að selja hlutafé í Sementsverksmiðjunni hf. Komi til sölu ríkisins á hluta- fénu er það skýlaus grundvallar- krafa, segir í tillögu Guðmundar, að fullkomlega verði fyrir því séð að rekstur hennar verði tryggöur til frambúðar að öllu leyti. Inntaki samninga og kvaða er varða skyldur verksmiðjunn- ar gagnvart umhverfi og bæjar- félagi svo og starfsfólki verði í engu haggað án samkomulags viö viðkomandi aðila þar um. Akraneskaupstaö og öðrum aðilum verði veittar allar tiltæk- ar upplýsingar um framvindu þess. Fullt samráð verði við þá haft og þeim veitt tækifæri til að tjá sjónarmið sín og skoðanir. Á sínum tíma lagði Akraneskaup- staður fram án endurgjalds verð- mæt landsvæði og aðra aðstöðu til að greiða fyrir uppbyggingu og rekstri Sementsverksmiðj- unnar á Akranesi. Því telur bæjarráð ástæðu til þess að tilteknum hluta af vænt- anlegu söluandvirði hlutafjár Sementsverksmiðjunnar verði varið til aðgerða sem að gagni mega koma til að efla atvinnulíf, þjónustustarfsemi og bæta sam- göngur í þágu Akraness og ná- grannabyggða. Tillögunni var vísað til umfjöllunar í atvinnu- málanefnd Akraneskaupstaðar. -DVÓ Þú þarft aðeins eitt símtal í Lottósíma DV til að fá nýjustu tölur í Lottó 5/38, Víkingalottó og Kínó ? 9 0 4 - 5 0 0 0 Nytt handverkshus á Sólheimum Verið er að reisa nýtt handverks- húsi, Ingústofu á Sólheimum í Grímsnesi. Húsið er nefnt eftir Ingu B. Jóhannsdóttur sem verið hefur ötull stuðningsmaður Sólheima, en hún tók fyrstu skóflustunguna fyrir skömmu. I nýja handverkshúsinu verða vefstofa, listasmiðja, leirbrennsla og vinnsla jurta. Ingustofa verður 407 fermetrar að grunnfleti og annað tveggja handverkshúsa fyrir at- vinnu fatlaðra á Sólheimum. Á síðasta ári var lokið við bygg- ingu Ólasmiðju en þar er m.a. kerta- gerð og trésmiðja. Áætlaður bygg- ingatími er fjögur ár og stefnt að því að húsið verði tilbúið 5. júlí árið 2000, en þá verða liðin 70 ár frá stofnun Sólheima. Arkitekt Ingu- stofu er Árni Friðriksson en þetta er ellefta húsið sem hann hannar á Sólheimum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.