Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1996, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996
Fréttir
Mikið af kannabisefnum hefur fundist að undanförnu:
Mikið í umferð og
vaxandi neysla
- segir Gissur Guðmundsson rannsóknarlögreglumaður
„Við höfum orðið varir við mikið
magn í umferð og siðan segja okkur
neytendur að kannabis sé mikið í
umferð og að neyslan sé vaxandi i
landinu," segir Gissur Guðmunds-
son, rannsóknarlögreglumaður í
Hafnarfirði. Eins DV sagði frá í
blaðinu í gær fann fikniefnalögregl-
an í Reykjavík um 30 kannabis-
plöntur og um 3 kg af þurrkaðri og
mulinni plöntu, þ.e. marijúana, í
tveimur húsleitum í Reykjavik á
föstudag. Á sunnudaginn var lög-
reglunni í Hafnarfiröi síðan bent á
tæplega 200 kannabisplöntur sem
voru í ræktun í kirkjugarðinum í
Hafnarfirði. Fyrir skömmu birit DV
mynd sem tekin var við Strandgöt-
una i Hafnarfirði en þar stóð vegleg
kannabisplanta upp úr moldinni
innan um stjúpumar.
Rannsókn þessara mála, i Reykja-
vík og í Hafnarfirði, er í fullum
gangi og að sögn Gissurar Guð-
mundssonar hefur töluvert af upp-
í kirkjugarðinum í Hafnarfirði voru hátt í 200 kannabisplöntur á
niu leiöum. Þykir lögreglunni sem menn séu farnir að ganga
heldur langt í ösómanum þegar leiði í kirkjugaröi fá ekki að
vera í friöi. Myndin er tekin af einu leiðanna. Minni myndin er af
kannabisbúnti sem sent var fíkniefnalögreglunni í Reykjavík til
greiningar. DV-myndir S
-sv
lýsingum borist frá fólki um fund-
inn í kirkjugarðinum. Fólk telji sig
eftir á að hyggja hafa orðið vart við
einkennilegar mannaferðir á staðn-
um og lét því lögregluna vita nú.
Menn hafa ekki vitað til þess
áður að kannabisplantan yxi úti
undir berum himni hér á landi og
segir Gissur að því miður sé litlum
vandkvæðum bundið að ná sér í
fræ.
Ellefu skip
vegna herfor-
ingjaráðstefnu
í gær sigldu inn sundið úti fyrir
Reykjavík herskip Nató og lögðust
að bryggju í Sundahöfn og Reykja-
vikurhöfn. Ástæða heimsóknarinnar
er viðamikil heræfing sem mun
verða haldin á Norður-Atlantshafi að
lokinni foringjaráðstefnu sem haldin
verður hér á landi. Þegar mest verð-
ur verða hér ellefu skip, sex frá
Bandaríkjunum, fjögur frá Kanada
og sitt hvort skipiö frá Ítalíu og
Spáni. íslendingar hafa ekki áður
tekið á móti svona mörgum skipum.
Heimsóknin tengist ekki heim-
sókn skipa úr fastaflota Atlantshafs-
bandalagsins. Þá var um einfalda
kurteisisheimsókn að ræða sem ís-
lendingar þekkja, síðast frá árinu
1990. Samkvæmt upplýsingum frá
Þórði Ingva Guðmundssyni hjá
Vamarmálaskrifstofú utanríkisráðu-
neytisins var þess háttar heimsókn
fýrirhuguð árið 1994 en var aflýst
vegna ástandsins í Júgóslavíu.
-saa
Strákarnir á bryggjusporöinum láta sér ekki bregða þótt nokkur herskip sæki þá heim. Dorgið heldur áfram aö venju
þrátt fyrir mikla umferö dáta um „athafnasvæði” strákanna. DV-mynd BG
Formaður allsherjarnefndar um að veita asískum brotamanni ríkisborgararétt:
Ég vík mér ekki undan ábyrgð
„Það má kannski segja að
ákvörðunin í vor um að veita
manninum ríkisborgararétt hafi
verið heldur fljótt á ferðinni. Sjálf-
sagt hefur nefndin verið of bjart-
sýn með að hann væri búinn að ná
sér á strik eftir dóminn sem hann
fékk. Ég vík mér ekki undan
ábyrgð á þvi. Þetta var álitamál en
okkar væntingar voru ekki réttar
um manninn,” sagði Jón Kristjáns-
son, formaður allsherjarnefndar
Alþingis, aðspurður um asíska
manninn sem var veittur íslenskur
ríkisborgararéttur í vor þrátt fyrir
að hann væri þá og sé enn á
reynslulausn. Manninum var
sleppt úr fangelsi fyrir áramót eft-
ir afplánun dóms fyrir að hafa
veitt manni lífshættulega hnifs-
tungu í Lækjargötu.
„Þetta er á okkar ábyrð og vænt-
ingar okkar hafa ekki staðist, þvi
miður. En maðurinn er hér í land-
inu og ég reikna ekki með að hægt
sé að gera neitt í þessu máli. Úr
því sem komið er hefur hann rétt-
indi og skyldur eins og aðrir ís-
lenskir ríkisborgarar," sagði Jón.
Samkvæmt upplýsingum DV er
farið eftir lögum um veitingu is-
lensks ríkisborgararéttar þegar af-
greiðslur á umsóknum um ríkis-
borgararétt fara fram. Þeim var
breytt með lögum árið 1982. Árið
1955 voru hins vegar settar reglur
af nefnd Alþingis en þeim var síð-
ast breytt tvisvar, síðast árið 1990.
Þannig hefur þingið mótað sér
ólögbundnar reglur og hefur það
því í raun óbundnar hendur um
veitingu ríkisborgararéttar. Engu
að síður kveða reglurnar m.a. á um
að umsækjendur skuli hafa óflekk-
að mannorð.
Aðspuröur hvort það hefði ekki
verið mistök í ljósi þessa að veita
umræddum Asíumanni ríkisborg-
ararétt, sem þegar var orðinn
dæmdur afbrotamaður, sagði Jón
Kristjánsson að ákvörðunin í vor
hefði greinilega verið of fljótt á
ferðinni.
DV ræddi i gær við manninn
sem kærði fjóra menn, þ. á m.
framangreindan mann, til lögreglu
fyrir skemmdarverk og að hafa elt
hann með hnífa fyrr í mánuðinum.
Hann sagöi konu sína hafa dvalist
í Kvennaathvarfinu með þrjú börn
þeirra undanfarið - hann hefur
dvalist annars staðar. Nú muni
þau hins vegar reyna að snúa aftur
til eðlilegs lífs eftir að hafa verið í
felum á aðra viku. Hjá lögreglu var
ekkert að frétta af málinu í gær
annað en að það og fleiri kærumál
á sömu menn væru enn í rann-
sókn.
-Ótt
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 9041600.
39,90 kr. mínútan
Ji 1 Nel 2
j rödd
FOLKSINS
904 1600
Á að nota „góðærisgróðann“
til að greiða niður skuldir?
Ólympíuleikar:
Frábær
árangur
DV, Suðurnesjum:
„Þama vomm við ásamt 3.500
öðrum keppendum og sumar þjóð-
ir voru með allt að 300 keppendur
í sínum hópi. Okkar fólk var því
að ná frábæram árangri, ýmist að
bæta heimsmet, ólympíumet eða
íslandsmet í öllum þeim greinum
sem það keppti í,“ segir Sveinn
Áki Lúðvíksson, aðalfararstjóri
íslensku íþróttamannanna á
ólympíuleikum fatlaðra. Hópur-
inn kom heim frá Atlanta klukk-
an 6 í morgun með 14 verðlauna-
peninga; 5 gull, 4 brons og 5 silfur.
Forseti íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, tók á móti hópnum í
Leifsstöð ásamt Bimi Bjarnasyni
menntamálaráðherra og hrósuöu
þeir keppendum fyrir frammi-
stöðuna.
-ÆMK/-SV
Stuttar fréttir
Úttekt á dýralæknum
Dýralæknafélag íslands vill að
Ríkisendurskoðun eða óháð ráð-
gjafarfyrirtæki taki út starfsemi
Yfirdýralæknisembættisins og
héraðsdýralækna.
Lýst eftir blóögjöfum
Fjöratíu blóðgjafar af fimm
hundruð, sem Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri kallaði í
mótefnamælingu eftir að í ljós
kom að próf á mótefni gegn al-
næmisveirunni var óáreiðanegt,
hafa ekki skilað sér. Þetta kom
fram á RÚV.
Skólamenn vanhæfir?
Ekki hefur enn fengist úr þvi
skorið hvort skólamertn i sveitar-
stjómum teljast vanhæfir til að
fjalla um skólamál. Samkvæmt
RÚV vísaði félagsmálaráðuneyti
kæra frá í slíku máli.
Breytt áfylling
Breytingar verða gerðar á áfyll-
ingarbúnaði á bensínstöðinni í
Hamraborg í Kópavogi eftfr að
dísilolía flæddi þar út sl. fóstu-
dagskvöld. RÚV greindi frá
þessu.
Eftirbátur í fjármálum
Ungir sjálfstæðismenn telja
ýmis teikn á lofti um að núver-
andi ríkisstjórn ætli að vera eftir-
bátur hinnar síðustu við að ná
tökum á ríkisfjármálum. Þetta
kom fram á RÚV.
Fiskistofa varar við
Fiskistofa hefur sent út viðvar-
anir til 50 eigenda báta og skipa
sem eiga á hættu að missa veiði-
leyfi og aflahlutdeild. Samkvæmt
RÚV er ástæðan sú að viðkom-
andi hafa veitt minna en helming
úthlutaðra aflaheimilda á síðustu
tveimur fiskveiðiárum.
Friðlýstir fossar
Umhverfisráðherra hefur stað-
fest þá ákvörðun Náttúruvernd-
arráðs að friðlýsa Dettifoss, Sel-
foss og Hafragilsfoss í Jökulsá á
Fjöllum og nágrenni þeirra.
Aukin fjárhagsaðstoð
Félagsmálastofnun Reykjavík-
urborgar greiddi tæpar 700 millj-
ónir króna í fjárhagsaðstoð á síð-
asta ári. Samkvæmt RÚV jókst
aðstoðin um 26% milli ára.
Gull í Þormóðsdal
Erlendir sérfræðingar meta nú
verðmæti gulls sem grafiö hefur
verið upp í Þormóösdal undan-
farna mánuði. Samkvæmt Stöð 2
er verkefninu lokið í bili.
Stöð 2 semur
Stöð 2 hefur samið við sex stór
kvikmyndafyrirtæki um einka-
rétt á sýningum nýrra kvik-
mynda í sjónvarpi hérlendis. Þess
má geta að Stöð 2 og Bylgjan
fagna 10 ára afmæli í dag.