Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1996, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1996, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996 Fréttir Fjölbrautaskóli Vesturlands: Vantar 7,5 milljónir upp á fjárlög næsta vetrar DV, Akranesi: Á fundi skólanefndar Fjölbrauta- skóla Vesturlands á Akranesi komu fram upplýsingar um launagreiðsl- ur til skólans. Kom fram hjá skóla- meistara að miðað við reikningslík- an menntamálaráðuneytisins er ljóst að um 7.483.000 kr. vantar upp á fjárlög skólans næsta vetur. Samþykkt var að senda mennta- málaráðuneytinu bréf til að fá skýr- ingu á þessu. Launaliðurinn á Akra- nesi er jákvæður eftir siðasta vetur en í Reykholti er hann neikvæður. Skýrist það meðal annars af bið- launum Ólafs Þ. Þórðarsonar og Snorra Þ. Jóhannessonar. Sam- kvæmt heimildum DV renndu menn einnig blint í sjóinn varðandi Reykholt á síðasta vetri og varð reksturinn töluvert dýrari en menn gerðu ráð fyrir. Hólmvíkingur á leikferð DV, Hólmavík: Hólmvíkingurinn Sigurður Atla- son hyggur á leikferð með einleik- inn skoplega „Um skaðsemi áfengis- ins“ eftir Anton Tsékov um Vest- firði dagana 29. ágúst til 2. sept- ember. Sýningamar verða í Bjarka- lundi, á Tálknafirði, Bíldudal, Núpi í Dýrafirði og Bolungarvík og hefj- ast kl. 21.30. Þetta er 30 minútna kaffileikhús- sýning og verður eingöngu sýnt á kaffihúsum. Fjallar hún um lítt borubrattan, roskinn mann sem lif- ir undir miklu ofríki konu sinnar sem ráðskast með hann eftir sínum þörfum og hefur einmitt skipað hon- um að halda þennan fyrirlestur um skaðsemi áfengis. Hann reynir sitt besta en kemur sér aldrei almenni- lega að efninu sökum biturleika út i spúsu sína. -GF Skemmtiferðaskip á Djúpavogi í sumar. DV-mynd Hafdís Djúpivogur: Uppgangur í atvinnulífinu Askrifendur fá aukaafslátt af smáauglýsingum DV ****************** ol\t mil/i him/n. Smáauglýsingar 550 5000 Vinningshafar í litasamkeppni Krakkaklúbbs DV og Kjörís-hlunkanna. Verðlaunin eru glœsileg: Fimm aðalverðlaun: ísveisla, svifdiskur, púsluspil og litabók. Bryndís Þorsteinsdóttir nr. 4207 Sigríður L. Sigurbjarnadóttir nr. 8867 Helena J. Stefánsdóttir nr. 9125 Þórunn H. Þórðardóttir nr. 6635 Freydís J. Guðjónsdóttir nr. 8154 Aukaverðlaun: Allir sem senda inn fá ávísun á tvo grœna hlunka frá Kjörís. Krakkar, þátttakan var glœsileg og þakkar Krakkaklúbbur DV og Kjöris ykkur fyrir glœsilegar viðtökur. Vinningarnir verða sendir vinningshöfum í pósti nœstu daga. Umsjón Krakkaklúbbs DV: Halldóra Hauksdóttir DV, Djúpavogi: Frekar illa hefur gengið að ráða kennara að Grunnskólanum hér á Djúpavogi. Að sögn Ólafs Ragnars- sonar sveitarstjóra vantar nánast í heila stöðu en málið verður leyst með meiri kennslu þeirra sem fyrir eru og einnig munu leiðbeinendur hlaupa í skarðið. Ólafur, sem verið hefur sveitar- stjóri hér í 10 ár, hyggst taka sér ársfrí frá störfum og mun Óskar Steingrímsson taka við af honum 1. september. Óskar, sem hefur starfað á Selfossi síðustu árin, er frá Djúpa- vogi eins og Ólafur. „Það er erfitt að fara frá þessu núna þegar svo mikið los er á þess- um málum og verst þykir mér að taka einn af réttindakennurunum þurt af staðnum," sagði Ólafur. Kona hans, Freyja Friðbjarnardótt- ir, hefur kennt hér við grunnskól- ann síðastliðin ár. Þá gengur erfiðlega að fá hjúkr- unarfræðing til starfa við heilsu- gæslustöðina þrátt fyrir að stöðin sé tiltölulega ný og glæsileg og bjóði upp á góða vinnuaðstöðu. Vonast er þó til að það mál leysist. Til gamans má geta að 34% íbúa hér eru á aldrinum 0-19 ára, 59% á aldrinum 19-66 og 7% þar fyrir ofan. Verulega góð aðstaða er til allra íþróttaiðkcma, enda gengur lif fólks yfir vetrartímann út á að fara í íþróttahúsið ef frítími gefst. Næg atvinna hefúr verið hér und- anfarið og uppgangur í atvinnulíf- inu. Byrjað er að stækka fiskmjöls- verksmiðju Búlandstinds hf. -HEB Byggðasafnið að Görðum: Aldraður Akurnesingur fjármagnar endurbyggingu Sýruparts DV, Akranesi: Unnið hefur verið að endurbygg- ingu hússins Sýrupartur við byggðasafhið á Görðum á Akranesi að undanfornu en peninga hefur vantað til að halda áfram fram- kvæmdum þar. Nýlega kom Guðmundur Bjama- son á Sýrupart, en hann átti heima í húsinu áður fyrr, og ræddi við for- ráðamenn safnsins. Bauðst hann til að leggja fram 1-2 milljónir króna í vinnulaun við endurbyggingu húss- ins og setti Guðmundur það skilyrði að þessir fjármunir yrðu notaðir á þessu ári. Það verður þvi áfram unnið við endurbyggingu Sýruparts eftir þessa höfðinglegu gjöf hins aldna Akumesings. -DVÓ Innlausnarverð vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs Hinn 10. september 1996 er 22. fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs í 2. fl. B 1985. Gegn framvísun vaxtamiða nr. 22 verður frá og með 10. september nk. greitt sem hér segir: Vaxtamiði með 50.000 kr. skírteini = kr. 4.681,00 Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 10. mars 1996 til 10. september 1996 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur á lánskjaravisitölu frá grunnvísitölu skírteinanna. Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga. Innlausn vaxtamiða fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og hefst hinn 10. september 1996. Reykjavík, 28. ágúst 1996 SEÐLABANKIÍSLANDS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.