Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1996, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996
7
DV Sandkorn
Fréttir
Boð og bönn
Ríkissjónvarpið
þarf að fá leyfi
hjá KSÍ til að
senda ut leiki
frá ensku
knattspymunni
meðan knatt-
spymuvertíðin
stendur yfir
hér á landi.
Síðastliðinn
laugardag var
ekkert um að vera í íslensku knatt-
spyrnunni og hugðist RÚV vera
með beina útsendingu á leik úr
ensku knattspyrnunni. Forkólfar
KSl brugðust hart við og bönnuðu
útsendinguna á þeim forsendum að
úrslitakeppni 4. deildar væri að
hefjast þennan laugardag. Nú er
það svo að hægt er að horfa á beina
útsendingu úr ensku knattspym-
unni á annarri hverri krá á land-
inu. í hádegisútvarpinu þennan
laugardag kom frétt um að leikjum
í úrslitakeppni 4. deildar hefði verið
frestað um klukkustund frá áður
ákveðnum tíma. Gárungar segja að
þetta hafi verið gert til að leikmenn
4. deildar liðanna gætu horft á
enska boltann á einhverri krá áður
en keppni þeirra hófst.
Gleymdu ís-
lenska fánanum
Erlendir
íþróttamenn
snúa sér ævin-
lega að þjóðfána
sínum þegar
þjóðsöngur við-
komandi lands
er leikinn. Það
vakti nokkra at-
hygli fyrir bik-
arúrslitaleik ÍA
og ÍBV síðast-
liðinn sunnu-
dag að þegar ís-
lenski þjóðsöngurinn var leikinn
horfðu ailir leikmenn liðanna upp i
stúku vallarins í stað þess að snúa
sér í átt til fánaborgarinnar. Og það
vom ekki bara leikmennimir sem
gleymdu fánanum, heldur gestir í
heiðursstúkunni líka. Þeir horfðu
beint fram á völlinn i stað þess aö
snúa sér í átt að fánaborginni.
Léleg ræða
Við sögðum á
dögunum sögu
af séra
Brynjólfi á
Ólafsvöilum og
rauðum reiö-
hesti hans. Séra
Brynjólfur var
af mörgum
sagður lítill
prestur. Var
eitt sinn komið
af stað undir-
skriftasöfmm i
prestakalli
hans í því skyni að fá hann með
góðu til að láta af prestskap. Létu
helstu andstæðingar hans ekkert
tækifæri ónotað til að hrósa séra
Valdimar Briem og gera samanburð
á þeim. „Þaö væri munur að hafa
séra Valdimar fyrir prest, þann
mælskumann, heittrúaðan og stór-
skáld að auki,“ sögðu þeir. Einu
sinni hélt séra Brynjólfúr lélega
ræðu og er hann eftir messu gekk
út úr kirkjunni vom þar fyrir
nokkrar konur úr söfnuði hans og
spurði hann hvernig þeim hefði lík-
að ræðan. Þegar konumar drógu
við sig að svara honum beint sagði
hann brosandi: „Þessi var nú eftir
séra Valdimar."
Vinstra megin við
hægra lærið
Við höfum
stundum birt
hér vísur eftir
sniilinginn Egil
Jónasson frá
Húsavík. Því
miður hafa vis-
ur hans ekki
verið gefnar út
á prenti og því
em þær alltaf
birtar eftir
minni og sjálf-
sagt ekki álltaf
rétt með farið.
Eitt sinn gerðist það á Húsavík að
ungt par átti bam í vændum. Undr-
uðust menn hve stuttur aðdragandi
hafði verið að kynn'nn unga pars-
ins. Þá orti Egiil Jónasson þessa
vísu:
Eðlilegan ávöxt bar
allra fyrsta tækifærið,
af því að hann að verki var
vinstra megin við hægra lærið.
Umsjón Sigurdór Sigurdórsson
Hvalfjörður:
Reyni að fá bætur ef
vegurinn verður færður
- segir eigandi Botnsskála
DV, Akranesi
í Hvalfjarðarbotni er Veitinga-
skálinn Botnskáli og er eigandi
hans Pétur Geirsson, veitingamaður
og hótelstjóri Hótels Borgamess.
Nú stendur til að nýr vegur verði
lagður í Hvalfjarðarbotni. Búið er
að fara með lagningu nýja vegarins
í umhverfismat samkvæmt því sem
Helgi Hálfdánarsson vegamálastjóri
segir og kostnaðarmat komið á veg-
inn samkvæmt heimildum DV.
Brýmar yfir Botnsá og Brunná
verða aflagðar og nýi vegurinn lagð-
ur yfir eyramar. Við það mun Botn-
skálinn verða úr alfaraleið.
„Eftir því sem mér skilst er ekki
endanlega ákveðið hvort vegurinn
verður færður og sú lokaákvörðun
hefur ekki verið tekin. Meðan það
er ekki gert get ég ekki sagt neitt
ákveðið um hvað ég geri. Ef vegur-
inn verður færður mun ég reyna að
fá bætur frá Vegagerðinni," sagði
Pétur.
-DVÓ
Kahrs
Káhrs 1. flokks geeðaparket með nýja lakkinu
á verði frá 3.084 lcr./m2 stgr.
Verð áður 3.855 kr./m2
Káhrs spónlagt stafaparket, fulllakkað Askur natur
og Hlynur valinn á verði frá 2.506 kr./m2 stgr.
Verð áður 3.132 kr./m2
Glœsilegt gegnheilt 8 mm Eik Rustik mosaik parket
á verði frá 1.346 kr. /m2 stgr.
Verð áður 1.897 kr./m2
Ótrúlegt úrvdl af glœsilegu gegnheilu stafaparketi
á verði frá 1.841 kr./m2 stgr.
Verð áður 2.419 kr./m2
Terhúrne vegg- og loftþiljur, náttúrusteinn og flísar
með 15-30% afslœtti.
Vandaðar þýskar innihurðir frá Ringo
með 15-20% afslcetti.
rgigfg
rnm
Opið laugardag
frá kl. 10 til 14.
TIL ALLT AÐ 36 MANAOA
Umboðsmenn um land allt.
Dropinn Keflavík, S.G. búðin Selfossi, Byggingavöruverslun Steinars Árnasonar Selfossi,
Kaupfélag Rangæinga Hvolsvelli, Brimnes Vestmannaeyjum, K.A.S.K. járnvörudeild Höfn
i Hornafirði, Verslunin Vík Neskaupstað, Viðarkjör Egilsstöðum, Kaupfélag Vopnfirðinga
Vopnafirði, K.F. Þingeyinga Húsavík, Teppahúsið Akureyri, Verslunin Valberg Olafsfirði,
Byggingarfélagið Berg Siglufirði, Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki, Kaupfélag
Húnvetninga Blönduósi, Kaupfélag V-Húnvetninga Hvammstanga, Núpur (safirði, Byggir
Patreksfirði, Litabúðin Olafsvík, Verslunin Hamar Grundarfirði, Skipavík Stykkishólmi,
Kaupfélag Borgfirðinga Borgamesi, Byggingarhúsið Akranesi, Teppaland Mörkinni 4
Reykjavík, Björninn Borgartúni 2 Reykjavík.
Egill
Arnason
ARMULA 8 & 10 • SIMI 581 2111
rnr iuu regumur ar parneri:
Nú gefst þér fteri á að gerra frábter kaup í parketi: