Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1996, Blaðsíða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996
Fréttir
DV
Smyrill reyndi að elta uppi dúfur:
Greip fljúgandi smyril
sem missti hausinn
Sá sérstæðii atburður átti sér
stað síðastliðið laugardagskvöld að
Guðjón Guðmundsson dúfnaeigandi
greip á lofti smyril sem var að eltast
við eina cif dúfum hann. Smyrillinn
ólánssami varð höfðinu styttri en
Guðjón ætlar að láta tjasla hræinu
saman og stoppa hann upp.
UU llUSinffí
9 0 4 - 5 0 0 0
Verð aðeins 39,90 mín.
Þú þarft aðeins eitt símtal
í Lottósíma DV tii að fá nýjustu
tölur í Lottó 5/38, Víkingalottó
og Kínó t
i
LOTTOsMf/
9 0 4 * 5 0 0 0
|Dctgur-®ímmtt
-besti tími dagsins!
Aðalskipulag Borgarness:
Hélt bara á hausnum
Það var um hálfáttaleytið á laug-
ardagskvöldið að ég fór út til þess
að gefa dúfunum mínum sem ég og
sonur minn erum með héma úti á
lóð. Ég furðaði mig á að það væru
engar dúfur úti á palli nema ein
sem sat sem fastast þó að ég kæmi
alveg upp að henni. Þegar ég fór að
líta betur í kringum mig sá ég hóp
af dúfum flögrandi um en fyrir utan
hópinn voru tveir fuglar, ein af mín-
um dúfum og smyrillinn sem elti
hana. Dúfan tók svo flugið heim og
eftir nokkurn eltingarleik, þar sem
smyrillinn dró stöðugt á dúfuna,
flaug hún alveg á fleygiferð við lær-
ið á mér. Ég teygði hendina
ósjálfrátt út og þá held ég bara á
hausnum á smyrlinum. Þó að hrað-
inn á þessum fuglum sé mikill er
hálsinn greinilega ekki sterkur.
Búkurinn þeyttist undir tröppurnar
hjá mér og þangað varð ég sækja
hann. Ég varð alveg foxillur yfir því
Ég teygði hendina ósjálfrátt út og þá held ég bara á hausnum á smyrlinum.
Þó að hraðinn á þessum fuglum sé mikill er hálsinn greinilega ekki sterkur.
að smyrillinn væri að reyna að áður reynt að hremma dúfurnar en
drepa dúfurnar mínar,“ segir Guð- nú er útséð um að hann angri þær
jón. Hann segir að smyrillinn hafi frekar. -JHÞ
Tenging þjóðvegar 1
efst á baugi
DV, Vestnrlandi:
Nú er unnið hörðum höndum við
vinnu við aðalskipulag Borgarness
og eru það Richard Briem og Indro
Candi skipulagshönnuðir sem vinna
aðalskipulagið.
Fram hafa komið þrjár tillögur
um tengingu þjóðvegar 1 við Borg-
arnes. Sú fyrsta gerir ráð fyrir þjóð-
vegi gegnum þéttbýlið, lítið breytt
frá því sem nú er. Tillaga 2 gerir ráð
fyrir þjóðvegi 1 i samræmi við gild-
andi aðalskipulag og í þriðja lagi
tengingu þjóðvegar 1 fyrir ofan golf-
völlinn.
Að sögn Guðmundar Guðmars-
sonar, forseta bæjarstjórnar Borgar-
byggðar, var samþykkt að mæla
með að farið yrði nærri tillögu 2,
það er núgildandi aðalskipulagi, en
þó eru menn að ræða þar svolítil
frávik.
Þar er fyrst um að ræða að fara
með veginn af landi eins og gert er
ráö fyrir nú og síðan að hann fari
upp á land hjá Bjargi og rétt neðan
við íbúðahyggðina sem við köllum
Bjargsland.
„Það sem að við viljum skoða er
að færa veginn niður í fjöruna alla
leið upp að beygju. Með því móti
mundum við rýma svolítið til fýrir
frekari íbúðabyggð eða annarri
byggð efst í byggðarlandinu eins og
það er í dag,“ sagði Guðmundur.
-DVÓ
Auglýsing um innlausnarverð
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 10.000,00
1984-2.fl. 10.09.96 - 10.03.97 kr. 96.210,50
1985-2.fl.A 10.09.96- 10.03.97 kr. 59.713,90
1985-2.fl.B 10.09.96 - 10.03.97 kr. 28.369,70**
1988-2.fl.D 8 ár 01.09.96 kr. 27.308,10
* Inr.lausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
** Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinis.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, 28. ágúst 1996
SEÐLABANKIÍSLANDS