Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1996, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996
Fréttir
11
Bessastaðabækur Alþýðublaðsins:
Fleiri ánægðir
en óánægðir
- segir Hrafn Jökulsson ritstjóri
„Okkur hafa borist viðbrögð af
Suðumesjum eins og reyndar mörg-
um öðram stöðum á landinu við
skemmtisögu okkar sem gengur
undir nafninu Bessastaðabækurn-
ar,“ segir Hrafn Jökulsson, ritstjóri
Alþýðublaðsins.
Hrafn segir að frá því hann tók
við ritstjóm blaðsins fyrir tveimur
árum hafi hann ekki fengið jafli
mikil viðbrögð vegna efnis í blaðinu
eins og við Bessastaðabókunum og
hafi þau verið bæði neikvæð og já-
kvæð, jákvæð viðbrögð séu þó yfir-
gnæfandi, enda hafi flestir íslend-
ingar húmor, sem betur fer.
„Sumum finnst óviðeigandi að
fjallað sé í léttum dúr um embætti
forseta Islands, en ég held að jafti
gamansamur maður og Ólafur
Ragnar Grímsson hljóti að hafa
húmor fyrir þessu og okkur hafa
engar kvartanir borist af Sóleyjar-
götu,“ sagði Hrafn Jökulsson rit-
stjóri í samtali við DV í gær.
Hrafn vOdi ekki upplýsa hver
væri höfundur Bessastaðabókanna
þar sem það væri leyndarmál sem
væri stranglega gætt. „Það hafa
ýmsir valinkunnir menn verið
bendlaðir við þessi skrif og ég skál
að vísu áskOja mér rétt tO að fría
formann flokksins frá þeim grun,“
sagði Hrafn.
„Ég hef fengið persónulegt bréf frá
einum nafngreindum einstaklingi
þar sem hann lýsir óánægju sinni
með þessa pistla og það er afrit af
bréfi tO ritstjórans. Þetta er það eina
sem ég veit um þetta mál,“ segir Jón
Baldvin Hannibalsson, formaður Al-
þýðuflokksins, jafiiaðarmannaflokks
íslands, sem gefúr út Alþýðublaðið.
Aðspurður um það hvort hann skrifi
Bessastaðabækumar sjálfur, segir
Jón Baldvin: „Það sem ég skrifa,
skrifa ég trndir nafhi og hef gert það
áratugum saman.“ -SÁ
Tekiö að bera á næturfrostum:
Kartöflugrösin falla
- frost hefur farið í 8,4
stig við jörðu
Kartöflugrös i garðlöndum Reyk-
víkinga við Korpúlfsstaði era tekin
að fafla, sem er glöggt merki þess að
haustið nálgast og næturfrost era
að byrja.
Unnur Ólafsdóttir, veðurfræðing-
ur á Veðurstofu íslcmds, segir i sam-
tali við DV að litOlega hafi orðið
vart næturfrosta, einkum í upp-
sveitum, en um næstu helgi, aðfara-
nótt laugardags og sunnudags nk.,
sé von á hæðarhrygg yfir landið og
þá sé að vænta næturfrosta'.
Hitamælingar á veðurtahugunar-
stöðvum fara fram í tveggja metra
hæð yfir jörðu og hingað tO hefur
næturfrosta ekki orðið vart á mæl-
um Veðurstofunnar nema á Hvera-
vöOum, Nautabúi í Skagafiröi og
Tannstaðabakka.
Jónatan Hermannsson, tOrauna-
stjóri á stöð Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins að Korpu, sem er í
túnjaðri Korpúlfsstaða, segir að á
mælum stöðvarinnar hafi nætur-
frost mælst í allmörg skipti undan-
fama daga, en þar er hitastig mælt
í tveggja m hæð yfir jörðu, en
einnig við jörð og verulega sé tekið
að sjá á kartöflugrösum.
Jónatan segir að í tyrrinótt hafi á
Korpu mælst 2,2 stiga frost í tveggja
m hæð, en niðri við jörð hafi frostið
hins vegar orðið 8,4 stig og í heið-
ríkjunni undanfarna fjóra sólar-
hringa hafi mælst næturfrost á
hverri nóttu.
Jónatan segir að um 6 stiga frost
við jörðu þurfi tO að kartöflugrös
skemmist. TO að blöðin deyi þarf
um 8 stiga frost og tO að stönguOinn
drepist þarf um 10 stiga frost. Jafh-
framt þessum tölum skipti tíma-
lengd næturfrostakafla máli, en enn
þá séu frostkaflar hverrar nætur
ekki langir. -SÁ
afsláttur
af öllum notuðum bílum
ef um bein kaup er að ræða.
Lyklarnir okkar ganga aðeins
að góðum notuðum bílum.
Mikið úrval af góðum notuðum Hyundai, Renault,
Lada og mörgum öðrum tegundum.
Þú getur því verið viss um að gera góð kaup.
NOTAÐIR BÍLAR
SUÐURLANDSBRAUT12
SÍMI: 568 1200 BEINN SÍMI: 581 4060
staögreiöslu- og greiðslu-
kortaafsláttur og stighœkkandi
birtingarafsláttur
drtrnilllhimi^
Smáauglýsingar
550 5000