Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1996, Page 17
16
MIÐVIKUDAGUR 28. AGUST 1996
MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996
33
Iþróttir
DV
Iþróttir
4. deMin - 8-liða úrslit:
Markvörðurinn skoraði fyrir KVA
KVA er búið að tryggja sér sæti í undanúrslitum 4. deildarinnar í knattspyrnu ásamt
Létti, Sindra og Bolungarvík. Samanlögð úrslit eru í sviga.
KVA sigraði Njarðvík 1-3 (2-8), Aron Haraldsson 1, Dragan Stojanovicl, en síðan
skoraði markvörður liðsins, Gunnleifur Gunnleifsson, mark úr vítaspyrnu. Ingvar
Georgsson skoraði fyrir Njarðvík.
Léttir sigraði Hauka á Ásvöllum í gær 0-1 (2-4) og skoraði Guðmundur Þórðarson.
Bolungarvík náði að vinna Víking Ö. 3-0 (4-3) Pétur Jónsson 1, Stefán Andrésson 2 vsp.
Sindri nældi sér í sæti í undanúrslitum af miklu harðfylgi í gær þegar liðið sigraði KS
6-1 (6-4) eftir framlengingu. Staðan var 3-0 eftir venjulegan leiktíma. Pálmar Hreinsson
1, Hjalti Vignisson 1, Ejub Puracevic 2, Júlíus Valgeirsson 2. -JGG
Ball hættur hjá Manch. City
Alan Ball hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri hjá enska 1. deildar liðinu
Manchester City. Hann var aö eigin sögn óánægður með gengi liðsins en á þeim tíma sem
hann hefur verið framkvæmdastjóri hefur það leikið 49 leiki undir hans stjórn, unnið 13,
gert 14 jafntefli og 22 hafa tapast. Liðið hefur byrjað þetta tímabil iUa, tapað tveimur af
fyrstu þremur leikjunum. Vonir voru bundnar við gott gengi og raunar var stefnt að því
að liðið endurheimti sæti sitt í úrvalsdeildinni sem það missti á sl. vori.
í gær fóru umræður í gang um hugsanlegan eftirmann Alan Ball hjá Manchester City.
Þeir sem nefndir voru til sögunnar voru George Graham, fyrrum stjóri hjá Arsenal,
Kenny Dalglish og Bruce Rioch sem var látinn taka poka sinn hjá Arsenal á dögunum.
Stjómarmenn Manchester City vörðust allra frétta en sögðu þó afar brýnt að ráða mann
í stöðuna hið allra fyrsta. Tt^„
Gylfi Orrason.
Gylfi dæmir í Helsinki
Gylfi Orrason hefur verið tilnefndur af Alþjóða knattspyrnu-
sambandinu til að dæma viðureign Finna og Svisslendinga i
riðlakeppni heimsmeistaramótsins sem fram fer i Helsinki 7.
október. Þetta verður ekki eina verkefni Gylfa á finnskri grund
í vetur því hann hefur verið settur á leik MyPa og Liverpool í
Evrópukeppninni þann 12. september. Aðstoðardómarar í þeim
leik verða Sæmundur Víglundsson og EgiU Már Markússon. ís-
lensk dómarastétt hefur í nógu að snúast á næstunni en á
laugardaginn kemur dæmir Guðmundur Stefán Maríusson leik
Svía og Dana í Evrópukeppni kvenna. Aðstoðardómarar í þeim
leik verða Pjetur Sigurðsson og Kári Gunnlaugsson.
-JKS
Hið árlega Ragnars-
mót byrjar í dag
Hið árlega Ragnarsmót í hand-
knattleik byrjar í dag á Selfossi
og endar á föstudaginn.
Gestir mótsins eru Stjaman,
ÍR og HK en mótið er haldið í
minningu Ragnars Hjálmtýsson-
ar.
Lárus maður leiksins
Láms Orri Sigurðsson, leik-
maður Stoke í Englandi, var val-
inn maður leiksins eftir leik liðs-
ins gegn Manchester City.
Láms fékk 8 í einkunn frá
tímaritinu People en enginn
leikmaður fékk svo háa einkunn.
Hann var langbesti maður leiks-
ins.
Couto til Barcelona
Portúgalski landsliðsmaður-
inn, Fernando Couto, hefur
skrifað undir fjögurra ára samn-
ing við spænska stórliöið
Barcelona.
Couto greindi frá þessu í við-
tali við útvarpsstöðina TSF og
sagðist hann yfirgefa Parma til
að spila með landsliðsfélögum
sínum, Vitor Baia markverði og
Luis Figo, sem leika með Börs-
ungum.
Fyrsta sinn í 11 ár
Leikreyndasti leikmaður irska
landsliðsins, Paul McGrath, var
ekki valinn í landsliðshóp íra
sem mætir Lichtenstein í und-
ankeppni HM og er þetta í fyrsta
sinn í 11 ár sem McGrath er ekki
í hópnum.
Þessi 36 ára gamli leikmaður
Aston Villa lauk landsliðsferli
sínum því í apríl sl. þegar írar
unnu Tékka í Prag.
Hættur hjá Rovers
Jimmy Thomson, fyrrum
framkvæmdarstjóri Raith
Rovers í Skotlandi, er fyrsti
þjálfari í skosku deildinni til að
fá reisupassann, en lið hans sit-
ur á botni deildarinnar.
Thomson hætti eftir að stjóm-
armenn félagsins báðu hann um
aö taka aftur við starfi unglinga-
þjálfara félagsins.
Raith tapaði fyrstu tveimur
leikjum timabilsins á móti Glas-
gow Rangers og Celtic, en þeir
unnu Motherwell síðan 3-0 á
bjóði 400 milljónir í hann.
„Þegar svona góður leikmaður
er á lausu læt ég ekki mitt eftir
liggja heldur gríp tækifærið,"
sagði Gullit. Hjá félaginu eru nú
þegar ítölsku leikmennimir
DiMatteo og Vialli.
Ruddock vill fara
Neil Ruddock, varnarjaxl úr
Liverpool, hefur farið fram á
sölu frá félaginu og verður
beiðni hans tekin fyrir í vikunni
en það er talið líklegt að hann
fari til Newcastle til félaga síns,
Alan Shearer. -JGG
Hvað gera okkar menn
gegn silfurliðinu á EM?
- íslendingar mæta landsliði Tékka, sem sló í gegn í Evrópukeppninni í sumar, þann 4. september
Eftir 2-1 heimasigur ís-
lenska landsliðsins á
Möltu 14. ágúst sl. á Laug-
ardalsvelli verður gaman
að fylgjast með liðinu þeg-
ar það mætir landsliði
Tékklands í vináttu-
landsleik 4. september nk.
í Jablonec, Tékklandi.
í samkomulagi á milli
liðanna var ákveðið að
leika heima og heiman en
dagsetningin á heimaleik
íslands er óákveðin. Sá
leikur verður án efa einn
af hápunktum 50 ára af-
mælis KSÍ sem er á næsta
ári.
„Þetta er mikill heiður
fyrir íslenskan fótbolta að
fá þama tækifæri til að
mæta silfurliði Evrópu-
keppninnar og er þetta
undirbúningur fyrir þrjú
erfið verkefni í vetur þeg-
ar viö spilum í und-
ankeppni HM,“ sagði Egg-
ert Magnússon, formaður
KSÍ, á blaðamannafundi í
gær.
Poborsky og Berger
meö?
„Þetta verður mjög erf-
iður leikur fyrir okkur og
reynir mikið á vömina en
við mætum óhræddir til
leiks. Þetta er gott próf
fyrir átökin í haust og eig-
um við ekki von á öðru en
að þeir verði með sitt
sterkasta lið því þetta er
einnig undirbúningur fyr-
ir þeirra HM leiki,“ sagði
Logi Ólafsson landsliðs-
þjálfari. Þess má geta að
lið Tékka var valið í
morgun og verður það
birt í DV á morgun.
Eins og menn muna
voru Tékkar spútniklið
Evrópukeppninnar í Eng-
landi í sumar og fóra alla
leið í úrslitaleikinn þar
sem þeir töpuðu fyrir
sterku liði Þjóðverja.
Margir af leikmönnum
liðsins vöktu mikla at-
hygli stærstu liða Evrópu
og ber þá helst að nefna
Karel Poborsky, sem
skoraði eftirminnilegt
mark gegn Portúgal, en
Manchester Utd. keypti
hann strax eftir Evrópu-
keppnina, og Patrick
Berger sem er genginn til
liðs við Liverpool og á
eflaust eftir að slá í gegn á
Anfield.
Þórður og Guöni í
hópinn
Það em tvær breyting-
ar á íslenska liðinu frá
því í leiknum á móti
Möltu. Amór Guðjohnsen
og Hlynur Birgisson eru
ekki með. Þórður Guð-
jónsson og Guðni Bergs-
son koma inn í liðið aftur.
Örebro, lið Hlyns og Am-
órs, á leik sama dag og
landsleikurinn gegn
Tékkum verður. „Hlynur
meiddist á nára í síðasta
leik og verð ég líka að
taka tillit til Örebro þar
sem þeir eiga leik sama
dag. Arnór þarf líka á
hvíld að halda enda hefur
verið mikið álag á hon-
um. Hann hefur spilað
alla leiki með Örebro,
spilað í Inter-Toto keppn-
inni og í landsleikjum,"
sagði Logi.
Ákveöiö t
sameiningu
„Ég og Amór ákváðum
þetta í sameiningu og síð-
an talaði ég við þjálfara
Örebro, Sven Dalquist,
um þetta og kom okkur
saman um að stýra álag-
inu á Amóri svo hann
geti fengið lystina á ný.
Hann hefur virkað þung-
ur, bæði líkamlega og
andlega," sagði Logi.
„Þórður Guðjónsson fékk
einhvem vhrus og hefúr
ekki verið í liði Bochum
enda hefúr liðinu gengið
vel og menn breyta yfir-
leitt ekki sigurliði en ég
veit að Þórður kemur til
með að styrkja þennan
hóp.“
Gummi Ben. funheit-
ur
„Hvað varðar Guð-
mund Benediktsson þá er
hann að ná sér og auðvit-
að viljum við að hann fái
tækifæri til að sýna hvort
þessi meiðsli hái honum.
Ég vona að hann haldi
áfram á sömu braut því
hann hefur verið funheit-
ur i sumar og sýndi það
þetta kortér sem hann
spilaði gegn Hvít-Rússun-
um,“ sagði Logi.
Annar leikur íslend-
inga í undankeppni HM
'98 verður 5. okt í Litháen
en þeir spila síðan við
landslið Rúmena 10. októ-
ber hér heima. Þriðji leik-
urinn er gegn írlandi 10.
nóvember í Dublin. Það
er ljóst að íslenska lands-
liðið á fyrir höndum erfitt
verkefni, sérstaklega eftir
að einungis 1-1 jafntefli
náðist gegn Makedóníu 1.
júní sl. í fyrsta leik liðsins
í undankeppninni.
„Það em vonir um að
ná upp góðri stemningu
meðal áhorfenda í leikn-
um gegn Rúmenum hér
heima en þá þarf að ná
góðum úrslitum í Lithá-
en,“ sagði Eggert Magnús-
son.
-JGG
1. deild kvenna:
Breiðablik
tapar ekki leik
- vann Aftureldingu, 10-0
Öll úrslit í 1. deild kvenna i
gær voru eftir bókinni.
Það er ekki mikil spenna eft-
ir í mótinu því Breiðablik er
búið að tryggja sér íslands-
meistaratitilinn og hefur enn
ekki tapað leik. Fórnarlömb
gærkvöldsins vom stúlkurnar
úr Aftureldingu og lokastaðan í
leiknum var 10-0. Margrét
2-0. Elena Einisdóttir og Anne
Li Löwgren skomðu mörkin.
Valur sigraði Stjömuna, 3-0,
á Hlíðarenda. Kristbjörg Inga-
dóttir, Bergþóra Laxdal og Ás-
gerður Ingibergsdóttir skoruöu
eitt mark hver.
Staðan í 1. deiid
heimavelli sl. laugardag. Ólafsdóttir, Helga Ósk Hannes- Breiðablik 11 11 0 0 63-3 33
Gullit vill fá Ginola dóttir, Stojanka Nikolic 2, KR 11 8 2 1 37-10 26
Kristrún Daðadóttir 4 og Erla ÍA 11 6 2 3 23-11 20
Hendriksdóttir 2. Valur 11 6 2 3 26-14 20
Ruud Gullit, þjálfari Chelsea, KR-stúlkur fóru með sigur af Stjaman 11 4 0 7 17-27 12
er víst ekki hættur að kaupa því hólmi uppi á Skaga, 0-2, með ÍBA 11 2 1 8 11-31 7
nú er hann á höttunum eftir mörkum frá Ásdísi Þorgilsdótt- ÍBV 11 2 1 8 10-34 4
frönskum leikmanni Newcastle, David Ginola, og er talið aö hann ur og Olgu Færseth. ÍBV átti ekki í erfiðleikum Afturelding 11 1 0 10 7-64 3 -JGG
Evrópukeppni Bikarhafa:
Má alls ekki
vanmeta KR
-segja forráðamenn AIK
DV, Svíþjóð
með ÍBA og vannst leikurinn
Breiöabliksstúlkur fagna hér íslandsmeistaratitli sínum
sem þær tryggöu sér gegn KR í síöustu umferö. Þær
eru enn taplausar, unnu Aftureldingu í gær, 10-0.
Nú er beðið með eft-
irvæntingu leiks
KR-inga og sænska
úrvalsdeildarliðsins
AIK frá Stokkhólmi
sem verður 12. septem-
ber í Reykjavík og 26. í
Stokkhólmi í Evrópu-
keppni bikarhafa.
DV náði tali af Erik
Hamrén, þjálfara AIK,
og Stefani Söderberg,
framkvæmdastjóra fé-
lagsins. „Ég vissi ekki
mikið um KR en ég
fékk upplýsingar hjá
þjálfara Oddevold sem
sá liðið spila gegn
Mozyr,“ sagði Erik.
„Það er algjört bull
og kjaftæði að líta á
KR sem létta mótherja
og í sambandi við það
er best að minnast
landsleikja íslands og
Svíþjóðar í fyrra þar
sem aðeins náðist
naumur sigur úti og
jafntefli heima. Ég ber
mikla virðingu fyrir
íslenskum fótbolta,"
bætti hann við.
„Við vitum að það
er erfitt að mæta liði
frá íslandi. Við þekkj-
um Guðmund Bene-
diktsson þar sem hann
æfði meö okkur
þannig að við vitum
hversu duglegur leik-
maður hann er. KR-
ingar eru með mjög
gott lið og þeir verða
erfiðir. Það verður
enginn leikarskapur
af okkar hálfu og verð-
ur gaman að mæta ís-
lensku liði,“ sagði
Stefan. „Við ræddum
um þennan leik á
sunnudaginn og þar
var einróma álit
manna að alls ekki
mætti vanmeta KR.“
-EH/JGG
Reykjalundarhlaupið:
Flestir þátttakenda skokkuðu eða voru gangandi
Mjög góð þátttaka var í níunda Reykjalund-
arhlaupinu sem þreytt varw um síöustu helgi.
Um 500 manns tóku þátt í þessu rótgróna al-
menningshlaupi í Mosfellsbæ. Flestir fóru
skokkandi eða gangandi þriggja kílómetra leiö
í nágrenni Reykjalundar. Einnig var töluverður
hópur sem fór sex kílómetra.
Að þessu sinni hlupu 38 hlauparar 14 kíló-
metra leiðina og þar var Hólmfríður Ása Guð-
mundsdóttir fyrst kvenna á tímanum 1:02,24
klst. en fyrstur karla kom í mark Guðmundur
Valgeir á tímanum 55.41 mínútu. Brautarmet
Toby Tansers frá árinu 1993 stendur því enn en
það er 45,37 mínútur. Margir dugnaðarforkar
fóru styttri leið inn við Reykjalund, sumir í
hjólastólum eða með önnur hjálpartæki en
þriggja km leiðin var þó vinsælust eins og
venjulega í Reykjalundarhlaupinu.
Þó nokkuð var um að þátttakendur gengju þá
leið og ýmsir tóku ungbörn sín með. Ekki var
um neina sérstaka tímatöku að ræða í styttri
vegalengdum en allir þátttakendur í 14 km
hlaupahringnum í kringum Úlfai'sfell fengu
tímaskráningu.
Eins og áður sagði sigraði Hólmfriður Ása
Guðmundsdóttir í 14 km hlaupi kvenna. Helga
Zoega varð önnur á 1:04,15 klst, Lára Sturludótt-
ir þriðja á 1:16,50 klst, Björg Magnúsdóttir
fjórða á 1:21,29 klst. og í fimmta sæti kom Kol-
brún Benediktsdóttir á 1:22,44 klst.
Guðmundur Valgeir sigraði í karlaflokki.
Dagui' Egonsson varð annar á 55,50 mín, Jó-
hann Heiðar Jóhannsson lenti í þriðja sæti á
57,51 mín, Stefán Hallgrímsson fjórði á 58,19
mín og i fimmta sæti hafnaði Vöggur Magnús-
son á 58,21 mín. -JKS
Islenska
landsliðið
Svona lítur landslið íslendinga í
knattspyrnu, sem mætir Tékk-
um, út.
Markverðir:
Birkir Kristinsson...Brann
Kristján Finnbogas......KR
Vamarmenn:
Guðni Bergsson .....Bolton
Rúnar Kristinsson..Örgryte
Ólafur Adolfsson........lA
Hermann Hreiðarss.........ÍBV
Lárus Orri Sigurðss..Stoke
Miðjumenn:
Ólafur Þórðarson ..........ÍA
Sigurður Jónsson....Örebro
Bjarki Gunnlaugss.Mannheim
Heimir Guðjónsson ......KR
Einar Þór Daníelss......KR
Þórður Guðjónsson......Bochum
Sóknarmenn:
Eyjðlfur Sverrisson.H. Berlín
Helgi Sigurðsson.TB Berlín
Rikharður Daðason ......KR
Logi sér Rúmena
og Lítháa úti
Logi Ólafsson landsliðsþjálfari
fer út um helgina til að fylgjast
með innbyrðisleik U-21 og
A-landsliða Rúmena og Litháa í
undankeppni HM '98 en leikirn-
ir eru i Búkarest.
Hann fer síðan til Englands og
sér þar Guðna Bergsson spila í
leik Bolton og QPR í 1. deild
ensku knattspymunnar. Þeir
hitta síðan íslenska landsliðið á
Heathrow flugvelli.
Tvö landslið í
úrslitum 1997?
Úrslitakeppni U-16 ára lands-
liða verður í þýskalandi á næsta
ári en lið íslands á góöa mögu-
leika á að spila þar. 16 lið spila
þar.
Sigurvegari á þriggja liða
móti, sem haldið verður á Akra-
nesi og Borgamesi, vinnur sér
rétt til að spila í úrslitakeppn-
inni. ísland, Færeyjar og Lúxem-
borg eigast viö á þessu móti.
Ef U-16 ára landsliðinu tekst
að sigra á þessu móti þá eigum
við tvö landslið í úrslitakeppni á
næsta ári því sjálf úrslitakeppni
U-18 ára landsliða verður haldin
hér á landi í júli á næsta ári og
yrði þetta því mikill sigur fyrir
KSÍ á 50 ára afmæli þeirra. „Við
gerum okkar miklar vonir með
U-16 ára liðið,“ sagði Eggert
Magnússon, formaður KSÍ.
Margir góðir
inni í myndinni
Logi Ólafsson nefhdi nokkra
leikmenn sem eru inni í mynd-
inni hjá KSÍ hvaö varðar
undirbúning fyrir HM 1998 sem
haldið verður í Frakklandi.
Hann nefndi þar Arnar Grét-
arsson, Breiðabliki, Guðmund
Benediktsson, KR, Ágúst Gylfa-
son, Brann, Pétur Marteinsson,
Halmstad, Hlyn Stefánsson, íBV,
og svo að sjálfsögðu Amar
Gunnlaugsson sem er farinn að
hreyfa sig með Sochaux, og Eið
Smára Guðjohnsen, PSV Eind-
hoven, en hann er allur að kom-
ast í gang eftir að hann fótbrotn-
aði. -JGG
Logi Ólafsson, landsliösþjálfari, á erfitt verkefni fyrir höndum þegar landsliöiö spilar gegn Tékklandi 4. sept. Eftir
þann leik tekur viö undankeppni HM 1998 en l'sland er í riöli meö Makedóníu, írlandi, Rúmeníu og Litháen og veröa
fyrstu ieikirnir á dagskrá í haust.